24 stundir - 05.04.2008, Blaðsíða 21
24stundir LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 21
*Vextir á SPRON Vaxtabót samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 1. apríl 2008. Vaxtaaukinn leggst inn á reikninginn um næstu áramót.
A
R
G
U
S
/
08
-0
15
8
Allt að
16,30% vextir +16% vaxtaauki!*
Þeir sem stofna SPRON Vaxtabót á Netinu fyrir 15. apríl nk.
fá 16% vaxtaauka á áunna vexti til 1. júli nk.*
Nýttu þér þetta TILBOÐ
og stofnaðu reikning á spron.is
Greiningardeild Landsbankans
spáir að verðbólga fari hæst í ríf-
lega 10% í sumar, að því gefnu að
krónan styrkist eitthvað á ný.
Haldist hún áfram veik geti verð-
bólgan farið í 13%. Það yrði
mesta verðbólga í 18 ár. Bankinn
spáir því að verðbólga frá upphafi
til loka þessa árs verði 8,4%, en
2,5% verðbólgumarkmið Seðla-
bankans náist um mitt næsta ár. Í
kjölfarið geti þó verðbólga hækk-
að tímabundið á ný. mbl.is
Mesta verðbólga í 18 ár?
Dótturfyrirtæki Icelandair Group,
Icelandair Cargo og Icelease, hafa
fallið frá samningaviðræðum við
Avion Aircraft Trading um leigu og
kaup á fjórum Airbus A330-200-
fraktflugvélum. Viljayfirlýsing um
málið var gerð í maí á síðasta ári.
Flugvélarnar áttu að afhendast á
árunum 2010 og 2011 samkvæmt
viljayfirlýsingunni. Skráð listaverð
flugvélar af þessari gerð er um 130 milljónir Bandaríkjadala.
„Þessi ákvörðun okkar er tekin til að draga úr áhættu í rekstri Icelandair
Group með hliðsjón af þeirri óvissu í efnahagsmálum sem nú ríkir. Við
teljum óráðlegt á þessum tímapunkti að taka á okkur jafnstóra skuld-
bindingu og föllum frá viljayfirlýsingunni í fullu samráði við samnings-
aðila okkar, segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, í
tilkynningu til Kauphallar Íslands.
mbl.is
Óvissa hindrar flugvélakaup
Á næsta aðalfundi Icelandic
Group hf., 18. apríl nk., mun
stjórn félagsins leggja til að hlut-
hafar veiti stjórninni heimild til
að óska eftir afskráningu hluta-
bréfa félagsins úr Kauphöll Nas-
daq OMX á Íslandi. Telur stjórn-
in félagið ekki hafa getað nýtt sér
kosti þess að vera skráð félag
undanfarin ár, t.d. hafi lítil við-
skipti verið með bréf þess.
Afskrá hlutabréf
úr kauphöll
KEA hefur gert
samning um
kaup á öllu
stofnfé í Spari-
sjóði Höfðhverf-
inga, einum elsta
sparisjóði lands-
ins. „Ég hlakka til
að takast á við
þetta verkefni,“ segir Halldór Jó-
hannsson framkvæmdastjóri.
KEA kaupir
sparisjóð