24 stundir - 26.02.2008, Page 27
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 27
Ég er alls ekki hrifin af við-
bættum sykri í mjólkurvörum, ég
er með þrjú börn á heimili og ég
kaupi helst ekki bragðbættar
mjólkurvörur fyrir þau. Vöruúr-
valið er lélegt og það sem ég hef
um að velja er aðallega hreint skyr,
hrein súrmjólk, hrein jógúrt og
mjólk. Ég skil ekki alveg af hverju
það er ekki hægt að framleiða gott
og hollt ávaxtaskyr með hreinum
ávöxtum.
Teljum okkur borða hollt
Það er verið að ala börn upp á
sætum matvörum og þau hætta að
geta borðað mat nema hann sé
verulega bragðbættur með sykri.
Þessar vörur seljast hjá fram-
leiðendum en ég tel það vera vegna
þess að fólk telur sig vera að borða
hollari mat en það er í raun að
gera.
Erfitt að lesa úr merkingum
Sykraðar mjólkurvörur eru aug-
lýstar sem hollustuvara. Mér finnst
ekki augljóst hversu mikill sykur er
í vörunum sem um er að ræða.
Ég átta mig ekki á því frekar en
hver annar hvað eru viðbætt kol-
vetni og hvað eru eðlileg kolvetni.
Mér finnst að það þurfi að herða
reglur mjög um merkingar á mat-
vöru þannig að það sé alveg ljóst
hvert sykurinnihaldið er. Sér-
staklega er það mikilvægt þegar
um er að ræða vörur fyrir börn. Ég
held að um leið og merkingar eru
ljósar og gagnsæjar hafni fólk þess-
um vörum og þá þurfa framleið-
endur að bjóða eitthvað betra til
sölu fyrir börnin okkar.
dista@24stundir.is
Védís Guðjónsdóttir, þriggja barna
móðir í Reykjavík
Vöruúrvalið er lélegt
Sykraðar mjólkurvörur Þær eru
auglýstar sem hollustuvara. „Mér
finnst ekki augljóst hversu mikill syk-
ur er í vörunum sem um er að ræða.“
„Út af fyrir sig er ég ekki á móti
sykruðum mjólkurvörum. Aftur á
móti þykir mér ótækt að bróð-
urpartur vöruúrvals stærsta mjólk-
urvöruframleiðandans sé fullur af
viðbættum sykri á meðan mjólk er
markaðssett á Íslandi sem holl-
ustuvara,“ segir Snorri Stefánsson.
„Sér í lagi þegar slíkri markaðs-
setningu er beint að börnum. Það
er beinlínis óheiðarlegt að reyna að
útbúa ímynd um hollustu um vöru
sem svipar um margt til sælgætis,“
segir Snorri ennfremur.
Lítill metnaður
Þá væri ánægjulegt ef framleið-
endur mjólkurvara legðu meira
upp úr því að framleiða ósykraðar
vörur en mér hefur fundist sem
ónógur metnaður sé í þá átt.“
dista@24stundir.is
Sykraðar mjólkurvörur
markaðssettar sem hollustuvara
Snorri Stefánsson, stjúpfaðir í Reykjavík
Óheiðarlegt Útbún-
ar eru hollustuvörur
sem svipar um
margt til sælgætis.
FÓRNAÐU FITUNNI - VIRKJAÐU VÖÐVANA
SÖLUSTAÐIR:
Nóatún, Hagkaup, Krónan
Hress heilsurækt, Hafnarf.
Nordicaspa, Nordica hótel.
Sporthúsið, Kópavogi.
Töff heilsurækt, Húsavík.
Útilíf og Intersport.
Grand spa, Grand hótel.