24 stundir - 29.11.2007, Page 18
Hvernig get-
um við látið
alla þessa
fjármuni af
hendi í nafni
hjálparstarfs
þegar 30.000
samlandar okkar eiga í
erfiðleikum með að fram-
fleyta sér og fjölskyldum
sínum?
UMRÆÐAN aSigríður Lárusdóttir Föstudaginn 23. nóvembervar forsíðufrétt 24 stunda eft-irfarandi: „50 geita brúðkaup“.Tilefni greinarinnar er aukin
ásókn landans í gjafabréf útgef-
in af hjálparstofnunum, sem
hugsuð eru sem andsvar við
efnishyggju sem gefendum
finnst tröllríða þjóðfélaginu,
eins og stendur í grein þessari.
Samkvæmt verkefnisstjóra
Hjálparstarfs kirkjunnar er
hægt, með kaupum á þessum
bréfum, að grafa vatnsbrunna í
Afríku, gefa hænuunga og egg
til ræktunar og kaupa geitur,
sem eru langvinsælastar hjá
þeim í ár að sögn. Samkvæmt
síðustu athugunum hérlendis
eru um 30.000 Íslendingar sem
lifa undir skilgreindum fátækt-
armörkum. Stærstur hluti þessa
fólks eru aldraðir, öryrkjar og
vinnandi fólk á lágum launum,
margir þeirra jafnvel í tveimur
eða fleiri störfum til að reyna
að ná endum saman. Þetta eru
foreldrar okkar, ömmur og afar
sem skilað hafa heilu ævistarfi,
frændur og frænkur sem sinna
nauðsynlegum störfum í þjóð-
félaginu, og ekki síst eru þetta
börnin sem hafa engin tækifæri
til að hafa áhrif á aðstæður sín-
ar. Hvernig getum við látið alla
þessa fjármuni af hendi í nafni
hjálparstarfs þegar 30.000 sam-
landar okkar eiga í erfiðleikum
með að framfleyta sér og fjöl-
skyldum sínum? Hér er ég bara
að tala um grunnþarfir eins og
húsaskjól, mat, föt og almenna
heilbrigðisþjónustu. Síðan er
listinn endalaus yfir fjársvelta
málaflokka; meðferðarheimili
fyrir fíkla, aðstandendur lang-
veikra fullorðinna og barna, at-
hvarf fyrir heimilislausa, at-
hvarf fyrir geðfatlaða,
kvennaathvarf og svo mætti
lengi telja. Sjá mætti fyrir sér að
hægt væri að kaupa „liðsmann“
hjá hjálparstofnunum og bak
við hann lægi ákveðin upphæð.
Einhvern veginn finnst mér
þetta allt vera yfirborðskennt og
hræsnislegt. Ef við erum svo vel
stödd, að við hreinlega þurfum
ekki fleiri blómavasa eða mál-
verk, þá bið ég ykkur að horfa
ekki of langt; hér á landi er næg
þörf fyrir fjárhagslega aðstoð.
Megið þið eiga gleðileg jól.
Höfundur er lífeindafræðingur
Er í tísku að gefa geit?
18 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir
Sigurður Bogi Sævarsson
skrifaði:
Ísland er sagt velferðarsamfélag
og klisjan segir að óvíða sé betur
búið að þegnunum en einmitt
hér. Komi þar meðal annars til
kristin viðhorf sem skipan þjóð-
félagsins byggir á og þá geri
skattheimta í opinbera sjóði
okkur kleift að halda uppi sið-
uðu samfélagi.
Stúlka á öðru ári, dóttir ein-
stæðrar móður, greindist á dög-
unum með alvarlegan hrörn-
unarsjúkdóm. Veikindin eru
alvarlegt áfall fyrir aðstandendur
ungu stúlkunnar og fjárhagslegt
hrun foreldra langveikra barna
er regla fremur en undantekn-
ing. Móðir stúlkunnar sem hér
er sagt frá stendur þó ekki ein í
lífsbaráttunni. Hún á góða að. Í
verslunum þessa dagana er uppi
auglýsing um sölu á salernis-
pappír henni til stuðnings.
Hér liggur fiskur undir steini.
Söfnun þessa má vissulega skilja
sem vitnisburð um hve sam-
hjálpin er sterk í íslenzku sam-
félagi. Útsalan á salernispapp-
írnum er þó frekar napurlegt
háð um hve takmarkaðs stuðn-
ings þeir sem verst standa í líf-
inu geta vænst af hálfu op-
inberra aðila.
Mikið óskaplega væri nú
ánægjulegt ef kenningar um
kristið og siðað velferðarsam-
félag, sem hafðar eru í frammi á
tyllidögum, stæðust. Hugsjónin
er hins vegar ljósárum frá veru-
leikanum.
Höfundur er blaðamaður
BRÉF TIL BLAÐSINS
Velferðar-
samfélag?
578-2008
Hagaland - einbýlishús
Fimmtudagseignin
NÝTT Á SKRÁ*
Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali.
Til sölu fallegt 209,6 m2 einbýlishús með bílskúr við
Hagaland 16 í Mosfellsbæ. Húsið er 154,1 m2 á einni
hæð ásamt 55,5 m2 bílskúr. Fjögur góð svefnherbergi,
stór stofa og gott eldhús. Skriðkjallari undir húsinu. Falleg
aðkoma og skjólgóður og gróinn garður. Þetta er fallegt
hús með fallegum garði á hagstæðu verði.
Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2 Mosfellsbæ - S 586 8080
Verð 43,8 m.
Félagsfundur
Efling - stéttarfélag boðar til félagsfundar í Kiwanishúsinu
við Engjateig 11 í dag fimmtudag kl:18:00
Dagskrá:
1. Félagsmál
Undirbúningur kjarasamninga
2. Önnur mál
Félagar ! Mætið vel og stundvíslega
Stjórn
Eflingar - stéttarfélags
Stendur með þér!