24 stundir - 29.11.2007, Blaðsíða 38

24 stundir - 29.11.2007, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2007 24stundir 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Það eina sem vantar er að hér sé bjór í boði yfir enska boltanum. Að vísu veit ég ekki hvort ég nenni að koma hingað til að versla með konunni, því ég tók þátt í að byggja þetta húsnæði. Rendition, eða Framsal, fjallar um þá hlið stríðsins gegn hryðju- verkum sem snýr að fangaflugi, pyntingum og hvort slík mannrétt- indabrot séu hugsanlega réttlæt- anleg. Anwar El-Ibrahimi (Met- wally) er Egypti sem býr á bandarískri grund en er rænt af stjórnvöldum vegna gruns um að- ild að hryðjuverkum. Það fellur í hlut CIA-greinisins Douglas Freeman (Gyllenhaal) og lög- reglustjórans Fawal (Naor) að leita upplýsinga hjá El-Ibrahimi, meðan frú Ibrahimi (Witherspoon) leitar eiginmanns síns heima í Banda- ríkjunum, en kemur að lokuðum dyrum. Myndin er vel gerð í alla staði. Hún spyr klassískra siðferð- isspurninga en lætur áhorfand- anum eftir svörin. Hún er ekkert sérstaklega frumleg, þrátt fyrir eina slíka tilraun með framrás sögu- fléttunnar. Leikarar standa sig allir með prýði og útlitið er flott, en myndin gerist að mestu í Norður- Afríku. Helsti kosturinn er að hún fellur ekki í fúlan pytt bandarískrar þjóðrembu, líkt og Lions for Lambs og aðrar myndir sem fjalla um skyld málefni hafa gert. En hún mun eflaust hljóta meira lof í múslímalöndunum en Bandaríkj- unum. Allahu akbar og Amen Vondi kallinn? Meryl Streep í hlutverki sínu sem Whitman. Rendition Bíó: Háskólabíó og Laugarásbíó. Leik stjóri: Gavin Hood Að al hlut verk: Omar Metwally, Jake Gyllenhaal, Reese Wither- spoon, Meryl Streep og Yigal Naor. Eft ir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@24stundir.is BÍÓ Félagsvefurinn Facebook.com hefur að undanförnu sætt harðri gagnrýni af hálfu notenda sinna fyrir að taka í notkun sérhæft aug- lýsingakerfi sem gerir mönnum kleift að sjá hvað vinir þeirra á Fa- cebook hafa verið að kaupa sér á netinu. Aðstandendur Facebook afhjúp- uðu þetta nýja auglýsingaapparat, sem nefnist Beacon, í byrjun mán- aðarins en það er ekki fyrr en nú sem notendur Facebook átta sig á því hvað Beacon þýðir fyrir notk- un þeirra á vefnum. Þegar notendur versla á netinu í gegnum vissar netverslanir eru kaupin skráð inn í gagnagrunn og eru kaupin auglýst á vefsíðum not- enda. Því gæti sú staða komið upp að allir vinir ákveðins notanda gætu séð ef viðkomandi hefði keypt sér stinningarlyf á netinu og það væri ekki kjörstaða fyrir neinn. Notendur geta komist hjá þessu auglýsingabákni en til þess þurfa þeir að merkja við agnarsmáa kassa sem birtast í skjánum í um það bil 20 sekúndur en að þeim tíma liðnum samþykkist auglýs- ingin sjálfkrafa. Því þurfa Facebo- ok-notendur að hafa augun opin ef þeir vilja ekki auglýsa hvað þeir kaupa á netinu. Innkaupin auglýst á Facebook Fandango.com Ein af þeim síðum sem birta sölu á Facebook Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@24stundir.is Í nýrri verslun Hagkaupa í Holtagörðum er sérstakt pláss ætlað körlum meðan konurnar kaupa inn fyrir heimilið. Í pláss- inu eru fjögur sæti og stórt sjón- varpstæki, þar sem boðið verður upp á sýningar frá ensku knatt- spyrnunni. Einnig stendur til að tengja Playstation-leikjatölvu við tækið, til að stytta karlpen- ingnum stundirnar. Enginn bjór á boðstólum „Þetta er bara alger snilld,“ sagði Finnur Freyr Harðarson, örþreyttur viðskiptavinur Hag- kaupa, í gær aðspurður um ágæti athvarfsins. „Það eina sem vantar er að hér sé bjór í boði yfir enska boltanum. Að vísu veit ég ekki hvort ég nenni að koma hingað til að versla með kon- unni, því ég tók þátt í að byggja þetta húsnæði.“ Samkvæmt starfsmanni verslunarinnar stendur til að sýna frá leikjum ensku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu, með því að kaupa áskrift hjá Sýn. „Þeir sem hönnuðu þetta voru að tala um að þetta væri fyrir karlana sem kæmu að versla með konunni. Það væri fínt fyrir þá að geta sest niður og slappað af. Þess vegna settu þeir nú bjórdælurnar til sölu hérna við inngang- inn.“ Gamaldags Sóley Tómasdóttir, formaður mannrétt- indanefndar Reykja- víkurborgar og rót- tækur femínisti, segist hissa á þessari þjónustu Hagkaupa. „Mér finnst þetta gamaldags viðhorf til kynjanna. Það er ótrúlegt að jafn framsækið fyrirtæki og Hag- kaup er skuli ekki átta sig á því að það eru bæði kyn sem bera ábyrgð á innkaupum fjölskyld- unnar. Þetta viðhorf þeirra er einnig til marks um afar staðl- aðar kynjamyndir þeirra og með þessu uppátæki eru þeir einnig að ýta undir staðal- ímyndir,“ sagði Sóley að lokum. Friðþægingarstaður fyrir karlmenn með kaupleiða í Hagkaupum Hagkaup með dagvistun karla Afþreyingarpláss fyrir karlmenn tíðkast víða í erlendum verslunarmið- stöðvum. Hagkaup í Holtagörðum bjóða nú upp á slíkt pláss fyrir karla með kaupleiða. Í góðu yfirlæti Það getur verið gott að hvíla lúin bein. Hissa Sóley segir bæði kyn kaupa inn fyrir fjölskylduna. Laugavegi 44 S: 561-4000 www.diza.is Diza Danskir skartstandar Margar gerðir Nýr bókaflokkur fyrir stelpur á aldrinum 8-14 ára. Fyrsta bókin heitir Horfin sporlaust. Næsta bók kemur í október og heitir Mikil áhætta. Spenna og fjör fyrir börn og unglinga. Vertu með frá byrjun! www.tindur.is tindur@tindur.is MYND Bæjarhraun 26, Hafnarfirði s. 565 4207 www.ljosmynd.is Pantið jólamyndatökurnar tímanlega Jólamyndatökur HEILL HEIMUR AF SKEMMTUN Opið sunnudaga til fimmtudaga 11.00 -24.00 Opið föstudagaoglaugardaga 11.00 - 02.00 Misty, Laugavegi 178, Sími 551 3366 Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf www.misty.is Mjög haldgóður, samt mjúkur í CDEF skálum á kr. 2.350,- buxur í stíl á kr. 1.250,- Nýr og flottur í BC skálum á kr. 2.350,- buxur í stíl á kr. 1.250,- Létt fylltur og rosa gott snið í BC skálum á kr. 2.350,- buxur í stíl á kr. 1.250,- 24stundir/Sverrir

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.