24 stundir - 08.03.2008, Page 54

24 stundir - 08.03.2008, Page 54
54 LAUGARDAGUR 8. MARS 2008 24stundir Mikki Mús Dýragarðurinn HVERNIG GANGA GALDRARNIR? ÉG KEMST ÖRUGGLEGA BRÁÐUM Í SJÓNVARPIÐ! SJÁÐU HVERNIG KANÍNAN HVERFUR ÉG ER TILBÚINN MIG LANGAR AÐ SKILA BÓK SEM ÉG KEYPTI! Ákveðnar reglur eru um mann- ganginn. Taflmennirnir hafa sína hæfileika varðandi hvert þeir geta farið og hve langt. Manngangurinn Hvor spilari fær einn kóng og kóngurinn getur eingöngu hreyft sig um einn reit í einu en getur þó farið í allar áttir. Drottningin er verðmætur tafl- maður því hún getur hreyft sig í allar áttir og má fara eins langt og hún kemst. Hrókurinn hreyfir sig í beina línu í allar áttir eins langt og hann kemst. Biskupinn getur bara hreyft sig á ská eins langt og hann kemst. Hreyfingar riddarans eru L-laga og byggjast á því að riddarinn getur hreyft sig um einn reit upp eða niður og síðan 2 reiti annaðhvort til hægri eða vinstri … eða öfugt. Það skiptir engu máli þó að aðrir skákmenn séu á þessum reitum þar sem riddarinn hefur þann eigin- leika að hoppa á reitinn sem hann lendir á. Peð geta eingöngu hreyft sig upp skákborðið í beina línu (nema þeg- ar þau drepa) og aðeins um einn reit í einu, nema í fyrsta leik þeirra, þá getur spilari valið um hvort þau fara áfram um einn reit eða tvo reiti. Reglurnar um hvernig peð drepa eru hins vegar öðruvísi en gengur og gerist hjá öðrum skák- mönnum, þau geta eingöngu drep- ið á ská upp. Peð hafa líka þann eiginleika að ef þau komast alla leið á efstu línu skákborðsins, þá má breyta þeim í drottningu, hrók, riddara eða biskup. Peðin eru hermenn og skjöldur Lærið mannganginn Undrabörnin Ray Robson frá Bandaríkjunum og Illya Nyzhnyk frá Úkraínu komu og kepptu á Reykjavíkurskákmótinu. FURÐUFRÉTT KRAKKAKROSSGÁTA Ef fuglar gætu svitnað gætu þeir ekki flogið. Letidýr hnerra og gera það afar hægt! Leðurblaka getur étið allt að 1000 skordýr á klukkustund. Úlfar geta gelt eins og hundar, þeir gera það samt sjaldan. Humrar éta humra. Fullorðinn krókódíll getur sleppt því að borða í heil tvö ár. Gullfiskar muna ekkert lengur en í 3 sekúndur. Furðulegar staðreyndir Humrar éta humra! Geitin Lily var yfirgefin af móð- ur sinni sem eignaðist 2 aðra kið- linga til viðbótar og gat ekki annast alla þrjá. Á vefsíðunni ananova- .com kemur fram að boxerhund- urinn Billy hafi fljótt gengið geit- inni í föðurstað, sé alúðlegur við hana og gæti hennar vel. Hundurinn Billy gengur lítilli geit í föðurstað Lily og Billy 1 2 3 4 5 KRAKKAGAMAN lifsstill@24stundir.is a Hvernig er hægt að láta heilan arin hverfa? Þú bætir f framan við orðið! Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is Hjá okkur fáið þið mikið úrval af kerrum og vögnum fyrir börnin

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.