24 stundir - 29.11.2007, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
„Það er ekki alltaf hægt að sjá á
hlutaskrám hversu virk atkvæði eig-
endanna eru,“ segir Jónas Fr. Jóns-
son, forstjóri Fjármálaeftirlitsins
(FME), sem vakti máls á því í ræðu
sinni á ársfundi eftirlitsins hversu
óljósa mynd hlutaskrár einstakra fé-
laga veita um raunverulega eig-
endur sína. „Ef hlutirnir eru
til dæmis á safnreikningum
þá getur verið misjafnt
hvort þeir sem eiga þá
eru með atkvæðisrétt í
félaginu eða ekki.
Síðan eru þessir
framvirku samn-
ingar sem ekkert er
getið um í hluta-
skránum. Aðili
sem er með fram-
virkan samning
um að kaupa
hlutabréf eftir
ákveðinn tíma getur
hafa samið um það
að vera með atkvæð-
isrétt. Svo geta félög
verið í eigu félags innan
EES-svæðisins sem getur
jafnvel verið í eigu erlends fé-
lags utan EES. Til að þessi mál
séu á hreinu þá þarf að mínu mati
að endurskoða hlutafélagalögin og
lög um verðbréfaskráningu með það
að markmiði að það sé alltaf ljóst
hver sé raunverulegur eigandi hlut-
arins.“
Skrifstofur í öðrum löndum
Jónas varpaði einnig fram þeirri
hugmynd að FME myndi koma á
fót skrifstofum í öðrum lönd-
um vegna fjölgunar á útibú-
um íslenskra fyrirtækja á
alþjóðavísu. „Útibúum
hefur fjölgað úr fjór-
um í 21 á rétt um
einu og hálfu ári.
Við berum beina
ábyrgð á eftirliti
með þeim. Það
má alveg gera ráð
fyrir því að sú
þróun haldi
áfram. Ef hún
gerir það af krafti
þá gætum við
hreinlega verið
þannig stödd á
næsta ári að við
þyrftum að fara að
velta þessum möguleika
fyrir okkur. En svo er ár
alltaf langur tími í þessum
bransa. Auðvitað myndum við
þó ekki gera þetta nema við teldum
það hagkvæmara heldur en hitt.“
Jónas Fr. Jónsson Jónas ásamt viðskipta-
ráðherra á aðalfundi Fjármálaeftirlitsins.
Vill að ljóst sé
hver eigi hluti
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins vill breytingar á lögum til að fyrir
liggi hverjir eigendur hluta séu Skoðar að opna útibú erlendis
➤ Um 54 prósent tekna ís-lenskra viðskiptabanka eru af
erlendri starfsemi.
➤ Helmingur starfsmannaþeirra starfar erlendis.
ÚTRÁS VIÐSKIPTABANKA
MARKAÐURINN Í GÆR
! ""#
!"
##$
!%%
% $! $
!$"!%$!
%!"
!#!%
# #
"% "% "
! ##
#%
! %$
$!!
%#" $
# #$#
! #
$
%$ !$
"$
&
%"&%
&"
$&"%
&
!&#
!&$%
$"&
!&#
%&$
!&
$#&
& %
!&
#
% %&
&#
&
%&
$!&%
&
&%
%
&
%#&
&$
$&$%
& %
"&
"&%
$&
"&%
!&
!&%
$$&
& #
!& !
#
%!&
&$
!&
%&%
$"&
&"
&%
"&
&
'()
$
!
$
!
%
!
$
!
%
!$
*
#"
#"
#"
#"
#"
#"
#"
#"
#"
#"
#"
""
#"
#"
#"
#"
#"
#"
""
#"
$"
#"
!"
#"
#"
%"
"
+
, -.
/
), -.
01-.
'2, -.
,
-.
.03
.45 67 , -.
8
-.
2
5 -.
3 /9'(9. -.
:3-.
;-.
!%-.
+.7-.
+ 7< 3<='
0
/
', -.
'> :/
67 7, -.
?-.
@A-(-.
<BC@
: 3) -.
D ) -.
!
E :+3 3E
/, -.
3( -.
Sænsku bankarnir hafa nú hækk-
að vexti á íbúðalán til að bregðast
við þeirri niðursveiflu sem hefur
einkennt erlenda markaði á síð-
ustu mánuðum.
Á vef E24.se segir að vextir íbúða-
lána hafi verið í kringum 4,90%
síðasta árið, en bankarnir hafi nú
hækkað vextina. Þannig eru vext-
irnir nú 5,22 % hjá Swedbank,
5,18% hjá Handelsbanken, 5,25%
hjá SBAB og 5,30% hjá Nordea-
bankanum. aí
Sænsk íbúðalán hækka
„Það er í rauninni nóg af
ungu og hæfu starfsfólki en
það vantar fólk með
reynslu. Það er vandamálið
í hnotskurn,“ segir Drífa
Sigurðardóttir, starfs-
mannstjóri VGK-Hönn-
unar sem er ein stærsta
verkfræðistofa landsins.
Hún segir þetta skýrast af
því að fjöldi útskrifaðra
verk- og tæknifræðinga fyr-
ir um það bil tíu árum hafi
ekki verið svo mikill. „Við
erum svolítið að súpa seyð-
ið af því núna,“ segir Drífa.
Hún segir að sem betur fer
hafi þessi fjöldi aukist á
undanförnum árum. „En það vantar fólk með reynslu, og það er
ástand sem er ekki bara hér á landi heldur líka í öðrum löndum,“ segir
Drífa. Hún telur að aukin ásókn banka og fjármálafyrirtækja í tækni-
og verkfræðimenntað fólk sé af hinu góða. „Það eykur áhuga fólks á
þessu námi því að starfsmöguleikarnir verða fleiri.“ ejg
Skortir reynslu en ekki hæfni
Bandarískir fjárfestar eru hrifnir
af Nicolas Sarkozy, forseta Frakk-
lands, ef marka má nýja könnun
meðal bandarískra fjárfesta í
Frakklandi. Alls telja 83% þeirra
sem tóku þátt í könnuninni að
Sarkozy hafi jákvæð áhrif á er-
lenda fjárfestingu í Frakklandi.
Er þetta mikil breyting frá því er
Jacques Chirac var forseti Frakk-
lands enda Sarkozy oft nefndur
„Sarko hinn ameríski“ af gár-
ungum. Skýrist það af aðdáun
forsetans á öllu sem er banda-
rískt. mbl.is
Fjárfestar hríf-
ast af Sarkozy
Samkeppnisyfirvöld í Kanada
rannsaka nú hvort kanadísk félög
í eigu Nestle, Cadbury, Hershey,
Mars og fleiri aðila hafi haft með
sér verðsamráð um súkkulaði.
Samkeppnisyfirvöld í Kanada
staðfestu þetta í gær en starfs-
menn Samkeppniseftirlitsins í
Kanada hafa meðal annars farið
inn á skrifstofur Nestle í Kanada.
Talsmaður Samkeppniseftirlits-
ins, Francois-Xavier Perroud,
segir að ekki verði frekar upplýst
um málið að svo stöddu. mbl.is
Verðsamráð
um súkkulaði?
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Til að þessi mál séu á hreinu þá þarf að mínu mati
að endurskoða hlutafélagalögin og lög um verð-
bréfaskráningu með það að markmiði að það sé alltaf
ljóst hver sé raunverulegur eigandi hlutarins.
Þú færð nánari upplýsingar um
Vildarpunkta Glitnis á www.glitnir.is
Swopper
vinnustóllinn
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Ánægja við leik og störf
• Fæst í ýmsum litum
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir