Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 45

Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 45 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími ÓLIVER! frumsýnt 28. des Óliver! Eftir Lionel Bart Þri 28/12 kl 20 UPPSELT Frums. Mið 29/12 kl 20 UPPSELT Fim 30/12 kl 16 UPPSELT Fim 30/12 kl 21 UPPSELT Sun 2/1 kl 14 örfá sæti Sun 2/1 kl 20 örfá sæti Fim 6/1 kl 20 örfá sæti Lau 8/1 kl 20 UPPSELT Sun 9/1 kl 20 nokkur sæti Fim 13/1 kl 20 nokkur sæti Lau 15/1 kl 20 nokkur sæti Sun 16/1 kl 20 nokkur sæti Sýnt í Reykjavík: Eldað með Elvis, Svik og Ausa og stólarnir Pamela Anderson sást yfirgefa húsStephen Dorff á sunnudags- morguninn eftir að hafa eytt nóttinni þar. Sjónarvottar segja að hún hafi laumast út um kl. 10.30 í fötunum sem hún var í kvöldið áður. „Hárið á henni var úfið og það var augljóst að hún var að skríða fram úr rúminu,“ sagði sjónarvottur í sam- tali við New York Post. Vinur Dorff, sem nýlega lék í myndbandinu „Everytime“ með Britney Spears, segir að samband þeirra sé platónskt. „Þau eru búin að vera vinir í mörg ár og eftir því sem ég best veit eru þau ennþá bara vin- ir.“    Catarine Zeta-Jones ætlar að festakaup á fótboltaliði. Sagt er að hún ætli að kaupa velska liðið Llanelli AFC, af frænda sínum á tæpa fjóra og hálfan milljarð króna. Catherine er stolt af velskum rótum sínum og hefur heimsótt lið- ið nokkrum sinn- um en það er á botninum á velsku úrvalsdeildinni. Starfsmenn hjá fótboltaliðinu hafa viðurkennt að þeir hafi mikinn áhuga á að leikkonan, sem er gift Michael Douglas, kaupi liðið og gefi því þannig heilmikla athygli og peninga. Fólk folk@mbl.is U2 hefur drottnað sem „mesta rokk- sveit heims“ (skrásett vörumerki) lengur en sumir kæra sig um að muna. Því fylgja fleiri kostir en gallar, um það verður ekki deilt hér. En einn gallinn, einn vandi sem listamenn í slíkri stöðu þurfa að glíma við er að þurfa að búa til tónlist sem stendur uppi í hárinu á vörumerkinu. U2 er með öðrum orðum löngu orðin stærri en tónlistin sem þeir búa til, rétt eins og Rolling Stones og REM t.a.m. Þetta er hinn mesti vandi fyrir metnað- arfulla tónlistar- menn eins og þeir írsku fjórmenning- ar klárlega eru. Síðustu plötur hafa opinberað þennan vanda, á óþægilega áberandi máta, einkum þó hin herfi- lega Pop. Kunni ég ágætlega við poppið smeðjulega sem var að finna á All That You Can’t Leave Behind, þótt auðvitað hafi sveitin þar verið alltof umhugað um að gera öllum til geðs. Sama má eiginlega segja um nýju plötuna. Hér er reynt að þóknast öðr- um, með því að leita aftur í ræturnar, en þó ekki nándar eins mikið og áður, sem greina má að því að þeir virðast finna sig mun betur í því sem þeir eru að gera núna en oft áður. Eru í gamla nostalgíugírnum, búa til lög sem hljóma svolítið eins og gömlu perlurn- ar; „City of Blinding Lights“ minnir t.a.m. þægilega á „New Years Day“ og „Sometimes You Can’t Make It On Your Own“ hefði getað verið ein af hinum fínu b-hliðum sem ekki komust á Unforgetable Fire eða Josuah Tree og hugsunin á bak við „All Because of You“ er væntanlega að það hefði get- að verið samið fyrir October og litla systirin í „A Man And a Woman“ gæti verið litla systir Partístelpunnar. Þetta er umdeilanleg nálgun Ég, sem gamall U2-aðdáandi, þráði ekk- ert sérstaklega heitt að þeir myndu fara aftur að gera þetta „gamla og góða“. Nei, þvert á móti fólst sjarm- inn lengi vel í því hversu einstakt lag þeir höfðu á því að endurnýja sig, ganga skrefi lengra í tónlistarsköpun- inni, án þess að það yrði á kostnað sinna tryggu aðdáenda. En það breytir því ekki að nýja platan er örugglega algjör sprengja fyrir þá sem vilja bara þetta „gamla góða“. Því verður heldur ekki neitað að hér heilmargt vel gert. Textar Bonos vandaðir, tilfinningaríkir og furðu jarðbundnir og lög á borð við „One Step Closer“, „Original of the Species“ og „Love and Peace or Else“ fantagóð. Þessi nýjasta U2-sprengja er kannski komin svolítið til ára sinna, en hún springur nú samt. Það mætti t.d. nota hana til þess að sprengja í loft upp helsta ljóð plötunnar, hinn af- spyrnuvonda og ofursperrta smjörþef „Vertigo“. En hún springur samt TÓNLIST Erlendar plötur U2 – How to Dismantle an Atomic Bomb  Skarphéðinn Guðmundsson Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.