24 stundir - 26.02.2008, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLFERÐIR
ferdir@24stundir.is
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Einhverra hluta vegna virðast Ís-
lendingar ekki gera sér fulla grein
fyrir möguleikunum. Þess í stað
kjósum við að fara í ævintýraferðir
út í heim og láta öðrum eftir að
uppgötva leyndardóma Íslands.
Ferðir síðan árið 1991
Einar Rúnar Sigurðsson rekur
ferðaþjónustufyrirtækið Öræfa-
ferðir ásamt eiginkonu sinni, Matt-
hildi Unni Þosteinsdóttur, og föð-
ur sínum, Sigurði Bjarnasyni.
„Faðir minn hóf sínar ferðir árið
1991 og ég fylgdi honum eftir
þremur árum síðar,“ segir Einar.
Öræfaferðir bjóða upp á spenn-
andi skíðaferðir þar sem gengið er
upp á Hvannadalshnjúk og aðra
tinda og skíðað niður. „Jöklaferðir
á skíðum eru að aukast en við tök-
um þó aðallega á móti ferðamönn-
um enn sem komið er. Ég hef samt
orðið var við að Íslendingar eru að
átta sig á þessum valmöguleika og
því má búast við því að ferðirnar
verði vinsælar.“ Gera má ráð fyrir
því að þeir sem einu sinni reyna
ferð á borð við þessar fari aftur.
Kjörið fyrir vinahópa
Skíðaferðirnar eru misjafnlega
erfiðar eftir því hvað tindur er val-
inn en þeir sem ekki hafa reynslu
geta til dæmis farið í gönguskíða-
ferð á Vatnajökli. Þetta er kjörin
ferð fyrir saumaklúbba og aðra
hópa enda er hægt að fá skíði, skó
og skíðastafi hjá fyrirtækinu og verð
á einstakling lækkar eftir því sem
fleiri skrá sig í ferðina.
„Hvannadalshnjúksferðin er erf-
ið og ég mæli ekki með henni fyrir
þá sem hafa litla reynslu af göngu
og skíðamennsku. Verðlaunin fyrir
það að ná á toppinn eru auðvitað
óviðjafnanleg en þau eru stórkost-
legt útsýni og meiriháttar skíðaferð
niður í bíl.“ Ferðin tekur um 10
tíma og allt að 7 manns geta farið í
einu. Jafnvel fleiri ef um vana menn
er að ræða sem eiga eigin búnað.
Búnaðurinn er lykilatriði
„Fjallaferðir krefjast þess að viss
búnaður sé notaður enda skiptir
öryggið öllu máli. Við leigjum flest
það sem á þarf að halda en fólk þarf
að huga sérstaklega að fatnaði enda
getur verið vetur á toppnum þó að
fínasta vorveður sé í byggðinni.
Einnig skiptir máli að vera með
góðan bakpoka með öllu því sem á
þarf að halda.“
Hraustur Einar á Hvanna-
dalshnjúk í 222 skipti.
Öræfaferðir bjóða upp á spennandi fjallaskíðaferðir
Skíðað niður af
Hvannadalshnjúk
Á meðan Íslendingar láta
sig dreyma um ferðalög
til sólarstranda og fram-
andi borga þjóna íslensk-
ir ferðafrömuðir sívax-
andi hópi erlendra
ferðalanga. Ísland býður
upp á marga kosti fyrir
ævintýramanninn
➤ Halda úti vefsíðunni hofs-nes.com þar sem hægt er að
nálgast allar upplýsingar um
ferðirnar.
➤ Bjóða auk skíðaferðanna uppá göngu-, fuglaskoðunar-,
sögu- og kajakferðir.
ÖRÆFAFERÐIR
Hraustleg Matthildur á göngu Á toppnum Hjónin slaka á eftir göngunaHnappur Einar á toppnum eftir gönguna
Vefsíðan www.icetourist.is er
sérstaklega góð fyrir þá sem vilja
ferðast innanlands. Vefsíðunni er
haldið úti af Ferðamálastofu og er
henni ætlað að vera nokkurs konar
upplýsingabrunnur um ferðalög á
Íslandi.
Viðamikill gagnagrunnur
Vefurinn er sérstaklega ætlaður
Íslendingum sem vilja njóta þess að
ferðast um landið sitt. Á vefnum er
að finna alls kyns upplýsingar um
landið bæði hvað varðar náttúru,
veðurfar og staðhætti. Stærsti hluti
vefsins er þó gagnagrunnur sem
hefur verið í vinnslu í mörg ár og
geymir nú upplýsingar um tæplega
tvö þúsund ferðaþjónustuaðila auk
alls kyns upplýsinga sem geta
reynst ferðalöngum ómetanlegar,
sérstaklega ef um óvana ferðamenn
er að ræða.
Gagnagrunnurinn er bæði á
ensku og íslensku og því hentar
hann jafnvel fyrir erlenda ferða-
menn og áhugasama Íslendinga.
Auk þess að bjóða upp á upplýs-
ingar um allt frá strætóferðum að
skipulögðum ferðum er síðan með
leitarvél sem gagnast sérstaklega
þeim sem vilja skipuleggja ferð á
eigin spýtur.
Öflugur gagnagrunnur fyrir ferðalanga
Allar upplýsingar um Ísland
Göngugarpar Ísland er
ferðaparadís.
Með „bonjour“ heilsuðu
ungu fjórmenningarnir
kurteislega sem koma
vikulega saman til að
læra frönsku.
Að venju var mikið
um dýrðir þegar Ósk-
arsverðlaunin voru
afhent í 80. skipti í
Kodak leikhúsinu
í Hollywood.
»Meira í Morgunblaðinu
Daglegt líf
Þriðjudagur 26. febrúar 2008
Það er meira
í Mogganum
í dag
Guðmundur tekur við landsliðinu.
Spánverjar bjóða tvo æfingaleiki.
Meiðsli Ragnars minni en talið var.
Taylore fór til Eduardo á sjúkrahúsið.
»Meira í Morgunblaðinu
Íþróttir
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700