24 stundir - 08.03.2008, Síða 10
borgarinnar til að komast hjá því
greiða skattfé almennings til að
mæta þessari framúrkeyrslu er afar
veik. En hvað fór úrskeiðis í þessu
ferli? Hver, ef einhver, ber ábyrgð á
því og af hverju kosta tvö vara-
mannaskýli tólf milljónir króna?
Allir neita ábyrgð
Samningur um verkið var und-
irritaður þann 15. september
2005. Samkvæmt honum átti
framkvæmdin að kosta 1.068
milljónir og hlutur borgarinnar að
vera 428 milljónir króna. KSÍ fékk
að vera framkvæmdaraðili verks-
ins sem þýðir að sambandið
stjórnaði framkvæmdinni, réð
byggingarstjóra og allir reikningar
fóru í gegnum bókhald KSÍ. Sér-
stök byggingarnefnd með fulltrú-
um KSÍ og borgarinnar átti síðan
að sinna eftirliti með framkvæmd-
Framkvæmdir vegna byggingar
nýrrar stúku við Laugardalsvöll
munu kosta Reykjavíkurborg mörg
hundruð milljónum króna meira
en upphaflega var gert ráð fyrir. Í
liðinni viku hafa kjörnir fulltrúar,
embættismenn og forsvarsmenn
KSÍ kastað á milli sín ábyrgðinni á
því að svona fór. Komið hefur í ljós
að byggingarnefnd sem átti að
sinna eftirliti með verkinu gerði
það ekki, aukaverk voru fram-
kvæmd og samþykkt án aðkomu
borgarinnar og að lagaleg staða
inni og láta hana standast áætlun.
Eggert Magnússon, þáverandi
formaður KSÍ, var formaður
nefndarinnar og átti að sjá um
fundarboð. Auk hans sátu þar Geir
Þorsteinsson, núverandi formaður
KSÍ, embættismaður frá borginni
og Dagur B. Eggertsson, sem var
fulltrúi borgarstjóra. Byggingar-
nefndin fundaði alls tvisvar á öll-
um framkvæmdartímanum, í nóv-
ember 2005 og þann 3. apríl 2006.
KSÍ sá um að ráða byggingarstjóra
til að stýra framkvæmdinni og var
Magnús Bjarnason fenginn til þess.
Samkvæmt samningi átti Magnús
að tryggja sér umboð verkkaupa í
þeim tilvikum þegar kaupa þurfti
aukaverk fyrir umtalsverða fjár-
muni. Verkkaupinn í þessu tilfelli
var KSÍ. Magnús fór því með öll sín
mál þangað. Ef eðlilega hefði verið
staðið að verkum hefði KSÍ átt að
boða til fundar í byggingarnefnd-
inni til að fara yfir alla slíka kostn-
aðarauka. Það gerði KSÍ ekki.
Kannast ekki við samráð
Eggert sagði í Morgunblaðinu í
gær að aukaverk sem leiddu af sér
aukakostnað hefðu aldrei verið
framkvæmd án þess að borgin vissi
um þau á hverjum tíma. Þeir sem
sátu í byggingarnefndinni hafa þó
sagt að þeir hafi ekki verið látnir
vita af slíku. Ætlað samráð hlýtur
því að hafa átt að vera við fram-
kvæmdasvið borgarinnar.
En sviðið kannast alls ekki við
slíkt. Í minnisblaði sem það sendi
innri endurskoðun við rannsókn
málsins, og 24 stundir hafa undir
höndum, segir orðrétt að „ákvarð-
Helgar tilgangur meðal?
Hver ber ábyrgð á mörg hundruð milljóna króna framúrkeyrslu vegna stúkubyggingar í Laugardal?
Varamannaskýli Auka-
vinna við þau er sögð hafa
kostað 12 milljónir.
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@24stundir.is
FRÉTTASKÝRING
10 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir
REOG
Þarf að leggja göngustíg, hirða gróður, setja upp
körfuboltahring eða framkvæma eitthvað annað?
SAMRÁÐ UM BETRA BORGARUMHVERFI
stjórnvöld hafa tekið treglega í
slíkar hugmyndir.
Furðuleg þögn
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, segir þetta
mjög mikla hækkun á eldsneyti
sem komi mjög illa við heimilin í
Eldsneytisverð heldur áfram að
hækka og hefur aldrei verið hærra.
Íslensk olíufélög hafa nú hækkað
lítraverð á bensíni um tvær krónur
og lítraverð dísils um fimm krón-
ur. Verð á 95 oktana bensíni í
sjálfsafgreiðslu er nú víða um 142
krónur, en verð á dísil um 150
krónur. Hækkunin er sögð skýrast
af veikri stöðu Bandaríkjadals
gagnvart öðrum myntum. Margir
hafa kallað eftir að ríkið lækki op-
inberar álögur á eldsneyti, en
landinu. „Við höfum aldrei séð
hærra verð. Heimsmarkaðsverð
hefur verið að rjúka upp og á sama
tíma hefur gengi íslensku krón-
unnar verið að veikjast. Þessi þögn
stjórnvalda um kröfu FÍB um
lækkun skatta á eldsneyti er því
svolítið furðuleg. Hækkanir skila
ríkissjóði drjúgum viðbótar-
tekjum í formi aukins virðisauka-
skatts. Ég geri ráð fyrir að þetta
muni koma inn á borð aðila
vinnumarkaðarins, því rekstur
bifreiða er með stærri útgjaldalið-
um heimila í landinu.“
Fjórðungshækkun
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu Íslands hefur bensínverð
hækkað um tæp 24 prósent síðasta
árið, en dísilverð um rúm 26 pró-
sent.
Aðspurður hvort hann telji
frekari hækkanir framundan segir
Runólfur útlitið ekki vera gott.
Menn hafi frekar átt von á að þró-
unin yrði á annan veg vegna sam-
dráttar í Bandaríkjunum og Evr-
ópu. „Efnahagssamdráttur hefur
leitt af sér minni eftirspurn frá
þessum markaðssvæðum, en svo
virðist sem viðskipti spákaup-
manna hafi áhrif á verðið. Eins og
staðan er nú virðist sem eldsneyt-
isverðið muni ekki lækka í bráð.
Það gæti hins vegar rofað til ef
þetta ástand í efnahagsmálum
heimsins varir eitthvað áfram. Þá
mun draga úr eftirspurn sem aftur
gæti ýtt verðinu niður.“
Veikur Bandaríkjadalur
Magnús Ásgeirsson, innkaupa-
stjóri eldsneytis hjá N1, segir
hækkunina sem komið hafi fram á
alþjóðamarkaði mjög mikla.
„Þessar fimm krónur á dísillítrann
er náttúrlega há tala, en hún dugar
í raun ekki alveg til að slaga upp í
heimsmarkaðsverðið.“ Hann seg-
ist þó ekki vilja segja neitt um
hvort neytendur megi eiga von á
Dísillítrinn yf-
ir 150 krónur
FÍB kallar eftir að stjórnvöld dragi úr ofurskattheimtu sinni á
eldsneyti Hækkanir raktar til veikrar stöðu Bandaríkjadals gagn-
vart evru Olíufélög hækka lítraverð á dísilolíu um fimm krónur
➤ Bensínverð hefur hækkað umtæp 24 prósent undanfarið ár,
en dísilverð um rúm 26 pró-
sent.
➤ Veikur Bandaríkjadalur ogspákaupmenn orsaka hærra
verði á heimsmarkaðsverði.
➤ Verð á olíu er nú nálægt 106dölum á hverja tunnu.
ELDSNEYTISHÆKKANIR
Atli Ísleifsson
atlii@24stundir.is
FRÉTTASKÝRING