24 stundir - 01.05.2008, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 19
Amsterdam 14
Alicante 23
Barcelona 21
Berlín 17
Las Palmas 22
Dublin 10
Frankfurt 18
Glasgow 7
Brussel 12
Hamborg 17
Helsinki 21
Kaupmannahöfn 16
London 9
Madrid 16
Mílanó 17
Montreal 3
Lúxemborg 10
New York 7
Nuuk 3
Orlando 16
Osló 15
Genf 8
París 14
Mallorca 22
Stokkhólmur 18
Þórshöfn 7
Hæg norðanátt. Dálítil él norðaustanands en
léttskýjað á Suðvesturlandi.
Heldur hlýnandi.
VEÐRIÐ Í DAG
6
8
3
2 2
Hæg norðanátt
Norðaustan 5-10 m/s, en 10-15 NV-lands
síðdegis. Víða dálítil rigning eða slydda, en
þurrt á V-landi. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast á
sunnanverðu landinu.
VEÐRIÐ Á MORGUN
6
8
3
1 3
Rigning eða slydda
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur
ákveðið að beita dagsektum upp á 50
þúsund krónur á dag gagnvart eig-
endum hússins að Hvaleyrarbraut
22 þar sem ítrekaðar ábendingar
byggingarfulltrúa og skipulags- og
byggingarráðs hafa ekki borið árang-
ur. Í húsinu, sem er iðnaðarhúsnæði,
hafa um 20 einstaklingar, íslenskir og
erlendir, verið með herbergi á leigu.
Búseta í húsinu er í ósamræmi við
skipulag og samþykkta notkun húss-
ins.
Þrátt fyrir athugasemdir hafa
ólöglegar framkvæmdir verið í hús-
inu. „Mér skilst að þar hafi verið eða
séu í gangi framkvæmdir við að
koma upp fleiri ólöglegum vistarver-
um,“ segir Guðmundur Benedikts-
son, bæjarlögmaður í Hafnarfirði.
ibs
Sektir vegna ólöglegra vistarvera
Eigendur greiði 50
þúsund kr. á dag
Talsmenn atvinnubílstjóra og yf-
irmenn lögreglunnar gengu í gær-
morgun á fund allsherjarnefndar
Alþingis og skýrðu afstöðu sína
varðandi mótmælin sem brutust út
á Suðurlandsvegi 23. apríl síðast-
liðinn. Að sögn Ágústs Ólafs
Ágústssonar varaformanns alls-
herjarnefndar var fundurinn upp-
lýsandi fyrir nefndarmenn. „Það
kom í ljós að mönnum ber ekki
saman um atburði. Mín persónu-
lega skoðun er hins vegar sú að lög-
reglan hafi brugðist rétt við miðað
við þær aðstæður sem þarna sköp-
uðust. Þarna var fyrirmælum lög-
reglu ekki hlýtt og við því varð
auðvitað að bregðast. Hins vegar er
líka fagnaðarefni að lögreglan ætli
sér að fara yfir þennan atburð og
læra af honum.“
Stefán Eiríksson lögreglustjóri
segir að á fundinum hafi hann
skýrt frá aðgerðum lögreglunnar.
„Við brugðumst þarna við ástandi,
sem skapaðist, á eðlilegan hátt.
Einar Árnason talsmaður at-
vinnubílstjóra segir að skýringum
bílstjóra hafi verið vel tekið. Bíl-
stjórar hafi skýrt sín sjónarmið.
„Við erum ekki hættir.“ fr
Fundur í allsherjarnefnd
Aðalsteinn Jóns-
son, útgerð-
armaður á Eski-
firði er látinn, 86
ára að aldri. Að-
alsteinn var um
áratuga skeið
einn af for-
ystumönnum í íslenskum sjávar-
útvegi og var forstjóri Eskju, áður
Hraðfrystihúss Eskifjarðar, í 40
ár. Samhliða gegndi hann fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum, var
sæmdur riddara- og stórridd-
arakrossi íslensku fálkaorðunnar
og var heiðursborgari á Eskifirði.
Aðalsteinn lætur eftir sig eig-
inkonu, þrjú börn, tíu barnabörn
og fjögur barnabarnabörn.
Aðalsteinn
Jónsson látinn
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Núverandi vaktafyrirkomulag
skurð- og hjúkrunarfræðinga verð-
ur í gildi til 1. maí næstkomandi
nema samið verði um annað sam-
kvæmt samkomulagi sem fulltrúar
hjúkrunarfræðinganna náðu við
Guðlaug Þór Þórðarson heilbrigð-
isráðherra á níunda tímanum í
gærkvöld. Þar með verður vinnu-
fyrirkomulagið sem taka átti upp í
dag lagt til hliðar en til þess að
virða vinnutímatilskipun Evrópu-
sambandsins verður settur á lagg-
irnar vinnuhópur sem á að útfæra
vaktaskipulagið. Í honum verða
fulltrúar skurð- og svæfingarhjúkr-
unarfræðinga og Landspítalans auk
oddamanns sem heilbrigðisráð-
herra tilnefnir.
Læknaráð Landspítalans skoraði
í gær á heilbrigðisráðherra að grípa
strax inn í deilu stjórnenda spít-
alans og skurð- og svæfingarhjúkr-
unarfræðinga og geislafræðinga.
Lýsti stjórn læknaráðsins því yfir að
starfsemi spítalans myndi að
stórum hluta lamast ef þeir 100
hjúkrunarfræðingar og 40 geisla-
fræðingar sem sagt höfðu upp
störfum hættu og gengju út.
„Eins og ég hef alltaf sagt búa
skurð- og svæfingahjúkrunarfræð-
ingar yfir gífurlegri þekkingu. Ég
hefði ekki viljað missa einn einasta
þeirra út af deildunum,“ segir
Helga Kristín Einarsdóttir sviðs-
stjóri skurð- og svæfingahjúkrunar
á Landspítalanum, að vonum
ánægð með að sættir tókust
Í ályktun læknaráðs sagði að fyr-
ir hefði legið mánuðum saman að
þessir starfsmenn myndu hætta ef
samkomulag um vaktafyrirkomu-
lag næðist ekki. Það væri einnig
ljóst að neyðaráætlun myndi engan
veginn duga til að halda starfsemi
spítalans í viðunandi horfi.
Geislafræðingarnir frestuðu hins
vegar í gær uppsögnum sínum um
einn mánuð. Að loknum fundi þeirra
með yfirstjórn spítalans var tilkynnt
að nota ætti tímann í þessum mánuði
til þess að ná sáttum í málinu.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formað-
ur Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga, fagnaði fyrir skjólstæðinga
spítalans þegar hún frétti af sam-
komulaginu. „Það er gleðiefni að
neyðarástandi sé aflétt og ég treysti
því að nú verði farið í það samráð
milli stjórnenda og hjúkrunarfræð-
inga sem auðvitað átti að vera frá
upphafi. Nauðsynlegt er að ræða
við fagaðila og þá sem best þekkja
til sem á þessu sviði eru hjúkrunar-
fræðingarnir sjálfir.“
Neyð aflétt á
Landspítala
Núverandi vaktafyrirkomulag í gildi næsta árið nema samið
verði um annað Vinnuhópur útfærir nýtt skipulag
Samkomulag Skurð- og
svæfingarhjúkrunarfræð-
ingar verða áfram við störf.
➤ Alls sögðu 96 af 104 skurð-og svæfingarhjúkrunarfræð-
ingum á Landspítala upp
störfum.
➤ Af 50 geislafræðingum sögðu42 upp störfum.
UPPSAGNIR
STUTT
● Afskráð Samþykkt var á stjórn-
arfundi FL Group í gær að taka
félagið af markaði. 87% eig-
enda hlutafjár hafa samþykkt
að vera áfram í félaginu. Á hlut-
hafafundi 9. maí verða eig-
endum 13% eignarhlutar boðin
hlutabréf í Glitni í skiptum fyr-
ir hluti í FL Group vilji þeir
ekki vera í félaginu.
● Játuðu Ljóst er að mikið
tjón varð í tveimur sinubrun-
um við Hvaleyrarvatn í vik-
unni. Sex piltar, 17-20 ára,
voru handteknir. Að sögn lög-
reglu liggur aðild 5 þeirra fyr-
ir og hafa þeir játað sök en alls
voru 10 piltar yfirheyrðir
vegna brunanna.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Þuríður Backman, þingmaður
Vinstri grænna, hefur áhuga á að
leggja fram frumvarp sem fjar-
lægir heimild til ríkisábyrgðar
vegna fjármögnunar á starfsemi
Íslenskrar erfðagreiningar að
fjárhæð allt að 200 milljónum
Bandaríkjadala (um 15 millj-
örðum króna). Þetta kom fram í
umræðum á Alþingi í gær vegna
fyrirspurnar hennar um hvort
fjármálaráðherra hygðist afnema
lögin. Árni Mathiesen sagði enga
þörf fyrir að afnema þau þar sem
skilyrði ríkisábyrgðarinnar væru
ekki lengur fyrir hendi.
Pétur Blöndal, sem greiddi at-
kvæði gegn setningu laganna
einn þingmanna Sjálfstæð-
isflokksins, sagði fyrirspurn Þur-
íðar fráleita þar sem Alþingi setti
lög, ekki framkvæmdavaldið.
„Þuríður Backman getur flutt um
þetta frumvarp sjálf og ég mun
styðja það. Ég legg til að hún fái
nokkra þingmenn með sér í því
að afnema þessi lög. Það er
greinilegt að það er ekki þörf á
þeim og það yrði því ágæt laga-
hreinsun.“ þsj
Vilja lög um ríkisábyrgð burt
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.hr.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
6
0
8
ostahusid.is
Ostaterta
Jarðaberja, myntu og súkkulaði