24 stundir - 29.11.2007, Page 33
24stundir FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 33
„Hláturjóga felst í því að fólk
nýtir sér jákvæð áhrif hlátursins á
líkama og sál með því að hlæja
saman í hóp. Maður vekur hlát-
urinn með sérstökum æfingum
og með því að horfast í augu og
þá verður hláturinn mjög fljótt
eðlilegur,“ segir Ásta Valdimars-
dóttir hláturleiðbeinandi.
Áhrif á líkama og sál
Æfingarnar felast meðal annars
í látbragðsleik og öndunaræfing-
um að sögn Ástu.
Ásta segir að hláturjóga hafi
góð áhrif á blóðrás og hjartslátt.
„Þetta hefur áhrif á lungun sem
taka upp meira súrefni og um
leið á heilastarfsemina. Minnið
batnar og námsgeta eykst. Hlát-
urinn dregur úr streitu og svo
hefur hann bætandi áhrif á sam-
skipti manna,“ segir hún.
Húmor ekki nauðsynlegur
Ekki er nauðsynlegt að hafa
húmor til að taka þátt í hlát-
urjógatíma enda er hláturinn
ekki vakinn með því að segja
skrýtlur eða brandara. „Það er
engin hætta á að einhver verði
sár eða móðgaður vegna þess að
brandarinn er honum ekki geð-
felldur. Þegar Madan Kataria
stofnaði sinn fyrsta hláturklúbb
árið 1995 var byrjað á því að
segja brandara og hlæja að þeim.
Síðan sá hann að það gekk ekki.
Brandararnir fóru misvel í fólk
og svo kláruðust brandararnir og
það er ekki endalaust hægt að
hlæja að sömu bröndurunum. En
það er hægt með þessum æfing-
um,“ segir hún.
Ásta stendur fyrir opnum hlát-
urjógatíma í Manni lifandi laug-
ardaginn 1. desember kl. 10:30.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
Ásta Valdimarsdóttir stendur fyrir opnum hláturjógatímum
Hlegið án sérstaks tilefnis
24stundir/Frikki
Streitulosandi Hlátur dregur úr
streitu og hefur góð áhrif á samskipti
fólks að mati Ástu Valdimarsdóttur.
Fólk þarf að hugsa vel um bein-
heilsu sína enda þurfa beinin að
endast ævina á enda. Regluleg
hreyfing styrkir beinin.
Fæða sem er rík af kalki og D-
vítamíni gerir beinunum sér-
staklega gott og þá ætti fólk að
forðast reykingar og neyta áfeng-
is í hófi.
Þó að beinin séu viðkvæmari hjá
fólki sem er komið á efri ár borg-
ar sig að huga snemma að bein-
unum. Með því að byggja upp
sterk bein á yngri árum dregur
maður úr líkum á því að fá bein-
þynningu þegar maður verður
eldri.
Beinin þurfa að
endast alla ævi
Opið hús verður hjá Alnæm-
issamtökunum í tilefni dags
rauða borðans (alþjóðlega al-
næmisdagsins) laugardaginn 1.
desember. Boðið verður upp á
kaffi kl. 15-18 og meðlæti auk
þess sem tónlistarmenn leika.
Alnæmissamtökin standa fyrir
blysför í minningu þeirra sem
hafa látist úr sjúkdómnum kl.
18:30. Gangan hefst á gatnamót-
um Skólavörðustígs og Laugaveg-
ar og verður gengið að Fríkirkj-
unni þar sem kveikt verður á
friðarkertum og rauði borðinn
myndaður. Að lokum fer fram
stutt athöfn.
Alþjóðlegur
alnæmisdagur
Sérstakar hátíðarsamkomur
verða haldnar á hjúkrunarheim-
ilunum Skjóli og Eir laugardag-
inn 1. desember. Samkomurnar
eru haldnar í tilefni 20 ára
vígsluafmælis Skjóls og 15 ára
vígsluafmælis Eirar.
Skemmtun verður á Skjóli og
Laugaskjóli kl. 14 þar sem Ragn-
ar Bjarnason og Þorgeir Ást-
valdsson syngja og spila á hljóð-
færi. Á Eir hefst skemmtunin kl.
15.
Vígsluafmæli
Opið virka daga 12-18 laugardaga og sunnudaga 12-16
Barnafatnaður
Stakir jakkar
Jakkaföt
Frakkar
Skyrtur
Buxur
Bindi
Bolir
Peysur
Kápur
Nærfatnaður
Vettlingar
Hanskar
Blússur
Toppar
Sokkar
Kjólar
Treflar
Húfur
Pils
ÖLL
JAKKAFÖT BÆTTU VIÐ
1.000,-
OG ÞÚ FÆ
RÐ SKYRT
U
OG BINDI
MEÐ!