24 stundir - 05.04.2008, Blaðsíða 64
24stundir
„SERINA“
SÆNGURVERASETT
Glæsileg sængur
verasett fáanleg með
tveimur mismunandi
mynstrum.
FYLLIÐ POKANN
FULLAR BÚÐIR AF FLOTTUM VÖRUM Á FRÁBÆRU VERÐI!
CANVASSKÓR
Fást í bleiku eða bláu. Stærðir 28-34
1.490,- Stærðir 35-40 1.690,-
„CANVAS” SKÓR
Flottir skór á alla fjölskylduna. St. 35-46.
Einnig barnastærðir 28-34, verð 1.490,-
1.690,-
FULLORÐINSSTÆRÐ
1.490,-
BARNASTÆRÐ
„SUPREME“ RÚM
Glæsilegt rúm með PU áklæði. Margar
stærðir fáanlegar á frábæru verði!
Stærð: 90 x 200 sm. Verð:.... 24.900,-
Stærð: 120 x 200 sm. Verð:.. 26.900,-
Stærð: 140 x 200 sm. Verð:.. 29.900,-
Stærð: 153 x 203 sm. Verð:.. 34.900,-
26.900,-
STÆRÐ 120X200 SM.
VERÐ ÁN DÝNU
„POLO” HILLUR
Flottar, hvítar hillur til að
festa á vegg eða hafa
frístandandi á gólfi.
4 stk. saman í pakka.
7.990,-
4 STK. SAMAN:
„ROONEY“ TÖLVUBORÐ
Sniðugt tölvuborð úr áli með mdf plötu sem hægt er
að færa til. Tilvalið þar sem plássið er lítið.
Litur: Dökkgrár. Stærð: B:74 x H:89 x L:117 sm.
9.990,-
VERÐ AÐEINS
PLUS T10 YFIRDÝNA
Eggjabakkalöguð dýna úr kaldsvampi
sem eykur þægindi og vellíðan.
Einnifáanleg í stærð 140x200 sm.
Verð aðeins: 3.990,- 2.990,-
ST. 90X200 SM.
„HØIE UNIQUE“ SÆNG OG KODDI
Vönduð thermosæng fyllt með 2 x 600 gr.
af holtrefjum. Stærð 140 x 200 sm.
Sængurtaska fylgir. Koddi fylltur með
500 gr. af holtrefjum.Stærð: 50 x 70 sm.
4.990,-
SÆNG OG KODDI:
1.990,-
VERÐ AÐEINS
? Í kvöld á að „heiðra“ minninguVilla Vill söngvara enn eina ferðinameð því að syngja hann í kaf. Það færnáttúrlega ekkert að heyrast í Villasjálfum. Það væri of smekklegt. Þaðverður sungið yfir hans lög. Þetta ersvona eins og að heiðra listmálara meðþví að mála yfir myndirnar hans. Ef
tilgangurinn er virkilega að heiðra
minningu Villa en ekki að græða seðla
á vinsældum hans þá væri bara haldin
kvöldvaka þar sem lög Villa væru spil-
uð í HANS flutningi og myndum af
honum varpað upp á tjald af hans
ferli. En meinið er að þá væri ekki
hægt að selja miðann á 4.900 kr. eins
og nú er gert. Þetta er nefnilega gróða-
dæmi en ekki „heiðrun“. Hræsni í
sinni ömurlegustu mynd. Hvers konar
fólk borgar sig inn á svona vibba? Svo
verður þetta endurvinnsludjönk líklega
gefið út á plötu til að græða ennþá
meira og spilað í tætlur af smekkleys-
ingjum útvarpsstöðvanna og ennþá
smekklausari vitleysingar kaupa þetta.
Og eftir situr Villi Vill með sárt ennið,
nú eða Haukur Morthens eða Ellý, nú
eða hver sem í hlut á, og heyrast ekki
meir í útvarpinu nema á tyllidögum.
Það er nefnilega búið að „heiðra“ þau
í kaf.
Það er ekki verið að heiðra minn-
ingu þessara söngvara heldur míga á
leiði þeirra og nýta sér frægð þeirra í
sérgróðaskyni. Þetta er líkrán og graf-
arspræn. Það er nefnilega gríðarleg
eftirspurn eftir eftirhermudrullumeiki
á Íslandi. Dapurt.
Líkræningjar og grafarsprænar
Sverrir Stormsker
hefur lítið álit á endur-
vinnslupoppurum
YFIR STRIKIÐ
Eru kaupendur
smekklausari
en popparar?
24 LÍFIÐ
24 stundir hafa fengið nokkur brot
úr nýju myndbandi Merzedes Club
sem meðlimirnir segja
mjög kynþokkafullt.
Gægst í nýtt mynd-
band Merzedes Club
»56
Eurobandið hefur ráðið fjóra
reynda bakraddasöngvara í stað
dansaranna sem var
sparkað í vikunni.
Umdeildustu
bakraddir landsins
»62
Magni Ásgeirsson er byrjaður að
æfa með kór FSu fyrir Queen-
söngskemmtun sem
haldin verður í maí.
Magni byrjaður að
æfa Queen-lögin
»62
● Vantar milljón
„Það þarf svo lítið
til að geta gert svo
mikið. Þessi söfn-
un er fyrir mun-
aðarleysingjahæli í
Líberíu,“ segir
Kolfinna Bald-
vinsdóttir um
ljósmyndasýningu Iceaid-
samtakanna í Ytri-Njarðvík. „Okk-
ur vantar bara eina milljón til að
ljúka verkinu.“ Myndirnar tók Ír-
inn Pátraik Grant, stjórnarmaður í
Iceaid. Kolfinna er nú fram-
kvæmdastjóri Iceaid eftir að bróðir
hennar, Glúmur, fór úr því starfi
yfir til Þróunarsamvinnustofnunar
á dögunum.
● Rútusöngur
„Stemningin er sí-
vaxandi,“ segir
Óttarr Proppé
sem um þessar
mundir ferðast
með rútu um
landið ásamt fé-
lögum sínum í Dr.
Spock, Sign og Benny Crespo’s
Gang. „Það er almenn gleði í
hópnum. Rútan er skemmtilega
tvískipt. Í henni eru tvö setusvæði
með svefnsvæðum á milli, þannig
að menn skiptast á að syngja öðru
megin og vera rólegir hinum meg-
in. Eftir giggin er sungið báðum
megin, því þá eru menn búnir að
spila, og kyssast og faðmast, og svo
er sungið í allri rútunni.“
● Höfðingjar
Hafnarfjörður
verður 100 ára á
árinu og í tilefni af
því verður haldin
vegleg afmæl-
ishátíð í bænum
dagana 29. maí til
1. júní. Fyrirtækið
Practical hefur verið valið til þess
að sjá um hugmyndavinnu, um-
sjón og undirbúning afmælishelg-
arinnar í samstarfi við starfsmenn
bæjarins. „Hafnfirðingar eru höfð-
ingar heim að sækja og við ætlum
að vekja athygli á því,“ segir Marín
Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Practical.
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við