Morgunblaðið - 01.12.2004, Side 44

Morgunblaðið - 01.12.2004, Side 44
smáauglýsingar mbl.is 44 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ GEISLADISKUR með Jóhönnu V. Þórhallsdóttur inniheldur sæt lög; Þá ljúfu tíð eftir Niels-Henning Ørsted Pedersen, Dómar heimsins eftir Valgeir Guð- jónsson og mörg fleiri. Eins og nafn disksins gef- ur til kynna er tónlistin róleg og Jóhanna syngur hana í afslöpp- uðum dægurlaga- stíl, ríkulega krydduðum með blíðlegu, léttdjössuðu hljómsveit- arspili þeirra Aðalheiðar Þorsteins- dóttur (píanó), Tómasar R. Ein- arssonar (bassa) og Erik Qvick (trommur). Angurvær rómantík svífur yfir vötnunum; þetta er músík sem hægt er að vanga við rétt fyrir svefninn. Jóhanna hefur sérstæða, dökka rödd sem hugsanlega er ekki allra. Hún syngur hreint en túlkunin er fullhamin, eins og hún sé of mikið að vanda sig. Sum lögin þola það reynd- ar ágætlega en önnur virka flöt. Þar á meðal er lagið Tárin svörtu, sem er svo dauðyflislegt að maður spyr sjálfan sig hvað það sé að gera þarna yfirleitt. Dægurlagakennd umgerðin gerir að verkum að lögin eftir Eyþór Stef- ánsson og Karl O. Runólfsson, sem upphaflega eru hugsuð í öðru sam- hengi, hljóma eins og hver önnur lyftumúsík. Lög Tómasar R. Ein- arssonar eru hins vegar seiðandi og falleg, og er sömu sögu að segja um Lýstu mér eftir Árna Björnsson. Það dugir þó ekki til að gera heild- armynd geisladisksins áhugaverða; ég er viss um að Jóhanna getur gert betur en þetta. TÓNLIST Íslenskar plötur Jóhanna V. Þórhallsdóttir syngur ásamt hljómsveit. Lög eftir ýmsa höfunda. Val- garði 2004. Lágnætti Jónas Sen Jóhanna V. Þórhallsdóttir ÍSLENDINGAR eru í miklum meirihluta á samsýningunni í sal Íslenskrar grafíkur eða 16 að tölu, síðan eru þrír frá Færeyjum og tveir frá Grænlandi. Það segir kannski eitthvað um ákveðinn sam- runa þessara menningarsvæða að engan veginn er mögulegt að benda á einhverja mynd á sýning- unni og segja hvaðan hún sé upp- runnin. En hvað er það sem sam- einar þessar þrjár þjóðir kannski meira en nokkuð annað, a.m.k. á yfirborðinu – jú auðvitað fjórða þjóðin, sem hér er ekki með nema sem áhrifavaldur, nefnilega Dan- mörk. Listamenn þessara þriggja þjóða halda jú margir til náms í Danmörku. En það gerir okkur ekki að Dönum heldur erum við líklega fyrst og fremst börn okkar eigin lands og þjóðar og verðum fyrir mestum áhrifum af umhverfi okkar heima fyrir. Skammdegið er ríkt í undirmeðvitund þjóðanna þriggja en eins og fram kemur í sýningarskrá er það öðru fremur samspil ljóss og skugga sem er þema sýningarinnar og að auki sí- gilt viðfangsefni grafíklistarinnar. Þetta er sá þráður sem nær að tengja saman verkin á sýningunni. Margar frekar smáar myndir eru uppistaða þessarar sýningar, verk- in eru fjölbreytt og mismunandi að gæðum. Nokkur standa upp úr, eins og lítil mynd Elvu J. Hreið- arsdóttur, Myndun. Einfaldara get- ur það varla orðið en þó býr þessi litla mynd yfir töfrum sem aðeins grafíkin hefur á valdi sínu. Snjó- þræðir Guðbjargar Ringsted er heilsteypt mynd og Ljós í Hvammi eftir Pjetur Stefánsson sker sig úr hvað varðar dramatík. Það er þó mynd Sigridar Valtingojer sem er hvað mest grípandi en hún skapar listilega andstæður ljóss og skugga. Verk Astridar Luihn eru eftirtekt- arverð en hún sýnir dúkinn sjálfan, líkt og þrykkið verði til á sjáaldri áhorfandans þegar horft er á verk- ið. Flestar myndirnar á sýningunni birta einhvers konar samspil ljóss og skugga og hún sómir sér vel núna í dimmasta skammdeginu. MYNDLIST Salur Íslenskrar grafíkur Til 12. des. Salurinn er opinn fim.– sun. frá kl. 14–18. GÍF, samsýning grænlenskra, íslenskra og færeyskra grafíklistamanna. Ragna SigurðardóttirBach J. S. Bach ::: Hljómsveitarsvíta nr. 3 í D-dúr, BWV 1068 J. S. Bach ::: Kantata nr. 172, „Erschallet, ihr Lieder” G. P. Telemann ::: Vatnamúsík, „Hamburger Ebb und Fluht“ J. S. Bach ::: Magnificat í D-dúr, BWV 243 Hljómsveitarstjóri ::: Robert King Einsöngvarar ::: Gillian Keith, Diana Moore, Gunnar Guðbjörnsson, Stephen Richardson Kór ::: Hamrahlíðarkórarnir undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 2. DESEMBER KL. 19.30Gul áskriftarröð #3 Tónlistarkynning: Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur kynnir efnis- skrá kvöldsins í Sunnusal Hótel Sögu kl. 18:30. Samverustund Vinafélags SÍ hefst kl. 18.00. Verð 1000 kr. Súpa og brauð innifalið. Allir velkomnir. HÉRI HÉRASON Fyndið - fjörugt - ferskt - farsakennt Stóra svið Nýja svið og Litla svið BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Fi 2/12 kl 20, Fö 3/12 kl 20 Fö 10/12 kl 20, Su 12/12 kl 20, Mi 29/12 kl 20 Aðeins þessar sýningar HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar Eftir vesturfarasögum Böðvars Guðmundssonar Frumsýning fö 7/1 kl 20 - UPPSELT Lau 8/1 kl 20 - gul kort Su 9/1 kl 20 - aukasýning Lau 15/1 kl 20 - rauð kort Su 16/1 kl 20 - græn kort Fö 21/1 kl 20 - blá kort Lau 22/1 kl 20 GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ - GILDIR ENDALAUST Gjafakort fyrir einn kr. 2.700 - gjafkort fyrir tvo kr. 5.400 Gjafakort á Línu Langsokk fyrir einn kr. 2.000, fyrir tvo kr. 4.000 VIÐ SENDUM GJAFAKORTIN HEIM ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU - pantið í síma 568 8000 eða á midasala@borgarleikhus.is Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 5/12 kl 14, Su 2/1 kl 14 Su 9/1 kl 14, Su 16/1 kl 14 HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 4/12 kl 20, Fö 14/1 kl 20, Su 23/1 kl 20 BROT AF ÞVÍ BESTA - BÓKAKYNNING Kringlusafns, Kringlunnar og Borgarleikhúss: Halldór Guðmundsson, Kristín Marja Baldursdóttir, Kristín Eiríksdóttir, Jóhanna Kristjónsdóttir, Sigmundur Ernir, Þórarinn Eldjárn Fi 2/12 kl 20, Aðgangur ókeypis, Ljúfir tónar og léttar veitingar PERLUJÓL - DAGSKRÁ Leikhópurinn Perlan Leiklist, tónlist, dans Su 5/12 kl 14 - kr 1.200 SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Fö 3/12 kl 20, Lau 4/12 kl 20 15:15 TÓNLEIKAR - DEAN FERRETT Captaine Humes Musicall Humors Lau 4/12 kl 15:15 - Tal og tónar AUSA eftir Lee Hall og STÓLARNIR eftir Ionesco Í samstarfi við LA Frumsýning fi 30/12 kl 20 - UPPSELT Su 2/1 kl 20, Fö 7/1 kl 20, Lau 8/1 kl fös. 3. des. kl. 20. aukasýning lau. 4. des. kl. 20. aukasýning allra síðustu sýningar Miðasalan er opin kl. 13-18 mán. og þri. Aðra daga kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. www.leikhusid.is • midasala@leikhusid.is Þjóðleikhúsið sími 551 1200 ERN EFTIR ALDRI Dansleikhúsveisla í kvöld Allra síðasta sýning! • Stóra sviðið kl. 20:00 ERN EFTIR ALDRI – Auður Bjarnadóttir. Sýning Svöluleikhússins Í kvöld mið. 1/12 nokkur sæti laus. Allra síðasta sýning. ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason /leikgerð Baltasar Kormákur Fös. 3/12 nokkur sæti laus. Síðasta sýning fyrir jól. fös. 7/1. EDITH PIAF – Sigurður Pálsson Lau. 4/12 uppselt, lau. 11/12 uppselt, sun. 12/12 uppselt, mið. 29/12 uppselt, fim. 30/12 uppselt, sun. 2/1 nokkur sæti laus, lau. 8/1 örfá sæti laus, sun. 9/1. DÝRIN Í HÁLSASKÓGI – Thorbjörn Egner Sun. 5/12 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 12/12 kl. 14:00 nokkur sæti laus, fim. 30/12 kl. 14:00. • Smíðaverkstæðið kl. 20:00 NÍTJÁNHUNDRUÐ – Alessandro Baricco Fös. 3/12, lau. 11/12 örfá sæti laus. Síðustu sýningar fyrir jól. Ekki er hægt að hleypa inn í salinn eftir að sýning er hafin. • Litla sviðið kl. 20:00 BÖNDIN Á MILLI OKKAR – Kristján Þórður Hrafnsson Fös. 3/12. Síðasta sýning fyrir jól. Fös. 7/1. Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. SÍÐUSTU SÝNINGAR: sun. 5. des. kl. 14- sun. 12. des kl. 14 – sun. 19. des kl. 14 – sun. 26. des kl. 14 Gjafakort í Óperuna - upplögð gjöf fyrir músikalska starfsmenn og viðskiptavini Miðaverð við allra hæfi: Frá kr. 1.000 upp í 6.500 – og allt þar á milli. Gjafakort seld í miðasölu. Tosca – Frumsýning 11. febrúar – Miðasala hafin Miðasala á netinu: www.opera.is ☎ 552 3000 EKKI MISSA AF KÓNGINUM! AÐEINS TVÆR SÝNINGAR EFTIR: • Sunnudag 12/12 kl 20 NOKKUR SÆTI • Sunnudag 26/12 kl 20 LOKASÝNING eftir LEE HALL Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is TVEIR FYRIR EINN á netinu Kíktu á loftkastalinn.is og tryggðu þér tvo miða á verði eins. Lau . 04 .12 20 .00 NOKKUR SÆTI Lau . 11 .12 20 .00 NOKKUR SÆTI F im. 30 .12 20 .00 LAUS SÆTI Miðasa lan e r op in f rá k l . 14 -18 Lokað á sunnudögum ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR          Mið. 1. des. kl. 21.00 Fim. 9. des. kl. 20.30

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.