24 stundir - 26.02.2008, Qupperneq 15
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 15
Örlög borgarfulltrúa Sjálf-stæðisflokksins í Reykja-vík eru enn
til umræðu eftir að
Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson komst að
niðurstöðu um
helgina. Athygli vek-
ur að þeir sem enn
tjá skoðanir sínar á mikilvægi stór-
sviptinganna eru stjórnmálamenn.
Borgarfulltrúar blogga sjálfir um
hvort hér hafi orðið niðurstaða,
eða biðstaða eða pattstaða. Frjáls-
lyndir eins og Jón Magnússon og
Magnús Þór Hafsteinsson hafa
sterkar skoðanir og sér sá fyrr-
nefndi Hamlet í hverju horni.
Áhugi almennings á stjórnmál-
araunum borgarfulltrúa virðist
hins vegar fara dvínandi enda
þykja þær langdregnar.
Kvennaráðstefna SÞ stendurí New York, þaðan bloggarValgerður Sverrisdóttir.
„Það sem er svo skemmtilegt
við New York er að þar fer maður
nánast allt gangandi. Það er að
vísu frekar kalt en
það skiptir ekki máli
fyrir íslenskar öflug-
ar konur, “ segir Val-
gerður og telur upp
nokkrar. „Álfheið-
ur, Ásta, Björk,
Herdís og Ingibjörg Sólrún er
mætt með fylgdarlið. Ráðuneyt-
isstjóri félagsmála, Ragnhildur
Arnljótsdóttir er hér og Kristín
Ástgeirsdóttir, forstöðukona Jafn-
réttisstofu, og fulltrúar fé-
lagasamtaka.“ Þá vekur Valgerður
athygli á því að einn karl er með
og sá er Ingi Valur Jóhannsson
deildarstjóri í félagsmálaráðu-
neytinu.
Pappírstígrar og slúðurberar,heitir leiðari Deiglunnarsem telur að blogg Össurar
Skarphéðinssonar um Gísla Mar-
tein Baldursson sé
ekki eins alvarlegt
og það hve margir
komast hjá ábyrgð á
orðum og gjörðum.
Það skipti meira
máli en hvort einn
kall fari offari í skrifum. Össur
standi ábyrgur eigin skrifa og lendi
í hópi stjórnmálamanna sem
minnst trausts njóta. Guðmundur
Gunnarsson slær á svipaða
strengi. Við efnahagslífi Íslands
blasi mestu erfiðleikar sem upp
hafa komið upp lengi. Þá sé Kast-
ljósinu beint að innihaldslausum
umræðum tveggja stjórnmála-
manna um blogg Össurar og ann-
ars fjalli pressan um þingmann
sem spilaði 21. beva@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Í síðustu viku svaraði Þórunn
Sveinbjarnardóttir umhverfisráð-
herra fyrirspurn minni á Alþingi
um stöðu vélhjóla sem notuð eru
til ferðamennsku og útivistar.
Svarið er lítilfjörlegt og sem köld
vatnsgusa í andlit hjólafólks. Ráð-
herrann er með vandamálagler-
augun á nefinu og sér ekki ástæðu
til að nálgast þennan útivistarhóp
né tillögur hans með nokkrum
hætti. Í fyrirspurninni er vísað í
nýja skýrslu sem fulltrúar í Um-
hverfisnefnd Mótorhjóla- og snjó-
sleðasambands Íslands, þeir Jakob
Þór Guðbjartsson, Ólafur Guð-
geirsson, Einar Sverrisson, Leó-
pold Sveinsson og Gunnar Bjarna-
son unnu að ásamt
Umhverfisstofnun, Landvernd,
Sambandi íslenskra sveitarfélaga
og Vegagerðinni og spurt hvernig
ráðherra hyggist nýta hana. Í
svarinu er ekki gerð hin minnsta
tilraun til að kveða upp úr um
hvort né hvernig ráðherra hyggst
nýta skýrsluna. Miðað við svar
ráðherra á ekkert að gera með þá
vinnu. Þórunn ætti að endurskoða
afstöðu sína og taka meira mark á
óskum mótorhjólafólks um úr-
bætur. Í svari ráðherra er einnig
alvarleg rangfærsla sem hlýtur að
vera mistök af hennar hálfu. Í
svarinu segir: „Landmælingar Ís-
lands hafa lokið kortlagningu vega
og slóða miðhálendisins.“ Hið
sanna er að Landmælingar Íslands
hafa náð að kortleggja einungis
hluta vega og slóða miðhálendisins
í góðu samstarfi við Ferðaklúbb-
inn 4x4 samkvæmt samstarfs-
samningi. Miðað við bjartsýnustu
spár mun ekki takast að klára það
verkefni með takmörkuðum fjár-
veitingum ráðuneytisins fyrr en í
fyrsta lagi í árslok 2009 enda á enn
eftir að mæla og kortleggja þús-
undir kílómetra í óbyggðum.
Mótorhjólin æ vinsælli
Á síðustu árum hefur mótor-
hjólafólki sem nýta vélhjól til
ferðamennsku og útivistar fjölgað
mjög mikið og eru þessi hjól nú
um 7.000 talsins. Hjólum í land-
inu hefur stórfjölgað á skömmum
tíma án þess að stjórnvöld, hvorki
ríki né sveitarfélög, hafi brugðist
við á nægjanlega markvissan hátt
með uppbyggingu aðstöðu og
skýrum lagaramma um hvar megi
nýta hjólin. Hjólin eru flest á höf-
uðborgarsvæðinu og hefur aðstað-
an þar þó batnað upp á síðkastið.
Vélhjólaíþróttaklúbburinn (VÍK)
náði þeim árangri á sínum tíma í
samstarfi við Reykjavíkurborg og
fleiri að fá úthlutað svæði fyrir
motocrossbraut í Álfsnesi. Í júlí
2005 var svo skrifað undir samn-
ing VÍK, Landssambands Íslenskra
Vélsleðamanna, Reykjavíkurborgar
og Sveitarfélagsins Ölfus um nýtt
svæði við Bolaöldu sem hentar vel
motocross- og endurohjólahópn-
um og vélsleðamönnum. Búið er
að vinna mikla sjálfboðavinnu á
svæðinu og er þar að verða til hin
prýðilegasta aðstaða.
Skipuleggja þarf aðgengi
Í síðasta mánuði var haldinn af-
ar fjölmennur stofnfundur Ferða-
og útivistarfélagsins Slóðavina en í
því félagi eru einstaklingar og fjöl-
skyldur sem nýta sér mótorhjól til
ferðamennsku og útivistar á veg-
slóðum um hálendi og láglendi.
Stofnfundurinn er enn ein birting-
armynd þess að mótorhjólin njóta
æ meiri hylli til útivistar hér á
landi. Í dag er ekki nægjanlega
skýrt hvar nýta megi hjólin s.s. á
slóðum á hálendinu og hvar ekki.
Hefur m.a. komið til dómsmála
vegna þessa þar sem deilt hefur
verið um hvað sé slóði og hvað
ekki. Brýnt er að stjórnvöld vinni
markvisst að því að greiða úr
óvissunni því það er hagur allra
aðila að reglur séu skýrar. Lang-
flest mótorhjólafólk sýnir góða
umgengni um landið og fordæmir
utanvegaakstur. Forystumenn
mótorhjólafólks eiga hrós skilið
fyrir framlag sitt gegn utanvega-
akstri en það hefur staðið fyrir
markvissri uppfræðslu á því sviði.
Margir hópar nýta hálendi Íslands
í dag s.s. göngufólk, hestafólk,
mótorhjólafólk, jeppafólk og aðrir
almennir ferðamenn. Allir þessir
hópar eiga rétt á sér. Stjórnvöld
verða því að taka sér tak og skipu-
leggja aðgengi þessara hópa að
landinu í sátt við náttúruna svo
allir geti vel við unað. Það er ár-
íðandi út frá náttúruverndarsjón-
armiðum að aðgengi mótorhjóla-
fólks sé vel skipulagt.
Höfundur er alþingismaður
Mótorhjól og útivist
VIÐHORF aSiv Friðleifsdóttir
Stofnfund-
urinn er enn
ein birting-
armynd þess
að mót-
orhjólin
njóta æ meiri
hylli til útivistar hér á
landi.
Jeppadekk
ALORKA • Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080
Heilsársdekk
31" kr. 13.900
(31x10.50R15)
33" kr. 15.900
(33x12.50R15)
Úrval annarra stærða upp í 38".
Felgustærð 15", 16" og 17".
Sendum frítt um land allt!
Við mælum með míkróskurði
P
IPA
R
• S
ÍA
• 8
016
5
Nánar á jeppadekk.is
Draupningsgata 7,m 603 Akureyri S: 462 - 6600 polyak@simnet.is
Leður sófasett
Hornsófasett
Sófasett með skemli
Tungusófar
Tungu hornsófar
Stakir sófar
Borðstofuborð og
stólar
Skenkar
Sófaborð
Eldhúsborð
Rúmgaflar
Leðursófasett áður 239,000
Nú 119,900
Hornsófar tau áður 198,000
Nú 103,000
Hornsófar leður áður 249,000
Nú 149,000
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
HÚ
SG
AG
NA
-
L
AG
ER
SA
LA
HÚSGAGNA
LAGERSALA
VERÐDÆMI
Opnunartími
mán-fös 9.00-18.00 lau 11.00-16.00
ALLTAF FRÁBÆRT VERÐ!
ATVINNUBLAÐIÐ
atvinna@24stundir.is
alltaf á laugardö
gum
Pantið gott pláss t
ímanlega