24 stundir - 05.04.2008, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 24stundir
Mikki Mús
Dýragarðurinn
MÉR ÞYKIR STÓR
BRJÓSTSYKUR SVO
GÓÐUR
HJÁLP! ÞJÓFUR! TAKK, MIKKI
MINN EINS GOTT AÐ ÉG KEYPTI
MÉR EKKI LAKKRÍS!
Það er vitað mál að Skoppa og
Skrítla geta haldið athygli yngstu
barnanna, en það kom ánægjulega
á óvart að hinir fullorðnu sátu líka
bergnumdir á frumsýningunni á
Skoppu og Skrítlu í söngleik –
stundum skortir á það á barnasýn-
ingum.
Shakespeare og Hrói höttur
Skoppa og Skrítla fara í heims-
reisu í þessari annarri sýningu
sinni og heimsækja fjögur lönd í
þremur heimsálfum. Þar læra þær
sitthvað um menninguna í lönd-
unum – sérstaklega var eftirminni-
leg senan frá Englandi þar sem
William Shakespeare og Hrói hött-
ur reyndu að finna samstarfs-
grundvöll!
Linda Ásgeirsdóttir og Hrefna
Hallgrímsdóttir þurfa þó ekki einar
að túlka heilu þjóðirnar, sér til
trausts og halds hafa þær þrjá unga
dansara sem bregða sér í allra kvik-
inda líki. Unga fólkið kom fram af
mikilli fagmennsku og færni og
gæddi sýninguna auknu lífi.
Handrit Hrefnu var mjög
skemmtilegt og er það aðdáunar-
vert hvað hún er óhrædd að kynna
börnunum framandi hluti. Sýning-
in er auglýst fyrir 9 mánaða og
eldri en engu að síður fengu börnin
að kynnast bæði Svanavatninu og
bandarískum tollvörðum! Og eng-
um virtist fræðslan um megn. Tón-
list og textar voru líka til fyrir-
myndar.
Leikmyndin var að vísu furðu-
lega ljót – helst mætti halda að hún
væri hönnuð til þess að hægt væri
að ferðast með sýninguna, en þar
sem Skoppa og Skrítla virðast ekki
á förum úr Kúlunni alveg á næst-
unni var synd að sjá ekki skemmti-
legri umgjörð. Búningar voru þó
skemmtilegir.
Verkið er í leikstjórn Þórhalls
Sigurðssonar og þær Hrefna Hall-
grímsdóttir og Linda Ásgeirsdóttir
leika vinkonurnar tvær.
Stórskemmtileg og lifandi sýning fyrir þau allra yngstu
Góð fyrsta leikhúsreynsla
Gaman í öllum heims-
hornum Stöllurnar rifja
m.a. upp ferð sína til Tógó.
LÉTT OG SKEMMTILEGT
KRAKKAKROSSGÁTA
Við vitum öll að það er skemmti-
legra að rusla til en að taka til.
Við verðum þó alltaf að ganga frá
eftir okkur því ekki er hægt að
búa í ruslahaug. Hægt er að gera
tiltektina skemmtilegri með því
að hlusta á skemmtilega tónlist á
meðan. Byrjið á því að ganga frá
stóru leikföngunum og setjið svo
það litla í dallana þar sem það á
heima. Að lokum skaltu fá þér
blauta tusku og þurrka af hús-
gögnunum.
Tónlist hressir og kætir
Við verðum
alltaf að taka til
Vissir þú að kyn krókódíla
ákvarðast af hitastiginu í hreiðrinu
þar sem eggið liggur? Því heitara
sem eggið er því meiri líkur eru á
karlkyns krókódíl.
Vissir þú að kýr geta sofið stand-
andi?
Vissir þú að sumir froskar geta
sogað augað niður í kok og notað
það til að ýta matnum niður í mag-
ann?
Vissir þú að fílar mala eins og
kettir? Vissir þú að rannsóknir
benda til þess að risaeðlur hafi lifað
í 75-300 ár?
Vissir þú að hægt er að sjá aldur
fiska á hreistrinu? Þeir safna vaxt-
arhringjum líkt og tré sem segja til
um aldur þeirra.
Vissir þú að til eru dýr sem lýsa
af sjálfu sér. Í Brasilíu er til dæmis
til ormur sem er með rautt ljós á
höfðinu og grænt ljós á líkaman-
um.
Heimurinn er fullur af furðufyrirbærum
Sjálflýsandi skordýr
1
2
4
3
KRAKKAGAMAN
lifsstill@24stundir.is a
Kennarinn: Ég vona að ég hafi ekki
séð þig kíkja á prófið hans Jóns.
Neminn: Ég vona það líka.
Hjá okkur fáið þið mikið úrval af
kerrum og vögnum fyrir börnin
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is