24 stundir - 26.02.2008, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2008 24stundir
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
[...] Hún [Diablo Cody] hefði einnig mátt fá
einhvers konar verðlaun fyrir að mæta í ein-
hverjum ljótasta kjól sem sést hefur á Óskarshátíð-
inni í lengri tíma.
Skandall kvöldsins: „Ljúkum þessu af“
Ekki það að margir hafi gaman af löngum
þakkarræðum, en í ár var óþarflega mikið
um að verðlaunahöfum væri bolað út af
sviðinu með tónum hljómsveitarinnar
í hálfkláruðum ræðum. Þegar Marketa
Irglova og Glen Hansard hlutu verðlaun
fyrir besta lagið var gengið svo langt að
slökkva á hljóðnemanum þegar Irglova
ætlaði að taka til máls á eftir Hansard.
Kynnirinn Jon Stewart neyddist til að fá
Irglovu aftur á sviðið eftir auglýsingahlé og
leyfa henni að þakka fyrir sig.
Óskarsverðlaunin fóru fram í
80. sinn á sunnudagskvöld. Eins
og margir höfðu búist við stóð
No Country for Old Men uppi
sem sigurvegari hátíðarinnar
og hlaut fern verðlaun, en þar
af fóru þrenn þeirra í hendur
leikstjórabræðranna Joel og Ethan
Coen. Það var flest eftir bókinni
í ár, en óvæntustu tíðindin voru í
leikkvennaflokki þar sem Marion
Cotillard og Tilda Swinton fóru
með sigur af hólmi, en ekki Julie
Christie og Cate Blanchett eins og
margir höfðu búist við. Daniel Day-
Lewis og Javier Bardem tóku hins
vegar stytturnar í karlaflokki eins
og veðbankar höfðu verið tilbúnir
að hengja sig upp á. Hátíðin í ár
þykir af flestum hafa heppnast
einkar vel. Jon Stewart
stóð sig með glæsibrag
í hlutverki kynnisins og
verðlaunadreifingin var
góð. Engin hneyksli, besta
myndin vann og þær sem
hlutu flestar tilnefningar fengu
allar eitthvað fyrir sinn snúð.
Kvikmyndasérfræðingar
24 stunda fylgdust að
sjálfsögðu með og áttu
ekki í vandræðum með
að útlista það besta og
versta við Óskarinn
2008.
Sérfræðingar 24 stunda fylgdust með Óskarnum og útlistuðu það besta og versta
Stórgóð Óskarsverðlaunahátíð
Litur kvöldsins:
Rauður
Rauðir kjólar voru
áberandi á rauða
dreglinum í ár og margar
leikkvennanna sem
skörtuðu rauðu voru með
eindæmum glæsilegar.
Erfitt er að velja þá
flottustu, en á meðal
þeirra sem klæddust
rauðum kjól voru Helen
Mirren, Heidi Klum,
Katherine Heigl, Anne
Hathaway, Miley Cyrus
og Julie Christie.
Besta kvikmynd
No Country for Old Men
Bestu leikstjórar
Joel og Ethan Coen, No
Country for Old Men
Besti leikari
Daniel Day-Lewis, There
Will Be Blood
Besta leikkona
Marion Cotillard, La Vie
En Rose
Besti aukaleikari
Javier Bardem, No
Country for Old Men
Besta aukaleikkona
Tilda Swinton, Michael
Clayton
Besta frumsamda
handrit
Diablo Cody, Juno
Besta erlenda
kvikmynd
Die Fälscher frá Austurríki
Besta handrit byggt á
áður útgefnu efni
Joel og Ethan Coen, No
Country for Old Men
Besta heimildarmynd
Taxi to the Dark Side
Besta teiknimynd
Ratatouille
Heiðursverðlaun
Robert F. Boyle
Helstu verðlaun
Ljótasti kjóll kvöldsins:
Diablo Cody
Fyrrum nektardansmærin Diablo
Cody hlaut Óskarsverðlaun
fyrir besta frumsamda handrit
fyrir kvikmyndina Juno. Hún
hefði einnig mátt fá einhvers
konar verðlaun fyrir að mæta í
einhverjum ljótasta kjól sem sést
hefur á Óskarshátíðinni í lengri
tíma. Hlébarðamussan sem Cody
klæddist minnti miklu heldur á
rúmföt gleðikonu en hátíðarkjól.
Kona kvöldsins
Marion Cotillard
Óvæntasti sigurvegari hátíðarinnar, en
afar vel að því komin að vera valin besta
leikkona í aðalhlutverki. Þetta er aðeins
í þriðja skipti
sem leikari
hlýtur Óskar fyrir
hlutverk á öðru
tungumáli en
ensku. Cotillard
var gullfalleg, í
glæsilegum kjól
og heillaði alla
upp úr skónum
þegar hún tók við
verðlaununum og
þakkaði fyrir sig
af mikilli einlægni.
Sigurvegari kvöldsins: Evrópa
Allir leikararnir sem hlutu Óskar eru evrópskir.
Daniel Day-Lewis (aðalleikari) og Tilda Swinton
(aukaleikkona) eru ensk, Marion Cotillard
(aðalleikkona) er frönsk og Javier Bardem
(aukaleikari) er spænskur. Þar að auki hlutu
Evrópubúar Óskar í nokkrum öðrum flokkum.
Líklega hefur þáttur Evrópubúa á Óskarnum
aldrei verið eins stór.
Maður kvöldsins:
Jon Stewart
Jon Stewart var í einu
orði sagt frábær sem
kynnir hátíðarinnar
og sá til þess að fólki
leiddist aldrei yfir þessari
óralöngu athöfn. Stewart
átti fjölmarga brandara
sem slógu í gegn og var
beittur, án þess þó að
fara yfir línuna. Óskarinn
hefur sjaldan verið eins
fyndinn og í ár.
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
Hlíðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
Auglýsingasíminn er 510 3744
Bizzaró
Aðþrengdur
Afsakið að ég er til!
GERVIFELDUR? ÞETTA ER
LÍKA BARA GERVIBLÓÐ!
Mér finnst alveg
sama lyktin af nýja
árinu og því gamla...
Já, ég
veit! Það er
ekki ennþá búið
að skipta um
bleyju á því
ELSKAN,
ERTU VISS UM
AÐ ÞÚ SÉRT
T ILBÚIN Í
ÚTSÖLURNAR?
RÓMVERSKUR RIDDARI RÉÐST
INN Í RÓMARBORG, RÆNDI OG
RUPLAÐI, RÓFUM OG RÚSÍNUM!
HVAÐ ERU MÖRG „R“ Í ÞVÍ?
JÓN GAMLI
ÁKVAÐ AÐ
GANGAST
UNDIR LYGA-
MÆLINGU
GEGN RÁÐI
LÖGFRÆÐINGS
MYNDASÖGUR