Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 41

Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 41 DAGBÓK Landsbókasafn Íslands er tíu ára ídag, en það var stofnað við hátíðlegaathöfn 1. desember árið 1994 viðsamruna tveggja eldri safna, Lands- bókasafns Íslands sem stofnað var 1818 og Háskólabókasafns sem stofnað var árið 1940. Safnið er stærsta rannsóknarbókasafn á Ís- landi, en það hýsir um eina milljón bóka, handrita og annarra gagna. Í tilefni afmæl- isins verða ýmsir viðburðir í dag og næstu daga, þar á meðal skemmtidagskrá í dag og málþing á morgun í Hátíðarsal Háskóla Ís- lands um framtíð þjóðbókasafna og háskóla- bókasafna. Þá er afmælinu fagnað með útgáfu ljósprentunar af íslensku galdrahandriti á skinni frá 17. öld, bæklings um safnið og starfsemi þess og opnun nýrrar heimasíðu timarit.is, þar sem hægt er að nálgast texta allra þeirra tímarita og dagblaða sem hafa verið sett í stafrænt form. Aðalfyrirlesarar málþingsins sem haldið er á morgun eru Gerand van Trier frá Kon- unglega bókasafninu í Hollandi, sem mun fjalla um þjóðbókasöfn og hlutverk þeirra í upplýsingasamfélagi framtíðarinnar, og Sarah E. Thomas yfirbókavörður frá Cornell-háskól- anum í Bandaríkjunum sem ræðir um framtíð háskólabókasafna. Einnig mun landsbóka- vörður Finnlands, Kai Ekholm, og lands- bókavörður Dana, Erland Kolding Nielsen, segja frá reynslu sinna landa af samvinnu og samrekstri landsbókasafns og þjóðbókasafns. Málþingið er haldið í samvinnu Lands- bókasafns og Háskóla Íslands og er öllum opið. Emilía Sigmarsdóttir, fagstjóri menningar og miðlunar hjá Landsbókasafni, segir Lands- bókasafnið vera hornstein í öflun, varðveislu og miðlun þekkingar um íslenskt samfélag og á sviði vísinda og fræða. „Safnið er þekking- arveita sem vinnur að því að veita faglega upplýsingaþjónustu um íslenskt samfélag og tryggja að Íslendingar standi jafnfætis öðrum þjóðum hvað varðar aðgengi að hvers kyns þekkingu og upplýsingum,“ segir Emilía. „Markmiðið er að efla safnið sem þjóð- bókasafn og bókasafn Háskóla Íslands og auka fjölbreytni þess í þjónustu, skerpa ímynd safnsins sem þekkingarveitu, efla það sem for- ystuafl meðal íslenskra bókasafna og sem eft- irsóttan vinnustað. Hvaða verkefni eru framundan hjá ykkur? Haldið verður áfram að koma íslenskum blöðum og tímaritum á stafrænt form og gera þau aðgengileg á vefnum. Hugmyndin er jafn- framt að gera hið sama með gamlar íslenskar bækur. Á sagnanetinu eru mörg handrit að- gengileg og væri óskandi að geta bætt þar við fleiri handritum sem kunna þó að vera af öðr- um toga. Einnig stendur yfir söfnun á íslensk- um vefsíðum en seinna meir verða þær gerða aðgengilegar notendum. Bókasöfn | Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn fagnar 10 ára afmæli  Emilía Sigmarsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1950. Hún lauk háskóla- prófi í íslenskum fræð- um og starfar nú sem fagstjóri menningar og miðlunar hjá Lands- bókasafni Íslands, Há- skólabókasafni og á sæti í stjórnarnefnd Kvennasögusafns Ís- lands. Emilía er gift Ragnari Steinarssyni tann- lækni og eiga þau þrjú uppkomin börn. Hornsteinn í þekkingaröflun og -miðlun Félag gæludýraeigenda? ÉG átti litla kisu sem var orðin 15 ára þegar hún dó. Ég keypti kistu utan um hana og setti í dýragrafreit. Og mikið er það gott og þakkarvert að slík þjónusta skuli vera til. Söknuður minn er mikill því hún var besti vinurinn minn og félagi. Ég veit að öðrum gæludýraeigendum hefur liðið eins og mér þegar þeir hafa misst dýrin sín. Þess vegna finnst mér nauðsyn- legt að stofna félag gæludýraeig- enda þar sem við gætum stutt hvert annað í sorginni og skipst á upplýs- ingum varðandi umönnun dýra. Þeir sem hefðu áhuga á að taka þátt í stofnun félags gæludýraeig- enda geta haft samband við mig í síma 822 2124. Sigrún Reynisdóttir. Framkoma til vansa SL. föstudag hlustaði ég á þáttinn Spegilinn á Rás 2 og var þar m.a. rætt um árshátíðarlag MR-inga. Sjálfum finnst mér þetta vera smámál sem ekki á að þurfa að ræða í þjóðarútvarpinu, en hitt þykir mér verra og það er að fréttamanneskjan virtist greinilega staðráðin í því að „grilla“ viðmælanda sinn (stíllinn minnti á köflum á æsifrétta- mennsku) inspektor MR, en ekki komast til botns í þessu máli. Fannst mér þessi framkoma fréttamanns til mikils vansa og finnst mér miður að skattpeningar mínir séu notaðir í að útvarpa skoð- unum örfárra aðila. Einnig finnst mér fréttamatið rangt, hefði ekki verið nær að fjalla um fíkniefnadjöf- ulinn eða áfengisbölið í stað saklauss gríns menntskælinga? Með vinsemd og virðingu, Jóhann R. Jónsson, Hamrahlíð 48, Rvík. Velvakandi Svarað í síma 569 1100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Haustleikarnir í Florída. Norður ♠-- ♥DG8743 V/Enginn ♦ÁK72 ♣KDG Vestur Austur ♠Á8765 ♠2 ♥Á10 ♥K952 ♦DG54 ♦1063 ♣Á7 ♣108542 Suður ♠KDG10943 ♥6 ♦98 ♣963 Vestur Norður Austur Suður Dísa Rosenkranz 1 spaði 2 hjörtu Pass Pass Dobl Pass 3 lauf Pass Pass 3 tíglar Pass 3 spaðar ! Pass 3 grönd Pass 4 spaðar !! Pass Pass Pass Hálfíslensk sveit varð í þriðja sæti í Bandaríkjamótinu í Orlando (North American Swiss Teams). Sveitin laut forystu hins 88 ára gamla vísinda- manns frá Mexíkó, dr. Jorge Rosen- kranz, sem spilaði við Hjördísi Eyþórs- dóttur. Með þeim voru Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson, og þýsku lands- liðskonurnar Daniela von Arnim og Sabine Auken. Sveit Rosenkranz var í efsta sæti fyrir síðustu umferð, en tap- aði þá illa og féll niður í það þriðja. Bandarísk sveit varð efst (Martin Fleisher), og pólsk/bandarísk sveit í öðru sæti (Wojewoda). Spilið að ofan kom upp í undan- úrslitum keppninnar. Hjördís (Dísa) var með spil norðurs og kom inn á spaðaopnun vesturs með tveir hjört- um. Rosenkranz lét það eiga sig í bili og vestur verndardoblaði. Austur valdi laufið og enn passaði Rosenkranz. En Dísa er baráttuglöð og reyndi þrjá tígla. Þá loks fannst Rosenkranz tíma- bært að nefna spaðann til sögunnar og niðurstaðan varð sú að suður spilaði geim í opnunarlit vesturs! Hjördís var ekki vongóð þegar hún lagði niður blindan, en Rosenkranz átti fyrir sínu og gaf aðeins þrjá slagi – einn á tromp, einn á hjarta og einn á lauf. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. c4 Bg7 4. Rc3 O-O 5. e4 d6 6. Be2 e5 7. O-O Rc6 8. d5 Re7 9. b4 a5 10. Ba3 Rd7 11. bxa5 Hxa5 12. Bb4 Ha8 13. a4 Kh8 14. a5 Rg8 15. Dd3 f5 16. Rd2 Hf7 17. Rb3 Bf8 18. De3 Rgf6 19. Bf3 f4 20. De2 g5 21. h3 Hg7 22. g4 fxg3 23. fxg3 g4 24. hxg4 Rc5 25. Bxc5 dxc5 26. Kg2 Bd6 27. Hh1 Rxg4 28. Hh5 Bd7 29. Hah1 De7 30. Dd2 Hag8 31. Re2 Hf8 32. Dd3 Staðan kom upp í fyrra hluta Ís- landsmóts skákfélaga sem fram fór fyrir skömmu í húsakynnum Mennta- skólans í Hamrahlíð. Sigurbjörn Björnsson (2339) hafði svart gegn Torfa Stefánssyni (2025). 32... Hxf3! 33. Dxf3 Hf7 34. Dd3 34. Hf5 hefði ekki verið mikið skárra vegna 34...Bxf5 35. exf5 Dg5 og svartur stendur til vinn- ings. 34... Df6 35. Hf5 Bxf5 36. exf5 Dxf5 37. Dxf5 Hxf5 38. Hh4 Re3+ 39. Kh3 Hf1 40. g4 og hvítur gafst upp um leið enda fátt til varnar eftir 40... e4. SKÁK Svartur á leik. Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is 85 ÁRA afmæli. Ídag, 1. desem- ber, er 85 ára Guð- laug Pétursdóttir Kjerulf. Hún tekur á móti frændfólki og vinum sunnudaginn 5. desember í Helgafelli, 4. hæð, Hrafnistu í Reykjavík, milli kl. 15–17. Árnaðheilla dagbók@mbl.is SÖNGSVEITIN Fílharmónía heldur tónleika í Skálholtskirkju kl. 21 í kvöld. Þetta eru þeir síðustu af þrennum tónleikum sem kórinn flyt- ur í dómkirkjum landsins. Í tilefni aðventu og jóla eru mörg verkin á efnisskránni tengd þeim. Þar er m.a. að finna verk eftir rúss- nesku tónskáldin Rachmaninov og Tsjaíkovskí, pólska tónskáldið Gor- ecky, enska endurreisnartónskáldið William Byrd, Jón Ásgeirsson og Jakob Tryggvason en yfirskrift tón- leikanna er einmitt hending úr sálmi Jakobs, Ó Jesúbarn. Stjórnandi söngsveitarinnar er Óliver Kentish og meðleikari Guðríður St. Sigurð- ardóttir. Lilja Árnadóttir, formaður Fíl- harmóníu, segir austrænan tón ein- kenna tónleikana. „Með þessum austur-evrópsku og rússnesku tón- skáldum kemur svolítið sérstakur hljómur með tónfallinu,“ segir Lilja. „Það kemur svona þjóðlegur tónn sem við þekkjum úr slavneskri mús- ík, sem þessi tónskáld einhvern veg- inn draga inn í sínar tónsmíðar, alveg eins og það er til íslenskur tónn í verkum margra íslenskra tónskálda. Þetta verður mjög gaman að syngja í Skálholtskirkju, sem hefur mjög góð- an hljómburð og er sambærilegur við það sem gerist í kirkjum í útlöndum. Það má segja að þessi stykki séu öll afar krefjandi. Þau eru langflest flutt án undirleiks og kórinn stendur algjörlega óstuddur, nema í einu tón- verki, hollensku þjóðlagi sem enska tónskáldið John Rutter hefur útsett.“ Söngsveitin Fílharmónía fagnar á þessu starfári 45 ára afmæli sínu en fyrstu tónleika sína hélt kórinn í Þjóðleikhúsinu vorið 1960 þegar hann frumflutti hér á landi tónverkið Carmina Burana eftir Carl Orff und- ir stjórn dr. Róberts A. Ottóssonar. Næsta stóra verkefni verður einmitt Carmina Burana sem flutt verður í lok apríl í Langholtskirkju. Fílharmónía syngur aðventu- dagskrá í Skálholtskirkju Morgunblaðið/Sverrir          !"#  $%"%#  " "# & ' &( ' )( ' ( *+$%,% % -" ., /''"

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.