24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 20

24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir www.airfree.com • www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Airfree lofthreinsitækið • Byggir á nýrri tækni sem eyðir ryki, frjókornum og gæludýraflösu • Eyðir ólykt, bakteríum, vírusum, myglu og öðrum örverum • Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt – tilvalið í svefnherbergið og á skrifstofuna Betra loft betri líðan FÉOGFRAMI vidskipti@24stundir.is a Við fáum til okkar kennara á heims- mælikvarða. Flestir þeirra koma frá IESE og London Business School. Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is Æðstu stjórnendum fyrirtækja býðst nú í fyrsta skipti AMP-end- urmenntunarnám í stjórnun, við Háskólann í Reykjavík. Námið miðast við að fólk sé í fullri vinnu og sé mjög upptekið, enda er tíma- sókn námskeiðsins um 20 dagar sem dreifast á sex mánaða tímabil. Að auki felst hluti námsins í hópa- vinnu þátttakenda. „Þetta er kjarninn í MBA-nám- inu á sex mánuðum,“ segir Eva Þengilsdóttir, þróunarstjóri hjá HR, sem sér um námið. „AMP-námið hefur verið kennt við virtustu háskóla í heimi í tugi ára, t.d. hefur það verið kennt í um fimmtíu ár í IESE, sem er einn fremsti viðskiptaháskóli í heimi. Við förum að þeirra fyrirmynd auk þess að vera í samstarfi við skólann um námið,“ segir Eva. Læra á raunverulegum dæmum Námið byggir á svokallaðri til- fellaaðferð (e. case method) sem felst í því að þátttakendur læra um stjórnun í gegnum umræður um raundæmi. „Við förum yfir mörg dæmi um raunveruleg fyrirtæki sem hafa lent í ákveðnum erfiðleikum eða náð miklum árangri. Dæmin tengjast þemum fyrirlestranna og eru því ólík innbyrðis. Þátttak- endur og kennarar fara yfir verk- efnin sem fyrirtækin stóðu frammi fyrir og kryfja þau, t.d. hvað fyrirtækið hefði getað gert öðruvísi og hvað það gerði vel,“ segir Eva. Að stjórna sér og öðrum Námskeiðinu er skipt í fjórar lotur. „Í fyrstu lotunni í apríl byrj- um við á því að fara út fyrir bæinn og hrista hópinn saman,“ segir Eva. Hún segir að svo sé þátttakendum raðað í hópa eftir því hvaða hlut- verk þeir taka að sér í hópavinnu en markmiðið er að sem flestar manngerðir séu í hverjum hóp. „Nú síðan förum við yfir helstu at- riði í stjórnun og leiðtogaþjálfun og fleira,“ segir Eva. Í hinum þremur lotunum er einnig farið yfir ákveðin þemu, t.d. fjármál, markaðsmál, stefnumót- un, samningatækni og hvernig fólk stjórnar tíma sínum. „Það er frí yfir sumarmánuðina, þ.e. þangað til í ágúst, en á þeim tíma hitta þátttakendur stjórn- endaþjálfara tvisvar og ræða atriði sem þeim finnst mikilvæg, t.d. hvernig best sé að samþætta heim- ilislíf og vinnu eða hvað sem er,“ segir Eva. Kennarar á heimsmælikvarða „Við fáum til okkar kennara á heimsmælikvarða. Flestir þeirra koma frá IESE og London Business School. Jafnframt kemur Matthew Melis hjá NASA, en hann var í nefndinni sem fór yfir Columbia- slysið,“ segir Eva. Fyrirlestrarnir eru haldnir í HR nema seinasta lotan sem er í ágúst, en þá er farið til IESE í Barcelona í viku. Skotnám í stjórnun í HR  Fá kjarnann úr MBA-gráðu á 20 dögum sem dreifast á hálft ár Undirbúningur Eva Þengilsdóttir er á fullu að undirbúa námið. ➤ Kostar 1,9 milljónir. ➤ Kynning á náminu verður nk.föstudag, 13. mars, þar sem Erik Weber, aðstoðarskóla- stjóri IESE, fer yfir eitt raun- dæmi og það er rætt. ➤ Skráning er hafin í HR og eruaðeins teknir inn 25 nem- endur. AMP-NÁMIÐ MARKAÐURINN Í GÆR             !!"                               !"#      $ %        &#  '()*+ '  , -./.   0#1   2         345   #"   " 61  "(## (7      81 !"# "    +9 #/   01  - -   :   -        ;# 1         -/    !                                                             : -   0 -< = $ ' >?@@?5>3 A43BA>AA@ ACC>BD?45 >3>>@44DC ?D?>DC3A? B5C3>3 55>4>A@@@ >??@A3ABCA >>4>B@>AC? 5B>CAC5>C >DDBBA5>4 4@5DBB35D 3C555D@@ D>D533A , @ @ A@55A5 D?CC@4D , A35AA?55 ?@A , , , >>C@B44@@ , >5>D>AA ?ED5 C@E?@ >>EDB DE>3 >4ED5 ABED@ ACEB@ ?C>E@@ A?EC@ BBE5@ 5E>> >>EA@ CEDD D@EA@ >EC4 4E44 >?3E@@ >C4@E@@ C>5E@@ @EDB >C5E5@ 3E@@ , 3?E@@ , C5?@E@@ , , BE@@ C>EA@ >AE@5 DE>? >?E@5 ADE3@ A5E@@ ?CBE@@ A?E55 BDEC@ 5E>5 >>E3@ 5E@3 D@E4@ >ECB 4E?@ >?5E5@ >C45E@@ CA5E@@ @EDD >CBE@@ 3E@C AAE@@ , BE5@ C4A5E@@ DEB@ 4E@@ /   - D A3 C4 C4 >>@ ? C >AA D3 3A 4A D5 >C B , , , 3 B , C> > , , , >@ , C F#   -#- ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B ?3A@@B 43A@@B 43A@@B 43A@@B ?3A@@B ?3A@@B 43A@@B ?3A@@B 43A@@B >BAA@@B 4>AA@@? AABA@@? ?3A@@B A5>A@@B ?3A@@B ● Mestu viðskiptin í Kauphöll OMX í gær voru með bréf í Kaup- þingi banka eða fyrir 1,6 milljarða króna. ● Mesta hækkun var á bréfum í P/F Foroya-banka eða um 5,63%. ● Mesta lækkun var á bréfum í P/F Atlantic Petroleum eða um 2,67%. Bréf í Century Aluminium lækkuðu um 1,29%. ● Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,26% og var lokagengi hennar 4.820,62 stig. ● Íslenska krónan veiktist um 1,15% í gær. ● Samnorræna OMX-vísitalan lækkaði um 1,27% í gær. Breska FTSE-vísitalan lækkaði um 1,1% og þýska DAX-vísitalan lækkaði um 1,2%. Bankastjóri stærsta fjárfesting- arbanka heims, Goldman Sachs Group, hyggst veita 100 milljónir dollara til þess að styrkja 10 þús- und konur um allan heim til náms í viðskiptum. „Í Afríku, þar sem íbúafjöldinn er 900 milljónir, eru til dæmis aðeins 2600 konur í við- skiptanámi. Það er sóun á mann- auði. Það er kominn tími til að mennta fleiri konur í viðskiptum og það hefði átt að gera fyrir löngu,“ segir Blankfein bankastjóri í viðtali við AP. Menntun kvenna gæti auk- ið brúttóþjóðarframleiðslu um 0,2 prósent á ári í hundruðum þróun- arlanda, að því er segir í fréttinni. Samvinna verður um viðskiptanám kvennanna milli bandarískra háskóla og háskóla í viðkomandi löndum í Mið-Austurlöndum, Afríku og Asíu. Maha ElShinnawy, prófessor við bandaríska háskólann í Kaíró í Egyptalandi, segir menntun kvenna menntun alls samfélagsins því hún gangi í erfðir. ibs Bankastjóri styrkir konur Hagnaður af rekstri samstæðu Landsvirkjunar nam 28,5 millj- örðum króna á síðasta ári sam- anborið við 11 milljarða árið 2006. Í árslok námu heildareignir fyrirtækisins 318,8 milljörðum króna en eigið fé nam 99,2 millj- örðum króna og jókst á árinu um 28,4 milljarða króna. Eiginfjár- hlutfall var 31,1 prósent í árslok 2007. Aukning rekstrartekna var að verulegu leyti vegna sölu til Fjarðaáls sem hófst á árinu. Árið 2007 er síðasta árið sem ís- lenska krónan er starfrækslu- gjaldmiðill Landsvirkjunar, en Bandaríkjadalur verður ráðandi mynt fyrirtækisins frá og með árinu 2008. mbl.is Mikill hagnaður Landsvirkjunar HB Grandi var rekinn með 689 milljóna króna tapi á fjórða árs- fjórðungi 2007 en 943 milljóna króna tapi árið áður. Rekstr- artekjur námu 1.966 milljónum króna og drógust saman um tæp 30 prósent. Rekstrartap fyrir af- skriftir var 64 milljónir króna, eða 3,3% af veltu, en rekstrarhagn- aður fyrir afskriftir var 480 millj- ónir á 4. ársfjórðungi 2006. mbl.is. Dregur úr tapi HB Granda Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra mun ræða íslensk efna- hagsmál á fundi í Kaupmannahöfn á þriðjudaginn. Hinn 13. mars mun Geir H. Haarde forsætisráðherra gera slíkt hið sama á ráðstefnu í New York. Í Kaupmannahöfn munu auk þess tala þeir Richard Portes, prófessor við London Business School, Sigurður Einarsson, stjórn- arformaður Kaupþings og Sigurjón Sighvatsson, fjárfestir. Í New York verða forsætisráðherra til halds og trausts þeir Lárus Welding, forstjóri Glitnis, Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, Sigurjón Árna- son, bankastjóri Landsbankans, Gregory Miller, prófessor við Harvard Business School, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, Torsten Slok, hagfræð- ingur hjá Deutsche Bank Securities og Ólafur Jóhann Ólafsson, fram- kvæmdastjóri hjá Time Warner taka þátt í umræðum á fundinum. mbl.is . Ráðherrar róa markaðinn Útlán Íbúðalánasjóðs námu rúm- um 2,8 milljörðum í febrúar. Þar af voru ríflega 452 milljónir króna vegna leiguíbúðalána. Al- menn útlán námu tæplega 2,4 milljörðum króna og var með- allánið rúmar 8,6 milljónir. mbl.is 2,8 milljarða lán
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.