Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þóranna KristínErlendsdóttir fæddist í Keflavík 17. september 1930. Hún lést á Landspítalan- um í Fossvogi 22. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Oddný María Krist- insdóttir og Erlend- ur Jónsson. Þóranna ólst upp hjá móður- systir sinni Jónínu Guðnýju Kristins- dóttur og föðurbróð- ur sínum Ólafi Jóni Jónssyni frá 2 ára aldri á Kirkju- vegi 44. Þóranna á sjö alsystkin, þau eru: 1) Jóhanna Elín, f. 1924, d. 2001, 2) Kristín Vigdís, f. 1925, d. 1985, 3) Hlíf, f. 1927, 4) Jón Ólafur, f. 1929, d. 1956, 5) Guð- finnur Þórir, f. 1932, 6) Guðbjört Guðrún, f. 1936 og 7) Andrés Kristján Sæby, f. 1942, d. 1998. Uppeldissystkini Þórönnu eru: Jón Ólafsson, f. 1933, d. 1956, Guðbjört Þóra Ólafsdóttir, f. 1940 og Vigdís Esther Ólafsdóttir, f. 1945, d. 1994. Þóranna giftist 22. september 1956 Pétri Péturssyni sjómanni frá Færeyjum, þau eiga fimm börn, þau eru: 1) Sigrún, f. 1951, gift Jónatani Ægi Sigur- jónssyni, f. 1946, börn þeirra eru: a) Þóranna Kolbrún, f. 1968, gift Berg Niel- sen, f. 1968, sonur þeirra er Dan Mart- in, f. 1990, b) Ásdís, f. 1973, í sambúð með Richard H. Eck- ard, f. 1979, börn þeirra eru: Jónatan Ægir, f. 1990, Aron Ingi, f. 1993, Jacob Elmar, f. 1997 og Sigrún Birta, f. 2000. 2) Jón Guðni, f. 1957, d. 1976. 3) Maríus Sævar, f. 1958, kvæntur Þuríði Jónasdóttur, f. 1958, börn þeirra eru: a) Jónas Guðni, f. 1983, í sambúð með Erlu Maríu Stur- laugsdóttir, f. 1984, b) Jóhann Ingi, f. 1987 og c) Fannar Orri, f. 1997, 4) Pétur Þór, f. 1961. 5) Guðbjartur Kristján Högnaberg, f. 1963, kvæntur Heidi Högna- berg, f. 1960, börn þeirra eru: Brian Högnaberg, f. 1981 og Þóra Signý Högnaberg, f. 1989. Útför Þórönnu fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ég veit ekki alveg hvernig það er hægt að lýsa þér, móðir mín, nema hvað þú varst mér bæði góður félagi og móðir. Við gátum talað um alla hluti, þú varst alltaf til í að hlusta og taka þátt í því sem ég var að gera og hugsa um að gera, leiðréttir mig ef þurfti og hvattir mig að framkvæma mínar hugmyndir. Ég veit ekki hvernig ég fer að því þegar ég hef þig ekki lengur til að ræða mínar hugmyndir og að leiða mig að réttum ákvörðunum. Þú varst það góð móðir að það var ekki hægt að óska sér betri móður né félaga. Það verður mikill missir og söknuður fyrir mig að vita það að geta ekki farið til þín og fengið sér kaffi og ræða málin, já eða bara sjá þig brosa, því það var alltaf stutt í hláturinn hjá þér sem virkaði eins og vítamín á alla sem í kringum þig voru. Þú varst ekki bara góð við mig, þú tókst líka vel á móti félögum mínum sem voru vanir að koma, þeim Arnari og Óla, einnig Jón Þóri og fjölskyldu sem þér þótti mjög vænt um, enda voru þeir alltaf reiðubúnir að veita þér aðstoð ef á þurfti að halda. Það var gaman að koma með vini mína til þín og sérstaklega þegar þú varst með fiskibollur á boðstólum, sem var þín sérgrein, ég held það verði ekki hægt að líkja eftir þeim, né sósunni sem var alltaf með. Þú hafðir líka gaman af að fá okkur í mat því þú fékkst alltaf svo mikið hrós frá okkur hvað bollurnar þínar voru góðar og hvað þú áttir alltaf mikið af þeim. Ég gæti skrifað heilmikið um þig móðir mín, en læt það vera í bili, eitt er víst að ég mun sakna þín mikið. Ég veit að guð mun venda þína sál og þú verður alltaf í hjarta mínu. Þinn sonur Pétur Þór. Elsku mamma mín, ég kveð þig með söknuð í hjarta en ég veit að Jónsi bróðir hefur tekið vel á móti þér og þið brosið saman og vakið yfir okkur hinum. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Takk fyrir allt, mamma mín. Þín dóttir Sigrún. Elsku mamma, tengdamamma og amma, við kveðjum þig með söknuði úr þessum heimi, en vitum að þér líð- ur vel þar sem þú ert núna. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Sævar, Þuríður, Jónas Guðni, Jóhann Ingi og Fannar Orri. Elsku amma mín. Þá er komið að kveðjustund og ég þakka fyrir hvern dag sem við áttum saman. Þú varst mér svo góð, ég veit í hjarta mínu að þú ert á góðum stað í dag og hefur það gott, þó að það sé erfitt og sárt að hafa þig ekki hjá okkur. Þú varst ein af þessum konum sem allir vilja eiga að, að eilífu. Nærvera þín var hlý og notaleg og þú skildir allt, þó svo ég hefði ekkert að segja, þá hlustaðir þú á hjarta mitt og gafst mér ást. Ég minnist margra góðra stunda okkar á milli og varðveiti þær í hjarta mínu alltaf. Elsku amma, takk fyrir að hafa verið til og takk fyrir að ég mátti þekkja þig. Blessuð sé minning þín, elsku amma. Ég elska þig. Þín Dísa. Mánudagsmorguninn 22. nóvem- ber bárust okkur þær þungu fréttir að amma mín væri látin. Það er erfitt að fá svona fréttir þegar maður er svona langt að heiman. Ég hef í mörg ár búið í Danmörku ásamt manni mínum og syni og þess vegna gat ég ekki átt eins margar góðar stundir með ömmu minni, eins og ég átti á mínum unglingsárum. Þegar ég kom í heimsókn til Íslands þá fannst mér ég aldrei almennilega vera komin heim fyrr en ég var búin að fara í heimsókn til ömmu og fá mér kaffi- sopa og mola með henni. Við sátum við eldhúsborðið fyrir framan eld- húsgluggann og þar fékk ég svo allar fréttirnar, um allar breytingar sem höfðu átt sér stað síðan ég var í heimsókn síðast. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til ömmu, hún var alltaf í góðu skapi og brosandi þó að heilsan hafi ekki alltaf verið sem best þá heyrði ég hana aldrei kvarta undan neinu. Ég hef aldrei kynnst neinum sem var eins þrjósk og amma og ef hún ætlaði sér eitthvað þá gat hún það. Ég og amma höfðum mjög sér- stakt samband. Ég hef alltaf getað sagt ömmu allt og verið viss um að það færi ekki lengra. Þegar ég fyrir mörgum árum kynntist manninum mínum, tók hún á móti honum með opnum örmum. Þegar sonur minn kom í heiminn var það amma sem keyrði okkur upp á sjúkrahús. Ég var alltaf örugg um að ef mig vantaði aðstoð með eitthvað stórt eða lítið þá var hún alltaf tilbúin til þess að hjálpa. Það er mikill söknuður fyrir mig og fjölskyldu mína að missa ömmu. Við hugsum til þín afi og biðj- um Guð að styrkja þig og hjálpa þér í gegnum sorgina yfir að missa konu þína. Blessuð sé minning þín, elsku amma, og megi Guð styrkja okkur öll sem höfum misst eins yndislega manneskju og þig, elsku amma mín. Þín dótturdóttir Kolbrún og fjölskylda. ÞÓRANNA KRISTÍN ERLENDSDÓTTIR ✝ Ragnheiður Frið-riksdóttir hús- móðir fæddist á Flat- eyri við Önundar- fjörð 11. janúar 1916. Hún lést á Landspít- ala háskólasjúkra- húsi í Fossvogi þriðjudaginn 23. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Friðrik Borg- fjörð Einarsson, f. 4.2. 1892 og María Hólm, f. 9.8. 1895, d. 4.5. 1969. Fósturfor- eldrar Ragnheiðar voru Jóhannes E. Guðmundsson, f. 2.11. 1870, d. 23.9. 1960 og Val- gerður Guðbjartsdóttir, f. 2.7. 1877, d. 5.11. 1965. Hálfsystkin Ragnheiðar, sammæðra, voru Georg Hólm, f. 28.7. 1914, d. 18.5. 1967 og Guðbjörg Torfadóttir, f. 1918, dó í æsku. Fóstursystkin Ragnheiðar eru Sigríður Jóhann- esdóttir, f. 11.10. 1902, d. 9.4. 1995, Eiríkur Jóhannesson, f. 1904, d. 6.1. 1926, Guðmundur Valgeir Jóhannesson, f. 17.12. 1905, d. 9.5. 2000 og María Magn- úsdóttir, f. 5.12. 1922. Ragnheiður giftist 21.6. 1952 Reyni Eyjólfssyni kaupmanni í Reynisbúð við Bræðraborgarstíg, f. 28.7. 1916, d. 29.1. 1987. Hann var sonur Eyjólfs Gíslasonar inn- heimtumanns hjá Reykjavíkurbæ, og Guðríðar Magnúsdóttur hús- móður. Sonur Ragnheiðar og Reynis er Jóhannes Valgeir, f. 2.9. 1953, kvæntur Gyðu Þórdísi Þór- arinsdóttur, börn þeirra eru Þórarinn Reynir, f. 1988, Ragnar Þór, f. 1992 og Benedikt Rúnar, f. 1995. Synir Reynis og stjúpsynir Ragn- heiðar eru: 1) Árni, f. 10.12. 1941, kvæntur Önnu S. Bjarnadótt- ir og eiga þau tvær dætur, a) Guðrúnu, f. 1968, í sambúð með Sveinbirni Auðuns- syni, þau eiga tvö börn og b) Írisi, f. 1973, í sambúð með Hreini Eggertssyni, þau eiga eitt barn. 2) Eyjólfur, f. 6.2. 1943, kvæntur Unu Gísladóttur og eiga þau tvo syni, Reyni f, 1979 og Gísla, f. 1982. 3) Jóhann, f. 12.4. 1945, í sambúð með Suphit Donk- anha. Ragnheiður stundaði nám við Húsmæðraskólann á Ísafirði 1938-39 og lærði fatasaum 1940- 41. Ragnheiður stundaði sauma- störf og kennslu í fatasaumi til 1950, stundaði síðan heimilisstörf en vann síðar jafnframt heimili- störfunum við verslunarrekstur með eiginmanni sínum til 1985. Ragnheiður var stofnfélagi í íþróttafélaginu Gretti á Flateyri 1933, söng með Söngsveitinni Fíl- harmoníu frá stofnun 1959–1981 og hefur starfað í Lionsklúbbnum Engey, Dalíuklúbbnum og Hús- mæðrafélagi Reykjavíkur. Útför Ragnheiðar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Mín ástkæra tengdamóðir, hún Ragnheiður, er látin. Ragnheiður var svo lánsöm að halda góðri líkamlegri og andlegri heilsu til þess dags er hún veiktist. Veikindin stóðu ekki lengi yf- ir, rétt aðeins í tæpar tvær vikur. Lífið er margbrotið og línan sem við göngum er ekki neinn dans á rós- um. Öll fæðumst við og öll deyjum við og Ragnheiður átti því láni að fagna að ná 88 árum hér í þessu lífi og það er margt sem hún hefur upplifað í gegn- um tíðina. Glaðlyndari, hógværari og nægjusamari konu hef ég ekki kynnst en henni tengdamóður minni. Hún var alveg ótrúleg, það var aldrei sem hún kvartaði þrátt fyrir háan aldur og að hún gat búið á sínu heimili án ut- anaðkomandi aðstoðar var yndislegt og að hennar ósk. Farið var að minn- ast á það við hana fyrir nokkrum ár- um hvort ekki væri erfitt fyrir hana að vera ein á Hringbrautinni, hvort hún vildi ekki fara á elliheimili sem var nú bara við hliðina á hennar heim- ili, og hefði kannski ánægju og fé- lagsskap af. Nei, það var nú alls ekki. Ég er bara ekki orðin nógu gömul, eða, það er bara ekki fyrir mig, sagði hún yf- irleitt. Það eru margar og bara skemmtilegar minningar um Ragn- heiði. Hún hafði alltaf eitthvað að gera í höndunum. Þegar hún var heima sat hún við sauma eða prjóna- skap, en það sem átti hug hennar all- an nú síðustu ár var postulínsmálun. Eftir hana liggja alveg ótrúlega falleg verk. Vandvirk var hún og ef eitthvað var sem henni líkaði ekki þá hreinlega gerði hún allt upp á nýtt og það lýsir henni alveg, það var bara þannig að ekki var fyrir nokkurn mun hægt að sjá að þarna væri fullorðin kona að verki og er ég nú svo lánsöm að eiga nokkur verk eftir hana sem eru mér mjög dýrmæt. Ávallt bar Ragnheiður ást og kær- leika til annarra og hafði áhyggjur af heilsufari þeirra, sem minna mega sín. Synir okkar þrír eiga eftir að sakna Röggu ömmu sinnar og munu jólin verða með öðru sniði, þar sem Ragga amma mun aðeins vera með okkur í anda og huga, nú um komandi jól og aðventu. Við trúum því að henni líði vel núna með Reyni sínum, flögrandi um sennilega syngjandi og bið ég þess að þau muni vaka yfir barnabörnum sín- um. Bið ég algóðan Guð um að taka vel á móti henni og þakka um leið fyr- ir allar góðu samverustundirnar með Ragnheiði minni, blessuð sé minning hennar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Gyða Þórdís Þórarinsdóttir. Kveðja frá Lionsklúbbnum Engey Hún Ragnheiður okkar er látin 88 ára gömul. Ragnheiður var meðal stofnenda Lionessuklúbbs Reykja- víkur í ágúst 1985. Hún var síðan í hópi stofnenda Lionsklúbbsins Eng- eyjar þegar hann var stofnaður upp úr Lionessuklúbbnum hinn 1. mars 1990. Ragnheiður var áhugasamur og góður Lionsfélagi sem tók ávallt virk- an þátt í störfum klúbbsins okkar. Ár- ið 1994 var hún fyrir störf sín gerð að Melvin Jones félaga sem er ein æðsta viðurkenning Lionshreyfingarinnar. Ragnheiður var mörgum góðum kostum búin en einkennandi fyrir hana var glaðværð hennar og hlýja. Viðhorf hennar var ávallt jákvætt hvert sem málefnið var eða hver sem í hlut átti. Aldurinn færðist yfir Ragn- heiði en á þessum góðu eiginleikum hennar varð engin breyting. Hiklaust má telja að hún hafi átt ríkan þátt í að skapa góðan félagsanda í klúbbnum. Okkur þótti öllum vænt um hana. Við í Lionsklúbbnum Engey erum þakklátar fyrir að hafa átt Ragnheiði svo lengi í okkar hópi. Við þökkum henni fyrir allt samstarfið og vinátt- una. Sonum hennar og fjölskyldum þeirra sendum við okkar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Ragn- heiðar Friðriksdóttur. Guðný Björnsdóttir. RAGNHEIÐUR FRIÐRIKSDÓTTIR Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samhug og hlýhug við and- lát og útför elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, SVÖNU S. SIGURGRÍMSDÓTTUR, Hólagötu 12, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki gjör- gæsludeildar Landspítala við Hringbraut. Örn Viðar Einarsson, Daníel Emilsson, Elín Kristín Magnúsdóttir, Lára L. Emilsdóttir, Viðar Guðmundsson, Anna S. Ingimarsdóttir, Pétur Árnmarsson, Sigurgrímur Árni Ingimarsson, Jenný Gunnarsdóttir, Esther Ingimarsdóttir, Halldór Björgvinsson, barnabörn og barnabarnabörn, Rut Sigurgrímsdóttir. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓHANNA BJÖRNSDÓTTIR, Hringbraut 50, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 2. desember kl. 15.00. Ólöf Ósk Sigurðardóttir, Björn H. Sigurðsson, Bryndís Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.