24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 44

24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir Innritun hafin! Sjóðheitt dans- og púlnámskeið í boði fyrir 16 ára og eldri, bæði stelpur og stráka. Í boði er spennandi og krefjandi 6 vikna námskeið fyrir þá sem elska að dansa og hafa áhuga á að koma sér í form! • Kennt er í lokuðum hópum • Tímar fyrir byrjendur og lengra komna • Ýmsir dansstílar kynntir s.s. jazz – musical – street – lyrical og modern. Verð: 12.800.- Námskeið hefst 31. mars. Vertu með! Skráning í síma 5813730 og á jsb@jsb.is D a n ss tu d io J S B Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n DAN SSTUDIO J SB sem lögðu blessun sína yfir hug- myndina þá hljóta menn að stað- næmast við þessa einstaklinga. Það voru þau sem gengu harðast fram með þær skoðanir að það væri landinu, þjóðinni og jafnvel heiminum öllum til mestrar blessunar að þetta fyrirtæki yrði til. Það var boðskapur þeirra á þessum tíma. Síðan er myndaður nýr meiri- hluti í borginni og pólitískar æf- ingar hefjast. Björn Ingi Hrafns- son skiptir um lið til að fylgja málinu fram og segir á einum stað að andvirðið af REI muni duga til að borga allar skuldir Reykvíkinga. Björn Ingi segir líka að hann vilji ekki selja REI í heilu lagi fyrr en 2009. Er það í raun og veru tilefni til að mynda nýjan meirihluta hvort maður vill selja fyrirtæki fyrr eða síðar? Þegar ég skrifaði þessa grein komst ég að því að í málinu var ekki nein orka, það var bara reykurinn einn.“ Hvaða lærdóm er hægt að draga af þessu máli? „Lærdómurinn er margvísleg- ur. Til dæmis sá hversu erfitt er fyrir ríki og sveitarfélög að fara inn á svið viðskiptalífisns. Við sjáum líka að menn verða að átta sig nákvæmlega á því hvaða áhættu þeir eru að taka, það er mjög óljóst hvaða verðmæti eru þarna í húfi. Ég tel að stjórn- arhættir innan Orkuveitu Reykja- víkur hafi sprungið í andlitið á sjálfum sér. Leyndarhyggjan og sú aðferðafræði sem menn hafa beitt þar til að komast að niðurstöðu og taka ákvarðanir gekk sér til húðar með þessum dramatíska hætti. Gerð var tilraun til að komast að niðurstöðu með að- ferðum sem voru algjörlega á skjön við alla opna stjórnarhætti. Ef ég hefði tíma myndi ég skrifa kennslubók um þetta mál og kalla hana: Víti til að varast.“ Einkennilegt andrúmsloft Ef við lítum á borgarmálin þá er ekki hægt að neita því að þar hefur verið mikill órói. Hvað er til ráða? „Reykvíkingar hafa haft fimm borgarstjóra síðan Ingibjörg Sól- rún fór frá, eða réttara sagt var knúin til afsagnar í ársbyrjun 2003. Frá þeim tíma hefur verið nær stöðugur barningur í borg- inni. Það er mikill núningur milli Sjálfstæðisflokksins og annarra flokka í borginni. Stífnin er mikil og því hefur ekki verið hægt að mynda þá breiðu samstöðu sem þarf til að skapa kjölfestu í stjórn borgarinnar. Þarna ríkir ein- kennilegt andrúmsloft og ég átta mig ekki á því af hverju það staf- ar. Davíð Oddsson talaði oft um borgina sem fyrirtæki. Ekkert fyr- irtæki sem væri með svona ósam- stæða yfirstjórn myndi ná góðum árangri. Þetta er áhyggjuefni fyrir borgarbúa. Aðeins 9 prósent þeirra segjast bera traust til borg- arstjórnar. Allir flokkarnir þurfa að vinna í því að skapa borg- arstjórn aukið traust.“ Er ekki vandamál fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að ekki hafi tekist að leysa oddvitamál flokksins í borginni? Getur ekki verið hættu- legt að ýta vandanum á undan sér? „Það getur verið hættulegt. Þótt borgarstjórnarflokkurinn standi að baki Vilhjálmi Þ. Vil- hjálmssyni þá hefur fólk á tilfinn- ingunni að þar sé opið tækifæri fyrir aðra einstaklinga. Í hugum fólks er komið upp oddvita- vandamál. Sá vandi sem nú er uppi í borginni er þó ekki flokkslegur vandi Sjálfstæðisflokksins heldur vandi allra þeirra sem sitja í borg- arstjórn. Ég hef verið talsmaður þess að breiður meirihluti yrði myndaður í borginni til að ná þeim árangri sem þarf að ná við stjórn borgarinnar. Þessi skoðun mín er ekki vantraust á sitjandi meirihluta eða Ólaf F. Magnús- son. Það væri hins vegar mun heppilegra að meirihlutinn væri öflugri.“ Ertu þá að tala um samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar? „Já, eða samstarf Sjálfstæðis- flokks og Vinstri grænna.“ Í sérstakri stöðu Þú ert einn öflugasti bloggari landsins og hefur fagnað nýföllnum dómi þar sem bloggari var dæmd- ur fyrir meiðyrði. Sjálfur ert þú óhræddur við að segja skoðanir þínar á þinni bloggsíðu. Er ekki skiljanlegt að stundum fari blogg- arar yfir strikið í skrifum sínum? „Mín skoðun er sú að menn séu ábyrgir fyrir orðum sínum hvar sem þeir skrifa þau. Þeir sem skrifa mikið geta farið yfir strikið og þá er undir þeim komið sem ráðist er á hvort hann vill sækja viðkomandi til saka. Ég er í sér- stakri stöðu og geri því þær kröf- ur til sjálfs mín að ég vandi mig sérstaklega. Ef ég færi yfir strikið þá væri sekt mín hugsanlega meiri en annarra vegna stöðu minnar og ég gæti fyrir vikið hlotið harðari refsingu en aðrir.“ Hefurðu rætt við vin þinn Össur Skarphéðinsson um bloggskrif hans um Gísla Martein? „Ég er ekki fulltrúi í sérstakri siðvæðingarnefnd, hvorki gagn- vart Össuri né öðrum. Ég hef hins vegar sagt Össuri að menn hafi rætt það við mig að þeim hafi þótt fast að orði kveðið í bloggfærslu hans.“ Hvernig tók Össur því? „Það er regla í samskiptum okkar Össurar að taka því með skilningi sem við segjum hvor við annan.“ Sem stjórnmálamaður hefur þú harða ímynd og virðist ekki gera neitt til að mýkja hana. „Ég tel mig vera mjúkan og mildan mann. Ef ég hef harða ímynd þá eru það ímyndarsmiðir fjarri mér sem hafa búið hana til.“ Þú veiktist illa í síðustu kosn- ingabaráttu. Ertu alveg búinn að ná þér „Ef ég hefði hummað veikindin fram af mér hefði ég ekki lifað lengi. En ég fór til lækna og þeir læknuðu hið samfallna lunga og nú er ég alheill. Það var mikil en góð reynsla að kynnast okkar ágæta heilbrigðiskerfi og leggjast inn á spítala og vera ósjálfbjarga og geta lítið annað gert en hlusta á Wagner sér til skemmtunar. Ég komst að því á þessu tímabili hversu skammt getur verið á milli lífs og dauða. En nú hef ég sem sagt náð fullri heilsu.“ Hver er framtíð þín í pólitík? Ætlar þú að sitja út þetta kjör- tímabil? „Já, það mun ég gera. Fyrir síð- ustu kosningar gaf ég til kynna að ég myndi ekki sitja lengur en út þetta kjörtímabil. Hvað tekur svo við? Ég get allavega sagt þér, að ég mun ekki gerast sendiherra. Þessi breyting, sem ég hef verið að lýsa í þessu viðtali í utanríkis- og öryggismálum, kallar á ný við- horf hjá okkur Íslendingum og ný viðbrögð til að tryggja fullveldi og öryggi í okkar heimshluta. Ég get lagt mitt af mörkum við mótun stefnu og framkvæmd hennar sem stjórnmálamaður. Áhugi minn er mikill á þessum málum og farsæld í þessum efnum skiptir þjóðina miklu. Ég þarf að meta, hvar ég tel mig geta orðið best að liði. Eða ætti ég kannski bara að fara að sinna kindunum mínum í Fljótshlíðinni?“ Bloggið Ég er í sérstakri stöðu og geri því þær kröfur til sjálfs mín að ég vandi mig sérstaklega. a Ég tel að stjórn- arhættir innan Orkuveitu Reykjavíkur hafi sprung- ið í andlitið á sjálfum sér. a Davíð Oddsson talaði oft um borgina sem fyr- irtæki. Ekkert fyrirtæki sem væri með svona ósamstæða yfirstjórn myndi ná góðum árangri. 24stundir/Kristinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.