Morgunblaðið - 01.12.2004, Side 39

Morgunblaðið - 01.12.2004, Side 39
Daníel Jónsson sýndi fjölda kynbótahrossa á landsmótinu í sumar og þeirra á meðal Þórodd frá Þóroddsstöðum og er það ekki hvað síst góð sýning Daníels á honum sem tryggði honum útnefninguna knapi ársins. EINN þáttur í uppskeru hesta- manna er að útdeila viðurkenn- ingum til knapa sem þótt hafa skar- að fram úr og þess ræktunarbús sem bestum árangri hefur náð í kynbótadómum. Hápunktur knapavalsins er án efa knapi ársins en þar var það Daníel Jónsson sem hlaut titilinn að þessu sinni. Kynbótasýningar hafa verið vettvangur Daníels undan- farin ár og hefur hann hægt og bít- andi siglt þar til metorða og má segja að nú hafi toppnum verið náð. Hæst ber í árangri Daníels á árinu sýning hans á stjörnu stóðhestinum Þóroddi frá Þóroddsstöðum sem hlaut 9,04 í einkunn fyrir hæfileika og 8,74 í aðaleinkunn. Báðar þessar einkunnir munu vera met hjá fimm vetra stóðhesti. Þess má geta að Daníel hefur tamið Þórodd og verið með frá upphafi. Þótt alltaf sýnist sitt hverjum um val á knapa ársins er engum blöðum um að fletta að Daníel er afar vel að titlinum kom- inn og hægt að segja það góðan endapunkt á góðu ári hjá honum. Gæðingaknapi ársins var valinn Þorvaldur Árni Þorvaldsson og þar stendur hæst öruggur sigur hans og Rökkva frá Hárlaugsstöðum í B-flokki gæðinga á landmsótinu í sumar. Sigldu þeir af miklu öryggi í gegnum keppnina, voru efstur í öllum þremur þáttum hennar og óumdeildir sigurvegarar. Auk þess var Þorvaldur með fleiri hesta í góðum sætum gæðingakeppninnar á landsmótinu. Íþróttaknapi ársins var valinn Björn Jónsson sem náði einstæðum árangri í töltkeppni á árinu á gæðahryssunni Lydíu frá Vatns- leysu. Hæst ber sigur á landsmóti og Íslandsmóti en þar fyrir utan unnu þau góða sigra á ísmótum fyrri hluta ársins. Það spillir ekki góðum árangri að Björn er rækt- andi Lydíu, hefur alltaf átt hana og tamið sjálfur og þjálfað frá upp- hafi. Skeiðknapi ársins var valinn Sig- urbjörn Bárðarson sem lengi hefur verið í fremstu röð á þessum vett- vangi. Auk margra góðra sigra á mótinu þá voru það tveir sigrar á landsmóti í 150 og 250 metra skeiði sem öðru fremur tryggðu honum útnefningu til þessa titils auk silf- urverðlauna í 100 metra skeiði á mótinu. Efnilegasti knapi ársins var svo valin Heiðrún Eymundsdóttir sem sýndi meðal annars frábæra reið- mennsku á landsmóti á hryssunni Golu frá Ysta-Gerði en þær sigruðu í flokki ungmenna á mótinu. Á síð- asta ári voru í fyrsta skipti afhent sérstök heiðursverðlaun sem ekki voru veitt í ár enda ekki ætlast til þess að þau séu veitt árlega heldur aðeins þegar rík ástæða þykir til. Það voru eins og áður sérhæfðir blaðamenn í hestamennsku sem völdu ofangreinda knapa en áður höfðu fimm til sex knapar verið út- nefndir í hverjum flokki sem kynnt var á landsþingi LH fyrr í haust. Ræktunarbú ársinns var valið Fet í Rangárvallasýslu þar sem þau hjónin Brynjar Vilmundarson og Kristín Torfadóttir standa fyrir metnaðarfullri hrossarækt. Þetta er í annað skiptið sem Fet hreppir þennan titil en alls voru sýnd 27 hross á árinu úr þeirra ræktun og fóru 11 þeirra í fyrstu verðlaun. Fjölmargar viðurkenningar veittar á uppskeruhátíð hestamanna Daníel kominn á toppinn – Fet ræktunarbú ársins Hrossin frá Brynjari Vilmundarsyni á Feti gerðu það gott í dómum ársins og hlýtur ræktun hans titilinn ræktunarbú ársins en hér er Brynjar með hinn eftirsótta Sleipnisbikar sem Guðni Ágústsson afhenti honum fyrir ár- angur Kraflars frá Miðsitju. Tekið skal fram að árangur Kraflars er ekki reiknaður Fetbúinu til tekna vegna áðurnefndrar útnefningar. Morgunblaðið/Vakri MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 39 HESTAR ÁHUGAMENN um hrossarækt hafa síðustu árin hist í nóvember þar sem fjallað er um málefnið á margvíslegan hátt. Öfugt við það sem áður var þegar hrossræktarmenn hitt- ust eru þetta afar málefnalegar og gagn- legar samkomur. Fyrr á árum stjórnaðist umræðan meir af tilfinningahita og van- þekkingu miðað við það sem nú gerist. Hinn almenni hestamaður er í dag mun betur upplýstur og af því leiðir að umræðan verð- ur mun vitrænni og málefnalegri. Hæst bar á þessari samkomu erindi Þor- valdar Árnasonar kynbótafræðings sem bú- settur er í Svíþjóð en hann kynnti nýtt og væntanlega betra kynbótamat þar sem gerðar hafa verið á því nauðsynlegar breyt- ingar en kynbótamatið hefur verið í stöðugri þróun allt frá því að það var tekið í notkun 1986. Hönnuður og hugmyndasmiður þess er sem kunnugt er Þorvaldur sjálfur. Auk þess að kynna ýmsar breytingar á gerð kynbótamatsins kynnti Þorvaldur laus- lega stöðu efstu hrossa í hverjum flokki. Meðal breytinga sem Þorvaldur nefndi var að arfgengi eldri gagna í kynbótamatinu hefði verið ofmetið. Sagði Þorvaldur að breytileiki og arfgengi hefði breyst með af- gerandi hætti 1990 og því hafi þótt rétt að dómar frá 1989 og síðar hefðu því minna vægi en dómar frá 1990. Þá er nú í fyrsta skipti reiknað út meðaleinkunn fyrir sköpu- lag og hæfileika í kynbótamatinu. Þá kom fram í máli hans að þeim hrossum sem hafa minni skyldleika við stofninn verði hyglað í matinu en þau sem aftur hafa mik- inn skyldleika við stofninn þurfi að gjalda þess. Á þessi viðleitni að vinna að því að auka erfðabreytileika innan stofnsins. Sagði Þorvaldur það vel þekkta tilhneigingu í allri ræktun að sækja í fáliðaðan hóp bestu ein- staklinga sem getur leitt til aukins skyld- leika innan stofns og þar með dregið úr erfðabreytileika innan hans. Nýr hrossaræktarráðunautur Guðlaugur Antonsson tók við bíllyklum úr hendi for- vera síns Ágústs Sigurðssonar en sagði að það væri líklega táknrænasta athöfnin sem hann gat fundið til að undirstrika manna- skiptin. Ráðunautarstarfinu hefur fylgt Skoda bifreið og tók Guðlaugur sem sagt við bifreiðinni með formlegum hætti. Báðir munu þeir félagar Ágúst og Guðlaugur búa á Hvanneyri en sá fyrrnefndi tekur við rekt- orsstöðu Landbúnaðarháskólans á Hvann- eyri og mátti vel skynja að með tilkomu Ágústs í rektorsstól mundi skólinn gegna mikilvægara hlutverki í hrossaræktargeir- anum en verið hefur. Kom fram í máli Þorvaldar að hann teldi að framtíð í ræktun íslenska hestsins væri mjög björt og Landbúnaðarháskólinn myndi gegna þar lykilhlutverki. Þá væri framund- an aukin samvinna við FEIF (Alþjóðasam- band eigenda íslenskra hesta) í mótun á ræktunarstefnu. Fyrir liggi útvíkkun rækt- unarmarkmiða þar sem mikillar fjölbreytni yrði krafist. Nýr verðlaunabikar afhentur Ágúst Sigurðsson gat þess á fundinum að enginn farandbikar hefði verið afhentur í flokki sex vetra hryssna á landsmótinu af þeirri einföldu ástæðu að enginn hefði gefið bikar í þann flokk. Hefði nú verið bætt úr því, hjónin frá Miðsitju Jóhann Þorsteinsson og Sólveig Stefánsdóttir hefðu gefið bikar til minningar um hryssu sína Kröflu frá Mið- sitju sem nú þegar hefur stimplað sig ræki- lega inn sem mikill áhrifavaldur í íslenskri hrossarækt. Afhentu þau Margréti S. Stef- ánsdóttur bikarinn en hún er annar tveggja eigenda hryssunnar Hryðju frá Hvoli sem efst stóð í þessum flokki í sumar. Eftir kaffihlé sýndi og útskýrði nýbak- aður hrossaræktaráðunautur samantektar- mynd þar sem stiklað var á því helsta á svo til öllum landsmótum sem haldin hafa verið. Var gerður góður rómur að þeirri mynd sem sýnir á ótvíræðan hátt þær miklu framfarir sem orðið hafa í hrossarækt og þá ekki síður í reiðmennsku. Framan af vakti myndin kát- ínu meðal fundarmanna og oft hlegið að til- burðum manna og hesta. Eftir því sem á myndina leið á dvínaði hláturinn líklega í jöfnu hlutfalli við það sem fagmennskan jókst. Mynd þessi sýnir vel í hnotskurn miklar framfarir á öllum sviðum landsmót- anna og væri ekki slæm hugmynd að fjöl- falda þessa mynd og bjóða almenningi til kaups. Undir lok fundar var boðið upp á umræð- ur um margvíslega málaflokka hrossaræktar og meðal þeirra sem þar tóku til máls voru Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossa- sjúkdóma og sagði hún sláandi að fjórð- ungur þeirra hrossa sem sýnd voru á lands- mót hefði komið skaddaður úr leiknum. Skráð voru öll tilvik þar sem áverkar eftir ágrip ýmiskonar sáust á hrossum sem fram komu í kynbótasýningum landsmóts. Taldi Sigríður gott framtak að þetta skyldi skráð og meginástæða fyrir svo mörgum áverka- tilvikum væri sú að verið væri að krefja hrossin um meira en þau réðu við með góðu móti. Sagði hún að það væru ekki einungis knapar sem bæru ábyrgð því eigendur hrossanna væru þeir sem settu fram kröf- urnar um sem hæstar einkunnir og hér væri vissulega þörf viðhorfsbreytinga. Það væri deginum ljósara að ekki væri leyfilegt að gera hvað sem er til að ná árangri. Þá gerði Sigríður að umtalsefni að þá skoðun að leyfa ætti snúna afturfætur upp að vissu marki til minnka hættu á ágripum. Kvaðst hún mjög ósátt við þess stefnu og með öllu óásættanlegt að menn væru vísvit- andi að rækta snúna fætur. Lagði hún ríka áherslu á að gera þyrfti allt sem mögulegt væri til að koma í veg fyrir slys í sýningum sem eyðileggja ímynd hrossaræktar. Kristinn Hugason fyrrverandi hrossa- ræktarráðunautur lét sitt ekki eftir liggja í umræðunni, gerði bæði að skemmta fund- armönnum með ýmiskonar gamanmálum sem og að slá á alvarlegri strengi. Lagði hann í máli sínu ríka áherslu á að komið yrði á laggirnar svokölluðu keppniskynbóta- mati þar sem keppnisárangur hrossa í gæð- inga- og íþróttakeppni sem og kappreiðum yrði lagður til grundvallar. Fráleitt væri nægjanlegt að hafa hinn einsleita einstak- lingsdóm til að leggja mat á gæði kynbóta- hrossa. Sagði hann það fagnaðarefni að búfræðikandídatinn Elsa Albertsdóttir hefði valið þetta sem rannsóknarverkefni í mast- ersnámi sínu og vonaðist til að það myndi hraða þróun mótafengs. Metnaðurinn beið hnekki Þá sagði Kristinn að metnaður sinn og vinar síns Sigurbjörns Bárðarsonar hefði beðið allnokkurn hnekki þegar þeir upp- götvuðu á fundinum að hinar kunnu skeið- hryssur Lúta frá Ytra-Dalsgerði og Ósk frá Litladal sem eru í þeirra eigu reyndust ekki vera á topp tíu listanum fyrir skeið þegar Þorvaldur kallaði fram þann lista á nýja kynbótamatinu. Sagði Kristinn að þeir fé- lagar ætluðu þó að kynna sér málið betur áður en þeir legðust í þunglyndi. Einnig lagði Kristinn til að kynbótahross myndi einungis mæta á yfirlitssýningu á lands- mótum en hætt yrði við að dæma þau upp á nýjan leik eins gert hefur verið. Að síðustu hvatti Kristinn til að aftur yrði fjölgað í kynbótadómnefndum í þrjá dóm- ara, taldi að tveir væru of lítið og taldi þetta fyrirkomulag meðal annars eina skýringuna á því að teygni í einkunnagjöf hefði aftur minnkað. Skemmst er frá því að segja Ágúst Sigurðsson fráfarandi ráðunautur var ósam- mála Kristni flestum atriðum og hvatti til að áfram yrði haldið að dæma hross með sama hætti og gert hefur verið. Auk þess benti hann á að hafa yrði tvo dómara á minni sýn- ingum af fjárhagsástæðum meðal annars. Hrossaræktin í brennidepli Hrossaræktarmenn héldu hina árlegu ráðstefnu sína nýlega og um kvöldið komu hestamenn saman og heiðruðu þá er fremstir þóttu standa á sviði reiðmennsku og ræktunar hrossa. Valdimar Kristinsson mætti á ráðstefnuna sem þótti fróðleg og áhugaverð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.