24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 6

24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir Eftir Frey Rögnvaldsson freyr@24stundir.is Einungis tvö sauðfjárbú með líf- ræna vottun markaðssetja sínar af- urðir sem lífrænar. Þetta eru Mæli- fellsá í Skagafirði og Brekkulækur í Austur-Húnavatnssýslu. Bæði býl- in eru á Norðurlandi og í ásætt- anlegri fjarlægð frá þeim sláturhús- um sem hafa lífræna vottun. Skilar meiri hagnaði Margeir Björnsson, bóndi á Mælifellsá, segir þess fullviss að líf- ræn ræktun skili mun meira í vas- ann fyrir bóndann. „Ég myndi hvetja alla bændur sem búa á sæmi- lega rúmgóðum jörðum að velta vandlega fyrir sér að taka upp svona búskaparhætti. Hinu er þó ekki að leyna að það hefur verið gríðarleg andstaða gegn lífrænni ræktun af hálfu landbúnaðarráðuneytisins og reyndar líka bændaforystunnar. Ég rek það til þess að menn hafi viljað markaðssetja allt lambakjöt á Ís- landi sem lífrænt, sem er auðvitað galið þegar menn nota tilbúinn áburð og tilbúnar fóðurblöndur. Þetta er ótrúleg skammsýni.“ Framtíðin í lífrænum afurðum Sláturhúsið á Blönduósi fékk líf- ræna vottun í haust og sauðfé frá Mælifellsá er slátrað þar. Gísli Garðarsson sláturhússtjóri segist sannfærður um að framtíðin sé í lífrænum afurðum. „Það sem rak okkur til að fá þessa vottun var það að búið á Mælifellsá var í viðskipt- um við okkur og þau sýndu þessu mikinn áhuga. Það er ekki mikill kostnaður við þessa vottun og við vildum gjarnan fá fleiri bændur í viðskipti við okkur með lífrænar af- urðir. Þeir eru nú ekki margir á landinu en miðað við alla um- ræðuna um lífrænar afurðir trúi ég því að þeim muni fjölga.“ Ekki boðlegt ástand Atie Bakker, bóndi í Skaftholti í Gnúpverjahreppi, segir að það ríki ótrúlegt skilningsleysi gagnvart líf- rænni ræktun. „Við framleiðum alla okkar vöru lífrænt en höfum mjög lítil tök á því að koma henni á markað. Það er ekki boðlegt að þurfa að keyra skepnurnar hundr- uð kílómetra.“ HVAÐ VANTAR UPP Á? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á frettir@24stundir.is Segir lífrænan landbúnað mæta andstöðu Telur meiri hagnað af lífrænni ræktun Bjarni Harðarson þingmaður hefur mótmælt harðlega auglýs- ingu sem Allianz hefur birt að und- anförnu. Bjarni segir að í auglýs- ingunni sé evru og krónu stillt upp hlið við hlið sem keppinautum og krónan gerð þar í senn brosleg og eymdarleg. Allianz leyfi sér þannig að blanda sér í íslensk stjórnmál með atlögu að gjaldmiðli Íslands og þar með sjálfstæði. „Þetta var alls ekki illa meint og ætlun okkar var aðeins að vekja at- hygli á að með því að spara hjá Alli- anz sparar fólk í evrum,“ segir Eyj- ólfur Lárusson, framkvæmdastjóri Allianz. Bjarni Harðarson segir að nú fari fram mjög mikilvæg og um leið viðkvæm umræða um íslensku krónuna og stöðu hennar til fram- tíðar. Það sé þó ekki hlutverk al- þjóðlegra fyrirtækja sem hér starfa að taka pólitíska stöðu í þeirri um- ræðu. Hann fer þess á leit að birt- ingu auglýsingarinnar verði hætt, „Ég hef ekki séð mótmæli þing- mannsins, þú ert að segja mér frétt- ir, en við skoðum þetta að sjálf- sögðu,“ sagði Eyjólfur Lárusson. þe Bjarni Harðarson mótmælir evru-auglýsingu Ósmekkleg auglýsing Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is 06:00 Ég vaknaði, fór íbað og byrjaði að hamast í tölvupóstinum og o.fl. sem þarf að klára fyrir helgi. 09:00 Fór upp í geymslurÞjóðminjasafns og hitti þar fagfólk sem gefur okkur í Skáksambandinu góð ráð varð- andi vörslu skákminja. 11:00 Talaði við ÁsdísiBragadóttur, fram- kvæmdastjóra SÍ, og hitti Kristian Guttesen, tæknimann skákhátíð- arinnar. Áttum fund með starfs- fólki í Þjóðmenningarhúsinu til að ganga frá hlutum fyrir hátíð- ardagskrá til minningar um Bobby Fischer sem verður á sunnudaginn. 14:00 Talaði við WilliamLombardy, aðstoð- armann Fischers í einvíginu 1972, sem er hvort tveggja í senn stór- meistari og kaþólskur prestur, og hann er á leið til Íslands. 17.00 Tók við gjöf fráMagna Kr. Magna- syni sem stóð í mörg ár vaktina „Hjá Magna“. Þau hjónin gáfu öllum keppendum fyrstadagsum- slög frá einvíginu 1972 og yngstu keppendum minnispeninga. 17:30 Fundur í stjórnSkáksambandsins þar sem farið var yfir framkvæmd viðburða næstu daga og ákvarð- anir teknar vegna Norðurlanda- móts stúlkna í apríl. 21:00 Tók á móti Geir H.Haarde forsætis- ráðherra í Skákhöllinni. Þegar hann kom var heil hersing af áhorfendum búin að þjappa sér í kringum borð Illya og Sahaj. 22:30 Kom við hjá Frið-riki Ólafssyni stór- meistara til að ná í skák og skák- skýringar Fischers, sem hann hefur valið til birtingar. 00:00 Kom heim til Steinuminnar sem er búin að vera ótrúleg hjálparhella síð- ustu daga og vikur. Áður en ég sofnaði dáðist ég að fórnfúsa fólk- inu í skákhreyfingunni sem með samstilltu átaki lætur svona stórt verkefni ganga 100% upp. Konan á bak við skákmótið 24stundir með Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, forseta Skáksam- bands Íslands og varaþingmanni Vinstri grænna í SV-kjördæmi ➤ Fæddist á heimsmeistara-einvígisárinu 1972 og ólst upp í Reykjavík. Hún býr þar nú ásamt spúsu sinni. ➤ Hefur verið forseti SÍ í fjögurár en hættir í vor. Hún vinnur sem framkvæmdastjóri þing- flokks VG en tók sér frí frá störfum til að sjá um skákhá- tíðina. ➤ Er með BA-próf í sagnfræðiog meistarapróf í stjórn- málafræði og heimspeki. GUÐFRÍÐUR LILJAGuðfríður Lilja Grét- arsdóttir er fyrsta konan til að gegna stöðu forseta Skáksambands Íslands. Hún vinnur sem fram- kvæmdastjóri þingflokks VG ásamt því að vera varaþingmaður flokksins. Þessa dagana heldur hún utan um alþjóðlegu skákhátíðina sem stend- ur yfir í Reykjavík. Gjöf Guðfríður Lilja tekur á móti gjöfum til keppenda á skákmótinu frá hjónunum Magna og Steinunni. 24 stundir/Ómar Kattasýning Höllin er opin frá kl.10 - 17.30 báða dagana Nánari uppl. á www.kynjakettir.is M ar gr ét G ís la dó tt ir , A lio sh a Ro m er o Eyvor Andersson Danmörk Kristina Rautio Finland Lone Lund Svíþjóð Sýningin verður haldin 8. og 9. mars 2008 í Reiðhöll Gusts, Álalind, Kópavogi Dómarar eru: bladaaugl08.pdf 6.3.2008 13:00:48 IKEA hefur stöðvað sölu á barna- stólnum Gulliver í nokkrum löndum eftir að tilkynning barst frá Þýskalandi um að miðjuband sem á að koma í veg fyrir að barn detti úr stólnum hefði losnað. IKEA á Íslandi selur Gulliver- barnastólinn en er ekki meðal þeirra verslana sem fengið hafa stóla frá þeim framleiðanda sem um ræðir, að sögn Þórarins Æv- arssonar framkvæmdastjóra. „Við erum ekki á listanum,“ segir Þórarinn. ibs IKEA stöðvar sölu á barnastól Trúnaðarmenn Strætó vilja koma því á framfæri að þeir séu ekki í einkastríði við einn eða neinn. Viðmælandi 24 stunda, sem titl- aður var trún- aðarmaður, sagði bréf nokk- urra trún- aðarmanna vera hluta af einka- stríði þriggja trúnaðarmanna en í bréfinu er framkvæmdastjóri Strætó gagn- rýndur. Bent er á að viðmæland- inn sé ekki trúnaðarmaður, held- ur 3. varamaður. Ekki í einka- stríði við neinn Lögregla hefur handtekið mann sem reyndi að stela fartölvum úr verslun í Borgartúni á miðviku- dag. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu hefur maðurinn játað brot- ið og var hann færður í fangelsi þar sem hann mun hefja af- plánun tíu mánaða fangelsisdóms sem hann hafði áður hlotið Borgartúnsræninginn Beint í afplánun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.