Morgunblaðið - 01.12.2004, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 23
DAGLEGT LÍF
Craig kom til landsins í síð-ustu viku til að fylgja eft-ir íslenskri útgáfu á bókhans um drauma. Craig e
draumspakur maður og í bókinni
leiðbeinir hann fólki með að lesa í
drauma sína og læra af þeim. En
Craig er miklu meira en draumales-
ari, hann er einn frægasti miðill
Bretlands og segir miðilsgáfuna
hafa fylgt sér svo lengi sem hann
man. „Þetta var alltaf þarna. Þegar
ég var barn að aldri þá sá ég árur
fólks og dáið fólk og ég var líka
strax mjög næmur á tilfinningar
fólks. En ég gerði ekkert með þessa
hæfileika fyrr en ég fór sem ungur
maður með systur minni á miðils-
fund með hinum fræga miðli Doris
Stokes. Doris kom sér beint að efn-
inu og sagði mér að ég ætti eftir að
starfa sem miðill og ætti eftir að
fara um alla veröld og miðla mínum
hæfileikum. Hún var mjög viss í
sinni sök og ég leit á þetta sem
hvatningu. Eftir að hafa hugsað ráð
mitt vel, ákvað ég að snúa baki við
glæstum starfsframa sem ég hafði
byggt upp og snúa mér að því að
þjálfa miðilshæfileika mína. Síðan
hefur þetta verið mitt aðalstarf.“
Persónuleikinn lifir dauðann af
Jane eiginkona Craigs er einnig
miðill og þau koma fram saman í
miðilsstörfum sínum. Hann segist
ekki vera í því að segja til um fram-
tíð fólks því hann álítur að framtíðin
sé fyrst og fremst í höndum hvers
og eins. „Reyndar unnum við hjónin
eitt sinn við þátt í sjónvarpi þar sem
hlutverk okkar var að segja fyrir
um fréttir í heiminum viku fram í
tímann. Allt sem við sögðum gekk
eftir og má þar nefna sem dæmi
eldsvoðann mikla í Windsor-kastala
fyrir nokkrum árum. En þetta er
ekki það sem ég vil fást við og starf
mitt í dag felst fyrst og fremst í því
að sanna að persónuleiki ein-
staklings lifir af líkamlegan dauða.
Ég get ekki staðfest tilveru guðs,
aðeins að lífið heldur áfram eftir
dauðann.“
Að dreyma er hluti af lífinu
Að sögn Craigs geta draumar
sagt okkur mikið um okkur sjálf og
þeir geta hjálpað okkur við að koma
jafnvægi á tilfinningar okkar, ef við
hlustum á þá. „Við myndum hrein-
lega springa ef okkur dreymdi ekki.
Sumir halda því fram að þá dreymi
aldrei, en það er ekki rétt. Rann-
sóknir sýna ótvírætt að okkur
dreymir öll, en sumir muna ekkert
eftir draumum sínum,“ segir Craig
sem skiptir draumum í þrjá meg-
inflokka: Drauma sem byggjast á
tilfinningum okkar og daglegum
hugsunum, drauma þar sem skap-
andi hugmyndir okkar birtast,
(margir rithöfundar hafa til dæmis
fengið hugmyndir að bókum sínum í
gegnum drauma og svo er einnig
um margar merkar vísindalegar
uppgötvanir), og svo eru „stóru
draumarnir“ eins og hann kallar þá.
„Stóru draumarnir eru andlegir
draumar fullir af táknum þar sem
fólki birtist merking lífsins, um
hvað dauðinn snýst og annað í þeim
dúr.“
Draumar eru læknandi
Í bók Craigs fræðir hann almennt
um drauma, kennir að lesa í tákn,
hvernig á að muna drauma og vinna
úr draumum og þar er líka draum-
orðabók. Craig ráðleggur fólki að
halda draumadagbók til að geta
borið saman drauma sína og taka
eftir endurteknum táknum. „Það er
mjög áríðandi að skrifa drauma sína
niður strax og maður vaknar, því
annars vilja þeir hverfa úr minninu.
Þess vegna mæli ég með að fólk
haldi draumadagbók svo það geti
skoðað drauma sína í samhengi, því
draumar eru spegill sálarinnar og
draumar vara okkur jafnvel við því
sem koma skal. Draumar eru lækn-
andi ef við hlustum á þá.“
Að dreyma sama drauminn aftur
og aftur er eitthvað sem margir
kannast við en Craig segir það
merki um að eitthvað sé óuppgert í
tilfinningalífi viðkomandi. „Draum-
urinn er þá að minna okkur á að við
verðum að horfast í augu við hlutina
og gera þá upp svo okkur líði bet-
ur.“
Sammannlegir draumar
En dreymir fólk ólíka drauma
eftir löndum? Eru draumar fólks í
Sómalíu til dæmis mjög ólíkir
draumum Íslendinga? „Já, því
menningin og umhverfið sem við lif-
um í hefur áhrif á drauma okkar.
Fátækan mann í eyðimörk Afríku
dreymir ekki að hann sé að vinna
við tölvu vegna þess að tölva er hon-
um algjörlega ókunnugt fyrirbæri.
En sumir draumar eru sammann-
legir og birtast fólki hvar sem er í
heiminum, svona rétt eins og sagna-
minni sem fyrirfinnast um alla ver-
öld. Slíkir draumar koma djúpt úr
undirmeðvitundinni og eru í raun
frá fornum tíma. Þeir eru eitthvað
sem við berum í okkur kynslóð fram
af kynslóð. Þannig geta draumar
flutt okkur mjög langt aftur í tím-
ann og við verðum mannlegri eftir
því sem við komumst betur í tengsl
við fortíðina.“
Draumur eða veruleiki?
Craig segist vona að starf hans
fái fólk til að líta lífið öðrum augum
og það átti sig á að við lifum ekki
aðeins í efnislegum heimi. „Mesta
afrek okkar í lífinu er að gera sem
flest í nafni kærleikans, því kærleik-
urinn lifir áfram í þeim sem við sýn-
um hann og án hans væri engin
tenging.“
Craig er sérlega ánægður með Ís-
landsheimsóknina og honum finnst
hann vera staddur í landi Hringa-
dróttinssögu norðursins. „Og það er
stórmerkilegt að mig hefur ekki
dreymt neitt síðan ég kom til Ís-
lands! Kannski að ég sé alls ekki
hér, kannski er þetta bara draum-
ur?“
DRAUMAR | Breskur miðill sendir frá sér bók um drauma
Margt má af
draumum læra
Morgunblaðið/ÞÖK
Craig Hamilton-Parker: Segir suma drauma vera sammannlega og koma djúpt úr undirmeðvitundinni.
Spegill sálarinnar? Draumar vara
okkur jafnvel við því sem koma skal.
Breski miðillinn Craig
Hamilton-Parker
sagði Kristínu Heiðu
Kristinsdóttur allt um
drauma og las fyrir
hana í lófa lífið sjálft.
Heimasíða Craigs:
www.psychics.co.uk
Bókaútgáfan Stöng gefur bók
Craigs út á íslensku og heitir hún:
Draumar, að muna þá og skilja.
khk@mbl.is