24 stundir - 05.04.2008, Blaðsíða 5
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
MARKÁÆTLUN Á SVIÐI VÍSINDA
OG TÆKNI 2009 TIL 2015
Í ályktun Vísinda- og tækniráðs frá desember 2007 er bent á svið þar sem Íslendingar
hafa burði til að ná sérstökum árangri á alþjóðlegum vettvangi og þar sem starfsemi fyrirtækja,
háskóla, rannsóknastofnana, opinberra aðila og einstakra þjóðfélagshópa getur fléttast saman og
skilað þjóðinni enn meiri ávinningi. Nú er auglýst eftir hugmyndum að öndvegissetrum eða rannsókna-
klösum á þessum sviðum.
Markmiðið er að efla vísinda- og tæknirannsóknir, hvetja til árangursríkrar samvinnu milli ólíkra aðila
innanlands og í alþjóðlegu samhengi og ýta undir verðmætasköpun og fjárfestingu í rannsóknum og
nýsköpun í atvinnulífinu. Rannsóknaklasinn eða öndvegissetrið á að hafa möguleika til að verða framúr-
skarandi í alþjóðlegu samhengi.
Vísinda- og tækniráð sér sérstök tækifæri í að:
l efla rannsóknir á menntun og kennslu til að þróa menntakerfið svo að það standi betur undir
sívaxandi kröfum um þekkingu, virkni, sköpunarkraft, frumkvæði og sveigjanleika
l gera nýsköpunarstarfsemi að álitlegum fjárfestingarkosti og hvetja innlenda og erlenda fjárfesta
iuhfyrirtækjum öflugan stuðning
l efla rannsóknir á íslenskum menningararfi, handrita- og bókmenningu, tungu og samtímamenningu
samhliða þeirri áherslu sem nú er lögð á útrás og alþjóðlega ímynd landsins
l efla rannsóknir sem beinast að árangursríkum forvörnum og heilsueflingu, bættri heilsuvernd,
endurhæfingu og nýjungum í heilbrigðisþjónustu, lyfjatækni og þróun matvæla
l efla rannsóknir á auðlindum lands og sjávar og hvernig nýta megi náttúrulegar auðlindir betur
með sjálfbærum hætti
l efla rannsóknir á líklegum og afdrifaríkum breytingum lofts, láðs og lagar með öflugri þátttöku
atvinnulífsins og fræðimanna úr fjölmörgum greinum
l efla rannsóknir sem snúa að innviðum íslensks samfélags, sérstöðu þess og séreinkennum
l efla skapandi greinar þar sem nýsköpun, öflug upplýsingatækni, menningarstarfsemi, afþreying
og fjárfestar mætast og ný starfsemi vex fram
Íslensku vísinda- og tæknisamfélagi er boðið að leggja fram hugmyndir að öndvegissetrum eða
rannsóknaklösum sem taka mið af þeim áherslum sem koma fram í ályktun ráðsins og vinna að
þeim tækifærum sem koma fram hér að ofan. Allt að 10 hugmyndir fá 1.000.000 kr. styrk til frekari
þróunar og verður höfundum þeirra boðið að senda inn fullbúna umsókn í október 2008.
Í boði eru tveir til fjórir styrkir til rannsókna- og nýsköpunarsamstarfs frá og með árinu 2009.
Hámarksstyrkfjárhæð er 80 milljónir á ári til allt að sjö ára.
Frestur til að skila hugmyndum rennur út þriðjudaginn 13. maí klukkan 16:00.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Rannís (www.rannis.is) og á heimasíðu
Vísinda- og tækniráðs (www.vt.is).
Auglýst er eftir hugmyndum að öndvegissetrum
og rannsóknaklösum
Rannsóknamiðstöð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, www.rannis.is