Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 20

Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Vestmannaeyjar | Nýsköpunarstofa í Vestmannaeyjum er að leggja loka- hönd á undirbúning vegna náms í viðburðastjórnun. Kennsla hefst í janúar ef næg þátttaka fæst. Sig- urjón Haraldsson, forstöðumaður Nýsköpunarstofunnar, telur að námið geti orðið vísir að háskóla í Vestmannaeyjum. Námið er í raun þríþætt. Viska – símenntunarstöð mun sjá um grunn- nám, Framhaldsskólinn í Vest- mannaeyjum mun standa fyrir tveggja ára starfsnámi á framhalds- skólastigi og einnig verður boðið upp á 60 eininga starfstengt diplóma- nám á háskólastigi. Sigurjón Haraldsson segir hug- myndina um nám í viðburðastjórnun hafa orðið til áður en hann kom til Eyja. „Hugmyndin kom upp og tengist greiningu á vandamálum sem koma upp í byggðarlögum þeg- ar ungt fólk flytur burt til að afla sér frekari menntunar og fær ekki at- vinnu við sitt hæfi að námi loknu. Í framhaldinu var farið yfir hvað við gætum gert til að halda ungu fólki í sveitarfélögum svipuðum Vest- mannaeyjum og fara yfir hvaða auð- lindir væru til staðar. Vinna að loknu námi Í Vestmannaeyjum er öflugt íþrótta- og menningarlíf, eins og víða annars staðar, og margir við- burðir settir upp. Menn hafa séð í þessu fjáröflun fyrir félagasamtök en víða erlendis sjá menn þetta sem starfsgrein með arðsemi. Menn lokka fjárfesta til að setja fjármagn í leiksýningar, tónlistarsýningar, ráð- stefnur svo eitthvað sé nefnt.“ Sigurjón segir viðburðastjórn- unarnám til í annarri mynd í Dan- mörku. „Ég sá fyrir mér hvernig ég gæti tengt það bæjarfélaginu hér og sett upp nám sem gæti skapað at- vinnu að því loknu. Ég fékk fólk með mér í verkefnastjórn og við fórum yfir málin. Helgi Baldursson þekkir vel til þessara mála og hefur sett upp námskeið og fjarnámsnámskeið fyrir ýmsa aðila og verslunarstjóra- námskeið á Bifröst sem hann setti upp á sínum tíma fékk nýsköp- unarverðlaun á þessu ári. Bergþóra Þórhallsdóttir, hjá Visku, kom með annað sjónarmið og út frá þessum hugmyndum þróaðist námið. Fólk getur komið inn á hvaða skólastigi sem er, frá framhaldsskóla að há- skólastigi. Tækifæri skapast fyrir þá sem eru atvinnulausir en þeir geta farið í fornám hjá Visku. Námið ætti því að henta öllum sem hafa áhuga á viðburðastjórnun.“ Sigurjón segir námið nýtt og óvenjulegt þar sem það byggist líka á verklegu námi. Nemendur eru hálfan daginn í verklegum þætti og hálfan daginn í bóklegu. Verklegi þátturinn byggist á því að skipu- leggja verk og fylgja þeim eftir. Það ætti að skapa ákveðinn stuðning fyr- ir samfélagið hér og ekki bara fyrir Vestmannaeyjar. Fólk gæti á síðari stigum unnið að verkefnum í sinni heimabyggð. Háskólanámið er sextíu eininga diplóma-nám. Nemendur fara aldrei annað, námið er staðbundið og nem- endahópurinn verður hér. Hins veg- ar getur verið að kennarar verði annars staðar og kenni um fjar- fundabúnað. Verklegi hlutinn fer fram í Íþróttamiðstöðinni en það ræðst af fjölda nemenda hvort kennt verður á fleiri stöðum.“ Sigurjón sér fyrir sér að stofnaður verði háskóli í framtíðinni. Menn hafa rætt um þetta sem háskólaset- ur en ég sé fyrir mér að hér verði há- skóli sem sinni ákveðnum þáttum. Bæði nemendur og kennarar verði hér og síðar myndist samstarf við aðra háskóla. Þannig getum við kennt og fengið kennslu í gegnum fjarfundabúnað. Ef við ætlum að breyta samfélaginu hér og fá hingað menntað fólk verðum við að breyta aðstæðum t.d. með háskóla.“ Þegar Sigurjón er spurður nánar út í þessa hugmynd segist hann sjá fyrir sér félagsvísindadeild með ferða- og viðburðastjórnun og nátt- úrufræðideild. „Við höfum mögu- leika á því að tengjast erlendum há- skólum, getum verið með verklega þáttinn hér er varðar jarðfræði, sjávarlíffræði og fleira. Við höfum umhverfið, erum með rannsókn- arstofur og Rannsóknasetrið. Heil- mikið er til af ónýttu húsnæði sem gæti nýst sem kennsluaðstaða. Eins og háskóli er í dag þá þurfa menn ekki lengur að hugsa í kössum, há- skóli er orðinn að netverki.“ „Það tekur ákveðinn tíma að kynna nýtt námsframboð,“ segir Sigurjón sem sér fyrir sér að eftir tíu ár geti 700 manns tengst skól- anum í Eyjum, þegar jaðaráhrif verða tekin með í reikninginn. Háskólanám hefst í janúar Eftir diplóma-námið geta nem- endur bætt við sig einu ári í fjarnámi og fá þá BS-gráðu. „Þetta er fyrst og fremst stjórnunarnám, þ.e. einblínt er á þann þátt að stjórna viðburðum og öllu sem þeim viðkemur. Ef vel á að vera felst í því í heilt starf að skipuleggja einn einstakan viðburð. Oft fer eitthvað úrskeiðis vegna þess að menn ætla of stuttan tíma í und- irbúning. Upphaflega er námið mið- að við rekstrarfræðinám í Tæknihá- skólanum en nú er hann að sam- einast Háskólanum í Reykjavík. Ef nægileg þátttaka næst þá hefst há- skólanámið hjá okkur í janúar,“ sagði Sigurjón. Ekki er endanlega ljóst hvort Nýsköpunarstofa ráði kennara í upphafi en námið verði síðan metið í hinum sameinaða há- skóla þegar hann verður tilbúinn. Hefja kennslu í viðburðastjórnun á háskólastigi Morgunblaðið/Sigurgeir Undirbúningshópurinn Þau hafa stjórnað undirbúningi háskólanámsins, f.v. Ólafur H. Sigurjónsson skólameist- ari, Bergþóra Þórhallsdóttir, forstöðumaður Visku, og Sigurjón Haraldsson, forstöðumaður Nýsköpunarstofu. LANDIÐ AKUREYRI GEFIN hefur verið út keppnislýsing fyrir al- þjóðlega hugmyndasamkeppni sem „Akur- eyri í öndvegi“ stendur fyrir varðandi skipu- lag miðbæjarins á Akureyri og hefur samkeppninni því formlega verið hleypt af stokkunum. Keppnin er haldin í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og er hún opin öll- um sem áhuga hafa á málinu. Hugmyndir þurfa að hafa borist í síðasta lagi 1. mars nk. og mun dómnefnd kynna úrslit um miðjan apríl. Verðlaun verða afhent sumardaginn fyrsta, 21. apríl 2005. Eins og fram kemur í keppnislýsingu hafa forsendur keppninnar verið mótaðar með víðtæku samráði við fjölda hagsmunaaðila á Akureyri, þar með talið bæði aðstandendur Akureyrar í öndvegi og íbúa bæjarins. Fundað hefur verið afmörkuðum hópum hagsmunaaðila auk þess sem keppnislýsingin tekur mikið mið af þeim hugmyndum sem íbúar komu á framfæri á opnu samráðsþingi sem haldið var í bænum í haust og var sótt af tæplega 1.500 íbúum. Í keppnislýsingunni er m.a. kveðið á um þau markmið, að Akureyri festi sig í sessi sem helsti þéttbýlisstaður og þungamiðja menningar, mennta, verslunar og þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins, að Akureyri hafi sterkt aðdráttarafl fyrir íbúa, ferðamenn og fyrirtæki, að fleira fólk eigi þess kost að búa í og við miðbæinn, að í miðbænum verði í boði fjölbreytt þjónusta, að miðbærinn verði suðupottur mannlífs, menningar, lista og við- skipta og verði helsti vettvangur samveru- stunda og hátíðahalda bæjarbúa. Verðlaunaféð er 7,5 milljónir Verðlaunafé í samkeppninni er samtals 86.000 evrur, eða um 7,5 milljónir króna. Auk þess er gert ráð fyrir að Akureyri í öndvegi kaupi einstakar hugmyndir fyrir að 8.600 evrur í viðbót og eignist þannig afnotarétt af viðkomandi lausnum. Allar upplýsingar um keppnina, keppnisgögn og fjöldi mynda af bænum og nágrenni hans eru aðgengileg á vefsíðu Akureyrar í öndvegi, www.vision-ak- ureyri.is hvort heldur er á íslensku eða ensku. Það er nýmæli í svona keppnum hér á landi að keppnisgögnin séu eingöngu á raf- rænu formi en það er gert til að einfalda og jafna aðgang allra þátttakenda að gögnun- um, sama hvar þeir eru staðsettir í heim- inum, segir í fréttatilkynningu verkefnisins. Það er nýnæmi að keppni eins og þessi sem snýst um skipulag miðbæjarkjarna sé skipulögð og framkvæmd af einkaaðilum sem hafa átt frumkvæði bæði að verkefninu og samvinnu við bæjarfélagið. Það eru fimm- tán úr hópi öflugustu atvinnuveitenda á Ak- ureyri sem hafa tekið höndum saman um fjármögnun og framkvæmd verkefnisins og hefur verið lögð mikil áhersla á góða sam- vinnu við Akureyrarbæ enda í verkahring bæjarins að annast skipulagsmál. Þessi öfl- ugi hópur bakhjarla ætti líka að geta orðið til að flýta fyrir framkvæmdum við útfærslu verðlaunatillagna þannig að raunverulegs ávinnings af verkefninu sjái stað ennþá fyrr en ella. Samkeppni um skipulag miðbæjarins á Akureyri er komin af stað Miðbærinn verði suðupottur mannlífs, lista og viðskipta Morgunblaðið/Kristján Samkeppni Markmiðið með hugmyndasamkeppninni um skipulag miðbæjarins er m.a. að fjölga þar fólki og auka þjónustu. Verðlaun verða afhent sumardaginn fyrsta á næsta ári. Kórsöngur | Tónleikar til styrktar Mæðrastyrks- nefnd Akureyrar fara fram í Akureyrarkirkju nk. fimmtudagskvöld kl. 20. Kvennakór Akureyrar heldur tónleikana ásamt Stúlknakór Akureyrar- kirkju og Kór Glerárkirkju. Á efnisskrá verða jóla- lög og önnur þekkt lög sem eiga vel við á þessum árstíma. Þetta er í annað sinn sem tónleikar sem þessir eru haldnir, í fyrra safnaðist vel og er það einlæg von kórfélaga að fólk sjái sér fært að eiga notalega stund í Akureyrarkirkju og styrkja um leið gott málefni. Stjórnendur kóranna eru Þór- hildur Örvarsdóttir, Eyþór Ingi Jónsson og Hjört- ur Steinbergsson. Verð aðgöngumiða er að lág- marki kr. 1000 fyrir fullorðna en ekkert gjald er fyrir börn. Frjáls framlög eru einnig vel þegin. Í lok tónleikanna verður afraksturinn færður Mæðrastyrksnefnd. Hvít og falleg jól | „Við ætlum að halda okkur við hvít jól. Hvít og falleg jól,“ segir í jólaveðurspá Veðurklúbbsins á Dalbæ í Dalvíkurbyggð. Þar segir að jólatunglið kvikni í norðri 12. desember og verður fullt á annan í jólum. „Við eigum ekki von á miklum breytingum með því tungli, helstar þær að norðanáttir gætu orðið harðari og ekki loku fyrir það skotið að meira eigi eftir að snjóa,“ segja fé- lagarnir. Stórra breytinga á veðurfari sé því ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi með þorratungli sem kviknar þann 10. janúar segja klúbbfélagar. Hraðskákmót | Stefán Bergsson sigraði á haust- hraðskákmóti Skákfélags Akureyrar sem haldið var síðustu helgi. Stefán hlaut 15 vinninga af 16 mögulegum. Í 2.-3. sæti urðu Þór Valtýsson og Unnar Þór Bachmann með 11,5 vinninga og í 4. sæti varð Sigurður Eiríksson með 11 vinninga. Stefán vann því tvöfalt í haustmótinu því hann vann einnig hægu skákina. Næsta mót hjá félaginu er Atskákmót Akureyrar sem hefst fimmtudaginn 2. desember kl. 20 og því verður framhaldið sunnu- daginn 5. desember kl 14. Teflt er að venju í KEA salnum Sunnuhlíð og eru allir velkomnir.       Nágrannar senda baráttukveðju | Á fundi fastanefnda Þingeyjarsveitar og sveitarstjórnar sem haldinn var í Stórutjarnaskóla á mánudags- kvöld var íbúum Skútustaðahrepps send stuðn- ings- og baráttukveðja vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin í atvinnumálum sveitarfé- lagsins. „Fundurinn skorar jafnframt á stjórnvöld að taka saman höndum með íbúum Skútustaða- hrepps og grípa nú þegar til aðgerða til eflingar at- vinnulífs í Mývatnssveit,“ segir ályktun frá fund- inum.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.