24 stundir - 29.11.2007, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Ríkisstjórn Noregs hyggst fá óháða
sérfræðinganefnd til að meta hvaða
áhrif umdeild þjónustutilskipun
Evrópusambandsins muni hafa
fyrir Noreg. Starf nefndarinnar
gæti leitt til þess að Norðmenn
beittu í fyrsta sinn neitunarvaldi í
EES-samstarfinu. Tveir af stjórnar-
flokkum Noregs, Sósíalíski vinstri-
flokkurinn og Miðflokkurinn, hafa
lýst yfir miklum efasemdum um
gildi tilskipunarinnar og eru opnir
fyrir því að beita neitunarvaldi, en
Verkamannaflokkurinn er því
mótfallinn.
Nefndinni er ætlað að skoða
hvort tilskipunin geti leitt af sér
undirboð á vinnumarkaði og
hvaða áhrif hún myndi hafa á op-
inbera þjónustu og réttindi neyt-
enda og er niðurstaðna að vænta
fyrir næsta sumar.
Endalok EES-samnings?
Aðalsteinn Leifsson, lektor við
Háskólann í Reykjavík, segir það
hugsanlega geta leitt til endaloka
EES-samningsins ákveði Norð-
menn að beita neitunarvaldi.
„EFTA-ríki þurfa að vera samstiga
og ef Norðmenn neita að taka
þjónustutilskipunina inn í EES-
samninginn þá verður hún heldur
ekki að veruleika á Íslandi eða í
Liechtenstein.“
Aðalsteinn segir að það sem
kunni að gerast í framhaldinu veki
áhyggjur. „Ef sáttaferli ber ekki ár-
angur þá fellur sá hluti EES-samn-
ingsins sem snertir frjáls þjónustu-
viðskipti allur úr gildi og í
framhaldinu er sjálfur EES-samn-
ingurinn í uppnámi. Meginmark-
mið samningsins er að tryggja eins-
leitt markaðssvæði og EFTA-ríkin
geta ekki valið og hafnað reglum
innri markaðarins. Frá sjónarhóli
Evrópusambandsins og raunar
einnig fyrirtækja og einstaklinga á
innri markaðinum, verður ástand-
ið því óþolandi og liggur beint við
að segja samningnum upp. Því tel
ég ólíklegt að Norðmenn beiti svo-
kölluðu neitunarvaldi. Líklegri
niðurstaða er að samið verði um
aðlögun á löggjöfinni sem allir að-
ilar geti sætt sig við.“
Óháðir skoða
tilskipun ESB
Gæti þýtt endalok EES-samnings beiti Norðmenn neitunarvaldi
Framkvæmdir Með tilskipuninni er
ætlunin að þjónustugreinar njóti sama
hagræðis á innri markaðnum eins og
iðnaður og aðrar framleiðslugreinar.
➤ Tilskipuninni er ætlað aðtryggja frjálst flæði þjónustu,
ýta undir hagræðingu og
sköpun nýrra starfa.
➤ Tilskipunina ber að innleiðainnan ríkja Evrópusambands-
ins eigi síðar en í árslok 2009.
ÞJÓNUSTUTILSKIPUN ESB
24stundir/Golli
Samninganefndir Kosovo-Alb-
ana og Serba slitu viðræðum sínum
um framtíð Kosovo-héraðs í Vín-
arborg í Austurríki í gær. Samein-
uðu þjóðirnar höfðu áður gefið
frest til 10. desember til að ná sam-
komulagi um tilhögun mála. Kos-
ovo-Albanar hafa farið fram á sjálf-
stæði héraðsins, en Serbar taka það
ekki í mál.
Deiluaðilar segjast báðir vilja
forðast átök. Frank Wisner, samn-
ingamaður Bandaríkjastjórnar, ótt-
ast að friðurinn á Balkanskaga
kunni að vera í hættu og hvatti
deiluaðila til að halda ró sinni.
Héraðið tilheyrir Serbíu, en mikill
meirihluti íbúa er af albönskum
uppruna. Sameinuðu þjóðirnar
hafa haldið um stjórnartaumana í
landinu frá 1999. atlii@24stundir.is
Friður á Balkanskaga hugsanlega í hættu
Viðræðum um framtíð
Kosovo-héraðs slitið
Vonbrigði Viðræður deiluaðila fóru fram
í Austurríki.
Lögregla í
Frakklandi
hefur hand-
tekið 68 ára
karlmann
sem er grun-
aður um að hafa myrt átján
manns á árunum 1980 til 2002.
Að sögn voru flest fórnarlömbin
samkynhneigðir einstaklingar,
ellefu myrtir í Alsace og Franche-
Comte í norðausturhluta lands-
ins, þrír nærri París og fjórir í
Þýskalandi.
Maðurinn var handtekinn í bæn-
um Mulhouse í Alsace á þriðju-
daginn, en hann hefur lengi starf-
að sem dragdrottning. Meintur
samverkamaður mannsins af-
plánar nú tuttugu ára dóm í Po-
issy fyrir morð. Fleiri manna er
leitað í tengslum við málið. aí
Frakkland
Grunaður um
átján morð
Enginn slasaðist þegar bruni kom
upp á aðallestarstöðinni í Ósló,
höfuðborg Noregs, aðfaranótt
gærdagsins. Fimm háspennulínur
slógu út rafmagni sem leiddi til
þess að lestarferðir féllu niður á
höfuðborgarsvæðinu, auk þess
sem síma- og netsamband lá víða
niðri. Truflanir á lestarsam-
göngum höfðu áhrif á ferðir tuga
þúsunda manna og er ekki búist
við að lestarkerfið komist í samt
lag fyrr en um miðjan dag í dag. aí
Ósló í Noregi
Bruni á aðal-
lestarstöðinni
Krókhálsi 3 569-1900
hvítlist
LEÐURVÖRUVERSLUN
Leður
Það er leikur einn
að sauma úr leðri í
venjulegri heimilis-
saumavél.
Piparkökur (fígúrur, kökuhús)150 g smjör
150 g púðursykur
1 1/2 dl síróp
engifer á hnífsoddi
3 tsk. kanill
1/2 tsk. negull
2 tsk. natron
1 egg
5-600 g hveiti
Setjið öll hráefni í pott nema egg og hveiti.Hrærið stöðugt í þar til suðan kemur upp.Dragið pottinn af hellunni. Blandið eggi oghveiti út í. Setjið deigið á borð, hnoðið og fletjiðsíðan út á bökunarplötu. Leggið sniðin ofaná og skerið út. Bakið við 200°C í u.þ.b. 10 mín.Takið af plötunni á meðan kökurnar eruvolgar. Skreytið me∂ glassúr. Límið húsiðsaman með bræddum sykri. Þessi uppskrifter tilvalin í myndakökur.
Glassúr: Setjið 1 eggjahvítu í skál og sigtiðflórsykur út í smátt og smátt. Hrærið vel þartil glassúrinn verður seigfljótandi og drýpurhægt af tannstöngli.