24 stundir - 08.03.2008, Page 25
24stundir LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 25
Alþjóðlegur baráttudagur
kvenna fyrir friði og jafnrétti á sér
langa sögu. Hér á landi er hefð fyr-
ir því að menningar- og friðar-
samtökin MFÍK hafi frumkvæði
að því að minnast dagsins, á síð-
ustu árum í samvinnu við fjöl-
mörg önnur samtök kvenna og
stéttarfélög. 8. marsfundir eru
þekktir fyrir að vera kraftmiklir,
vekja fólk til umhugsunar og
senda skilaboð út í samfélagið. Í ár
standa 16 samtök og stéttarfélög
að sameiginlegri dagskrá undir yf-
irskriftinni Friður og menning í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur
laugardaginn 8. mars og hefst dag-
skráin kl. 14.
Minni samstaða
Sameiginlegur 8. marsfundur er
afrakstur samvinnu kvenna úr
ýmsum stéttum, með ólíkan bak-
grunn og fjölbreyttar skoðanir. Við
sameinum krafta okkar, tökum
stöðuna og þorum að horfast í
augu við það sem betur mætti fara.
Miklar breytingar hafa orðið á
högum kvenna. Jafnvel svo mjög að
sumir halda að misrétti gegn kon-
um heyri nánast fortíðinni til, að
minnsta kosti í þróuðum löndum.
Þessar hugmyndir hafa því miður
slævt nokkuð samstöðu og í
ríkjandi peningahyggju eiga vel-
ferðarmál undir högg að sækja.
Nútíma stríðsrekstur gerir það
að verkum að allt að níutíu prósent
fórnarlamba eru óbreyttir borgar-
ar, að stórum hluta konur og börn.
Friðvæðing
Um 80 prósent flóttamanna í
heiminum eru konur, flestar með
börn sín á vergangi. Þátttöku
kvenna í friðarferli ber því að
fagna. Konur á átakasvæðum
þekkja afleiðingar stríðs og vita að
stríð og ófriðarbrölt stuðla hvorki
að jafnrétti né bættum kjörum
kvenna. Best væri þó ef aðkoma
kvenna yrði til þess að snúa mann-
inum frá hervæðingu til friðvæð-
ingar. Fyrir Alþingi liggur frum-
varp ríkisstjórnar um varnarmál.
Þess væri óskandi að þau sem fara
með umboð þjóðarinnar á þeim
vettvangi beri gæfu til að spila
þannig úr málum að Ísland verði
herlaust land og að hægt verði að
kenna þjóðina við frið.
Það er ekkert náttúrulögmál að
konur séu betri menn en karlar og
til að fleyta málstað jafnréttis fram á
veg þurfa allir að leggja sitt af mörk-
um. Sameinaðir kraftar jafnréttis-
og friðarsinna auka líkurnar á því
að allir dagar verði jafnréttisdagar.
Allir friðar- og jafnréttissinnar
eru hvattir til að sýna samstöðu og
fjölmenna á fundinn.
Höfundur er formaður MFÍK
Friður og menning
UMRÆÐAN aMaría S. Gunnarsdóttir
Miklar breyt-
ingar hafa
orðið á hög-
um kvenna.
Jafnvel svo
mjög að sum-
ir halda að
misrétti gegn konum
heyri nánast fortíðinni til,
að minnsta kosti í þróuð-
um löndum.
Dagrún Sigurðardóttir skrifar:
Hvar eru hjálparsveitir fyrir fíkl-
ana? Það er dapurlegt að lesa í
24 stundum vikulega frásagnir
foreldra sem í örvæntingu leita
eftir aðstoð fyrir börn sín. Fólk
sem leitar aðstoðar fyrir full-
orðin börn sín fær vart annað en
höfnun hjá kerfinu, sem ég kalla
svo þegar leitað er aðstoðar fyrir
sjúka einstaklinga og þá sér í lagi
fíkla. Fyrsta hjálp við fíkilinn er
nær alltaf skráning á biðlistann
svo og svo langan. Jafnvel alveg á
botninum margumtalaða og við
dauðans dyr skal bíða svo og svo
lengi eftir að komast að aðstoð-
inni. Foreldrum fullorðinna er
alls ekki tekið fagnandi af kerf-
inu í leitinni eftir aðstoð fyrir
fíkilinn. Þeim er hafnað á grund-
velli sjálfræðis fíklanna þegar
þeir eru orðnir 18 ára að aldri.
Samvinna við foreldra
Afskiptum af málefnum fár-
sjúks fólks er hafnað þó að það
sé á engan veg fært um að ann-
ast sín mál sjálft svo vel sé. Við
18 ára aldur skal hver og einn
ráða sínum málum sjálfur og án
afskipta foreldra nema þeim sé
veitt formlegt umboð af þeim
sjúka. Fíkillinn þekkir ekki alltaf
þann rétt sem hann hefur til að-
stoðar og hefur ekki baráttuþrek
til að koma sér áfram í leitinni
eftir hjálp. Þess vegna tel ég
nauðsynlegt að hægt sé að hafa
samvinnu við foreldra um þau
úrræði sem þarf fyrir hvern og
einn í stað þess að eyða orkunni
í að halda aðstandendum sífellt
frá málum.
Skylda kerfisins
Það er eins og það sé bannað
að kalla út björgunarsveitirnar í
málum fíkla en ef trampólín ná-
grannanna fýkur í óveðri er hægt
að koma til bjargar og án um-
boðs kalla til björgunarsveitina
sem veitir aðstoð sína fljótt og
vel eftir því sem kostur er. Ég get
ekki verið annað en þakklát fyrir
þessar dapurlegu frásagnir þrátt
fyrir allt því að þær hreyfa ef til
vill við kerfinu sem ber skylda til
að koma fíklunum til aðstoðar
eins og öllum öðrum sem glíma
við nær óyfirstíganlegan vanda.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Kennsla í tækjasal
5 daga vikunnar
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Stundatafla fyrir Opna kerfið
mán þri mið fim fös lau sun
06:30 1. 4. 6. 1. 8.
07:30 6. 9. 1. 4. 1.
08:30 5. 1. 1. 4. 1.
09:00 1.
10:00 7.
10:30 1.
11:30
12:15 4. 1. 2. 8. 1.
13:30 8. 1.
14:30
15:30 1. 1.
16:30 4. 1. 1. 8. 1.
17:30 1. 3. 1. 7. 10.
18:25
Ath. númerin útskýra tímana - sjá heimasíðu
Opna kerfið Þinn tími er kominn!
1. Almenn þjálfun, þol, styrkur og liðleiki
2. Púltími, hressileg upphitun, ýmist á palli eða gólfi, styrktar- og liðleikaþjálfun
3. Pallatími, samsett spor, mikil brennsla
4. Lóðatími, upphitun ýmist á palli eða á gólfi, unnið með þyngd og mótstöðu,
lóð, stangir, teygjur
5. Liðleikaþjálfun, upphitun, styrktar- og slökunarteygjur
6. Yoga
7. Bræðingur, líkamsrækt með dansívafi, salsa, mambo, samba, jazz, funk og stuð
8. MRL - Magi, rass og læri
9. Stöðvaþjálfun, fjölbreyttir vaxtamótunartímar
10.STOTT PILATES
Nú geturðu gerst áskrifandi að líkamsrækt JSB
Betra verð í áskrift, aðeins 4.400 kr. á mánuði
Glæsilegur tækjasalur - Einkaþjálfun
Opnir tímar frá morgni til kvölds
NÝTT! Tækjatímar - Kíktu á heimasíðuna www.jsb.is
Barnagæsla - Leikland JSB
Vertu velkomin í okkar hóp!
Spennandi
páskatilboð!
telpurS onuK rStaðurinn - Ræktin
NÁMSMANNAKORT
9 mán. 20.000.- 4 mán. 12.000.-