24 stundir - 26.02.2008, Page 29
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 29
Eitt bros getur gert gæfumuninn
og þó fæstir átti sig á því, þá getur
brosið breytt deginum. Brosið hef-
ur jákvæð áhrif á bæði þann sem
brosir og sá sem sér brosið fallega.
Þetta litla viðbragð lætur ein-
staklinginn líta út fyrir að vera
hlýjan og aðlaðandi auk þess að
dreifa hamingju. Næst þegar dag-
urinn er erfiður mætti kannski
prófa að brosa aðeins og kanna
hvort það bætir ekki daginn.
Bros gerir
gæfumuninn
Sjónrænar ímyndir geta verið
gagnlegt verkfæri til að stuðla að
heilbrigðara líferni og aðstoða ein-
staklinga við að ná markmiðum
sínum, sama hver þau eru. Það eru
ýmsar leiðir til að nota slíkar
ímyndir og til að mynda má hengja
upp mynd af markmiðinu á áber-
andi stað á heimilinu, búa til úr-
klippubók með myndum sem
hvetur viðkomandi áfram og fleira
í þeim dúr.
Sjónræn
markmið
Niðurstöður 10 ára rann-
sóknar sem gerð var á 4.300
Bandaríkjamönnum leiddi í ljós
að heimiliskettir hafa jákvæð
áhrif á heilbrigði hjartans og
draga úr líkum á hjartaáfalli.
Ástæðan er sú að kettir hafa
streitulosandi áhrif á eigendur
sína.
Líkur minnka um þriðjung
„Við höfum lengi haft vitn-
eskju um neikvæð áhrif kvíða og
streitu á hjarta og æðakerfi en
langvarandi streituástand eykur
líkur á hjartasjúkdómum og þá
sérstaklega hjartaáföllum,“ segir
dr. Adnan Qureshi, einn rann-
sakenda við Háskólann í Minne-
sota, í viðtali við dagblaðið U.S.
News.
Amerísku hjartasamtökin birtu
niðurstöður rannsóknar árið
2005 sem sýndi fram á að aðeins
12 mínútur á dag í návist heim-
ilishunda eða katta hefði jákvæð
áhrif á hjarta- og lungnastarfsemi
einstaklinga með hjartabilun.
„Fjöldi rannsókna hefur sýnt
fram á tengsl streitu og hjarta-
sjúkdóma og hefur lengi verið
talið að sú hlýja og ánægja sem
gæludýr veita eigendum sínum
hafi fyrirbyggjandi áhrif.“
Rannsókn Qureshis náði til
4.435 Bandaríkjamanna á aldr-
inum 30 til 75 ára en 2.435
þeirra áttu kött eða höfðu átt
kött en hinir 2000 höfðu aldrei
átt kött. Qureshi og félagar báru
saman orsakir dauðsfalla milli
hópanna og kom í ljós að katta-
eigendur voru síður líklegir til
þess að látast af völdum hjarta-
áfalls en þeir sem ekki áttu kött.
Að sögn Qureshi áttu rannsak-
endur ekki von á því að mun-
urinn væri svo mikill á milli
hópa en dauði af völdum hjarta-
áfalls var 30% minni hjá katta-
eigendum en hinum. „Við bjugg-
umst við einhverjum mun en alls
ekki svona miklum,“ segir Qu-
reshi.
Gæludýrin hafa jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfi
Kettir draga úr líkum á hjartaáfalli
Árvakur/Eyþór Árnason
Heimilisköttur Gæludýrin
hafa jákvæð áhrif á heilsu eig-
enda sinna en heimiliskött-
urinn dregur úr líkum á hjarta-
áfalli um þriðjung.
Öll verðum við að taka ábyrgð á lífi
okkar og þeim ákvörðunum sem
við tökum. Sama hve neikvæðir at-
burðir gerast þá er það undir okk-
ur sjálfum komið hvernig við
bregðumst við þeim. Oft kennum
við heiminum um depurð okkar
og vonleysi í stað þess að átta okk-
ur á að gjörðir okkar eru val. Það
eitt að hvetja okkur sjálf áfram á
morgnana með jákvæðu tali getur
breytt nútíð og framtíð.
Að taka ábyrgð
á lífi sínu
Áhugamál eru ekki aðeins andlega
gefandi heldur einnig líkamlega.
Að eiga sér áhugamál og gefa sér
tíma til þess að sinna þeim hefur
jákvæð áhrif á líkamann, dregur úr
streitu og hvílir hugann. Rannsókn
sem gerð var á sjúklingum sem
voru að jafna sig eftir uppskurð
leiddi í ljós að þeir sem áttu sér
uppbyggjandi áhugamál voru fljót-
ari að jafna sig en hinir sem áttu
sér engin.
Áhugamál
hafa góð áhrif
Sækjum styrk
í íslenskt náttúruafl!
www.sagamedica.is
Fæst í lyfja- og heilsuvöruverslunum
Vaknar flú oft
á nóttunni?
SagaPro er náttúruvara
úr íslenskri ætihvönn
ætlu› fleim sem flurfa oft
á salerni› á nóttunni.
Vallý s.510 3728
Böddi s.510 3726
ÐI
Ð
ALB
U
N
NIVTA atvinna@24stundir.is
PANTIÐ
GOTT
PLÁSS
Í TÍMA