24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 32
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Sýning á verkum myndlistar-
kvennanna Sigríðar Melrósar
Ólafsdóttur og Borghildar Óskars-
dóttur verður opnuð í Listasafni
Árnesinga í Hveragerði klukkan
15 í dag, en það er fyrsta nýja sýn-
ingin sem er opnuð í safninu á
þessu ári. Viðfangsefni lista-
kvennanna eru ólík en hafa þó
ákveðinn samhljóm að sögn safn-
stjóra Listasafns Árnesinga, Ingu
Jónsdóttur. „Á sýningunni eru
annars vegar portrettmyndir af
föngum á Litla-Hrauni eftir Sig-
ríði og hins vegar verk eftir Borg-
hildi þar sem hún tekur fyrir sögu
fjölskyldu sinnar á svæðinu á fyrri
hluta síðustu aldar. Þetta er saga
sem margir á Íslandi þekkja, þar
sem heimilið var leyst upp og
börnin voru sett niður á bæina
þar sem heimilisfaðirinn átti sveit-
festi eins og það var kallað. Í til-
felli þessarar fjölskyldu var fólkið
flutt í vistun hér á Suðurlandi án
þess að þau hefðu haft nokkurt
val um það sjálf. Sýningin fjallar
því um ólíkt fólk á ólíkum tímum
sem þó á það sameiginlegt að hafa
verið flutt á milli landsvæða í kjöl-
far ákvarðana annarra en þeirra
sjálfra,“ segir Inga en tekur jafn-
framt fram að markmið lista-
kvennanna sé ekki að búa til fórn-
arlömb eða skapa sérstaka
meðaumkvun með neinum. „Það
er mikil listræn fágun og reisn yfir
þessum verkum. Þau fjalla ein-
faldlega um hluti sem hafa átt sér
stað í samfélaginu og ef að líkum
lætur gefa þau tilefni til vanga-
veltna og samræðu um þessi mál.
Mér finnst mjög gott þegar mynd-
listin snertir eitthvað sem er í um-
ræðu í þjóðfélaginu, án þess þó að
hún felli neina dóma, og gefi
áhorfendum tækifæri til að nálgast
málið á sínum eigin forsendum.“
Á opnun sýningarinnar í dag
ætlar Ásgerður Júníusdóttir söng-
kona að flytja lög eftir tónskáld úr
Flóanum við undirleik Kristins
Júníussonar, bróður síns. „Þar
kemur enn önnur tenging sýning-
arinnar við Suðurlandið, þannig
að inni í þessu verður líka gleði og
góðar tilfinningar.“
Spennandi ár framundan
En þó svo að þessi sýning hafi
skírskotun til Suðurlands er ekki
þar með sagt að fókus safnsins
verði framvegis alltaf á því land-
svæði. „Þegar það á við tek ég það
hiklaust inn en markmiðið er að
hafa mjög breiða skírskotun á
sýningum safnsins. Þegar þessari
sýningu er lokið tekur við sýning
á verkum Magnúsar Kjartanssonar
sem lést fyrir rúmu ári og verður
Jón Proppé sýningarstjóri. Þar á
eftir tekur við sýning Höskuldar
Björnssonar og fjórðu sýninguna
köllum við Picasso á Íslandi, og
þar ætlum við að skoða áhrif Pi-
cassos á myndlistarmenn á Íslandi
á árunum 1930 til 1950,“ segir
Inga að lokum.
24stundir/Golli
Spennandi ár framundan í Listasafni Árnesinga
Safn með víðan
sjóndeildarhring
➤ Sýningarstjóri er HjálmarSveinsson.
➤ Margrét Frímannsdóttir ritar ísýningarskrá ásamt sýning-
arstjóranum Hjálmari.
➤ Verður opnuð klukkan 15 ídag og allir eru velkomnir.
SÝNINGINSýning á verkum Sigríðar
Melrósar Ólafsdóttur og
Borghildar Óskarsdóttur
verður opnuð í Listasafni
Árnesinga í dag og er
hún fyrsta nýja sýningin í
safninu á árinu. Fram-
undan er viðburðaríkt ár í
safninu.
Inga Jónsdóttir safnstjóri Lista-
safns Árnesinga segir safnið hafa
mjög breiða skírskotun.
32 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
„Ingibjörg Friðriksdóttir hefur
saumað föt frá því hún var lítil
stelpa. Í dag stendur þessi 19 ára
stúlka fyrir tískusýningu og upp-
boði á fimmtán flíkum sem hún
hefur hannað og saumað.“
» Meira í Morgunblaðinu
Tískusýning með tilgang
Það er meira
í Mogganum
í dag
Söngkonan Beyoncé Knowles
hefur nú hleypt nýju lífi í þann
orðróm að hún sé trúlofuð
rapparanum Jay-Z.
» Meira í Morgunblaðinu
Faldi demantshring
Þau Rakel Ýr
Högnadóttir og Birkir
Örn Karlsson eru bæði í
6. bekk og hafa æft
samkvæmisdansa um
árabil í Dansskóla
Sigurðar Hákonarsonar.
» Meira í Morgunblaðinu
Laugardagur 8. mars 2008
Börn á laugardegi
Mikið verður um dýrðir á al-
þjóðlegu leiklistarhátíðinni
LÓKAL, sem stendur yfir í
Reykjavík, um helgina. Kúreka-
vestrinn Ode to the Man who
Kneels með bandaríska leik-
hópnum New York City Players
verður sýndur í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu í dag, og annar
bandarískur leikhópur, Nature
Theater of Oklahoma, sýnir verk-
ið No Dice í gamla Heim-
ilistækjahúsnæðinu í dag og á
morgun. Franski leikhópurinn
sýnir verkið L’effet de Serge í
Smiðjunni í dag og á morgun
lokar Erna Ómarsdóttir hátíðinni
í samstarfi við Lieven Dousselare
með sýningunni The Talking
Trees í Tjarnarbíói klukkan 22.
Þá verður íslenska leikverkið
Hér og Nú sýnt á Litla sviði Borg-
arleikhússins á morgun klukkan
15. Lókal-hátíðin hófst síðastlið-
inn miðvikudag og henni lýkur
annað kvöld. Hátíðin markar
tímamót í íslensku leikhúslífi þar
sem alþjóðleg leikhúslistahátíð af
þessu tagi hefur aldrei verið hald-
in á Íslandi fyrr en nú.
Nánar má lesa um hátíðina á
vefsíðunni lokal.is, en miða á sýn-
ingar má nálgast á midi.is.
Lókal-leiklistarhátíðinni lýkur á morgun
Innlendar og erlendar sýningar
Skipuleggjendur hátíðarinnar Guðrún Jóhanna
Guðmundsdóttir, Ragnheiður Skúladóttir, Bjarni Jóns-
son, Elena Krüskemper og Egill Ingi Bergsson.
MENNING
menning@24stundir.is a
Sýningin fjallar um ólíkt fólk á ólíkum
tímum sem þó á það sameiginlegt að
hafa verið flutt á milli landsvæða í kjölfar
ákvarðana annarra en þeirra sjálfra.