24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 21
24stundir LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 21
Í Rússlandi og Kína er það
ekki viðtekinn hugsunarhátt-
ur að það sé frekar á færi karla
en kvenna að finna hluti upp
og hrinda einhverju í fram-
kvæmd. Þetta kemur fram í
riti danska landbúnaðarráðs-
ins þar sem bent er á að í Evr-
ópu séu það miklu fleiri karlar
en konur sem sæki um einka-
leyfi á uppfinningum. For-
maður Félags uppfinninga-
manna í Danmörku, Hans
Haraldsted, segir skýringuna
vera ákveðna hefð. Þetta hafi
ekkert með hæfileika kvenna
að gera. „Við höfum vanið
konur á að kunna ekki,“ segir
hann meðal annars.
Töluvert dró úr innflutningi
fólksbifreiða í febrúar miðað
við janúar en þá náði hann
reyndar hámarki, að því er
segir í vefriti fjármálaráðu-
neytisins sem vitnar í bráða-
birgðatölur Hagstofunnar.
Samkvæmt þeim voru í febr-
úar fluttar inn vörur fyrir 32
milljarða króna en í janúar
voru fluttar inn vörur fyrir
33,7 milljarða.
Lítillega dró úr innflutningi
fjárfestingarvara milli mánaða
og töluverður samdráttur var í
innflutningi á varanlegum
neysluvörum. Útflutningur áls
var minni í febrúar en í janúar
Flugfélag Íslands hefur gengið
frá samningi við Saga Capital
Fjárfestingarbanka um að
bankinn annist sölu á Twin
Otter-flugvélum félagsins og
tengdum rekstri á Akureyri.
Um er að ræða tvær Twin Ot-
ter-flugvélar og tengda við-
haldsþjónustu á Akureyri,
samninga um áætlunarflug frá
Akureyri til Vopnafjarðar,
Þórshafnar og Grímseyjar og
samninga um leiguflug, að-
allega á Grænlandi. Um 20
manns vinna við rekstur vél-
anna á Akureyri, aðallega
flugvirkjar og flugmenn.
Uppfinningar og konur
Vandar á að
kunna ekki
Vöruskipti við útlönd
Færri fólks-
bílar fluttir inn
Flugfélag Íslands
Saga Capital
selur flugvélar
Farþegar Iceland Express, sem eru einungis
með handfarangur, geta frá og með næstkom-
andi mánudegi innritað sig í flug í gegnum vef
félagsins. Þar með sleppa farþegarnir við hefð-
bundna innritun á brottfararstað og geta þess í
stað gengið beint að öryggishliði.
Fyrst um sinn verður vefinnritun einungis í
boði fyrir þá sem eru með handfarangur og þá
sem eru á leið frá Kaupmannahöfn til Íslands.
„Flugvöllurinn í Kaupmannahöfn er kominn
lengst með þetta og tilraunir okkar þar gengu
gríðarlega vel,“ segir Matthías Imsland, forstjóri
Iceland Express.
Hægt verður að innrita sig í flug í gegnum vef
frá fleiri flugvöllum á næstunni, til dæmis Stan-
sted og Berlín, að sögn Matthíasar.
„Vonandi verður einnig hægt að gera það
héðan á næstum mánuðum. Ef þetta kemur vel
út, sem við eigum reyndar von á, þá verður þetta
einnig í boði fyrir þá sem eru með annan far-
angur en handfarangur.“
Boðið er upp á innritun á vefnum allt að 60
dögum fyrir brottför flugs að síðustu 24 klukku-
stundunum undanskildum. Að lokinni innritun
fá farþegar brottfararspjald sent í tölvupósti.
Brottfararspjaldið er svo sýnt við öryggishliðið.
Vefinnritunin er ókeypis en háð því að far-
þegar hafi valið sér sérstakt sæti í flugvélinni
þegar flugið var bókað. Slíkt sætaval er þjónusta
sem kostar 990 krónur fyrir hverja flugferð.
Matthías efast ekki um að vefinnritun verði
vinsæl. „Þetta verður án efa kærkomin nýjung
fyrir þá sem vilja komast hratt og örugglega
leiðar sinnar í gegnum flugstöðvarnar.“
ingibjorg@24stundir.is
Iceland Express býður farþegum upp á innritun í flug á vef félagsins
Sleppa við hefðbundna innritun
Við innritunarborðið Vefinnritun sparar tíma.