Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 49
STELPUSKJÁTAN hún Birgitta Jóns á ennþá hug flestra bíógesta en önnur myndin um þessa óöruggu en óviðjafnanlegu söguhetju var vin- sælasta myndin í bíóhúsum hér á landi aðra helgina í röð. Yfir 4 þús- und manns sáu hana um helgina. „Eigum við ekki bara að segja að all- ir elski Bridget Jones. Hún er núna komin í 17.500 eftir tvær vikur í sýn- ingu. Fólkið er mjög sátt við þetta framhald og hún á nóg eftir,“ segir Christof Wehmeier hjá Sambíó- unum en myndin gekk betur um aðra helgina en fyrri myndin. Efsta nýja myndin á lista er ein af jólamyndunum í ár, í orðsins fyllstu merkingu. Jólaklúður Kranks- fjölskyldunnar (Christmas with the Kranks) er ein af þessum ekta amer- ísku jólamyndum sem ætluð er allri fjölskyldunni. Hún skartar meira að segja Tim Allen í aðalhlutverki en segja má að hann hafi sérhæft sig í jólamyndum síðan hann hætti að leika í þáttunum vinsælu Handlag- inn heimilisfaðir. Að sögn Jóns Gunnars Geirdal hjá Skífunni eru nálægt 4 þúsund manns búin að sjá myndina, að meðtöldum forsýn- ingum. Hún var heimsfrumsýnd hér á landi síðastliðinn fimmtudag, sama dag í Bandaríkjunum. Jón Gunnar segir viðbrögð áhorfenda svipuð hér og vestra: „Áhorfendur voru mjög ánægðir með myndina og 91% að- spurðra fannst hún „frábær“ eða „mjög góð“ og 80% myndu „pottþétt mæla með henni“ sem er mjög svip- að og þau viðbrögð sem við erum að fá frá íslenskum kvikmynda- húsagestum. Chris Columbus (Home Alone, Mrs. Doubtfire og Harry Potter 1 & 2 ofl.) skrifar líka handritið og þekkir fjölskylduform- úluna vel! “ Jón Gunnar segist búast við því að, líkt og jólamyndir gera vanalega, þá eigi Jólaklúðrið eftir að ganga vel fram að og yfir jólahátíðina. Þá koma myndirnar Without A Paddle og Open Water beint inn í 4. og 5. sætið en báðar fjalla um fólk í neyð, á æði ólíkan hátt. Hin fyrri er gamanmynd um þrjá félaga sem lenda í dæmalausum hremmingum er þeir skella sér í kanóleiðangur. Seinni fjallar um par sem verður fyrir þeirri skelfilegu lífsreynslu að vera skilið eftir tvö, ein og yfirgefin, úti á ballarhafi í köfunarleiðangri. Bíóaðsókn | Jólamyndirnar gera vart við sig Birgitta og Jólaklúðrið Jólaklúðrið: Tim Allen er sannkallaður jólasveinn. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 49 Búið ykkur undir að öskra. Stærsta opnun á hryllingsmynd frá upphafi í USA. KRINGLAN kl. 10.10. B.i. 16 ára. Stanglega bönnuð innan 16 ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15 og 10.20. M.M.J. Kvikmyndir.com  H.J. Mbl.  Kvikmyndir.is ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 5.40, 8 og 10.20. SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.40 8 OG 10.20. SETH GREEN MATTHEW LILLARD DAX SHEPARD Frá leikstjóra Mr Deeds kemur gamanmynd sem fær þig til að missa það algjörlega. Fór beint á toppinn í USA M.M.J. Kvikmyndir.com  Kvikmyndir.is RENEE ZELLWEGER HUGH GRANT COLIN FIRTH Sama Bridget. Glæný dagbók. H.J. Mbl.  Stanglega bönnuð innan 16 ára Frá spennumyndaleikstjóranum, Renny Harlin kemur þessi magnaði spennutryllir sem kemur stöðugt á óvart. l i tj , li i i t lli t t t. Kvikmyndir.is  ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.20. KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10.10 HILARY DUFF CHAD MICHAEL MURRRAY Sagan af Öskubusku í nýjum búningi ÁLFABAKKI kl. 4 og 6. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.10. Kvikmyndir.is H.J.Mbl.  ÁLFABAKKI kl. 3.45 og 6.15. Ísl tal. H.L.Mbl.  KRINGLAN Sýnd kl. 6. AKUREYRI kl. 8 og 10.10. AKUREYRI kl. 6, 8 og 10. AKUREYRI Sýnd kl. 6. KRINGLAN kl. 6. Ísl tal. kl. 8. Enskt tal. L´affaire Marcorelle (Marcorelle málið) Inspecteur Lavardin Scénes de Crimes (Glæpavettvangur) ÁLFABAKKI kl. 4, 6, 8 og 10.10. S.V. Mbl.  SÖNGKONUNA Ragnheiði Gröndal þarf ekki að kynna, en mikið hefur borið á henni síðustu misserin. Hér kemur hún með sína aðra plötu og nefnist hún Vetrarljóð. Það er einvala lið tónlistarmanna sem er hér Ragn- heiði til fulltingis enda hljóðfæra- leikur allur með ágætum. Hér stimplar Ragnheiður sig heldur betur inn sem afar snjall lagasmið- ur. Hún á fjög- ur lög á plöt- unni, þau sem skilja hvað mest eftir sig og standa raunar algjörlega uppúr. Þar fer fremst lagið „Landgangur“ með sínu þjóðlagakennda viðlagi og snjöllum texta Hallgríms Helgasonar ortum í anda Vatnsenda-Rósu. Stórglæsilegt lag. Hið djassskotna lag Ragnheiðar „Gamlar vísur um blóm“ sýnir, svo ekki verður um villst, úr hvaða jarð- vegi hún er sprottin. Lagið „Jóla- kveðja“ er lágstemmt og hugljúft jólalag sem mun væntanlega hljóma um ókomin jól héðan í frá. Punktinn setur hún svo með síðasta lagi plöt- unnar „Vögguljóð – rituð á jólakort“ sem hún semur við ljóð langafa síns og leikur jafnframt á píanóið með til- þrifum. Framlag Magnúsar Þórs Sig- mundssonar er heldur ekki lítið á þessari plötu, eða fjögur lög. Þar ber af lagið „Norðurljós,“ sem er samið við samnefnt ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Ljóð þetta er eitt það feg- ursta sem ort hefur verið á íslenska tungu, og liggur það í hlutarins eðli að lag samið við þess konar ljóð hlýt- ur að hafa eitthvað til brunns að bera, og sannast það hér. Glæsilegur söng- ur Ragnheiðar er svo studdur mögn- uðum píanóleik slaghörpuleikara Nýdanskrar, Jóns Ólafssonar. Í hin- um þremur lögum Magnúsar, „Húm- ar að“, „Ítem“ og „Nótt“ er róið á svipuð mið og gert var í laginu „Ást“ sem kom út á síðasta ári. Áferð- arfalleg lög, en hafa lítið nýtt fram að færa. Útsetningin á lagi Ingibjargar Þórbergs „Jólakötturinn“ er frábær- lega vel heppnuð. Hér má heyra svo- lítið nýja hlið á söngkonunni, greini- legt er að þarna býr óbeislaður kraftur sem fram að þessu hefur ekki mikið farið fyrir. Ljóst má telja að hið smekklega og hljómþýða lag „Jól“ eftir Jón Ólafsson eigi eftir að skipa sér í flokk klassískra íslenskra jóla- laga þegar fram líða stundir. Lögin „Vetrarsól“, „Kærleikur“ og „Gleði og friðarjól“ hljóma hins vegar eins og uppfylling og bæta engu við það sem áður hefur verið gert í flutningi þeirra. Plata þessi geldur fyrir tvennt; annars vegar það að vera hálfgildings jólaplata, sem er klaufalegt, en hætt er við hún fari inn í skáp eftir hátíð- arnar með hinum jólaplötunum og sjáist ekki aftur fyrr en að ári. Annað hvort eru plötur jóla eða ekki jóla. Hins vegar það að á köflum hljómar þetta frekar eins og plata útgefand- ans en sólóplata Ragnheiðar Gröndal, að ákveðið hafi verið að gefa út auð- seljanlega plötu. Hyggilegra hefði verið fyrir alla (nema kannski útgef- andann) að bíða með þessa útgáfu, gefa söngkonunni lausari tauminn og meiri tíma til að semja, og gefa svo út alvöru sólóplötu síðar. Því þrátt fyrir að hér sé landslið hljóðfæraleikara og lagasmiða samankomið er það samt þáttur Ragnheiðar sjálfrar sem stendur algjörlega uppúr. Hann er bara því miður ekki nógur stór til að gera þessa plötu eins góða og hún hefði getað orðið. Jóla – eða ekki jóla? TÓNLIST Íslenskur geisladiskur Ragnheiður Gröndal hefur sent frá sér plötuna Vetrarljóð. Ragnheiður syngur og leikur auk þess á píanó í einu lagi. Auk hennar leika á plötunni Guðmundur Pét- ursson (gítar, dobro), Jón Ólafsson (píanó, orgel), Róbert Þórhallsson (raf- bassi, kontrabassi), Birgir Baldursson (trommur, tabla), Haukur Gröndal (klarín- ett, bassett-horn), Snorri Sigurðsson (trompet), Ásgeir Óskarsson (slagverk) og Hrafnkell Orri Egilsson (selló). Um upptökustjórn sá Jón Ólafsson, og var platan hljóðrituð í Stúdíó Sýrlandi og Eyr- anu. Útgefandi Steinsnar ehf. Ragnheiður Gröndal – Vetrarljóð  Grétar Mar Hreggviðsson Morgunblaðið/Ómar Á annarri plötu Ragnheiðar Gröndal eru lög tileinkuð vetrinum og jólum.   "   $  %      &    %  (  %  * "+                                               ! "# # $       % "  &' (    "  ! "# # $     #)!*+  "#)$ +                !  "  #     %% &'( ) *  +      ) , - /  0                 ,  &   - . / 0 1 2 ,. 3 ,& ,, ,' ,/ ,0 ,2 ,- !  & , & , , . . 2 & - - & - / 0 0 3 - ,/ 1 4*5 6#+4!!7  84*57 9!  7 : +# *!7 ;8!5#4*5 84*57 < 47 4*5 84*57 < 47 4*5 4*5 6#+4!!7 :#7 9!   4*5 6#+4!!7 ;8!5#4*5  84*57 84*57 < 47 4*57 = 4*5 : +# *! 4*5 6#+4!!7 :#7 9!   4*5 6#+4!!7 9!  7 : +# *!7 : 4*5 6#+4!!7 :#7 9!   84*5 4*5 6#+4!!7 :#7 9!    84*57 4*5 4*5 6#+4!!7 ;8!5#4*5 ;8!5#4*5 < 47 >+=?  :#7 : +# *! 84*57   +=?   84*57 4*5 4*5 6#+4!! 84*5

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.