24 stundir - 08.03.2008, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Hvaða lifandi manneskju líturðu upp til
og hvers vegna? Ég lít svolítið upp til vin-
konu minnar Gabríelu Friðriksdóttur því að
hún er svo mikill spútnik. Ég lít upp til
Bjarkar Guðmundsdóttur því að hún er svo
klár að halda jafnvægi á línunni sinni. Ég lít
upp til hljómsveitarinnar Sigur Rósar því að
þeir eru líka klárir að halda jafnvægi á lín-
unni sinni. Ég lít upp til tónlistarmannsins
og langtímavinar míns Gonzales því að hann
er svo duglegur að halda jafnvægi á línunni
sinni. Ég lít upp til Sykurmolanna í heild
sinni því að þeir voru svo góðir í að halda
jafnvægi á línunni sinni. Ég lít upp til mynd-
listarmannsins og vinar míns Michaels Sails-
dorfer því að hann er svo klár á línunni. Ég
lít upp til kunningja míns Jordan Wolfsson
myndlistarmanns því að hann er svo streit á
línunni. Ég lít upp til fyrrverandi kærustu
minnar og myndlistarkonu, Natalie Djur-
berg, því að hún er svo helv. streit á línunni.
Hver er þín fyrsta minning?
Það er spurt um litina á barnaheimilinu
og ég kunni þá alla. Ég blanda saman lit-
uðum leir á stofugólfinu heima og skil að úr
bláum og gulum kemur grænn og að úr gul-
um og rauðum kemur appelsínugulur. Aftur
á móti get ég engan veginn skilið hvers vegna
það kemur út brúnn þegar ég blanda öllum
leirkubbunum saman. Þetta var ráðgáta sem
fylgdi mér lengi en hún mun hafa komið
upp um tveggja og hálfs árs aldurinn. Þriðja
minningin er frá sama tíma og þá er ég að
drösla risastóru grjóti heim af leikskólanum.
Hver eru helstu vonbrigðin hingað til?
Það er svo margt sem ég hef orðið vonsvik-
inn með en ég er satt best að segja búinn að
fyrirgefa sjálfum mér og öðrum eftir bestu
getu og því eru þau einhvern veginn horfin
úr minningunni.
Hvað í samfélaginu gerir þig dapran?
Leikaraskapurinn sem við tökum öll þátt í.
Hann er þó nauðsynlegur, hann er uppi-
staðan og fyrirstaðan samtímis. Tungumálið
er leikaraskapur í heild. Augnatillit eru leik-
araskapur í heild. Hjartað er innan í vegg og
því finnst manni maður vera ósannur. Ég sé
að á 22. öldinni verðum við allt öðruvísi.
Við verðum kannski meistarar í að skilja til-
finningar okkar og verðum telephatic og
annað í þeim dúr. Kannski samt einmitt
ekki. Það gerir mig líka dapran að sjá fólk
sem sér ekki von í lífinu. Þá verð ég dapur,
get ekki að því gert.
Leiðinlegasta vinnan? Þegar ég var 21 var
ég nýbúinn með fornámið í Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og vildi prófa að vinna
ýmsar sumarvinnur. Mér fannst það hræði-
legt og lofaði mér því að ég myndi gera allt
til að stunda bara myndlist og ekkert annað!
Ég komst að mörgu sem ég vildi ekki gera og
það hjálpaði mér að skilja hvað ég vildi gera!
Uppáhaldsbókin þín? Ég kláraði síðast
No Way Home, sjálfsævisögu Bobs Dylans.
Svo var ég að lesa Osho svolítið. Núna er ég
að lesa Brazilíufarana eftir Jóhann M.
Bjarnason og Heim Daníels eftir Leif Pand-
uro. Ég á enga uppáhaldsbók.
Hvað eldarðu hversdags, ertu góður
kokkur? Ég drekk mikið af vítamínheilsu-
drykkjum því að ég fjárfesti í góðum hrá-
fæðismixara fyrir um ári. Annars fer ég yf-
irleitt út að borða með kunningjum og
vinum á kvöldin. Það er enn gerlegt í Berlín
en í Reykjavík færi maður náttúrlega á haus-
inn af því. Ef ég elda er ég góður kokkur. Ég
er að æfa mig að elda eftir uppskriftum
núna.
Hver myndi leika þig í kvikmynd
byggðri á ævi þinni? Ég held að það þyrfti
að vera Matt Damon eða Brad Pitt eða eitt-
hvert framtíðarstirni. Eða kannski margir
leikarar eins og í nýjustu Bob Dylan-
myndinni sem ég er ekki enn búinn að sjá.
Kannski myndi Laddi leika þar eitt hlutverk
og Davíð Oddsson hitt? Það væri fínt ef Mic-
hel Gondry eða Ingibjörg Magnadóttir
myndi velja aðalleikarann
Að frátalinni húseign, hvað er það dýr-
asta sem þú hefur fest kaup á? Ég hef aldrei
átt bíl eða mótorhjól þannig að fartölvan er
örugglega með því dýrasta. Svo keypti ég
mjög dýr nærföt handa kærustunni minni
um daginn.
Mesta skammarstrikið? Þegar ég tók
leigubíl frá Brussel til Lúxemborgar. Ég hafði
ekki hugmynd um hvað það væri langt og
misreiknaði eitt núll af upphæðinni. Þetta
var 1995 og kostaði 32.000 krónur. Þegar ég
kom heim hringdi ég í Hreyfil og spurði
hvað það kostaði að taka leigubíl frá Reykja-
vík til Akureyrar sem er sama vegalengd.
Þeir gáfu mér upp nákvæmlega sömu upp-
hæð og þá fannst mér þetta svolítið kúl í
staðinn. Var samt aðallega æfur út í sjálfan
mig.
Hvað er hamingja að þínu mati? Staður
inni í manni þar sem maður er sáttur við allt
af einhverjum ástæðum.
Hvaða galla hefurðu? Kannski smá óþol-
inmæði og öfundsýki, smá vanvirðingu
óvart við aðra og sjálfan mig og annað í
þeim dúr. Ég reyni að ráða bót á þessu reglu-
lega með því að biðjast afsökunar og skoða
minn gang. Vanalega tekst mér samt ekkert
að ráða bót á þessu. Þetta eru ekki gallar
heldur kunnum við í samfélaginu okkar ekki
að umgangast tilfinningar og erum því alltaf
að traðka á sjálfum okkur og öðrum.
Kannski eru börn gallalaus því að þau eru
hrein og bein.
Ef þú byggir yfir ofurmannlegum hæfi-
leikum, hverjir væru þeir? Framtíðarinn-
sýn. Mér finnst ég stundum hafa séð fyrir
hluti í samfélaginu sem svo urðu. Þetta er
eitthvert leikrit sem ég er fastur í. Hver skrif-
aði þetta leikrit? Lífið er bara eitt stórt leik-
rit. Við skrifum okkur upp á nýtt og mað-
urinn er á fullu að skrifa handritið. Næsti
eppisódi kemur út 23. janúar 2017.
Hvernig tilfinning er ástin? Að hugsa til
hennar og sjá hana í sólarljósi, alltaf!
Hvað grætir þig? Þegar ég finn innan í
mér gamlar tilfinningar sem kristalíserast í
sýn frammi fyrir hugsjónum mínum og
verða raunverulegar í tárum. Svo grét ég í
laumi þegar ég sá Rattatouille í bíó fyrir
nokkrum mánuðum.
Hefurðu einhvern tímann lent í lífs-
hættu? Já, nokkrum sinnum. Vanalega er ég
samt mjög varfærinn
Hvaða hluti í eigu þinni meturðu mest?
Ég á ekki mikið af hlutum. Ég þurfti að
henda ágætum antíksófa út á götu því að
hann var að hluta til úr ull held ég og íbúðin
mín fylltist af mölflugum. Ég var í marga
mánuði að vinna á þeim.
Hvað gerirðu til að láta þér líða vel? Ég
kaupi mér hluti til að gleðja sjálfan mig eða
ég kaupi eitthvað handa öðrum. Mér finnst
gaman að elda eftir uppskrift. Ég tek vana-
lega frí á sunnudögum og fer í hjólreiðatúr
eða fer í 12 heimsóknir og drekk mikið af
kaffi og borða mikið af kökum.
Hverjir eru styrkleikar þínir? Ég er ágæt-
ur í að búa til myndlist og ágætur í að búa til
tónlist.
Hvað langaði þig að verða þegar þú
varst lítill? Picasso.
Er gott að búa á Íslandi? Ég hef verið bú-
settur í Berlín í 9 ár en ég kann rosalega vel
við Ísland. Ég held að hér sé hægt að eiga
gott líf. Landið sjálft bíður upp á feikilega
margt og maður verður að hafa sig allan við
til að komast yfir þetta allt saman. Amma
mín er alger krúttudúlla og ég heimsæki
hana og ég á margar frænkur og frændur
sem er gaman að hitta og ég hef kynnst
dásamlegu fólki sem býður mér í mat og ég
fór í mánuð í World Class í Laugardalnum
síðasta sumar og það var mjög gaman og
mér finnst ofsalega gaman að fara út á land
og svo fór ég að synda í sjónum við Gróttu
síðasta sumar tvisvar sinnum og fleira í þeim
dúr.
Hefurðu einhvern tímann bjargað lífi
einhvers? Já.
Hvert er draumastarfið? Það sem ég er að
gera núna.
Hvað ertu að gera núna? Góð spurning.
Ég var að opna sýningu í i8 galleríi að
Klapparstíg. Svo er verið að gefa út bók með
tónlist og textum eftir mig í Þýskalandi. Ég
þarf að senda verk til New York til gallerista
þar því Armory Show er að fara að byrja. Ég
iða í skinninu að fara að gera næstu verk,
þau eru óþolinmóð að komast í dagsljósið.
Ég kemst varla yfir þetta allt saman, þetta er
alger geðveiki. Best að fara að drífa sig.
24spurningar
Egill Sæbjörnsson
Egill Sæbjörnsson listamaður
lærði í Listaháskóla Íslands og
við Parísarháskóla 8.St.Denis á
árunum 1993-1997. Síðan þá
hefur hann látið verulega að sér
kveða og verk hans hafa verið
með afar fjölbreyttu sniði. Egill
hefur einnig fengist við tónlist
og má þá nefna fyrstu plötu
hans Tonk of the Lawn.
Nú stendur yfir sýning á verki
eftir hann á safninu i8 til 29.
mars.
a
Ég iða í skinninu að fara að gera næstu verk, þau eru óþol-
inmóð að komast í dagsljósið. Ég kemst varla yfir þetta allt
saman, þetta er alger geðveiki. Best að fara að drífa sig
24stundir/Valdís Thor