Morgunblaðið - 01.12.2004, Síða 35

Morgunblaðið - 01.12.2004, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 35 MINNINGAR ✝ Margrét Sigurð-ardóttir fæddist í Reykjavík 3. janúar 1923. Hún lést á líkn- ardeild Landspítal- ans í Kópavogi að- faranótt mánudags- ins 22. nóvember síðastliðins. Foreldr- ar hennar voru Jó- hanna Einarsdóttir og Sigurður Pálsson. Margrét giftist ár- ið 1947 Jóhanni Magnússyni, skip- stjóra og yfirhafn- sögumanni, f. 1918, d. 1999. Þau eignuðust þrjár dæt- ur, þær eru: 1) Jóhanna, f. 1949, giftist Andreasi Lapas, f. 1948, d. 1987, börn þeirra eru; a) Jóhann Kristos, maki Jóna Björk Helga- dóttir, dóttir þeirra er Andrea, b) María, maki Vilhjálmur Þór Arn- arsson, sonur þeirra er Jóhann Þór, og c) Alexand- er. Vinur Jóhönnu til margra ára er Einar Örn Lárusson. 2) Kristín, f. 1952. 3) Áslaug, f. 1956, gift Sigurði Sigurðssyni f. 1955, börn þeirra eru; a) Grímur, maki Anna Björg Erlings- dóttir, dóttir þeirra er Hrafnhildur Hekla, b) Magnús og c) Ásta Margrét. Margrét var heimavinnandi hús- móðir þar til dæt- urnar voru komnar vel á legg, þá hóf hún störf utan heimilis. Hún vann við verslunarstörf og mót- töku auk sjálfboðastarfa hjá Rauða krossi Íslands. Útför Margrétar verður gerð frá Áskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13. Fyrstu kynni mín af tengdamóður minni voru árið 1974. Ég kom þá í fyrsta skipti á heimili hennar og Jó- hanns eiginmanns hennar með dóttur þeirra, Áslaugu, sem síðar varð eig- inkona mín. Í minningunni stendur Magga í eldhúsinu og er að framreiða sveskjugraut sem hún hafði víst oft gert áður og átti einnig eftir að gefa mér margsinnis. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en löngu seinna að Magga var enginn listakokkur. Ég var ekki vanur neinum sérstökum veislurétt- um þaðan sem ég kom og var því þakklátur og ánægður með allt sem tengdamamma mín rétti að mér. En seinna lærðist mér að Magga eldaði meira af skyldu en ánægju, enda lá áhugasvið hennar annars staðar en við heimilisstörf og matartilbúning. Magga var sannkölluð Reykjavík- urmær sem kunni best við sig í mið- borginni, sitjandi á kaffihúsum eða á Austurvelli, að virða fyrir sér mann- lífið. Hún vildi vera og var þátttak- andi í borgarlífinu af lífi og sál. Á seinni árum þegar Magga var orðin ein og engum háð tók þetta áhugamál hug hennar allan ásamt sjálfboða- störfum hennar fyrir Rauða kross- inn. Hefðbundinn dagur hjá Möggu, komin á níræðisaldur, gat litið svona út: hún vann í búð Rauða krossins fram yfir hádegi, hitti gamlar vinkon- ur á kaffihúsi síðdegis, síðan búðarölt eða sundlaugarferð og jafnvel leik- húsferð um kvöldið. Magga var full af lífsgleði og fann sér alltaf eitthvað skemmtilegt til dægrastyttingar og lét sér aldrei leiðast. Hún fór allra sinna ferða fótgangandi eða í strætó. Hún þreytti ekki ættingja sína á kvabbi eða kvörtunum heldur fann sér sína eigin leið til að njóta lífsins og hafði gaman af því. Magga var jafn- lynd og sá ég hana aldrei skipta skapi þau þrjátíu ár sem ég þekkti hana. Að leiðarlokum vil ég þakka af öllu mínu hjarta minni góðu tengdamóður fyrir allt það góða sem hún gerði fyrir mig en þó sérstaklega fyrir konu mína og börn, en góðmennsku henn- ar í þeirra garð voru engin takmörk sett. Blessuð sé minning hennar. Sigurður tengdasonur. Mig langar til að minnast ömmu minnar með nokkrum orðum. Amma hafði unun af því að hjálpa öðrum, hvort sem það fólst í því að að- stoða dætur sínar í amstri dagsins, dekra við barnabörnin, ekki síst við þann sem þetta skrifar, hjálpa vinum sínum eða starfa við sjálfboðastarf Rauða kross Íslands. Við þetta var hún stöðugt á þönum og dagskráin ávallt þéttskipuð, ekki síst síðustu ár- in. En þannig leið ömmu best. Erfitt gat því verið að ná í ömmu sökum anna og að lokum féllst hún á að nýta sér gsm-tæknina til að leysa það vandamál. Amma var aldrei gömul í mínum huga. Hún var ungleg alla tíð, vissi vel af því og hafði gaman af. Það var fyrst og fremst fasið, hvernig hún bar sig og hugsunarhátturinn sem gerði hana svo unglega. Amma vissi alltaf hvað var að gerast í þjóðfélaginu, hún fylgdist vel með þjóðfélagsumræð- unni, tísku og straumum, jafnt hjá ungum sem öldnum. Svo hafði hún einstaklega mikinn áhuga á fólki. Hún hafði gaman af því að vera í kringum ungt fólk, hlustaði vel og hafði svo heilmargt til málanna að leggja. Hún vissi alltaf hvað var í gangi hjá barnabörnunum og sýndi okkur mikinn áhuga. Það var einkennandi fyrir ömmu hvað hún var gjörsamlega laus við alla fordóma, gaf öllum séns og tók fólki eins og það var. Hún var alltaf tilbúin að verja þá sem minna máttu sín og í umræðum hafði hún sérstak- lega gaman af því að vera á skjön við aðra, ekki endilega til að fylgja sinni sannfæringu, heldur til að krydda umræðurnar svolítið. Það er ekki auðvelt að skrifa um ömmu án þess að afi komi upp í hug- ann og allar ógleymanlegu stundirn- ar sem ég átti með þeim. Ég held að þau hafi átt mjög góða ævi saman og fjölskyldan var ávallt númer eitt hjá þeim. Ég, sem elsta barnabarnið, var einstaklega heppinn að hafa fengið að umgangast þau jafnmikið og raun varð á. Mér hefur alltaf þótt mjög vænt um afa minn og ömmu, borið mikla virðingu fyrir þeim og ég get aldrei fullþakkað þeim þá ást, hlýju, öryggi og stuðning sem þau veittu mér alla tíð. Nú eru þau sameinuð á ný og við munum halda áfram að heimsækja þau, þótt það verði ekki á Sporða- grunnið eða Grandaveginn. Elsku amma, takk fyrir allt, hvíl í friði. Jóhann Kristos Lapas. Nú er hún elsku Magga frænka, móðursystir mín, búin að kveðja okk- ur. Sameiningartákn stórfjölskyld- unnar. Kona sem bar aldurinn ein- staklega vel, svo eftir var tekið. Ég á erfitt með að trúa því að Magga frænka sé farin, hún var þannig manneskja að manni fannst að hún yrði alltaf til staðar og þannig var hún alltaf gagnvart mér frá því að ég man eftir mér. Hún sýndi mér einstaka umhyggju og var alltaf jafn áhugasöm um mína hagi alla tíð. Það hrannast upp endurminningar um Möggu frænku og Jóa frænda eins og ég kaus að kalla hann, þó svo að hann væri ekki frændi minn, þar sem hann var maðurinn hennar Möggu frænku. Þau tóku manni allt- af opnum örmum hvort sem maður heimsótti þau á Sporðagrunninu eða í sælureit þeirra í sumarbústaðnum sem þau áttu og svo í lokin á Granda- veginum. Ein af skemmtilegum minningum um Möggu er sú að henni þótti ein- staklega gott að láta greiða sér og oft- ar en ekki þegar ég heimsótti hana sem barn, þá spurði hún: Lísa, viltu ekki greiða mér? Maður var svona misjafnlega spenntur fyrir því, en Möggu tókst nú yfirleitt á sinn hátt að ná ýmsu fram. Fleiri minningar streyma fram eins og nýtt slátur á haustin í eldhús- inu á Sporðagrunni, þunna kaffið hennar og óteljandi ferðir upp í sum- arbústað, sem héldu áfram þegar ég var komin með mín eigin börn. Alltaf voru allir velkomnir til Möggu og Jóa. Þegar ég sagði börnunum mínum frá láti Möggu, þá sögðu þau: En hún var alltaf svo hress. Þau þekktu hennar góða viðmót eins og við hin. Þetta er minning um frænku mína, sem ég bar sterkar taugar til. Elsku Jóhanna, Kristín og Áslaug, hugur minn er hjá ykkur og ykkar fjölskyldum og sendi ég ykkur inni- legar samúðarkveðjur. Elísabet (Lísa frænka). Amma var svo létt og skemmtileg týpa. Alltaf hress og til í að spjalla. Hún fylgdist vel með öllu og þá sér- staklega málefnum Séð og heyrt. Hún var mannglögg og heilsaði iðu- lega vinkonum mínum á götum úti. Amma snattaðist um allan bæ í strætó á pinnahælum og með sjal. Hvernig sem viðraði var amma mætt, hlaðin pinklum fullum af góðgæti fyr- ir barnabörnin. Hún hafði lúmskt gaman af því að vera spurð um skír- teini þegar hún ætlaði að nýta sér eldriborgaraafsláttinn og enn fyndn- ara þótti henni þegar haldið var að Jóhanna dóttir hennar væri systir hennar. Við fjölskyldan gátum alltaf hlegið þegar amma stóð upp í veislum og hélt ræður. Ég sé hana fyrir mér með stóru svörtu gleraugun og blöðin þéttskrifuð, samt einhvernveginn alltaf tapandi áttum og staðreyndirn- ar á reiki. Það voru ófá skiptin sem við Ásta Margrét eyddum í að krulla á ömmu þykka og fallega hárið. Það var alls ekki sama hvernig það var gert. Nú eru þau saman á ný, afi og amma. Þau skilja við þrjár yndislegar dætur, 6 barnabörn og 3 barnabarna- börn. Þar mun minning þeirra lifa. Þegar ég hugsa til baka tengi ég þau við 3 staði. Fyrst ber að nefna Hóla- bak. Ég sé afa fyrir mér vinna við að gróðursetja, færa eða bera áburð á trén sín með okkur barnabörnin gjammandi sér við hlið. Amma var alltaf uppí í húsi við stóra gluggann, þar sat hún í stólnum sem afi smíðaði, hlustaði á útvarp og vann handa- vinnu. Það var svo notalegt að fá sér hádegisblund með afa í lautinni á heitum sumardegi eða að gera syst- urnar þrjár gráhærðar með ærsla- gangi í lauginni, en þar var oft mikið fjör. Eftir mikinn leik var svo farið inn til ömmu í kaffi og meðlæti sem hún dró upp úr gömlu ferðatöskunni sem var alltaf meðferðis. Sporða- grunn 10, miðstöð fjölskyldunnar, lykill í innri vasa í jakka nr. 2 við inn- ganginn. Skondið hvað maður man suma hluti vel. Um leið og ég kom inn úr dyrunum spurði amma hvort ég væri svöng, þá var boðið upp á heitt brauð á pönnu og kakó. Eftir mat sótti að manni syfja og þá var boðið upp á sængina og koddann inn í stofu (Jói bróðir fékk þó oftast þessa kon- unglegu meðferð). Á Sporðó var lík- lega minnsta jólatré í heimi og með fylgdi ævafornt skraut. Ég tók oft strætó á Þorláksmessu að skreyta herlegheitin með afa. Kanaríeyjar, þau fóru á hverju ári eins og farfuglar og komu svo heim kaffibrún og sæl með fullar töskur af skrítnum gjöf- um,en amma passaði vel uppá að allir fengju eitthvað við „sitt hæfi“. Þau voru bestu afi og amma sem hægt er að hugsa sér. Fyrirmyndar- hjón, mjög ólík og vógu hvort annað upp, skemmtileg og yndislegur fé- lagsskapur. Eftirfarandi, er bæn sem amma las fyrir mig á kvöldin þegar ég gisti hjá þeim: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Hvíl í friði, elsku amma. María Lapas. MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Mar- gréti Sigurðardóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Guðrún Sig- urjónsdóttir og Magnús Sigurðsson. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, stuðning og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, JÓNS K. FRIÐRIKSSONAR hrossaræktanda, Vatnsleysu, Skagafirði. Guð blessi ykkur öll. Árdís M. Björnsdóttir, Anna Þóra Jónsdóttir, Marjan Herkovic, Björn F. Jónsson, Arndís B. Brynjólfsdóttir, Jón Herkovic. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and- lát og útför eiginmans míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞORSTEINS JÓNS NORDAL KARLSSONAR, Búðardal, Skarðsströnd. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Silfurtúns og prestanna Ingibergs og Óskars. Valdís Þórðardóttir, Guðrún Þorsteinsdóttir, Eyjólfur Kristjánsson, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Þorgeir Hafsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTÍN GUÐLAUGSDÓTTIR, frá Hokinsdal í Arnarfirði, síðast til heimilis í Furugerði 1, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum sunnu- daginn 28. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Marý Anna H. Hjaltadóttir, Össur Torfason, Gylfi Þór Magnússon, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Anna Sigurlaug Magnúsdóttir, Frímann Ingi Helgason, Jensína U. Kristjánsdóttir, Guðlaug Hrönn Kristjánsdóttir og ömmubörn. Bridsfélagið Muninn, Sandgerði Lokið er haustsveitakeppni fé- lagsins með þátttöku sjö sveita. Sig- urvegarar urðu nýkrýndir Íslands- meistarar í parasveitakeppni, þau Svala Pálsdóttir, Karl Grétar, Bryn- dís Þorsteinsdóttir og Heiðar Sigur- jónsson en auk þeirra spilaði Pétur Júlíusson í sveitinni sem hlaut sam- tals 236 stig. Sveit Sparisjóðsins í Keflavík var önnur með 195, sveit Ævars Jónas- sonar þriðja með 190 og sveit Lilju Guðjónsdóttur fjórða með 185. Í kvöld, 1. des., hefst þriggja kvölda jólatvímenningur þar sem tvö kvöld eru til verðlauna. Hangikjöt og hamborgarhryggir verða í verðlaun. Spilamennskan hefst kl. 19.30 í fé- lagsheimilinu á Mánagrund. Heitt á könnunni. Opið hús hjá Bridssambandinu Bridssamband Íslands býður alla bridsspilara, vana og óvana, vel- komna á Opið hús í Síðumúla 37, miðvikudaginn 8. des. kl. 19:30. Nemendur Bridsskólans og fram- haldsskólanemendur sem hafa eða hafa haft brids sem valgrein eru boðnir sérstaklega velkomnir. Þátt- taka er ókeypis og kaffi og smákökur í boði hússins. Sveit Svölu Pálsdóttur Íslands- meistari í parasveitakeppni Íslandsmótið í Parasveitakeppni fór fram um helgina. Íslandsmeist- arar urðu spilarar í sveit Svölu Páls- dóttur með 135 stig. Í sigursveitinni spiluðu: Svala Pálsdóttir, Karl G. Karlsson, Bryndís Þorsteinsdóttir og Heiðar Sigurjónsson. Í öðru sæti var sveit Ljósbrár Baldursdóttir með 127 stig. Í þriðja sæti lenti sveit Stefaníu Sigurbjörns- dóttur með 125 stig. Í fjórða sæti var sveit Framvegis Símenntunarmið- stöð með 117 stig. Átján sveitir tóku þátt í keppninni sem var jöfn og spennandi til loka. Bridsdeild FEBK Gjábakka Föstudaginn 26. nóv. var spilaður tvímenningur á 9 borðum. Meðalskor var 216. Úrslit urðu þessi í N/S: Bjarni Þórarinsson – Jón Hallgrímsson 258 Björn Kristjánss. – Gunnar Sigurbjss. 253 Helga Helgadóttir – Sigrún Pálsdóttir 246 A/V Halla Ólafsdóttir – Jón Lárusson 296 Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 255 Júlíus Guðmundsson – Óskar Karlsson 248 Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Spilað var á 9 borðum föstudaginn 26 nóvember. Meðalskor var 216. Úrslit í N/S: Sigurður Hallgrss. - Friðrik Hermannss. 261 Kristrún Stefánsd - Sverrir Gunnarsson 248 Sveinn Jensson - Jóna Kristinsdóttir 224 Jón Pálmason - Sverrir Jónsson 223 A/V Sófus Berthelsen - Kristján Ólafsson 281 Ingimundur Jónsson - Helgi Einarsson 264 Stígur Herlufsen - Guðm. Guðmundsson 261 Jón Ó. Bjarnason - Ásmundur Þórarins 246 Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK Gullsmára spil- aði tvímenning á 14 borðum mánu- daginn 29. nóv. Efst vóru í NS: Guðm. Guðveigss.- Róbert Sigmundss. 319 Guðm. Magnússon - Þórður Jörundss. 312 Dóra Friðleifsdóttir - Jón Stefánsson 299 Jón Bjarnar - Ólafur Oddsson 296 AV Auðunn Bergsvss - Sigurður Björnsson 313 Elís Kristjánsson - Páll Ólason 309 Björn Björnsson - Sigríður Gunnarsd. 299 Jóna Kristinsdóttir - Sveinn Jensson 296 Spilað mánu- og fimmtudaga. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.