Morgunblaðið - 28.11.2004, Page 3
28.11.2004 | 3
4 Flugan
lét hvorki tónleika hljómsveitanna The Fall
né The Beach Boys fram hjá sér fara, var
boðið í svakalega veislu Skífunnar og kom
við á nokkrum börum borgarinnar.
6 Þarf að vera hamingjusamur til að syngja
Óperusöngvarinn Kristján Jóhannsson sýnir
á sér óvænta hlið á nýrri geislaplötu. Hann
segir hana rómantíska og huggulega og hægt
sé að vanga við lögin.
10 Gersemar á gömlum merg
Kolfinna Sigurvinsdóttir veit allt um koffur,
stokka og baldýringar og aðra óaðskiljanlega
fylgifiska íslenska þjóðbúningsins. Hún á
tugi slíkra og lánar þá stundum þegar mikið
liggur við.
12 Góð mynd lifir af
Ragnar Axelsson ljósmyndari, Rax, eins og
hann merkir myndirnar sínar, eða Raxi, eins
og hann er kallaður, er stöðugt á ferð og
flugi með ljósmyndavélina á lofti.
18 Munaður á gjafverði
Eitt stærsta flaggskip verslunarkeðjunnar
H&M við rue de Rivoli var tæmt þrettán
mínútum eftir að sala hófst á vörum hönn-
uðum af Karli Lagerfeld.
20 Matur
Mathias Dahlgren ræður ríkjum á Bon Lloc,
einum besta veitingastaða Norðurlanda, í
miðborg Stokkhólms.
20 Vín
Frönsk vín hafa átt undir högg að sækja í
samkeppni við vín frá öðrum löndum og
ýmsar hugmyndir eru uppi til að bæta stöð-
una.
22 Stjörnuspá
Tjáskiptaplánetan Merkúr gengur aftur á
bak í merki bogmannsins á næstunni og því
vissara að taka eitt skref í einu.
24 Krossgáta
Hvaða erlent orð Hálandabúans er blóts-
yrði? Skilafrestur úrlausna rennur út næsta
föstudag.
27 Maður eins og ég
Arnar Tómasson hárgreiðslumeistari, pistla-
höfundur og tískuráðgjafi á Rás 2 dæmir
fólk ekki eftir útlitinu, en segir að fólk mætti
hafa í huga að ekki sé hægt að skapa fyrstu
áhrifin tvisvar.
27 Pistill
Auður Jónsdóttir hlustaði á vangaveltur
Dana um umsvif Íslendinga þar ytra.
Tímarit Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík,
sími 5691100, netfang: timarit@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Margrét Sigurðardóttir margret@mbl.is,
Valgerður Þ. Jónsdóttir, vjon@mbl.is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is
Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.
ISSN 1670-4428
Forsíðumyndina tók Guðmundur Ingólfsson í Ímynd. Svart
hvítu myndinda tók Árni Sæberg í nóvember 2004.
18
Tíðindum þótti sæta þegar Karl Lagerfeld tók að sér að hanna
fatnað fyrir sænsku verslunarkeðjuna H&M. Mikil auglýsinga-
herferð fór í gang þar sem tískukóngurinn var í aðalhlutverki.
26
2010
Það eru forréttindi að fá tækifæri til að gera áhugamálið að
lífsstarfi sínu. Tveir slíkir lukkunnar pamfílar eru í viðtölum
í Tímaritinu í dag; báðir vel þekktir innanlands og utan,
hvor á sínu sviði. Annars vegar Ragnar Axelsson ljósmynd-
ari, sem lesendur Morgunblaðsins þekkja undir nafninu Rax – því þannig merkir hann myndirnar sínar,
en kollegarnir kalla Raxa, og hins vegar Kristján Jóhannsson óperusöngvari. Í viðtali við Freystein Jó-
hannsson rifjar Raxi upp þegar hann, sextán ára, labbaði inn á Mogga að leita sér að ljósmyndavinnu.
Hann var svo heppinn að rekast á Ólaf K. Magnússon ljósmyndara sem kom á fleygiferð og nánast
hljóp hann niður. Þeir tóku tal saman og Ólafur réð strákinn til prufu. „Síðan hef ég verið Moggamað-
ur,“ segir Rax. Og síðan hefur hann líka verið á ferð og flugi og lent í ýmsum ævintýrum. Þau ævintýri
hafa lesendur Morgunblaðsins séð á síðum blaðsins í þrjátíu ár. Kristján var hins vegar eldri þegar hann
hóf að læra það sem honum lét best; að syngja. Og fleiri en bara landinn vita framhaldið. Í viðtali við
Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur lýsir Kristján sjálfum sér í gamla daga sem lifandi strák, sem mikið
hafi þurft að hafa fyrir í skólanum. Hann komst í gegnum skólann, þótt lítið segist hann hafa lært. „Mig
vantaði einhverja fyllingu í gamla daga og var ofsalega eirðarlaus. Svo fann ég það sem mig vantaði í
tónlistinni og í því að fara út í hinn stóra heim og syngja í óperuhúsum.“ Þetta kallast að vera á réttri
hillu í lífinu. Ekki þarf þó alltaf vegtyllur á heimsvísu til þess að svo megi vera. Af svörum við nokkrum
spurningum sem lagðar eru fyrir Arnar Tómasson hárgreiðslumeistara, tískuráðgjafa og pistlahöfund í
Tímaritinu má einnig ráða að hann sé ekki síður sáttur við starfsvettvang sinn en þeir Raxi og Kristján.
Kúnstin er bara að hver og einn finni sér sína réttu hillu og öðlist þar með forréttindi. | vjon@mbl.is
28.11.04