24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir
Opið 10-20 virka daga Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18
©
In
te
r I
KE
A
Sy
st
em
s B
.V
. 2
00
8
www.IKEA.is
695,-/stk.
VÅREN púðar, ýmsar tegundir,
ýmsir litir 60x40 cm.
WWW.EBK.DK
Danskir gæðasumarbústaðir
(heilsársbústaðir)
Hafðu samband við okkur fyrir frekari
upplýsingar: Anders Ingemann Jensen
farsími nr. +45 40 20 32 38
netfang: aj@ebk.dk
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
VÍÐA UM HEIM
Algarve 18
Amsterdam 10
Alicante 15
Barcelona 12
Berlín 10
Las Palmas 21
Dublin 6
Frankfurt 8
Glasgow 7
Brussel 9
Hamborg 8
Helsinki 2
Kaupmannahöfn 7
London 11
Madrid 19
Mílanó 9
Montreal -5
Lúxemborg 6
New York 2
Nuuk -16
Orlando 19
Osló 2
Genf 3
París 9
Mallorca 10
Stokkhólmur 5
Þórshöfn 6
Norðan 8-13 m/s á Vestfjörðum, en annars
mun hægara. Víða dálítil snjókoma eða él, en
úrkomulítið suðvestantil.
Hiti kringum frostmark, en vægt frost norð-
vestanlands.
VEÐRIÐ Í DAG
1
-1
1
0 0
Dálítil snjókoma
Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálítil
snjókoma eða él.
Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost norðvest-
anlands.
VEÐRIÐ Á MORGUN
1
-1
1
0 1
Snjókoma eða él
Eftirspurn eftir þjónustu Stíga-
móta var á síðasta ári sambærileg
við fyrstu árin eftir að samtökin
hófu göngu sína en þá var gríðarleg
uppsöfnuð þörf í samfélaginu.
Þetta kemur fram í skýrslu samtak-
anna sem út kom í gær. Fjöldi fólks
sem leitaði aðstoðar hefur ekki ver-
ið meiri síðan árið 1995, en á síð-
asta ári leituðu 527 manns til Stíga-
móta, þar af 277 í fyrsta sinn. Hluta
aukningarinnar má rekja til auk-
inna umsvifa utan hússins, til að
mynda á Austurlandi.
Stærstur hópur þeirra sem leita
til Stígamóta kemur vegna sifja-
spella eða 42,9%. Þá vekur athygli
að á meðan flestir verða fyrir of-
beldi á aldrinum 5 til 15 ára, leita
fæstir sér aðstoðar fyrr en milli 19
og 29 ára.
Aldrei hafa fleiri nýtt sér viðtals-
þjónustu Stígamóta vegna vændis
en á síðasta ári nýttu 22 konur og 3
karlar sér hana. Þar af voru 12 ný
mál. Þá voru nokkrar konur í
reglulegu símasambandi við Stíga-
mót vegna vændis. Í skýrslunni
kemur fram að langan tíma tekur
að vinna úr þeirri ofbeldisreynslu
sem vændi er. Þá er vændi falið
vandamál og kemur oft ekki fram
fyrr en eftir margra mánaða viðtöl.
Sífellt fleiri leita aðstoðar Stíga-
móta vegna kláms og segja starfs-
konur þar kynferðislegar myndir
oft notaðar sem kúgunartæki og
því hótað að gera þær opinberar.
Þetta hafi gríðarleg áhrif á þá sem
fyrir því verða. fifa@24stundir.is
Spurn eftir þjónustu Stígamóta eins og þegar þau opnuðu fyrst
Aldrei fleiri vegna vændis
Í framvarðasveit
Guðrún Jónsdóttir,
kynnti skýrsluna. Sýslumanni og lögreglustjóra á
Suðurnesjum, sem fer með tollaeft-
irlit og löggæslu á Keflavíkurflug-
velli, verður gert að spara 191 millj-
ón á þessu ári og um 260 milljónir á
næsta ári, skv. tillögum dómsmála-
ráðuneytisins. Ekki verður ráðið í
sumarafleysingar hjá lögreglu og
tolli í ár. Þetta kom fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
„Við verðum að vinna innan fjár-
laga eins og aðrir og erum að skoða
málin,“ segir Jóhann R. Benedikts-
son, sýslumaður á Suðurnesjum.
Sveinn Ingiberg Magnússon, for-
maður Landssambands lögreglu-
manna, segist ekki mega til þess
hugsa að skorið verði niður. Hins
vegar sé rétt að bíða með alla dóma
þar til ráðuneytin hafa ákveðið
hvort fjárveitingar til embættisins
verða auknar eða ekki. þkþ
Sýslumaður og lögreglustjóri á Suðurnesjum
Ekkert sumar-
starfsfólk í Keflavík
Stjórn Kaupþings hefur ákveðið að
fresta því að breyta starfrækslu-
gjaldmiðli bankans í evrur fram til
janúar 2009 og draga til baka nú-
verandi umsókn um að honum
yrði breytt frá og með síðustu ára-
mótum. Kemur fram í tilkynningu
að umsóknarferlið hafi tekið lengri
tíma en áætlað var og því erfitt að
breyta honum héðan af miðað við síðustu áramót.
Stjórn Kaupþings ákvað í fyrra, í samræmi við alþjóðlega reiknings-
skilastaðla, að breyta starfrækslugjaldmiðli bankans í evrur frá og með
byrjun árs 2008.
„Vægi evru í rekstri bankans hefur aukist á undanförnum árum og sú
þróun mun halda áfram. Nú eru einungis tæplega 13% af heildar-
eignum bankans í íslenskum krónum og minna en 11% af heild-
arskuldum og er stjórnin enn staðráðin í að breyta starfrækslugjald-
miðlinum í evrur til að tryggja að reikningar bankans gefi hverju sinni
rétta og skýra mynd af fjárhagsstöðu samstæðunnar.
Evran í bið hjá Kaupþingi
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ,
segist axla ábyrgð á því að hafa
ekki kynnt Degi B. Eggertssyni,
fulltrúa borgarinnar í bygging-
arnefnd Laugardalsvallar, aukinn
kostnað.
Dagur hefur gagnrýnt að eftir að
kostnaðaraukinn upp á tæpar 400
milljónir varð ljós, hafi ekki verið
haldnir fundir í nefndinni. Á síð-
ari fundinum sem hann sat hefði
ekki verið minnst á aukakostnað
heldur því haldið fram að verkið
væri á áætlun.
Geir Þorsteinsson sagði í samtali
við RÚV að embættismönnum
Reykjavíkurborgar hefði átt að
vera ljóst hvernig kostnaður hefði
aukist. Dagur misskilji fund-
argerðina frá fundi bygging-
arnefndar, verkið hefði verið á
réttri tímaáætlun en ekki fjár-
hagsáætlun.
Nánar er fjallað um málið í
fréttaskýringu Þórðar Snæs Júl-
íussonar á síðum 10 og 11.
Geir segist axla ábyrgð
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Matsmenn á vegum Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) og Mjólkursam-
sölunnar (MS) mátu lóð og hús
Osta- og smjörsölunnar að Bitru-
hálsi 2 á 1,8 milljarða króna sam-
kvæmt heimildum 24 stunda, en
OR hefur sýnt því mikinn áhuga að
kaupa eignina af MS.
24 stundir sögðu frá því í lok
október á síðasta ári að OR hefði
hug á því að kaupa eignina, en hún
er staðsett við hlið höfuðstöðva
fyrirtækisins.
Meirihlutaskipti standa í vegi
Magnús Ólafsson, forstjóri MS,
segir upphæðina ekki vera fjarri
lagi. „Við erum búnir að ræða þessi
mál við alls fimm stjórnarformenn
í Orkuveitunni og boltinn liggur
hjá þeim. Tilboð hafa gengið á víxl
og það liggur eitt slíkt frá okkur hjá
þeim. Ég geri ráð fyrir að Orkuveit-
an taki afstöðu til þessa máls í
næstu viku.“ Fasteignamat ríkisins
metur eignina á tæpan milljarð.
Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR,
staðfesti að tvívegis hafi legið fyrir
stjórn OR að ganga frá málinu en
meirihlutaskipti í borginni hafi í
bæði skiptin hamlað því að það
hafi verið hægt. „Nú er svo komið
að það er komið frá þeim verð-
tilboð sem ég held að verði ekki
breytt. Stjórn Orkuveitunnar þarf
því að taka afstöðu til þess hvort
hún mun taka því eða ekki.“ Mál-
inu var frestað á stjórnarfundi á
fimmtudag en heimildir 24 stunda
herma að ef ekki verði gengið frá
kaupunum á næsta fundi muni
eigendur eignarinnar ekki bíða
lengur og leita annarra tilboða.
Verið að skoða þörfina
Lóðin og húsið er í eigu Kosts
eignarhaldsfélags, eiganda Auð-
humlu sem á MS og Osta- og
smjörsöluna. Lengi hefur verið í
skoðun að selja lóðina og húsið
enda fylgir mikill byggingarréttur
reitnum.
Hluti höfuðstöðva OR er í dag
leigður út undir aðra starfsemi og
samkvæmt heimildum 24 stunda
eru tafir á samkomulaginu til-
komnar vegna þess að stjórn fyr-
irtækisins vill fara yfir þörf þess til
að stækka við sig.
Eignin metin á
1,8 milljarða kr.
Orkuveitan vill kaupa eign að Bitruhálsi 2 Húsið og lóðin met-
in á 1,8 milljarða króna Eigendur hafa gert OR lokaverðtilboð
Osta- og smjörsalan
Eigendurnir vilja selja
húsið og lóðina.
➤ Orkuveitan hefur sýnt áhugaá að kaupa eignina frá því
snemma á síðasta ári. Hún
liggur að höfuðstöðvum
hennar.
➤ Osta- og smjörsalan er tilhúsa þar í dag.
➤ Tvívegis hefur staðið til aðganga frá kaupunum en
meirihlutaskipti í borginni
hafa komið í veg fyrir það.
OR VILL STÆKKA VIÐ SIG
STUTT
● Fimm bíla árekstur Einn var
fluttur á slysadeild með minni
háttar áverka eftir árekstur
þriggja bíla nærri Arnarnes-
brúnni í Garðabæ á fimmta
tímanum í gær. Skammt þar frá
varð svo tveggja bíla árekstur
en þar urðu ekki meiðsl á fólki
að sögn lögreglu. Nokkrar tafir
urðu á umferð vegna slysanna
tveggja.
● Stútar við stýri Níu öku-
menn voru teknir fyrir ölv-
unarakstur á höfuðborg-
arsvæðinu í fyrrinótt. Átta
voru stöðvaðir í Reykjavík og
einn í Hafnarfirði. Þetta voru
átta karlar á aldrinum 18-27
ára og ein kona, 22 ára.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.