Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is KÆRI Karl Sigurbjörnsson, bisk- up. Fimmtudaginn hinn 14. október 2004 birti Morgunblaðið mjög at- hyglisverða grein eftir Guðrúnu Lilju Hólmfríðardóttur. Í grein þessari ber höfundur ákveðinn geðlækni, stjórnendur Ríkisútvarpsins og nýskipaðan hæstaréttardómara þungum sök- um. Fyrir okkur flest er það ger- samlega ómögulegt að gera sér grein fyrir sannleiksgildi þessara ásakana. Það er okkur jafnframt óskiljanlegt hvernig þeir sem sök- unum eru bornir geta starfað áfram í þágu almennings án þess að þær verði rannsakaðar ítarlega. Ég fluttist frá Íslandi 1984 og hef síðan verið búsettur í Þýska- landi, Danmörku, Svíþjóð og á Englandi. Ég er ekki í nokkrum vafa um að ef slíkar ásakanir kæmu fram í virtum fjölmiðli ein- hverra þessara landa yrðu þær teknar mjög alvarlega og tafar- laust rannsakaðar til þess að kom- ast að sannleiksgildi þeirra. Það er mín skoðun að það sé skylda íslenskra stjórnvalda að sjá til þess að skipuð verði opinber rannsóknarnefnd sem fái það hlut- verk að komast að því hvort ásak- anir Guðrúnar Lilju séu sannar eða ósannar. Ert þú sammála þessari skoðun minni? PS. Til þess að koma í veg fyrir misskilning vil ég taka fram að ég þekki engan sem tengist þessu sérstaka máli og hef þess vegna engra hagsmuna að gæta annarra en þeirra að mér er umhugað um að Íslendingar geti í framtíðinni talist til siðmenntaðra þjóða. SIGMUNDUR GUÐMUNDSSON, Nöbbelövs kyrkoväg 105, 226 53, Lundi, Svíþjóð. Sannleikurinn gerir yður frjálsa Frá Sigmundi Guðmundssyni stærðfræðingi Opið bréf til Karls Sigurbjörnssonar biskups STJÓRNMÁLASAGA áranna 1900–1929 hefur fengið mikla umfjöll- un í íslenskum fjölmiðlum á árinu og þá sérstaklega þáttur Hannesar Haf- stein. Það hefur að mínu áliti ekki verið neitt skjall þó hans þáttur sé gerður stór í þeirri sögu. Hann var fyrsti ráðherra Ís- lands með aðsetur í Reykjavík og gegndi því starfi í 7 ár og 2 mánuði. Ekki er ástæða í þessari stuttu grein til að bæta um betur með umfjöllunina um Hann- es Hafstein svo mikil hefur hún verið. Annar merkur leið- togi þjóðarinnar á þessu tímabili, Jón Magnússon, hefur aftur á móti litla umfjöllun fengið. Jón Magnússon var fyrsti forsætisráð- herra landsins og sat sem forsætisráðherra í 7 ár og 6 mánuði, lengst allra forsætisráðherra á tímabilinu 1900–1929 og sat á þingi nær óslit- ið frá árinu 1902–1926. Þáttur Jóns Magn- ússonar í mótun ís- lenskra stjórnmála hef- ur fallið í skuggann af Hannesi Hafstein og einnig öðrum stjórnmálamönnum eins og Jóni Þorlákssyni. Sá síð- arnefndi var mikill hugsuður þó hann væri aldrei valdamaður á borð við Hannes Hafstein og Jón Magnússon. Jón Þorláksson var forsætisráðherra í aðeins í rúmt ár. Pólitískan árangur Jóns Magnús- sonar tel ég fyllilega jafnast á við ár- angur Hannesar Hafstein og álít ég að þeir tveir standi upp úr af stjórn- málamönnum tímabilsins 1900–1929. Jón var einstaklega laginn maður í pólitík en hann var einn af fáum stjórnmálamönnum sem lét ekki hátt en hafði sitt fram. Hann virðist hafa komið að nánast öllu sem máli skipti í stjórnmálalífi landsins á meðan hans naut við. Hann var hægri hönd Hann- esar Hafstein frá fyrsta degi í stjórn- arráðinu sem skrifstofustjóri. Jón Magnússon tók að sér formennsku í Sambandsflokknum að beiðni Hann- esar Hafstein og tók seinna við af honum í Heimastjórnarflokknum síð- ari þegar hann var þrotinn að kröft- um. Þannig leiddi Jón Magnússon pólitískt starf Hannesar Hafstein og hélt hugsjónum hans gangandi. Hann kunni að tengja Það var eins og enginn vissi alveg hvar Jón Magnússon væri í pólitík og fór það í taugarnar á mörgum þó hann væri alltaf heimastjórn- armaður meðan sá flokkur var til. Margir hægrimenn sögðu Jón Magnússon alltaf vera að verja Framsókn eða eins og Matthías Jo- hannessen hefur eftir Sigurbirni Þorkelssyni í bókinni Ólafur Thors, 1. bindi: ,, og svo var hann [Jón Magnússon] alltaf með Framsókn … og tók alltaf svari Fram- sóknar og Sigurðar Jónssonar frá Ysta- felli.“ Þetta eru sérstök ummæli um farsælan stjórnmálaforingja með síðari tíma sögu í huga. Hversu oft hafa ekki forsætisráðherrar Sjálfstæðisflokksins borið blak af samráð- herrum sínum og þótt klókt! Það var auðvitað drengilegt af Jóni Magnússyni sem for- sætisráðherra að standa með samráð- herrum sínum og klókt að styrkja með þeim hætti samstarfið inn á við og stöðu ríkisstjórnarinnar út á við. Slíkan stjórnunarstíl tileinkuðu sér síðar forsætisráðherrar eins og Ólaf- ur Thors og Davíð Oddsson með góð- um árangri. Jóni Magnússyni virðist hafa tekist umfram aðra að ná með sér stórum hópum þingmanna úr öllum flokkum þegar mikið lá við. Í tvígang kom það í hlut Jóns Magnússonar að mynda starfhæfa ríkisstjórn eftir að öðrum hafði mistekist það. Það var eftir kosningarnar 1919 þegar enginn inn- an þings gat leyst þá stjórnarkreppu sem uppi varð og þurfti því að leita til Jóns þó hann hafi fallið af þingi í þeim kosningum. Sama átti sér stað 1924 en þá tók Jón Magnússon að sér að mynda stjórn fyrir Íhaldsflokkinn eftir að Jón Þorlákssonar formaður flokksins gafst upp við það verk. Jón Magnússon tók þátt í stjórnmála- starfi í nokkrum flokkum og stóð að stofnun sumra þeirra. Flokkarnir hans urðu því margir: Heimastjórn- arflokkur, Sambandsflokkur, Heima- stjórnaflokkurinn síðari, Sparnaðar- bandalagið og Íhaldsflokkurinn. Ef hann hefði lifað lengur er nokkuð víst að hann hefði orðið einn af stofn- endum Sjálfstæðisflokksins síðari. Hans helsti samstarfsmaður eftir að Hannes Hafstein dró sig í hlé var ein- mitt Jón Þorláksson fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins. Það sem mun þó halda nafni Jóns Magnússonar lengst á lofti er lokaáfanginn í sjálfstæð- isbaráttu þjóðarinnar. Það var Jón Magnússon sem leiddi Íslendinga til fulls sjálfstæðis árið 1918 og undirrit- aði sem forsætisráðherra sam- bandslögin fyrir hönd þjóðarinnar ásamt Kristjáni konungi X. Þar með lauk Jón Magnússon farsællega þeirri sjálfstæðisbaráttu sem Jón Sigurðsson hóf um 70 árum fyrr. Dagur Jóns Magnússonar Ástæður fyrir þögninni í kringum Jón Magnússon eru hugsanlega margar. Ein getur verið sú staðreynd að hann eignaðist ekki afkomendur sem héldu nafni hans á lofti. Önnur líkleg ástæða gæti verið að hann nær ekki að lifa til þess tíma að vera einn af stofnendum Sjálfstæðisflokksins síðari og hans merki því ekki verið haldið á lofti af þeim flokki. Fáir áttu þó meiri þátt í að leiða hægrimenn að því loka marki að sameinast í Sjálf- stæðisflokknum síðari. Enginn getur talist tengja saman Heimastjórn- arflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn síð- ari sterkari böndum en einmitt Jón Magnússon. Hann er ekki heldur sveipaður ljóma Heimastjórnarflokks Hannesar Hafstein. Að mínu áliti er tímabært að þögnin um Jón Magn- ússon verði rofin og störf hans fyrir land og þjóð metin að verðleikum. Þar ber hæst forustuhlutverk hans sem valdamesti maður landsins að ljúka sjálfstæðisbaráttunni með full- um sigri fyrir íslensku þjóðina. Af þeim verkum á hann skilið titilinn þjóðhetja við hlið Jóns Sigurðssonar og Hannesar Hafstein. Ég legg því til að minning Jóns Magnússonar verði heiðruð með þeim hætti að fullveldisdagurinn 1. desem- ber ár hvert beri nafn hans og mætti dagurinn heita: Dagur Jóns Magn- ússonar. Jón Magnússon Kristján Pálsson fjallar um Jón Magnússon, fyrsta forsætisráðherra landsins ’Að mínu álitier tímabært að þögnin um Jón Magnússon verði rofin og störf hans fyrir land og þjóð metin að verð- leikum.‘ Kristján Pálsson Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. UM 94 til 95% Íslendinga eru skráðir í kirkjudeildir sem kenna sig við Jesú Krist. Þar af eru um 86% þjóðarinnar skráð í íslensku þjóð- kirkjuna. Við erum því kristin þjóð hvernig sem á það er litið, að minnsta kosti að nafninu til. Að sjálf- sögðu með fullri virð- ingu fyrir þeim fimm til sex prósentum sem aðhyllast önnur trúar- brögð eða telja sér trú um að þeir trúi ekki á neitt, sem eru nátt- úrlega heilmikil og flókin trúarbrögð út af fyrir sig. Þjóðin sækir til kirkjunnar og leitar á náðir trúarinnar þegar eitthvað kemur upp á. Fólki finnst gott að vita af kirkjunni sinni og hafa Guð einhversstaðar uppi í skáp ef á þyrfti að halda. Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að þegar á reynir skiptir trúin þetta þjóðfélag og einstaklinga þess per- sónulega, miklu máli og fólk vill ekki vera án hennar, þó sumir vilji kannski halda henni í ákveðinni fjar- lægð. Trúin á Guð, náð hans, fyr- irgefningu og kærleika er jafnvel akkerið í tilverunni þegar allt kemur til alls. Það besta sem menn geta hugsað sér og vildu því ekki fyrir nokkurn mun sjá hana hverfa úr þjóðfélaginu, tilverunni eða lífinu. Heldur að hún haldi áfram að móta einstaklinginn, mannlífið og kom- andi kynslóðir. Fáir eru þeir hins vegar sem tala um trú sína, hvers virði hún er þeim. Hún virðist vera eitthvert feimnismál. Það tíðkast helst ekki að bera hana á borð fyrir aðra. og menn byrgja hana inni. Hún er jú einkamál hvers og eins, eins og margir segja. Eitthvað á milli viðkomandi ein- staklings og Guðs. Sannarlega er það rétt að vissu leyti. Hitt er þó ljóst að trúin berst bara ekki frá manni til manns eða til komandi kynslóða nema einhver segi frá og vitni um trú sína. Segi frá því hvað trúin, bænin og samfélagið við Guð er viðkomandi einstaklingi mikils virði. Á hvað menn trúi og hvers vegna. Öðru vísi berst trúin ekki frá hjarta til hjarta, eins og henni ber að gera. Það er ekki raunhæft að ætlast til þess að fáeinir prestar eða þar til gerðir atvinnumenn sjái alfarið um misjafnar prédikanir, trúfræðslu og trúaruppeldi og miðli þannig trú- ararfinum til komandi kynslóða með þeim hætti. Trúin miðlast nefnilega fyrst og fremst inn á heimilum, frá foreldrum til barna og með persónu- legum vitnisburði og í umgengni og framkomu einstaklinga. Sem sagt með jafningjafræðslu. Því hvet ég alla kristna Íslendinga til þess að koma, án öfga, hávaða eða láta, „út úr skápnum“, með trú sína, og segja frá hvað hún er þeim mikils virði og miðla henni. Trúin á Jesú Krist vekur nefni- lega von. Hún eflir kærleika og telur í menn kjark. Hún eykur samstöðu, umburðarlyndi og skilning, virðingu og víðsýni. Hún boðar fyrirgefningu og gefur líf. Njóttu þess að fegra umhverfi þitt með vitnisburði um trú á kærleik- ann. Því að hjörtum sem reiða sig á kærleika Guðs líður einfaldlega bet- ur. Þau trúa á lífið. Út úr skápnum Sigurbjörn Þorkelsson segir að trúin á Jesú Krist veki von ’Þjóðin sækir til kirkj-unnar og leitar á náðir trúarinnar þegar eitt- hvað kemur upp á.‘ Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er rithöfundur og fram- kvæmdastjóri Laugarneskirkju. Í KVÖLD, fullveldisdaginn 1. des- ember, verða haldnir sérstæðir út- gáfutónleikar á Gauk á Stöng. Átján af fremstu hljómsveitum landsins hafa lagt fram skerf sinn til safnplötu undir heitinu Frjáls Palestína, sem gefin var út í fyrradag, 29. nóvember. Geisladisk- urinn er samstöðu- yfirlýsing með stríðs- hrjáðum í hertekinni Palestínu. Allir lista- menn gefa vinnu sína og allur ágóði af sölu plötunnar og aðgangs- eyrir að tónleikunum rennur óskertur til æskulýðsstarfs í Bal- ata-flóttamannabúð- unum í Nablus á Vest- urbakkanum. Dagsetningarnar eru vel valdar. 29. nóv- ember hefur um langt árbil verið helgaður samstöðu með réttindabaráttu pal- estínsku þjóðarinnar og er það að undirlagi Sameinuðu þjóðanna sem hvatt hefur verið til fundahalda og annarra aðgerða á þessum degi. Það var þennan dag árið 1947 sem alls- herjarþingið samþykkti tillögu, lagða fram af sendiherra Íslands, um skiptingu Palestínu í tvennt, milli gyðinga og araba. Félagið Ísland- Palestína var stofnað á þessum degi árið 1987 og hefur síðan minnst þessa dags með fundum og skrifum. Félagið Ísland-Palestína er útgef- andi geisladisksins, en allan heiður af undirbúningi og útgáfu plötunnar á Eva Einarsdóttir sem var sjálf- boðaliði á vegum félagsins á síðasta ári og hefur kynnst af eigin raun skelfilegum aðstæðum íbúa her- teknu svæðanna, ekki síst barna og ungmenna í flóttamannabúðum. Verkefnið Von (Project Hope) er heiti á æskulýðsstarfsemi í Balata sem nú skal aflað fjár til. Markmið þess er að veita æskufólki í Palestínu stuðning og von um betri framtíð. Haldin eru námskeið á ýmsum svið- um, meðal annars í leiklist, ensku og skyndihjálp. Börnum og ungu fólki er hjálpað til að vinna úr erfiðri lífs- reynslu, örvæntingu og vonleysi. Fullveldisdagurinn 1. desember var löngum hátíðis- og baráttudagur okkar Íslendinga. Um árabil helguðu stúd- entar 1. desember bar- áttu gegn hernámi og erlendri hersetu á Ís- landi og afleiðingum hennar á fullveldi þjóð- arinnar, menningu og stjórnmál. Það er ekki úr vegi að við hugum einnig að sjálfstæð- isbaráttu annarra þjóða á þessum degi. Ísland er hluti þess samfélags þjóða sem ber sérstaka ábyrgð á hlutskipti Pal- estínumanna, bæði þeirra sem búa á her- teknu svæðunum og meirihluta þjóðarinnar sem enn býr í flótta- mannabúðum. Hernám Ísraela í Palestínu er orðið lang- vinnara en nokkurt annað í síðari tíma sögu mannkynsins. Það hefur markað djúp spor í líf og menningu Palest- ínumanna, ekki síst æskufólksins sem þekkir ekkert annað en grimmd og niðurlægingu af hálfu Ísraels- hers. Þetta framferði hersins, sem heimurinn hefur horft upp á að- gerðalaus, fer líka illa með það ísr- aelska æskufólk sem gegnir her- skyldu og er alið upp við hatur og fyrirlitningu á palestínskum jafn- öldrum sínum. Hætt er við að ástand þessa fólks verði síst betra en banda- rísku hermannanna sem sneru margir hverjir heim niðurbrotnir menn úr Víetnamstríðinu. Hernáminu verður að linna og réttur flóttafólks tryggður til að réttlát lausn náist. Öðruvísi verður ekki friður. Fullveldisdeginum er vel varið til að minnast baráttu palest- ínsku þjóðarinnar og Frjáls Palest- ína er kröftug yfirlýsing og verðugt framlag listamanna til baráttu sem skiptir okkur öll máli. Fullveldi og frjáls Palestína Sveinn Rúnar Hauksson fjallar um útgáfutónleika á fullveldisdaginn Sveinn Rúnar Hauksson ’Markmiðið erað veita æsku- fólki í Palestínu stuðning og von um betri fram- tíð.‘ Höfundur er læknir, formaður Félagsins Ísland-Palestína.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.