Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 32

Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Kristín Gunn-þóra Haralds- dóttir fæddist á Grjótnesi á Mel- rakkasléttu 20. októ- ber 1913. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði 23. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Harald- ur Sigurðsson, f. á Meiðavöllum í Kelduhverfi 9. júlí 1885, d. 17. desem- ber 1963 og kona hans Kristbjörg Stefánsdóttir, f. á Hrafnsstöðum í Lundarbrekkusókn, S-Þing., 15. október 1887, d. 9. desember 1922. Systkini Kristínar eru fimm: Sigurður Þórarinn, f. 15. apríl 1915, d. 5. september 1995, dreng- ur, f. 16. júlí 1918, lifði aðeins einn eða tvo daga, Jón Friðrik, f. 17. nóvember 1919, d. 3. febrúar 1946 og tvíburarnir Kristbjörg og Bergljót, f. 6. desember 1922. Kristín ólst upp frá 9 ára aldri hjá Birni Kristjánssyni, kaupfélags- stjóra á Kópaskeri, seinna alþing- ismanni, f. 22. febrúar 1880, d. 10. júlí 1973 og seinni konu hans, Rannveigu Gunnarsdóttur, f. 6. nóvember 1901, d. 29. janúar 1991. Þau Björn og Rannveig áttu saman fjórar dætur og tvo syni, þessi börn ásamt syni Björns frá fyrra hjónabandi talaði Kristín ætíð um sem uppeldissystkini sín. 1949, býr í Garði, maki Theodór Guðbergsson, þau eiga fjögur börn og sjö barnabörn. 8) Ólöf Hallsdóttir, f. 1951, býr í Garði, maki Jens Sævar Guðbergsson, þau eiga fimm börn og sjö barna- börn. 9) Lóa Hallsdóttir, f. 1953, býr á Selfossi, maki Agnar Kol- beinsson, þau eiga fjögur börn og tíu barnabörn. 10) Ásta Hallsdótt- ir, f. 1954 býr á Selfossi, maki Guðlaugur Guðmundsson, þau eiga tvö börn. Einnig ólst upp hjá Kristínu frá sjö ára aldri og fram yfir fermingu Sigríður Kristjáns- dóttir, f. 1934. En hún og Hallur voru systkinabörn. Kristín og Hallur hófu búskap í Skinnalóni árið 1938 í apríl og bjuggu þar til ársins 1947 er þau brugðu búi og fluttu til Raufar- hafnar. Þar bjuggu þau í fjörutíu og fimm ár eða til ársins 1992, en í ágúst það ár fluttu þau suður í Garð. Kristín dvaldi á Dvalar- heimilinu Hlévangi í Keflavík frá desember 1997 til janúar á þessu ári en þá fluttist hún á Hjúkrunar- heimilið Garðvang í Garði. Á Raufarhöfn starfaði Kristín sem verkakona ásamt húsmóðurstörf- unum, hún var einnig matráðs- kona tímabundið hjá Söltunar- stöðinni Borgum og hjá SR en síðustu árin sem hún vann utan heimilis starfaði hún á sauma- stofu. Kristín gegndi ýmsum trún- aðarstörfum fyrir Verkalýðsfélag Raufarhafnar á árunum 1959 til 1973, var m.a. gjaldkeri þess um árabil. Hún var jafnframt virkur félagi í Kvenfélaginu Freyju, var m.a. formaður þess í fjögur ár auk ýmissa annarra trúnaðarstarfa. Kristín var gerð að heiðursfélaga í Kvenfélaginu 1984. Útför Kristínar Gunnþóru fer fram frá Útskálakirkju í Garði í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þau eru í aldursröð þessi; Þórhallur, f. 1910, látinn, Gunn- þórunn, f. 1919, Krist- veig, f. 1921, d. 1924, Gunnar Kristján, f. 1924, Guðmundur, f. 1925, d. 1988, Krist- veig, f. 1927 og Ásta, f. 1930. Maður Kristínar var Hallur Þorsteins- son, f. í Sveinungsvík í Þistilfirði 15. mars 1911, d. 30. janúar 1998. Foreldrar hans voru Þorsteinn Jóns- son, bóndi í Skinnalóni á Sléttu og farkennari, f. 2. ágúst 1870, d. 2. janúar 1943 og Ólöf Guðmunds- dóttir, f. 7. október 1881, d. 21. mars 1971. Kristín eignaðist 10 börn og eru þau í aldursröð þessi: 1) Rannveig Ísfjörð, f. 1935, býr í Reykjavík. Faðir hennar var Dósóþeus Tímótheusson, f. 9. september 1910, d. 13. mars 2003. Rannveig á sjö börn og sautján barnabörn. 2) Þorsteinn Hallsson, f. 1941, býr á Raufarhöfn, hann á tvo syni og fjögur barnabörn. 3) Kristbjörg Hallsdóttir, f. 1943, býr í Njarð- vík, hún á fimm börn og fimm barnabörn. 4) Sylvía Hallsdóttir, f. 1944, býr í Garði, maki Rúnar Guðmundsson og eiga þau tvö börn og þrjú barnabörn. 5 og 6) Tvíburadrengir, andvana fæddir 1946. 7) Jóna Halla Hallsdóttir, f. Hví skyldi ég yrkja um önnur fljóð, en ekkert um þig, ó, móðir góð? – Upp, þú minn hjartans óður! Því hvað er ástar og hróðrar dís, og hvað er engill úr paradís hjá góðri og göfugri móður? (Matthías Jochumsson.) Með örfáum orðum kveð ég þig mamma mín, með sorg í hjarta. En það má helst ekki vera þannig. Held- ur horfa fram á veginn, þar sem ég veit að þú varst orðin svo þreytt og þráðir að fá að sofna, hinn síðsta blund. Þó svo hugurinn væri enn opinn og frjór var líkaminn þreyttur. Ég þakka af alhug allt sem þú gerðir fyrir mig og börnin mín. Að síðustu kveð ég þig með erindi úr ljóðinu ,,Jólakveðja til mömmu“, eftir Guðrúnu Jóhannsdóttur frá Brautarholti. Ég hef engin orð að sinni, aðeins bæn og helga þökk fyrir alla æskudaga, er ég jafnan minnist klökk. Þegar eitthvað lundu lamar, leita ég í gömul skjól, ætíð því ég held í huga hátíðleg hjá mömmu jól. Hví í friði, elsku mamma. Þín dóttir, Rannveig. Ég var staddur á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi í Fossvogi þriðjudag 23. nóv. sl. í sjúkrarúmi framan við svokallaðan undirbúning að bíða eftir að vakna eftir létta svæfingu, en verið var að setja svokallaðan lyfjabrunn í höfuðhvelið. Svæfingin átti sér stað kl. 15 og tæpum klukkutíma síðar var ég að vakna. Verð ég þá var við að mamma er komin að rúminu til mín og vill komast uppí. Ég hugsa að þröngt verði í rúminu fyrir okkur bæði og reyni að ýta mér til hliðar. Það skiptir þá engum togum að sú aldraða vippar sér yfir grindina og á grúfu og öfug við mig með fæturna á koddanum hjá mér og er að bauka eitthvað til fóta. Eftir smá stund rís hún á fætur og gengur aftur fyrir rúmið og horfir niður og er búin að renna niður rennilásnum á jakkanum. Svo lyftir hún hendinni líkt og í kveðjuskyni og líður fram ganginn. Ég finn nú með fætinum að hún hefur komið með eitthvað færandi hendi og lít aftur og sé þá að þetta er lítill engill sem hún hefur lagt að fótum mér og liggur þarna nokkurn veginn í „Norwich-búningi,“ gulri peysu og grænum buxum, og brosir til mín. Þetta bros kannaðist ég við enda séð það oft áður fyrir rúmum 42 árum er ég kom heim, að loknum vinnudegi, í Brunnvör forðum daga. Þá ber að geta þess að mamma andaðist kl. 15.45 þennan sama dag, eftir stutta en snarpa banalegu, á Garðvangi í Garði. Nú er hún mamma gengin götu sína á enda. Að leiðarlokum vil ég þakka henni fyrir allt sem liðin ár og dagar geyma. Þinn eini sonur, Þorsteinn Hallsson. Ef sérð þú gamla konu, þá minnstu móður þinnar, sem mildast átti hjartað og þyngstu störfin vann og fórnaði þér kröftum og fegurð æsku sinnar og fræddi þig um lífið og gerði úr þér mann. Þú veizt, að gömul kona var ung og fögur forðum, og fátækasta ekkjan gaf drottni sínum mest. Ó, sýndu henni vinsemd í verki og í orðum. Sú virðing sæmir henni og móður þinni bezt. Því aðeins færð þú heiðrað og metið þína móður, að minning hennar verði þér alltaf hrein og skír, og veki hjá þér löngun til að vera öðrum góður og vaxa inn í himin – þar sem kærleikurinn býr. (Davíð Stefánsson.) Ég leiði hugann aftur í tímann og minnist móður minnar sem andaðist 23. nóvember síðastliðinn eftir stutt veikindi, sem kannski kom mér ekki á óvart þar sem ellihrumleiki hafði hrjáð hana um nokkurt skeið. Að fá að fara með öll skilningarvit í lagi og þjást ekki lengur en hún gerði nú undir lokin er guði þakkarvert. Þar sem ég er þriðja í systkinaröðinni þá man ég frá því þegar við fluttum frá Skinnalóni austur á Raufarhöfn, ég þá á fimmta ári. Þá fór mamma í Kaupfélagið og keypti mjólkurkex, þótti okkur Sylvíu þetta mikið sport að fá kex til að borða á meðan við vor- um látnar bíða í bílnum meðan bú- slóðin var tekin inn, hún hefur eflaust ekki verið mikil. Húsið sem við flutt- um í var ekki stórt og ekki voru mikil þægindi í því og ég efa að við nútíma- konur kæmumst í gegnum það ef við þyrftum að búa við slík skilyrði sem konur á þessum tíma bjuggu við. Allt- af var nóg pláss í litla húsinu fyrir þá sem þar leituðu skjóls, hvort heldur það var um stuttan eða lengri tíma. Í þá daga var allur matur heimabúinn að hausti og stóð matartilbúningur oft í þrjár til fjórar vikur. Við systkinin liðum aldrei skort því það var alltaf eitthvað til að borða heima en hörð hefur eflaust baráttan verið með öll þessi börn að hafa í þau og á. Mamma átti prjónavél og prjónaði allt á okkur og einnig prjónaði hún fyrir fólk í þorpinu. Ég held að ég fari rétt með að ekki hafi hún tekið mikið fyrir og var ekki það eina sem hún gerði fyrir aðra. Hún var alltaf boðin og búin ef einhvers staðar var þörf á aðstoð og taldi það ekki eftir. Ég verð að segja frá því er ég var 10 ára gömul, þá stundaði mamma síldarvinnu eins og svo oft áður. Þetta var sumarið ’53. Hún fór að heiman kl. 13 á daginn og kom heim á kvöldin kl. 19. Treysti hún mér fyrir þremur systrum mínum sem voru fjögurra og tveggja ára og fimm mánaða gamlar, sumarkaupið mitt var reiðhjól sem undrast var á að hún skyldi láta mig hafa. Mamma sagði að ég væri búin að vinna fyrir því. Ég gæti skrifað margar síður um ævi móður minnar en hún kynntist líf- inu svo sannarlega því níu ára gömul varð hún fyrir þeirri miklu sorg að missa móður sína af barnsförum og var hún elst fimm systkina. Talaði hún oft um þetta áfall. Við mamma vorum mjög nánar og sagði hún mér margt sem ég geymi í hjarta mínu. Að lokum vil ég þakka fyrir öll árin sem við fengum að vera saman hér á þess- ari jörð og alla þá miklu hjálp og væntumþykju sem þú sýnir mér á erf- iðum stundum. Einnig vil ég þakka fyrir allt það sem þú hefur verið börn- um og barnabörnum mínum, ég er stolt af því að vera dóttir þín. Blessuð sé minnig þín elsku mamma. Kristbjörg. Er ég hafði lokið vinnu minni á Garðvangi, sunnudaginn 14. nóv. sl. leit ég inn til þín eins og ég gerði oft, KRISTÍN GUNNÞÓRA HARALDSDÓTTIR Ástkær eiginkona mín, móðursystir okkar og frænka, SÓLBORG JÚLÍUSDÓTTIR, áður til heimilis á Hörpugötu 4, Reykjavík, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 25. nóvember, verður jarð- sungin frá Neskirkju fimmtudaginn 2. desem- ber kl. 13.00. Jens G. Guðmundsson, Júlíus Óskarsson, Þorgerður Jónsdóttir, Sigurður Óskarsson, Málfríður Björnsdóttir, Trausti Óskarsson, Sólveig Ívarsdóttir, Jón Óskarsson, Erla Hálfdánardóttir, Jens Óskarsson, Íris Helgadóttir, Jóhann Óskarsson, Ragnheiður Davíðsdóttir og fjölskyldur þeirra. Eiginmaður minn, JÓN S. ERLENDSSON verkstjóri, Dalalandi 12, lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 26. nóvember. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 2. desember kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, vinsamlegast látið líknarstofnanir njóta. Sigríður Jónasdóttir. Elskuleg móðir okkar, INGUNN BJÖRNSDÓTTIR, Brekkukoti, andaðist á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks mánudaginn 29. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Börn hinnar látnu. Faðir okkar, afi, sonur, bróðir og mágur, JÓN SIGBJÖRNSSON, lést á heimili sínu mánudaginn 29. nóvember. Hilmir Freyr Jónsson, Guðjón Ívar Jónsson, Kristín Jónsdóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Sara Dögg Hilmisdóttir, Kristín Jónsdóttir, Sigbjörn Brynjólfsson, Sjöfn Sigbjörnsdóttir, Ólafur Steinþórsson, Brynjólfur Sigbjörnsson, Þórunn Ósk Sigbjörnsdóttir, Gestur Guðjónsson, Ingibjörg Sigbjörnsdóttir, Arnar Sigbjörnsson, Sigríður S. Gunnþórsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANN KRISTINSSON fyrrverandi framkvæmdastjóri, Ránargötu 9, Akureyri, sem lést á dvalarheimilinu Hlíð sunnudaginn 21. nóvember sl., verður jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju föstudaginn 3. desember kl. 13.30. Guðrún Aspar, Kristinn Halldór Jóhannsson, Margrét Alfreðsdóttir, Elín Björg Jóhannsdóttir, Sævar Sæmundsson, Ingunn Þóra Jóhannsdóttir, Skúli Eggert Sigurz, Björn Jóhannsson, Sigrún Harðardóttir, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Ragna Ósk Ragnarsdóttir, Ásta Hrönn Jóhannsdóttir, Gísli Agnar Bjarnason, Magnús Jóhannsson, Sólveig Jóhannsdóttir, Þröstur Vatnsdal Axelsson, afa- og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.