Morgunblaðið - 28.11.2004, Page 22

Morgunblaðið - 28.11.2004, Page 22
22 | 28.11.2004 Tjáskipta- og samskiptaplánetan Merkúr sýnist á leið afturábak í geimnum á næstu vikum. Stjörnuspekingar segja slíkt ástand ýta undir tafir, breytingar, óvænt veðrabrigði, bilanir og flækjur og að lögmál Murphys sé aldrei sannara en meðan það varir. Þeir sem trúa og geta gera rýmri ferðaáætlanir og sýna sérstaka aðgæslu í viðskiptum á meðan, þar sem misfellur, misskilningur og ringulreið geti auðveldlega gert vart við sig. Forðist stórar ákvarðanir og geymið allar kvittanir. Kannski er ráð að kaupa gjafakort? 2004 DESEMBER Það er óhætt að segja að hrúturinn sé í fimmta gír um þessar mundir. Hinn herskái Mars kraumar í merki sporðdrekans og þú vilt fá óskir þínar upp- fylltar, hér og nú. Svo virðist sem ekkert geti haldið aftur af þér, en það er hins vegar tálsýn og því betra að fara gætilega. Nú er lag að framkvæma bæði skýrt og yfirvegað en ekki æða áfram í blindni þar til illa fer. Þensluplánetan Júpíter dvelur nú í merki vogarinnar og makar og félagar gætu tekið í tauma hrútsins eða fært hon- um gæfu. Margt bendir til þess að dómgreind hrútsins sé ekki óskeikul um þessar mundir og óþolinmæðin mun svo sannarlega ekki greiða götu hans. Hrútur 21. mars - 20. apríl Nú eru sólin og tjáskiptaplánetan Merkúr í bogmanni, svo nautið er kannski í þungum þönkum um fjármál, erótík og leyndarmál lífs og dauða. Sam- band við maka er í brennidepli fyrir tilstilli hins hvatvísa Mars og ástar- gyðjunnar Venusar, sem eru í sporðdreka. Búast má við ákefð í samskiptum á ein- hverjum tímapunkti. Nautið verður önnum kafið á næstunni, fer í saumana á gömlum og nýjum samböndum og veltir því fyrir sér hvert það er og hvað það vill. Taktu eitt skref í einu og vertu viss um að ekkert fari milli mála í samskiptum og áætlanagerð. Fullt tungl annan jóladag varpar ljósi á heildarmyndina, en bíddu með aðgerðir. Naut 21. apríl - 20. maí Sólin og tjáskiptaplánetan Merkúr eru í bogmanni núna sem hvetur þig til þess að leita eftir félagsskap annarra, spjalli og samvinnu. Framkvæmda- plánetan Mars og ástargyðjan Venus eru í sporðdreka og ýta undir einbeit- ingu í vinnu og daglegri rútínu. Gættu þess að sinna hvoru tveggja. Tvíburar sem eiga maka eru hvattir til þess að leggja við hlustir og ræða vandamálin, ef þau koma upp. Annað mynstur eða tímabil verður til í samskiptum við maka og félaga þegar nýtt tungl verður í bogmanni 12. desember. Líkur eru á snörpum orðaskiptum og ágrein- ingi sem tekur tíma að leiða til lykta. Fjármálin verða þér ofarlega í huga á næstunni. Tvíburi 21. maí - 22. júní Júpíter er í vog og hefur áhrif á samskipti í sólarkorti ljónsins, þú ert at- hafnasemin uppmáluð fyrir vikið, ræðir málin og lýkur verkefnum. Sat- úrnus, pláneta hindrana, hefur jafnframt sitt að segja, sem þýðir að ljónið vill sumpart halda sig til hlés, bíða átekta, velta fyrir sér og fylgjast með. Það byrjar líklega að blómstra um mitt næsta ár og ætti því að nota tækifærið og efla leiknina á nýju sviði og tileinka sér nýja hugmyndafræði. Sólin skín nú skært í bogmanni, lifðu lífinu, brettu upp ermarnar og láttu sjá þig. Börn verða aðalatriðið í lífi sumra ljóna næstu daga, önnur eiga að skrúfa lokið af og leyfa sköpunarmættinum að flæða. Ljón 22. júlí - 23. ágúst Mikið er á döfinni í byrjun mánaðar hjá voginni, ekki síst fyrir tilstilli hins rausnarlega Júpíters, sem ýtir verulega undir heppni hennar og hamingju. Farðu samt rólega af stað í byrjun og varastu undanlátssemi, óþolinmæði eða óþarfa áhættu. Voginni gætu borist einhver tíðindi á nýju tungli í bogmanni 12. desember, eða þá að hún verður fyrir smávægilegri opinberun. Athygli vogarinnar beinist að heimili og einkalífi eftir vetrarsólstöður, ekki síst í kjölfarið á fullu tungli í krabba annan jóladag, en þá má búast við tilfinningaríkum samskiptum við fjöl- skyldumeðlimi. Hugsanlegt er að hún þurfi að vega og meta þarfir einkalífs og vinnu. Vog 22. september - 23. október Sporðdrekinn verður upptekinn af fjármálum og skuldastöðu í upphafi des- ember. Taktu eitt skref afturábak og skoðaðu forsendur gaumgæfilega. Bú- ast má við spennu heima fyrir eða innra með sporðdrekanum í tengslum við hvað hann vill og hvert hann stefnir. Sporðdrekinn er fullur af krafti án þess að geta gert sjálfum sér mikið gagn. Helltu þér í skapandi verkefni eða andleg hugðarefni og láttu annað leysast af sjálfsdáðum. Líklegt er að stemmning verði fyrir nýrri fjár- hagsáætlun á nýju tungli 12. desember, ekki samt reyna að horfa of langt fram í tím- ann því heildarmyndina vantar. Það gæti breyst á fullu tungli annan jóladag. Sporðdreki 24. október - 23. nóvember Starfsframi þinn, samskipti við yfirboðara og skyldur eru í brennidepli núna, brettu upp ermarnar og sýndu hvað í þér býr. Líkur eru á ringulreið fyrstu viku mánaðarins, hertu upp hugann og gerðu það sem ætlast er til af þér. Nokkur ringulreið er líkleg í fyrstu viku mánaðarins, ekki streitast á móti þótt andrúmsloftið valdi spennu. Nýtt tungl verður í bogmanni 12. desember og með því má hugsanlega hleypa nýjum áætlunum af stokkunum. Bíddu samt með framkvæmd- ir þar til samskiptaplánetan Merkúr hættir að ganga afturábak eftir fáeinar vikur. Vinátta, sameiginlegt átak og markmið verða í brennidepli síðar í mánuðinum. Fiskar 20. febrúar - 20. mars Til hamingju með afmælið, bogmaður! Þensluplánetan Júpíter er í þínu merki um þessar mundir og færir þér bjartsýni og gagnleg sambönd við annað fólk. Þó er ráð að fara varlega. Tjáskiptaplánetan Merkúr gengur afturábak í merki bogmannsins á næstunni og því vissara að taka eitt skref í einu. Mættu hindrunum með skilningi og þrautseigju og ekki láta eldmóðinn hlaupa með þig í gönur. Nýtt tungl verður 12. desember og allt eins líklegt að þú verðir fyrir ein- hvers konar opinberun, eða þá að aðrir sjái þig í glænýju ljósi. Fjármálin verða í brennidepli eftir 21. desember þegar sólin fer í merki steingeitarinnar. Bogmaður 23. nóvember - 23. desember Nú er sólin í bogmanni sem greiðir götuna fyrir ánægjulegum samveru- stundum með vinum og endurmati á því hvert þú stefnir. Þensluplánetan Júpíter er í vog og víkkar sjóndeildarhring þinn. Stemmningin í byrjun mánaðar er að bíða og sjá til, samskiptaplánetan Merkúr sýnist í afturábakgír og spennuafstaða er milli stríðsguðsins Mars og ástargyðjunnar Venusar og hins óljósa Neptúnusar. Það borgar sig því að vera forsjáll. Vertu á varðbergi gagnvart ágrein- ingi eða erfiðleikum í samskiptum við yfirboðara og embættismenn. Ekki streitast á móti ef þú hefur ekki næga fótfestu. Nýtt tungl 12. desember varpar ljósi á rétta leið. Vatnsberi 21. janúar - 19. febrúar RÝNT Í STJÖRNURNAR Heimili og fjölskyldulíf eru meyjunni ofarlega í huga í upphafi jólamánaðar. Þrýstingur og streita gera vart við sig til þess að byrja með, en með nýju tungli í bogmanni 12. desember ættu aðstæður heima að breytast. Lífsstíll, rómantík, afþreying og sköpun eiga hug þinn allan í framhaldi af vetrarsólstöðum. Tungl verður fullt í krabba annan í jólum og ýtir undir samskipti við konur og börn í sólarkorti meyjunnar. Þensluplánetan Júpíter er í vog og ýtir undir breytingar á fjár- málum og bolmagni hennar. Safnaðu saman því sem þú þarft nauðsynlega á að halda og krefstu þess sem þú átt rétt á. Byrjaðu næsta ár með því að fara glænýjar leiðir. Meyja 24. ágúst - 21. september Nú er sól í bogmanni og ferðast um himingeiminn í félagi við tjáskiptaplán- etuna Merkúr, sem er í afturábakgír. Því er líklegt að krabbinn þurfi að fást við minniháttar heilsubrest eða verkefni sem setið hafa á hakanum. Kannski eru erfiðleikar eða einhver misskilningur í samskiptum við vinnufélaga. Einnig má búast við töfum og óvæntri atburðarás. Þolinmæðin þrautir vinnur allar, segir máltækið, enda virðist nokkuð af mikilvægum ákvörðunum á döfinni. Búðu þig undir nokkuð tilfinningaflóð í framhaldi af fullu tungli í krabba rétt eftir jólin. Júp- íter er í voginni núna og hefur áhrif á atburðarásina á heimili og í einkalífinu. Krabbi 23. júní - 21. júlí Nú er sólin í bogmanni og þú þarft að einbeita þér að því sem leynist undir yfirborðinu og skapandi og andlegum hugðarefnum. Ekki láta vandamál augnabliksins ná slíkum tökum á þér, að þú missir sjónar á því sem er að gerast í kringum þig. Þú stendur frammi fyrir valkostum eða ákvörðunum sem tengj- ast maka eða nánum félögum og ekki víst að þú vitir í hvorn fótinn þú átt að stíga. Ólíklegt er að nokkuð skýrist fyrir áramót, svo þér er óhætt að bíða og sjá. Nýtt tungl verður í bogmanni 12. desember sem greiðir götuna fyrir andlegri iðkun. Kannski finnst þér þú átta þig á stöðunni en satt best að segja sérðu ekki heildarmyndina. Steingeit 23. desember - 20. janúar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.