24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 8

24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir Eftir Andrés Inga Jónsson andresingi@24stundir.is Hollensk stjórnvöld hafa hækkað viðbúnaðarstig vegna mögulegra hryðjuverkaárása þegar dregur að frumsýningu heimildarmyndar um Kóraninn. Myndin hefur þegar vakið miklar deilur, þótt ekki liggi fyrir nákvæmlega hvað hún muni fjalla um. Að baki framleiðslu myndarinnar stendur þingmaður- inn Geert Wilders, formaður hægrisinnaða Frelsisflokksins, sem áður hefur mælst til þess að Kór- aninn væri bannaður. Stjórnvöld baktryggja sig Hollenska ríkisstjórnin segist vera ósammála afstöðu Wilders, en leggur jafnframt áherslu á að vegna tjáningarfrelsis geti stjórnvöld ekki komið í veg fyrir að myndin komi fyrir sjónir almennings. Reynir stjórnin nú að forðast að lenda í sömu stöðu og sú danska árið 2006. Þá stóð Danmörk ein gegn öldu mótmæla vegna skop- mynda sem birtust af Múhameð spámanni. „Ég hef sýnt hliðstæðu við stöðu Danmerkur og hvernig sem fer, verðum við að vera mjög vakandi fyrir því hvað gerist í öðrum lönd- um,“ sagði Jan Peter Balkenende, forsætisráðherra Hollands, á blaðamannafundi í París. Hann hafði nýlokið fundi með Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta, sem hét stuðningi Frakklands. Segir Maxime Verhagen, utan- ríkisráðherra Hollands, að auk Frakklands hafi Spánn, Svíþjóð og Slóvenía heitið stuðningi. Búist við mótmælum Wilders hefur lengi gagnrýnt ísl- am opinberlega. Hann hefur verið undir stöðugri vernd lögreglu síð- an leikstjórinn Theo Van Gogh var ráðinn af dögum árið 2004. Yfirvofandi mótmæli og undir- búningur stjórnvalda hefur síður en svo dregið úr gagnrýni Wilders eða fengið hann til mildast í af- stöðu sinni. „Myndin mín hefur enn ekki verið frumsýnd, en múftarnir hafa þegar fordæmt hana og sagt að blóð muni flæða. Og arabísk lönd hóta að sniðganga Holland. Hvað gerir landið mitt? Í stað þess að segja ímömunum að þegja, í stað þess að undirstrika lýðræðisleg grundvallaratriði okkar og tjáning- arfrelsi, er látið undan hótunum á hlægilegan og aumlegan máta og sendiherrar okkar búnir undir hið versta,“ sagði Wilders í gær. Holland býr sig undir trúardeilur  Umdeild stuttmynd um Kóraninn kemur út innan skamms Mynd mótmælt Herferð er í gangi í Hollandi til að koma í veg fyrir frumsýninguna ➤ Heitir „Fitna“ sem er arabískaorðið fyrir erjur. ➤ Sjónvarpsstöðvar hafa ekkifengist til að sýna myndina. ➤ Þess vegna hyggst Geer Wild-ers frumsýna hana á netsíðu sinni. MYNDIN UMDEILDA Danski þjóðarflokkurinn vill að Danir skoði reynslu frænda sinna Svía af því að gera refsi- vert að kaupa þjónustu vænd- iskvenna og feti í fótspor þeirra. Árið 2002 stungu sósí- aldemókratar upp á að sænska leiðin yrði tekin upp, en fengu ekki hljómgrunn inni á þingi. Samtök vændiskvenna, SIO, leggjast gegn áformunum, sem þau segja draga upp slæma mynd af stéttinni. Danski þjóðarflokkurinn Vill banna vændiskaup Paul Watson, leiðtogi Sea Shepherd-samtakanna, segir að japanska landhelgisgæslan hafi skotið að sér þar sem hann mótmælti hvalveiðum Japana í Suðurhöfum. Segir hann það hafa orðið sér til lífs að vera í skotheldu vesti. Japanir neita því að nokkrum skotum hafi verið hleypt af. aij Hvalveiðideilur Flugu kúlur? Meðal nýliða á lista Forbes yfir ríkustu menn veraldar eru tveir Afríkubúar sem njóta þess heið- urs að vera fyrstu svörtu Afríkubú- arnir til að kom- ast á listann. Fyr- ir voru þar tveir hvítir Suður- Afríkumenn. Auðæfi Nígeríu- mannsins Aliko Dangote nema 3,3 milljörðum Bandaríkjadala og tryggja honum 334. sæti á list- anum. Patrice Motsepe frá Suð- ur-Afríku er í 503. sæti með um 2,4 milljarða dala eign. aij Nýliðar á auðmannalista Fyrstu þeldökku frá Afríku Tim Martin, stjórnarformaður kráakeðjunnar JD Wetherspoon á Bretlandi, segir að slæm fram- koma gesta sinna hafi stóraukist undanfarin ár. Kennir hann þar um umfjöllun fjölmiðla um uppi- vöðslusamar stórstjörnur, sem fólk hafi sér til fyrirmyndar. Martin segir lætin mest hjá eldri viðskiptavinum sínum, þar sem afmælis-, steggja- og gæsaveislur fara gjarnan úr böndunum. aij Fullorðnir á fylliríi Apa eftir látum Þitt atkvæði skiptir máli Taktu afstöðu!!! Munið að atkvæðagreiðslu lýkur á hádegi 10. mars Boðinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.