24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 4
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
Birgir Ármannsson, formaður
allsherjarnefndar Alþingis, segir
óvíst hvort frumvarp Valgerðar
Bjarnadóttur um eftirlaun þing-
manna verði tekið fyrir í nefnd-
inni á þessu þingi eða yfirleitt.
Óski nefndarmenn ekki sérstak-
lega eftir því að frumvarpið verði
tekið fyrir, fer það ekki fyrir þing
„eins og eru örlög fjölmargra
þingmannafrumvarpa á Alþingi“
að sögn Birgis.
Stjórnarfrumvörp í forgangi
„Við höfum haft í nógu að snú-
ast við að afgreiða stjórnarfrum-
vörp og mál frá forsætisnefnd
þingsins út af breytingum á þing-
sköpum og þess háttar þannig að
við höfum ekki haft tækifæri til að
taka þingmannamál fyrir,“ segir
Birgir. Hann segir að til nefnd-
arinnar hafi hátt í 20 þingmanna-
frumvörp borist sem ekki hafa
verið tekin á dagskrá og meðferð
þessa máls því eins og annarra
þingmannamála.
Spurning um útfærslu
„Eftirlaunakjör alþingismanna
og ráðherra verði endurskoðuð og
meira samræmi komið á í lífeyr-
ismálum ráðamanna og almenn-
ings,“ segir í sáttmála ríkisstjórn-
arinnar og því mætti álykta að
frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur
væri í takt við stefnu ríkisstjórn-
arinnar.
„Nú hefur ríkisstjórnin auðvit-
að stigið ákveðið skref með því að
setja endurskoðun inn í ríkis-
stjórnarsáttmálann. En ég held að
það sé skoðun núverandi ríkis-
stjórnar og þeirrar fyrrverandi að
það væri eðlilegast að samstaða
næðist milli flokkanna um breyt-
ingarnar. Maður getur verið sam-
mála um að breyta en áður en
breytt er þurfa menn að koma sér
saman um niðurstöðuna. Það á
einfaldlega eftir að reyna á það
hvort menn gera það,“ segir Birgir.
„Fyrst þegar maður er að ýta
málum áfram má maður ekki týna
sér í tækniatriðum þó að auðvitað
þurfi að vinna þau þegar endan-
lega er gengið frá málinu,“ segir
Valgerður Bjarnadóttir.
Óvíst að þingið
ræði eftirlaun
Óvíst hvort frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur verður rætt
Fjöldi þingmannamála dagar uppi í allsherjarnefnd
➤ Frumvarp Valgerðar kveður áum afnám sérréttinda ráð-
herra, þingmanna og hæsta-
réttardómara í lífeyrismálum
sem fengust með lögum í
desember 2003.
➤ Frumvarpið liggur nú hjá alls-herjarnefnd Alþingis.
FRUMVARPIÐ
24stundir/Brynjar Gauti
Alþingi hefur enn
ekki rætt afnám
sérlífeyrisréttinda
þingmanna.
NEYTENDAVAKTIN
25 manna marsípan-fermingarterta
Bakarí Verð Munur Akstur
Fjarðarbakarí 9.375 Innifalið
Björnsbakarí 10.100 7,7 % Innifalið
Mosfellsbakarí 11.150 18,9 % 2.800
Bakarameistarinn 11.440 22,0 % 1.500
Jói Fel 11.750 25,3 % 1.000/1.500
Sandholt 12.250 30,7 % Sendir ekki
Bernhöftsbakarí 13.500 44,0 % 1.000
4 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir
... eru betri
en aðrar
Ráðstefnuhaldarar buðu Stíga-
mótum háar fjárhæðir til styrktar
starfseminni ef þau hættu að-
gerðum sínum gegn fyrirhugaðri
klámráðstefnu í Reykjavík fyrir
réttu ári. Þá var þeim boðið að
hafa kynningu á starfsemi sinni á
kaupstefnunni „til að reyna að
þagga niður í okkur“, að því er
fram kemur í Ársskýrslu samtak-
anna sem út kom í gær. Stígamót
mótmæltu kaupstefnunni harð-
lega enda telja þau tengsl milli
kláms, vændis og annars ofbeldis.
Neituðu klámfé
Áhöfn Engeyjar RE-1 gaf rúm-
lega hálfrar milljónar starfsmanna-
sjóð sinn til Stígamóta þegar skipið
var selt úr landi á síðasta ári.
Í ársskýrslu samtakanna sem
kynnt var í gær segir að stuðningur
frá karlahópum sé merki þess að
kynferðisofbeldi sé ekki eingöngu í
höndum kvenna heldur taki allt
samfélagið ábyrgð á því.
Fleiri einstaklingar, félög og fyr-
irtæki styrktu starfið en tekjur
Stígamóta koma frá félagsmála-
ráðuneytinu, Reykjavíkurborg og
nokkrum bæjar- og sveitarfélög-
um. Þá hafa Stígamót og Reykja-
víkurborg gert með sér samstarfs-
samning
Heildartekjur Stígamóta námu tæplega 53,5 milljónum á síðasta ári en
útgjöld námu tæpri 51 milljón. Tekjuafgangur á síðasta ári var því um 2,5
milljónir.
Gáfu hálfa milljón þegar skipið var selt úr landi
Starfsmannasjóðinn í Stígamót
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Að þessu sinni könnuðu Neytendasamtökin verð á
25 manna marsípan-fermingartertu þar sem ferming-
arnar eru á næsta leiti. Athugið að hvorki er tekið tillit
til gæða né útlits.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
44% munur á tertunni
Kristín
Einarsdóttir