24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 62

24 stundir - 08.03.2008, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a Frægðin steig honum hins vegar til höfuðs, hann hætti að leika í sjónvarpsþáttunum og endaði í meðferð vegna fíkniefnavanda. tölvuleikir viggo@24stundir.is Army of Two er nýjasti skotleik- urinn frá Electronic Arts en þar fara leikmenn í hlutverk tveggja hörkutóla sem starfa hjá nokkurs konar fyrirtækjaher og flakka um heiminn og heyja stríð fyrir hvern þann sem er reiðubúinn að borga. Eins og nafnið gefur til kynna þá snýst leikurinn um tvímennings- spilun (co-op) og þegar leikurinn er spilaður á þann máta er hann ótrúlega góður. Leikurinn skartar hinu stórgóða Aggro-kerfi sem virkar þannig að óvinirnir skjóta á þann leikmann sem hefur sig meira í frammi, drit- ar fleiri byssukúlum. Þetta býður upp á býsna skemmtilegan her- kænskuvinkil þar sem annar leik- maðurinn heldur athygli óvinanna á meðan hinn læðist aftan að þeim og drepur þá áreynslulaust. Í einspilun er Army of Two enn góður en þar fer maður að sjá bet- ur galla leiksins svo sem lélega gervigreind, bæði hjá óvinum og tölvustýrðum liðsfélaga. Leikurinn nær samt að halda taktinum gang- andi og fer aldrei yfir í það að verða þreytandi og leiðigjarn, þrátt fyrir að vera frekar einfaldur í upp- byggingu. Tveir eru sannar- lega betri en einn Harðir naglar Hetjur leiksins eru dæmigerðir harðjaxlar sem auðvelt er að halda með. Grafík: 80% Ending: 76% Spilun: 87% Hljóð: 78% Army of Two (PS3&XBOX360) 18+ NIÐURSTAÐA: 80% Hljómsveitirnar The Fist Fokk- ers, Swords of Chaos og Skelkur í bringu spila á Bar 11 í kvöld og eru það lokatónleikar tónleika- ferðar þeirra Helvítis! túr um Reykjavík. Í kvöld spila Sudden Weather Change og Fjöl- listahópurinn Kumpánar með þeim, gleðin hefst klukkan 22.00 og ekkert kostar inn. re Fist Fokkers á 11 Þekkir þú barnastjörnurnar? Það er gaman að velta því fyrir sér hvað varð um fólkið, sem eitt sinn var fastagestir á sjónvarpsskjám okkar, en virðist hafa horfið sporlaust eftir að framleiðslu sjónvarpsþáttanna sem það lék í var hætt. 24 stundir grófu upp nokkrar barnastjörnur úr sjónvarpsþáttum, sem nutu mikilla vinsælda hérlendis, og könnuðu hvernig komið er fyrir þeim. Hér má sjá fimm fyrrum barnastjörnur, eins og þær líta út í dag og vísbendingar um hverjar þær eru. Kannaðu hvað þú þekkir margar áður en þú flettir á næstu blaðsíðu og sérð um hvaða fólk er að ræða. Fæddur: 16. október 1980. Frægur fyrir: Að leika son aðalpersónu vinsælla sjónvarpsþátta á 10. áratugnum. Þá gaf hann út plötu sem seldist ágætlega. Frægðin steig honum hins vegar til höfuðs, hann hætti að leika í sjónvarpsþáttunum og endaði í meðferð vegna fíkniefnavanda. Hvar er hann í dag: Að reyna að endurheimta forna frægð með því að gefa út tónlist sem fáir nenna að hlusta á. Hefur lítið sem ekkert leikið frá því að hann hætti í sjónvarpsþáttunum. Fædd: 8. maí 1964. Fræg fyrir: Að leika aðalpersónuna í geysivinsælum sjónvarpsþáttum, sem voru sýndir hérlendis á níunda áratugnum og fram á þann tíunda. Fáir munu andmæla því að þættirnir hafi verið vægast sagt fjölskylduvænir. Hvar er hún í dag: Hefur látið fremur lítið fyrir sér fara frá því að framleiðslu þáttanna var hætt. Í seinni tíð hefur hún þó unnið nokkuð bakvið tjöldin í sjónvarpsheiminum, t.a.m. gegnt formennsku Screen Actors Guild samtakanna. Fædd: 16. september 1985. Fræg fyrir: Að leika yngstu dótturina í sjónvarpsþáttum sem voru vinsælir um miðjan 10. áratuginn. Hún var átta ára þegar hún hóf að leika í þáttunum, sem lögðu upp laupana árið 1999 eftir sex þáttaraðir. Hvar er hún í dag: Hefur leikið þónokkur smáhlutverk í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Átti góða endurkomu í sjónvarpsþáttunum Californication, þar sem hún leikur kynóðu unglingsstúlkuna Miu Lewis. Fæddur: 8. apríl 1984. Frægur fyrir: Að leika yngsta fjölskyldumeðliminn í sjónarpsþáttum sem voru sýndir á 10. áratugnum. Hann var sjö ára þegar hann hóf að leika í þáttunum, en unglingsárin fóru ekki sem best með hann og í síðustu þáttaröðinni leit hann afar furðulega út. Hvar er hann í dag: Hefur ekkert leikið frá því að þættirnir hættu. Árið 2001, þegar hann var 17 ára, giftist hann 33 ára gamalli konu og stofnaði með henni veitingastað. Þau skildu í fyrra og fór hann að sögn afar illa út úr skilnaðinum. Fæddur: 12. júlí 1991. Frægur fyrir: Leik í þáttum sem hafið var að framleiða árið 2000 og gengu í sex þáttaraðir. Hlutverk hans var smærra en systkina hans, en margir aðdáendur þáttanna höfðu þó sérstakt dálæti á persónunni sem hann lék. Hvar er hann í dag: Að fóta sig eftir að framleiðslu þáttanna var hætt, en enn er of snemmt að segja til um hvort leikferill hans muni halda áfram að vaxa og dafna. Sv ör á bls . 6 4 1 2 4 3 5 Bizzaró Aðþrengdur Afsakið að ég er til! Fyrst þú spyrð, já það er satt ég keyri á stórum bílum til að fela óöryggi mitt. Áttu eitthvað í vandræðum með það, nagli? SPILAFÍKN FRÆGA FÓLKSINS ÉG ER AÐ HORFA Á FRÆGT FÓLK SKAFA HAPPAÞRENNUR SJÁLFMORÐSSPRENGJU- JAKKAR Á AÐEINS 2000.-KR. VINSAMLEGAST STAÐGREIÐIÐ „ÞESSI GREIN SEM ÞÚ SENDIR MÉR UM HVERNIG TÆKNILEG VANDAMÁL GÆTU VALDIÐ STREITU, KRASSAÐI TÖLVUNNI MINNI“ MYNDASÖGUR Sp ör - R ag nh ei ðu r In gu nn Á gú st sd ót tir s: 570 2790 www.baendaferdir.is Kynningarfundur um spennandi göngu- og hjólaferðir Sunnudagskvöldið 9. mars í Síðumúla 2, kl. 19:30 Fararstjórar okkar verða á staðnum og kynna ferðirnar Hjólaferðir: - Austurríki og Slóvenía - Rómantíska leiðin - Loire dalurinn í Frakklandi - Dólómítarnir og Slóvenía Gönguferðir: - Portofino skaginn & Cinque Terre - Comovatn - Mont Blanc hringurinn - Monte Rosa hringurinn - Í svissnesku Ölpunum á slóð skógarbjarnanna - Haute Route - Wallis Alparnir Níu 4000 metra tindar á einni viku - Tindur Mont Blanc 4808 metrar - Kilimanjaro - Gönguævintýri í Nepal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.