24 stundir - 26.02.2008, Qupperneq 4
„Þessu var smyglað inn síðasta sumar, þegar allir
voru í fríi, bæði aðalskipulagi og deiliskipulagi í einu.
Margir sáu það ekki þannig að þeir héldu að þeir hefðu
lengri frest. Héldu að fyrst þyrfti að samþykkja að-
alskipulagið áður en deiliskipulagið yrði kynnt. En
þessu var stungið saman,“ segir Ásta Þorleifsdóttir,
formaður hverfisráðs Grafarvogs sem hefur samhljóða
ítrekað fyrri ályktun sína þar sem gerð er athugasemd
við breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur sem felur í
sér breytta landnotkun á reitnum Spöngin 3-5. Breyt-
ingin felur í sér að í stað þess að reiturinn sé skil-
greindur sem atvinnu- eða þjónustusvæði verður hann
skilgreindur sem íbúðasvæði. „Það eru aðrar lóðir í
Grafarvogi þar sem hægt er að byggja blokkir, bara
ekki á þessari lóð. Þessi lóð liggur mjög vel við öllum
samgöngum og er mjög miðsvæðis þannig að hún
myndi henta sérstaklega undir mikla allsherjar fé-
lagsmiðstöð fyrir íbúa á öllum aldri þar sem listasýn-
ingar, tónleikar, þjónusta og önnur afþreying gæti far-
ið fram,“ segir Ásta. Ekki náðist í Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, formann skipulagsráðs, vegna máls-
ins. elias@24stundir.is
Hverfisráð Grafarvogs gerir athugasemdir við skipulagsbreytingar
„Þessu var smyglað inn“
Ásta Þorleifsdóttir vill
fá menningarmiðstöð í
Grafarvoginn.
Árvakur/Golli
4 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 24stundir
Ferðaskrifstofa
Salan á flugsætum til Alicante
fer af stað með látum!
Heitustu
sætin!
Flogið allt árið
Flugdagar í sumar:
fimmtudaga (3 flug), föstudaga,
laugardaga, sunnudaga og þriðjudaga
Besta verðið bókast fyrst
Bókaðu strax á www.plusferdir.is
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Stefnt er að því að stofna hlutafélag
um innflutning á nýjum kúastofni
í næsta mánuði. Jón Gíslason, for-
maður Nautgriparæktarfélags Ís-
lands (NRFÍ), sem barist hefur fyr-
ir innflutningi á norskum
kúastofni til Íslands, segir að hið
nýja hlutafélag muni sækja um
innflutningsleyfi til Landbúnaðar-
ráðuneytisins á næstu mánuðum.
„Við stefnum að því að sækja um
innflutningsleyfi á fósturvísum og
sæði úr norska kúastofninum.
Ráðuneytið mun þá leita álits hjá
umsagnaraðilum eins og yfirdýra-
lækni og fleiri aðilum.“
Telur norska kúakynið betra
Jón segir ekkert til fyrirstöðu að
fara af stað með verkefnið annað
en leyfisgjöf frá ráðuneytinu. „Inn-
flutningi á nýju kúakyni var hafn-
að árið 2001 en það er okkar skoð-
un að síðan þá hafi aðstæður
breyst. Krafan um hagræðingu í
landbúnaði hefur aukist mjög
undanfarin ár, kúabú hafa stækkað
og skuldir þeirra aukist. Þess vegna
er afar mikilvægt að skoða leiðir til
að auka hagræðingu í rekstri þeirra
og það er okkar skoðun að norska
kúakynið sé í hagrænu tilliti mun
betra en það íslenska.“
Jón leggur mikla áherslu á að ef
leyfi fæst fyrir innflutningi yrði um
að ræða tilraunaverkefni. „Þetta
yrði innflutningur í litlum mæli og
það er ekki fyrr en að tilrauninni
lokinni að það er hægt að fara að
ræða um breytingar. Það gæti gerst
eftir um það bil fimm ár frá því að
tilraunin með norsku kýrnar hæf-
ist.“
Almenn samstaða æskileg
Einar K. Guðfinnsson landbún-
aðarráðherra segir að þessi mál
hafi verið nokkuð rædd á haust-
fundum Landssambands kúa-
bænda. „Það þarf að hafa margt í
huga varðandi ákvörðun af þessu
tagi. Við munum hins vegar taka
afstöðu til erindisins þegar það
berst. Mín skoðun er sú að það
væri afar æskilegt að það skapaðist
almenn samstaða meðal bænda
um þetta mál.“
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Norskar kýr í
íslensk fjós?
Stofna á hlutafélag um innflutning á norskum kúm til Íslands
Sótt um leyfi á næstunni Samstaða æskileg, segir ráðherra
Íslenskar kýr Í framtíðinni gætu
norskar stallsystur íslensku kýr-
innar velt henni úr sessi.
➤ Guðni Ágústsson, þáverandilandbúnaðarráðherra, heim-
ilaði innflutning á fóst-
urvísum úr norskum kúm í
október árið 2000.
➤ Kúabændur höfnuðu þeiminnflutningi í almennri at-
kvæðagreiðslu árið 2001.
ENDURTEKIÐ EFNI
Árvakur/Þorkell
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Olíuflutningar um íslenska lög-
sögu frá norðvesturhluta Rússlands
til Vesturlanda hafa ekki aukist
undanfarin ár þvert á væntingar.
Siglingamálastofnun býst varla við
mikilli eða skyndilegri aukningu í
útskipun á olíu frá Barentshafi
nema stefnubreyting verði hjá
stjórnvöldum í Rússlandi.
Stofnunin segir, að væntingar
um aukna olíuflutninga hafi aðal-
lega byggst á áætlunum rússneska
olíufélagsins Yukos og fleiri aðila
um flutningslögn frá olíuríkum
svæðum Síberíu vestur og norður
til Murmansk. Forsvarsmaður Yu-
kos hafi síðan lent í fangelsi og
áætlanir um aukna flutninga orðið
að engu. Árið 2005 fóru 278 skip
með um 9,6 milljón tonn af olíu-
afurðum úr Barentshafi. Megnið til
Evrópuhafna. mbl.is
Olíuflutningar framhjá Íslandi standa í stað
Olíuskip ekki fleiri
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin könnuðu kílóverð á ýsuflökum,
roð- og beinlausum.
Af þessum sex verslunum sem kannaðar voru var
langlægsta kílóverðið í Fiskbæ, Keflavík.
En hæsta kílóverðið af ýsunni fannst í Gallerý Fiskur,
þar var hún 69% dýrari en í Fiskbæ.
69% munur á soðningunni
Þuríður
Hjartardóttir
NEYTENDAVAKTIN
Ýsuflök roð- og beinlaus
Verslun Verð Verðmunur
Fiskbær Keflavík 799
Fjarðarkaup 1.032 29,2 %
Fiskbúðin Hófgerði 1.180 47,7 %
Fiskisaga 1.290 61,5 %
Nóatún 1.298 62,5 %
Gallery Fiskur 1.350 69,0 %
STUTT
● Lyf sett í drykki Tveir karl-
menn voru handteknir á
skemmtistaðnum Vegamót að-
fararnótt sunnudags grunaðir
um að hafa sett lyf í drykki
stúlkna á staðnum. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu var
mönnunum sleppt að lokinni
skýrslutöku.
● Búið að laga spenni Við-
gerð lauk fyrir helgina á öðr-
um spenni Sultartangastöðv-
ar, en báðir vélaspennar
stöðvarinnar biluðu með
skömmu millibili í lok síðasta
árs. Bilun varð í einangrun
spennanna sem líklega má
rekja til eldinga.