Morgunblaðið - 01.12.2004, Síða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Tónlist
Café Rosenberg | Bill Bourne syngur efni
af nýrri plötu kl. 22.
Gaukur á Stöng | KK, Mugison, Bob Just-
man, Touch, Lára & Delphi og Ensími
troða upp á útgáfutónleikum fyrir safn-
diskinn Frjáls Palestína kl. 21. Aðgangs-
eyrir er 500 krónur og rennur allur ágóði
til styrktar æskulýðstarfi í flótta-
mannabúðunum Balata á Vesturbakk-
anum.
Hafnarborg | Hádegistónleikar í Hafn-
arborg kl. 12. Að þessu sinni er það Sigrún
Eðvaldsdóttir fiðluleikari sem spilar „Vetr-
armúsík“ við undirleik Antoníu Hevesi,
píanóleikara og listræns stjórnanda há-
degistónleikanna.
Hallgrímskirkja | Tær rödd drengjasópr-
ansins Ísaks Ríkharðssonar og seiðandi
saxófóntónar Sigurðar Flosasonar gleðja
áheyrendur á jólatónleikum Mótettukórs-
ins kl. 20. Björn Steinar Sólbergsson leik-
ur á stóra Klaisorgelið, Hörður Áskelsson
stjórnar.
Seltjarnarneskirkja | Selkórinn á Seltjarn-
arnesi, ásamt kammersveit, heldur sína
árlegu aðventutónleika í Seltjarnar-
neskirkju kl. 20. Á efnisskránni eru íslensk
jólalög og kirkjuleg kórverk eftir Vínartón-
skáldin. Einsöngvari er Ingibjörg Guðjóns-
dóttir sópran. Stjórnandi Jón Karl Ein-
arsson.
Skálholtskirkja | Aðventutónleikar í Skál-
holti verða kl. 14 og 16.30. Fram koma
Skálholtskórinn, Barna- og Kammerkór
Biskupstungna, strengja- og blásarasveit,
Egill Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsd.,
konsertmeistari Hjörleifur Valsson, stjórn-
andi Hilmar Örn Agnarsson.
Skálholtskirkja | Aðventutónleikar Söng-
sveitarinnar Fílharmóníu kl. 21. Þriðju og
síðustu tónleikarnir að þessu sinni verða í
Skálholti. Á efnisskrá eru ýmis kórverk
eftir m.a. Tchaikovski, Rachamaninov,
Byrd og Jakob Tryggvason. Stjórnandi er
Óliver Kentish og meðleikari á píanó Guð-
ríður St. Sigurðardóttir.
Myndlist
Kirkjuhvol, Akranesi | Gylfi Ægisson sýn-
ir um 60 akrýlmyndir.
Gallerí 101 | Daníel Magnússon myndlist-
armaður – Matprjónagerð lýðveldisins
kynnir: Innihald heimilisins.
Gallerí Fold | Guðrún Indriðadóttir, Ingunn
Erna Stefánsdóttir og Áslaug Höskulds-
dóttir – Þrjár af okkur. M.J. Levy Dickinson
– Vatnslitaverk.
Gallerí i8 | Kristján Guðmundsson – Arki-
tektúr
Gallerí Sævars Karls | Hjörtur Marteins-
son – Ókyrrar kyrralífsmyndir.
Gallerí Tukt | Illgresi. Manifesto: Illgresi er
svar alþýðunnar við elítunni!
Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir – Efn-
ið og andinn.
Grafíksafn Íslands | Í dimmunni – samsýn-
ing.
Hafnarborg | Jólagjafir hönnunarnema í
Iðnskólanum í Hafnarfirði til þjóðþekktra
Íslendinga.
Hólmaröst, Lista- og menningarverstöð |
Jón Ingi Sigurmundsson – Olíu- og vatns-
litamyndir.
Hrafnista Hafnarfirði | Sólveig Eggertz
Pétursdóttir sýnir myndir sínar í Menning-
arsalnum.
Hönnunarsafnið | Sænskt listgler – þjóð-
argjöf í Hönnunarsafninu.
Kaffi Sólon | Kristín Tryggvadóttir sýnir ol-
íumálverk – Leikur að steinum.
Kling og Bang gallerí | Sigurður Guð-
jónsson – Hýsill.
Listasafn ASÍ | Erling Þ.V. Klingenberg og
David Diviney – Ertu að horfa á mig / Are
you looking at me. Sara Björnsdóttir – Ég
elska tilfinningarnar þínar.
Listasafn Árnesinga | Tumi Magnússon –
Innsetning.
Listasafnið á Akureyri | Patrick Huse –
Encounter.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist: um
veruleikann, manninn og ímyndina. 20 lista-
menn sýna.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Þrjár
sýningar: Ný íslensk gullsmíði í Austursal,
Salóme eftir Richard Strauss í Vestursal og
úrval verka úr einkasafni Þorvaldar Guð-
mundssonar og Ingibjargar Guðmunds-
dóttur á neðri hæð safnsins.
Listasafn Reykjanesbæjar | Valgarður
Gunnarsson – Eilífðin á háum hælum.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Grafísk
hönnun á Íslandi. Stendur til áramóta. Erró
– Víðáttur.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Textíllist 2004 – Alþjóðleg textílsýning.
Stendur til 16. jan. Myndir úr Kjarvalssafni.
Listmunahúsið | Sýning á verkum Valtýs
Péturssonar.
Norræna húsið | Vetrarmessa
Nýlistasafnið | Ráðhildur Ingadóttir – Inni í
kuðungi, einn díll. Björk Guðnadóttir – Eilífð-
in er líklega núna.
Thorvaldsen | Linda Dögg Ólafsdóttir –
–sKæti–
Listasýning
Handverk og hönnun | Hjá Handverki og
hönnun stendur yfir jólasýningin „Allir fá þá
eitthvað fallegt…“ Þetta er sölusýning þar
sem 32 aðilar sýna íslenskt handverk og
listiðnað úr fjölbreyttu hráefni. Dómnefnd
valdi muni á sýninguna.
Söfn
Kringlan | Sýning á vegum Borg-
arskjalasafns Reykjavíkur á 2. hæð Kringl-
unnar þar sem sýnd verða skjöl tengd jóla-
haldi landsmanna og sérstaklega fjallað um
jólin 1974, m.a. sýnd jólakort frá ýmsum
tímum. Einnig fjallað um hvað var að gerast
í Reykjavík árið 1974. Opin á sama tíma og
Kringlan.
www.skjaladagur.is | Þjóðskjalasafn Ís-
lands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og hér-
aðsskjalasöfn um land allt hafa sameinast
um vefinn www.skjaladagur.is þar sem er að
finna fróðleik og sýningu um árið 1974 í
skjölum.
Þjóðskjalasafn Íslands | Þjóðskjalasafn Ís-
lands er með sýningu um „Árið 1974 í
skjölum“, á lestrarsal safnsins að Lauga-
vegi 162. Sýnd eru skjöl sem tengjast
þjóðhátíðinni 1974, skjalagjöf Norðmanna
og opnun hringvegarins.
Mannfagnaður
Klink og Bank | Spuni kl. 21. Markmið
Spuna er að kynna og stuðla að almennum
spuna. Spuni gerir engan greinarmun á
listgreinum, heldur innleiðir þær allar og
samtvinnar þar sem við á. Allir eru vel-
komnir sem þátttakendur eða áhorfendur,
endurgjaldslaust. Nánari upplýsingar á
http://where.is/spuni.
Fréttir
Bókatíðindi 2004 | Númer miðvikudags-
ins 1. desember er 82407.
Krabbameinsfélagið | Heimahlynning verð-
ur með samverustund fyrir aðstandendur í
kvöld kl. 20–22, í húsi Krabbameinsfélags
Íslands, Skógarhlíð 8. Kór Kársnesskóla
syngur jólalög og Þórunn Lárusdóttir verð-
ur með upplestur. Boðið er upp á kaffi og
meðlæti.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar–
og fataúthlutun í dag kl. 14–17 að Sól-
vallagötu 48. Svarað í síma og tekið við
gjöfum mán.–fim. kl. 11–16. Netfang:
mnefnd@mi.is.
Fyrirlestrar
Kennaraháskóli Íslands | Opinn fyrirlestur
kl. 16.15. Brynhildur Briem, lektor í mat-
væla- og næringarfræði fjallar um mat-
reiðslubækur Helgu Sigurðardóttur, skóla-
stjóra Hússtjórnarkennaraskóla Íslands,
sem síðar rann inn í KHÍ.
Námskeið
www.ljosmyndari.is | Helgarnámskeið 11.–
12. des. kl. 13–17. Farið í stillingar vélarinnar
svo sem: ljósop, hraða, White Balance, ISO,
pixlar. Tekið fyrir; almenn myndataka, port-
rett, skipuleggja myndasafn, setja myndir
á geisladisk, senda myndir í tölvupósti,
prenta myndir o.fl. Skráning á www.ljos-
myndari.is.
Málstofur
Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | Ásgeir
Jónsson, lektor við viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla Íslands, flytur erindið
„Áhrif banka á efnahagslegar framfarir á
Íslandi“ í Odda, stofu 101, kl. 12.15. Í fyrir-
lestrinum er reynt að setja þróun íslenskra
bankaviðskipta í samband við þróun sam-
svarandi viðskipta erlendis.
Fundir
Félag húseigenda á Spáni | Félag húseig-
enda á Spáni hedur árlegan jólafund,
sunnud. 5. desember kl. 17, í sal á efri hæð
veitingahússins Naustsins við Vesturgötu.
Kvenréttindafélag Íslands | Jólafundur
Kvenréttindafélags Íslands verður kl. 20, á
Hallveigarstöðum, Túngötu 14. Upplestur
úr nýjum bókum, tónlist o.fl. Einnig er boð-
ið upp á veitingar.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Búðu þig undir að heyra frá vinum og
kunningjum í öðrum löndum eða fjar-
lægum heimshlutum. Rökræður um trú-
mál og stjórnmál taka sig upp að nýju.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú færð tækifæri til þess að hnýta ýmsa
lausa enda í málefnum sem varða erfða-
skrár, erfðagripi, tryggingar og sameig-
inlegar eignir á næstunni. Brettu upp
ermarnar, allt fer vel.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Gamlir sénsar og vinir úr fortíðinni láta
á sér kræla um þessar mundir. Ástæðan
er sendiboðinn Merkúr, sem er í beinni
mótstöðu við sólina þína og auk þess í
afturábakgír, séð frá jörðu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Notaðu tímann til þess að klára verkefni
sem bíða í vinnunni. Þetta er alls ekki
rétti tíminn til þess að byrja á einhverju
nýju. Ljúktu við verkin sem hafin eru.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki er ólíklegt að fyrrverandi elsk-
hugar og ástkonur verði á vegi þínum á
næstunni. Sagt er að velgengni sé besta
hefndin, reyndu að sýnast hamingju-
semin og sjálfstraustið uppmálað.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Fylltu ísskápinn. Fjölskyldumeðlimir
sem þú hefur ekki séð í háa herrans tíð
láta senn á sér kræla. Endurfundir
skyldfólks eru líka sennilegri en nokkru
sinni fyrr núna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Borgaðu símreikninginn og sinntu erind-
um sem hindrað gætu samskipti þín við
aðra. Passaðu líka upp á að láta gera við
bílinn. Það er aldrei að vita hvað gerist.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sért þú í verkefnaleit er farsælast að
leita á gömul mið. Andrúmsloftið fyrir
ný viðskiptasambönd er ekki gott núna
og á næstu vikum. Kláraðu það sem þú
ert með í gangi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sendiboðinn Merkúr er í afturábakgír í
þínu merki og verður svo þangað til 20.
desember. Skyldi það vera út af því sem
þú ert svona gleyminn og klaufskur
núna, bogmaður?
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Á næstu vikum eru aðstæður frábærar
til þess að gera upp gamlar skuldir.
Hnýttu alla lausa enda í málum sem
varða stofnanir af ýmsu tagi, svona tæki-
færi varir ekki lengi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú rekst á fjölda vina núna og fólk sem
þú þekktir einu sinni er á hverju strái.
Mikilvægt er að sýna þeim sem þú deilir
fortíðinni með ræktarsemi. Gleðstu yfir
þessu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hugsanlegt er að þú þurfir að standa á
máli þínu gagnvart yfirboðara út af ein-
hverju sem þú hefur gert. Gamall yfir-
maður gæti líka dúkkað upp, vertu vin-
semdin uppmáluð.
Stjörnuspá
Frances Drake
Bogmaður
Afmælisbarn dagsins:
Þú býrð yfir krafti og félagslyndi og vilt
vinna með fólki. Hugsjónir þínar eru
háleitar og þú verð það sem þú trúir á.
Þú vilt að fólk komi vel fram við hvert
annað. Rausnarskapur á tíma og fé
eru líka einkenni þitt og þú vilt gera
þitt gagn í veröldinni.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 ógallaður,
8 mannsnafn, 9 fjallstopps,
10 reið, 11 horuð, 13 rækt-
uð lönd, 15 kjöts, 18 hey-
sátu, 21 verkfæri, 22 eyja,
23 traust, 24 gata í
Reykjavík.
Lóðrétt | 2 götu, 3 sefur,
4 smáa, 5 alda, 6 hæðum,
7 mynni, 12 sár, 14 hús-
dýra, 15 hörfa, 16 sötrar
með tungunni, 17 fælin,
18 skarpskyggn, 19 sló,
20 ægisnál.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 gljái, 4 skell, 7 fótum, 8 ártíð, 9 afl, 11 norn,
13 hrun, 14 ýkjur, 15 fúst, 17 ódýr, 20 átt, 22 glæst,
23 rípur, 24 rotta, 25 gorta.
Lóðrétt | 1 gufan, 2 Jótar, 3 ilma, 4 stál, 5 ertur, 6 lóðin,
10 fljót, 12 nýt, 13 hró, 15 fögur, 16 skært, 18 dapur,
19 rorra, 20 átta, 21 treg.
HLJÓMSVEITIN Leaves heldur tónleika í
kvöld á Grand rokki, en sveitin hefur und-
anfarnar vikur verið að leggja lokahönd á
upptökur á nýrri plötu sem kemur út á
næsta ári.
„Við vorum að klára síðustu upptök-
urnar í síðustu viku,“ segir Arnar Guð-
jónsson, söngvari og lagasmiður sveit-
arinnar, en fram undan er hljóðblöndun
og tónleikaferð til Bretlands, þar sem
sveitin mun leika á tvennum tónleikum.
„Við ætlum að spila nýtt efni á Grand
rokki, við ætlum að prufukeyra nýju lögin
og sjá hvernig þetta virkar allt saman.“
Gert er ráð fyrir að nýja platan komi
út í maí nk. og leggja Leaves-menn í vík-
ing í janúar til að kynna hana. „Það er
gert ráð fyrir að fyrsta smáskífan af
plötunni komi út fljótlega eftir áramót.
Eitt lag af plötunni var lag vikunnar á
iTunes og þúsundir manna náðu í það,
svo kynning á plötunni er í rauninni haf-
in,“ segir Arnar. „Við erum búnir að vera
að þróast mjög frá síðustu plötu. Sveitin
hefur breyst dálítið, það er kominn nýr
trommari og hljómborðsleikarinn, sem
var með okkur í upphafi, er kominn aftur.
Þá hefur tónlistin þróast mjög mikið frá
síðustu plötu. Við erum búnir að eyða
miklum tíma í að vera saman að spila
inni í herbergi, reyna að finna rétta
hljóminn fyrir okkur og þróa hann
áfram.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Leaves kynna nýtt efni á Grand rokki
Tónleikar Leaves hefjast kl. 22.
Fréttir á SMS