24 stundir - 29.11.2007, Síða 2

24 stundir - 29.11.2007, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir VÍÐA UM HEIM Algarve 17 Amsterdam 7 Ankara 4 Barcelona 12 Berlín 1 Chicago 0 Dublin 11 Frankfurt 3 Glasgow 10 Halifax 8 Hamborg 6 Helsinki -2 Kaupmannahöfn 4 London 11 Madrid 14 Mílanó 9 Montreal -9 München 3 New York 3 Nuuk -7 Orlando 19 Osló 1 Palma 22 París 1 Prag 2 Stokkhólmur -2 Þórshöfn 5 Vaxandi austanátt, víða hvassviðri eða storm- ur vestantil í kvöld. Rigning eða slydda suð- vestanlands undir kvöld, en snjókoma á norð- vesturlandi. Vægt frost inn til landsins, en frostlaust við sjávarsíðuna. Hlýnar heldur. VEÐRIÐ Í DAG 5 4 2 4 5 Hvassviðri og stormur Austan og norðaustan 15 til 23 metrar á sek- úndu og slydda eða rigning, hvassast á Vest- fjörðum. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst. VEÐRIÐ Í DAG 4 4 2 4 5 Allt að sjö stiga hiti „Glæpir gegn konum eru ekki menningarlegur margbreytileiki,“ segir Fatma Mohamud frá Svíþjóð sem hélt erindi á fundi Samtaka kvenna af erlendum uppruna í Norræna húsinu í gær. Hún segir svokölluð heiðurs- morð hafa verið mikið til umræðu í Svíþjóð undanfarin tíu ár og þetta vandamál tengist innflytjendasam- félögum í Svíþjóð: „Karlar sem eru vanir að ráða öllu verða óöruggir þegar konurnar þeirra fara kannski að sjá fyrir heimilinu og börnin haga sér öðruvísi en þeir eiga að venjast. Sumir grípa því til ofbeldis til þess að reyna að halda í völd sín.“ Hún varar þó við því að litið sé á þetta ofbeldi sem hluta af menn- ingararfi þeirra, eða afsakað á þann hátt, því ofbeldi gegn konu af er- lendum uppruna er jafnalvarlegt og ofbeldi gegn innlendri konu. „Við komum inn í þetta land og við eigum að hlíta sömu lögum og Svíar,“ segir hún og ítrekar að of- beldi sé alltaf mannréttindabrot og því beri að takast á við sem slíkt. „Allar konur eigi rétt á að ráða yfir líkama sínum og sínu lífi án þess að eiga á hættu að vera myrt- ar,“ segir Fatma og bætir við að ýmislegt hafi verið gert og verði gert til að sporna gegn svona of- beldi. Þar má nefna fræðslu til stúlkna um réttindi sín, almenna vitundarvakningu um kynbundið ofbeldi. fifa@24stundir.is Fundur Félags kvenna af erlendum uppruna Ofbeldi til að halda í völdin Fatma Mohamud Varar við að litið sé á ofbeldi sem hluta af menningararfi. Harry Potter sat í efsta sæti metsölulista Ey- mundsson í síðustu viku en þessa vikuna fellur hann niður í þriðja sæti listans. Arnaldur Indr- iðason er í fyrsta sæti listans með glæpasögu sína Harðskafi og Óttar Norðfjörð skýst upp í annað sætið með Hníf Abrahams. Yrsa Sigurð- ardóttir er einnig að ná athygli lesenda en bók hennar Aska er í fjórða sæti. Ævisaga Guðna Ágústssonar sem Sigmundur Ernir Rúnarsson skráir kom út síðastliðinn föstudag en þótt bókin hafi ekki verið marga daga í sölu fer hún rakleitt í fimmta sætið. Þórarinn Eldjárn og Sigrún Eldjárn eiga tvær bækur á topp tíu listanum, Tíu litla kenjakrakka og Gælur, fælur og þvælur. Barátta á metsölulista Arnaldur á toppinn á ný 90% öskubíla í Reykjavík verða met- anknúnir um miðjan janúar þegar sex nýir metanbílar verða komnir í gagnið en nú þegar eru þrír öskubíl- ar knúnir metani í Reykjavík. Guð- mundur B. Friðriksson, skrif- stofustjóri á umhverfissviði Reykjavíkur, segir nokkur ár síðan borgin ákvað að metanvæða ösku- bílaflotann en í öllum útboðum hjá borginni er gerð krafa um að sorp- bílarnir séu metanknúnir. „Það er skemmtilegt að vera með ruslabíla sem keyra á metani því metan er unnið úr rusli. Þetta er innlend fram- leiðsla og með umhverfisvænni orkugjöfum,“ segir Guðmundur. Lingþór Jósepsson, rekstrarstjóri Vélamiðstöðvar, segir metanbílana dýrari en hina „en þetta er náttúrulega bara umhverfissjónarmið og ekkert annað, svo það er mjög mikið atriði að nýta þennan orkugjafa betur.“ Þrír nýir bílar eru komnir til Íslenska gámafélagsins, einn fyrir fyrirtækið og tveir fyrir borgina, í viðbót við þá 3 sem fyrir voru. aak Nýir bílar í ruslið Flutningaskipinu Axel sem strandaði í fyrradag út af Höfn í Hornafirði var siglt til Akureyrar. Varðskip fylgdi í humátt á eftir skipinu, samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar, og stöðugt var dælt sjó úr því. Skipið lask- aðist að framanverðu er það tók niðri í Hornafjarðarósi. mbl.is Axel á leiðinni til Akureyrar Banaslys varð á Suðurlandsvegi í gær við Litlu kaffistofuna. Fólks- bifreið fór yfir á rangan vegar- helming og lenti þar framan á vöruflutningabifreið. Ökumaður fólksbifreiðarinnar var að sögn lögreglu eldri maður. Hann lést. Hann var einn í bílnum. Öku- maður vörubílsins hlaut minni háttar meiðsl. Loka þurfti Suðurlandsvegi um tíma vegna slyssins en umferð var beint um hjáleið á meðan unnið var á slysstað. Litlar tafir urðu á umferð að sögn lögreglu en hún var þó heldur hægari en vanalega. aak Banaslys á Suðurlandsvegi Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur beva@24stundir.is Tryggingastofnun skortir lagastoð til að setja lækna út af samningi þótt þeir séu grunaðir um fjársvik. Dómur féll í sumar, þar sem grun- aður læknir vann mál gegn stofn- uninni og komst inn á samning aft- ur með sjúklinga sína, þótt lögreglurannsókn á meintum svik- um hans stæði yfir. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar. Samkvæmt heimildum 24 stunda var fyrir tveimur árum samið frumvarp til breytinga á lög- um sem áttu að styrkja stöðu TR í svikamálum en það hefur ekki komið fram á Alþingi. Eftirlit Tryggingastofnunar er langtum smærra í sniðum en í nágranna- löndum. Hér starfar tveggja manna tilraunadeild, en annars sinna fags- tjórar hvers sviðs eftirliti meðfram öðrum störfum. Of seint að rannsaka til fulls Engar upplýsingar fást um hve- nær rannsókn á meintum trygg- ingasvikum tannlæknis í Keflavík lýkur. Almennt er slík rannsókn sögð geta tekið nokkur ár í héraði, þar sem aðstæður eru erfiðari en hjá efnahagsbrotadeild Ríkislög- reglustjóra. Málinu var fyrst beint þangað en það sent heim í hérað í mars. Fyrningarfrestur vegna fjár- svikamála er tíu ár og tilgangslítið að láta rannsókn ná lengra aftur í tímann, þótt málið nái lengra aftur í tímann, en TR telji sig ekki hafa haft aðstæður til að kæra fyrr en gert var. Allir sitja undir ámæli Tryggingastofnun sætir gagnrýni fyrir að hafa ekki gripið fyrr inn í þrátt fyrir grun um fjársvik í fjór- tán ár. Tryggingatannlæknir sætir gagnrýni frá tannlæknum fyrir að varpa rýrð á störf stéttarinnar með ósönnuðum frásögnum. Efnahags- brotadeild Ríkislögreglustjóra sætir gagnrýni fyrir að vísa málinu frá sér og lögreglan almennt fyrir seinagang. Heilbrigðisráðherra sætir gagnrýni fyrir að hafa ekki fengið TR úrræði sem duga til eft- irlits og aðgerða gegn svikum. Undir þessu öllu situr grunaður tannlæknir og fær hvorki dóm né uppreisn æru árum saman. TR skortir tök á fjársvikum  Tryggingastofnun, samningsbundnir læknar og lögregla í vanda  Vandræðin verða að kostnaði sem fellur á skattgreiðendur Í tannlæknastól Lögregla rannsakar gamla reikninga vegna tannviðgerða. ➤ Tryggingastofnun hikar viðað setja lækna út af samningi meðan beðið er niðurstöðu Hæstaréttar. ➤ TR í raun stærsta fjár-málastofnun landsins, um hana fara 18,56 prósent af fjárlögum, eða tæplega 70 milljarðar. VELFERÐARSTOFNUN STUTT ● Peningagjöf Bent Scheving Thorsteinsson gaf í gær Há- skóla Íslands 13 milljónir króna. Hann hefur fært HÍ 60 milljónir króna á sjö árum. ● Dómur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær bíla- leigu til að greiða 30 milljónir króna í skatt af tryggingum sem hún hafði selt samhliða bílaleigu. Fyrirtækið taldi þjónustuna undanþegna skatti. ● Árétting Vegna fréttar í laug- ardagsblaðinu vill Tösku- og hanskabúðin á Skólavörðustíg koma því á framfæri að þar sé nóg til af stórum ferðatöskum. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. REBUS OG RANKIN UPP Á SITT BESTA SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is Enn einn gæðakrimminn um Rebus lögregluforingja.

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.