24 stundir - 08.03.2008, Side 20
20 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir
www.airfree.com • www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Airfree lofthreinsitækið
• Byggir á nýrri tækni sem eyðir
ryki, frjókornum og gæludýraflösu
• Eyðir ólykt, bakteríum, vírusum, myglu og öðrum örverum
• Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt – tilvalið í svefnherbergið og á skrifstofuna
Betra
loft
betri
líðan
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Við fáum til okkar kennara á heims-
mælikvarða. Flestir þeirra koma frá
IESE og London Business School.
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
Æðstu stjórnendum fyrirtækja
býðst nú í fyrsta skipti AMP-end-
urmenntunarnám í stjórnun, við
Háskólann í Reykjavík. Námið
miðast við að fólk sé í fullri vinnu
og sé mjög upptekið, enda er tíma-
sókn námskeiðsins um 20 dagar
sem dreifast á sex mánaða tímabil.
Að auki felst hluti námsins í hópa-
vinnu þátttakenda.
„Þetta er kjarninn í MBA-nám-
inu á sex mánuðum,“ segir Eva
Þengilsdóttir, þróunarstjóri hjá
HR, sem sér um námið.
„AMP-námið hefur verið kennt
við virtustu háskóla í heimi í tugi
ára, t.d. hefur það verið kennt í um
fimmtíu ár í IESE, sem er einn
fremsti viðskiptaháskóli í heimi.
Við förum að þeirra fyrirmynd auk
þess að vera í samstarfi við skólann
um námið,“ segir Eva.
Læra á raunverulegum dæmum
Námið byggir á svokallaðri til-
fellaaðferð (e. case method) sem
felst í því að þátttakendur læra um
stjórnun í gegnum umræður um
raundæmi.
„Við förum yfir mörg dæmi
um raunveruleg fyrirtæki sem
hafa lent í ákveðnum erfiðleikum
eða náð miklum árangri. Dæmin
tengjast þemum fyrirlestranna og
eru því ólík innbyrðis. Þátttak-
endur og kennarar fara yfir verk-
efnin sem fyrirtækin stóðu
frammi fyrir og kryfja þau, t.d.
hvað fyrirtækið hefði getað gert
öðruvísi og hvað það gerði vel,“
segir Eva.
Að stjórna sér og öðrum
Námskeiðinu er skipt í fjórar
lotur. „Í fyrstu lotunni í apríl byrj-
um við á því að fara út fyrir bæinn
og hrista hópinn saman,“ segir Eva.
Hún segir að svo sé þátttakendum
raðað í hópa eftir því hvaða hlut-
verk þeir taka að sér í hópavinnu
en markmiðið er að sem flestar
manngerðir séu í hverjum hóp.
„Nú síðan förum við yfir helstu at-
riði í stjórnun og leiðtogaþjálfun
og fleira,“ segir Eva.
Í hinum þremur lotunum er
einnig farið yfir ákveðin þemu, t.d.
fjármál, markaðsmál, stefnumót-
un, samningatækni og hvernig fólk
stjórnar tíma sínum.
„Það er frí yfir sumarmánuðina,
þ.e. þangað til í ágúst, en á þeim
tíma hitta þátttakendur stjórn-
endaþjálfara tvisvar og ræða atriði
sem þeim finnst mikilvæg, t.d.
hvernig best sé að samþætta heim-
ilislíf og vinnu eða hvað sem er,“
segir Eva.
Kennarar á heimsmælikvarða
„Við fáum til okkar kennara á
heimsmælikvarða. Flestir þeirra
koma frá IESE og London Business
School. Jafnframt kemur Matthew
Melis hjá NASA, en hann var í
nefndinni sem fór yfir Columbia-
slysið,“ segir Eva.
Fyrirlestrarnir eru haldnir í HR
nema seinasta lotan sem er í ágúst,
en þá er farið til IESE í Barcelona í
viku.
Skotnám í
stjórnun í HR
Fá kjarnann úr MBA-gráðu á 20 dögum sem dreifast á hálft ár
Undirbúningur Eva
Þengilsdóttir er á fullu að
undirbúa námið.
➤ Kostar 1,9 milljónir.
➤ Kynning á náminu verður nk.föstudag, 13. mars, þar sem
Erik Weber, aðstoðarskóla-
stjóri IESE, fer yfir eitt raun-
dæmi og það er rætt.
➤ Skráning er hafin í HR og eruaðeins teknir inn 25 nem-
endur.
AMP-NÁMIÐ
MARKAÐURINN Í GÆR
!!"
!"#
$
%
&#
'()*+
'
,
-./.
0#1
2
345
#"
" 61
"(##
(7
81
!"# "
+9#/
01 - -
:
-
;#
1
-/
!
: -
0 -< =
$
'
>?@@?5>3
A43BA>AA@
ACC>BD?45
>3>>@44DC
?D?>DC3A?
B5C3>3
55>4>A@@@
>??@A3ABCA
>>4>B@>AC?
5B>CAC5>C
>DDBBA5>4
4@5DBB35D
3C555D@@
D>D533A
,
@
@
A@55A5
D?CC@4D
,
A35AA?55
?@A
,
,
,
>>C@B44@@
,
>5>D>AA
?ED5
C@E?@
>>EDB
DE>3
>4ED5
ABED@
ACEB@
?C>E@@
A?EC@
BBE5@
5E>>
>>EA@
CEDD
D@EA@
>EC4
4E44
>?3E@@
>C4@E@@
C>5E@@
@EDB
>C5E5@
3E@@
,
3?E@@
,
C5?@E@@
,
,
BE@@
C>EA@
>AE@5
DE>?
>?E@5
ADE3@
A5E@@
?CBE@@
A?E55
BDEC@
5E>5
>>E3@
5E@3
D@E4@
>ECB
4E?@
>?5E5@
>C45E@@
CA5E@@
@EDD
>CBE@@
3E@C
AAE@@
,
BE5@
C4A5E@@
DEB@
4E@@
/
- D
A3
C4
C4
>>@
?
C
>AA
D3
3A
4A
D5
>C
B
,
,
,
3
B
,
C>
>
,
,
,
>@
,
C
F#
-#-
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
?3A@@B
43A@@B
43A@@B
43A@@B
?3A@@B
?3A@@B
43A@@B
?3A@@B
43A@@B
>BAA@@B
4>AA@@?
AABA@@?
?3A@@B
A5>A@@B
?3A@@B
● Mestu viðskiptin í Kauphöll
OMX í gær voru með bréf í Kaup-
þingi banka eða fyrir 1,6 milljarða
króna.
● Mesta hækkun var á bréfum í
P/F Foroya-banka eða um 5,63%.
● Mesta lækkun var á bréfum í
P/F Atlantic Petroleum eða um
2,67%. Bréf í Century Aluminium
lækkuðu um 1,29%.
● Úrvalsvísitalan hækkaði um
0,26% og var lokagengi hennar
4.820,62 stig.
● Íslenska krónan veiktist um
1,15% í gær.
● Samnorræna OMX-vísitalan
lækkaði um 1,27% í gær.
Breska FTSE-vísitalan lækkaði
um 1,1% og þýska
DAX-vísitalan lækkaði um 1,2%.
Bankastjóri stærsta fjárfesting-
arbanka heims, Goldman Sachs
Group, hyggst veita 100 milljónir
dollara til þess að styrkja 10 þús-
und konur um allan heim til náms
í viðskiptum. „Í Afríku, þar sem
íbúafjöldinn er 900 milljónir, eru
til dæmis aðeins 2600 konur í við-
skiptanámi. Það er sóun á mann-
auði. Það er kominn tími til að
mennta fleiri konur í viðskiptum og það hefði átt að gera fyrir löngu,“
segir Blankfein bankastjóri í viðtali við AP. Menntun kvenna gæti auk-
ið brúttóþjóðarframleiðslu um 0,2 prósent á ári í hundruðum þróun-
arlanda, að því er segir í fréttinni. Samvinna verður um viðskiptanám
kvennanna milli bandarískra háskóla og háskóla í viðkomandi löndum
í Mið-Austurlöndum, Afríku og Asíu. Maha ElShinnawy, prófessor við
bandaríska háskólann í Kaíró í Egyptalandi, segir menntun kvenna
menntun alls samfélagsins því hún gangi í erfðir. ibs
Bankastjóri styrkir konur
Hagnaður af rekstri samstæðu
Landsvirkjunar nam 28,5 millj-
örðum króna á síðasta ári sam-
anborið við 11 milljarða árið
2006. Í árslok námu heildareignir
fyrirtækisins 318,8 milljörðum
króna en eigið fé nam 99,2 millj-
örðum króna og jókst á árinu um
28,4 milljarða króna. Eiginfjár-
hlutfall var 31,1 prósent í árslok
2007. Aukning rekstrartekna var
að verulegu leyti vegna sölu til
Fjarðaáls sem hófst á árinu.
Árið 2007 er síðasta árið sem ís-
lenska krónan er starfrækslu-
gjaldmiðill Landsvirkjunar, en
Bandaríkjadalur verður ráðandi
mynt fyrirtækisins frá og með
árinu 2008. mbl.is
Mikill hagnaður
Landsvirkjunar
HB Grandi var rekinn með 689
milljóna króna tapi á fjórða árs-
fjórðungi 2007 en 943 milljóna
króna tapi árið áður. Rekstr-
artekjur námu 1.966 milljónum
króna og drógust saman um tæp
30 prósent. Rekstrartap fyrir af-
skriftir var 64 milljónir króna, eða
3,3% af veltu, en rekstrarhagn-
aður fyrir afskriftir var 480 millj-
ónir á 4. ársfjórðungi 2006. mbl.is.
Dregur úr tapi
HB Granda
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra mun ræða íslensk efna-
hagsmál á fundi í Kaupmannahöfn á þriðjudaginn. Hinn 13. mars
mun Geir H. Haarde forsætisráðherra gera slíkt hið sama á ráðstefnu í
New York. Í Kaupmannahöfn munu auk þess tala þeir Richard Portes,
prófessor við London Business School, Sigurður Einarsson, stjórn-
arformaður Kaupþings og Sigurjón Sighvatsson, fjárfestir. Í New York
verða forsætisráðherra til halds og trausts þeir Lárus Welding, forstjóri
Glitnis, Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, Sigurjón Árna-
son, bankastjóri Landsbankans, Gregory Miller, prófessor við Harvard
Business School, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, Jón
Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, Torsten Slok, hagfræð-
ingur hjá Deutsche Bank Securities og Ólafur Jóhann Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Time Warner taka þátt í umræðum á fundinum. mbl.is
.
Ráðherrar róa markaðinn
Útlán Íbúðalánasjóðs námu rúm-
um 2,8 milljörðum í febrúar. Þar
af voru ríflega 452 milljónir
króna vegna leiguíbúðalána. Al-
menn útlán námu tæplega 2,4
milljörðum króna og var með-
allánið rúmar 8,6 milljónir. mbl.is
2,8 milljarða lán