24 stundir - 01.05.2008, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir
Mallorca
Fjölskylduparadísin Alcudia
Aðeins örfáar íbúðir í boði
Heimsferðir bjóða frábær sértilboð til Mallorca 4., 11. eða
18. júní. Bjóðum nokkrar íbúðir á á okkar vinsæla gististað
Alcudia Pins í Alcudia á frábæru verði. Íbúðahótelið er
tilvalið fyrir fjölskyldufólk þar sem eitthvað er að finna
við allra hæfi, s.s skemmtidagsskrá á daginn og kvöldin,
sundlaugar, rennibrautir, fótbolta-, körfubolta- og
tennisvöllur og svo mætti lengi telja. Gengið er beint úr
hótelgarðinum og niður á fallega hvíta ströndina. Skelltu
þér með fjölskylduna og njóttu lífsins á Mallorca.
Kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn saman í íbúð í viku, 18. júní á Alcudia
Pins. Brottfarir 4. og 11. júní kr. 4.000
aukalega. Aukavika kr. 14.000.
Kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna saman
í íbúð í viku, 18. júní á Alcudia Pins.
Brottfarir 4. og 11. júní kr. 4.000 kr
aukalega. Aukavika kr. 14.000.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
3
44
0
Frábært
sértilbo
ð
- Alcudi
a Pins íb
úðahóte
lið
Sértilboð í júní
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Ferðafélag Íslands býður upp á
léttar fjallgöngur að morgni til frá
mánudegi til föstudags í næstu
viku. Þátttaka í göngunum er
ókeypis og öllum opin, og verður
farið á einkabílum frá húsnæði
Ferðafélagsins við Mörkina 1
klukkan 6 alla morgnana.
„Að ganga upp á fjöll á morgn-
ana er eins og að taka stóran
skammt af vítamíni,“ segir Páll
Ásgeir Ásgeirsson sem verður
leiðsögumaður í morgungöngun-
um. „Það á ekki síst við á vorin
þegar bjart er orðið. Töfrar nátt-
úrunnar á þessum tíma dags eru
ótrúlegir og ég geri sjálfur mikið
af því að vakna snemma á morgn-
ana og fara út að skokka eða
ganga.“
Byrjendur og lengra komnir
Eins og fyrr segir verður þátt-
taka í fjallgöngunum öllum opin.
Fjöllin eru öll í nágrenni höfuð-
borgarsvæðisins og að sögn Páls
Ásgeirs ættu byrjendur jafnt sem
lengra komnir að ráða við þau.
„Það er heldur engin skylda að
mæta í allar fimm göngurnar.
Fólk getur látið sér nægja að mæta
í eina og sjá svo til.“
Morgunleikfimi
Í hverri gönguferð verður sér-
stakur gestur sem kemur með
innlegg af einhverju tagi til ferð-
arinnar. „Fyrsta morguninn,
mánudagsmorguninn 5. maí, ætl-
ar sjálfur Valdimar Örnólfsson að
stjórna morgunleikfimi á bíla-
stæðinu við Kaldársel. Margir
muna einmitt eftir honum frá því
að hann stjórnaði morgunleikfimi
í útvarpinu hér á árum áður,“ seg-
ir Páll Ásgeir.
Þar sem ekki er nauðsynlegt að
skrá sig í ferðirnar segist hann
ekki hafa hugmynd um hversu
margir muni mæta. „Þeir skiptu
hundruðum sem fóru í göngurnar
í fyrra og þeim hefur farið fjölg-
andi með árunum,“ segir hann að
lokum.
Mikill morgunmaður
Páll Ásgeir Ásgeirsson
verður leiðsögumaður í
morgungöngunum.
Fjallgöngur Ferðafélags Íslands í næstu viku
Náttúrutöfrar
árla morguns
Næsta vika verður mikil
fjallavika hjá Ferðafélagi
Íslands sem býður upp á
fjallgöngur árla morguns
á hverjum virkum morgni
í næstu viku. Leiðsögu-
maður verður Páll Ásgeir
Ásgeirsson.
➤ Gengið verður upp á Helga-fell í Hafnarfirði, Keili, Vífils-
fell, Helgafell ofan Mosfells-
bæjar og Úlfarsfell, í þessari
röð.
➤ Göngurnar hefjast snemmatil þess að göngufólk geti
mætt til vinnu í tæka tíð að
þeim loknum.
➤ Nánari upplýsingar má sjá áheimasíðu Ferðafélagsins á
fi.is.
FJÖLLIN
Íbúar og ferðamenn á Norð-
austurlandi ættu ekki að verða
fyrir vonbrigðum með þá fjöl-
mörgu útivistarmöguleika sem í
boði eru á svæðinu.
Fjölmargar gönguleiðir hafa
verið kortlagðar og sumar merkt-
ar. Sumar þeirra eru stuttar og
aðrar lengri og erfiðari. Mögu-
leikarnir eru óendanlegir og má
nefna sem dæmi að flestum ber
saman um að gönguferðir um
Mývatnssveit séu óviðjafnanlegar
og að Melrakkaslétta, Þistilfjörður
og Langanes hafi upp á fleira að
bjóða en marga grunar.
Fyrir golfara má nefna að einn
níu holna völlur er á Húsavík og
einn sex holna völlur, Krossdals-
völlur, er í Reykjahlíð. Þá er líka
góður völlur í Ásbyrgi og pútt-
völlur á Kópaskeri.
Hestaeign er töluverð meðal
þéttbýlisbúa á Norðausturlandi
og til sveita er hún almenn. Víða
eru hestaleigur þar sem boðið er
upp á útreiðatúra fyrir ferða-
menn.
Í Þingeyjarsýslu eru margar
góðar og eftirsóttar lax- og sil-
ungsveiðiár. Þar fyrir utan eru
fjölmörg önnur vötn í sýslunni, í
byggð, inni á milli hárra fjalla og
uppi á heiðum, þar sem veiðivon
er mikil. Fyrir þá sem kjósa frekar
hafið til veiða er í boði sjóstanga-
veiði á nokkrum stöðum.
Hvað sem fólk kýs að taka sér
til dundurs er svo fátt betra en að
slappa af í heitu vatni og láta
þreytuna líða úr líkamanum.
Sundlaugar með heitu vatni úr
iðrum jarðar eru í flestum þétt-
býliskjörnum og einnig víða til
sveita. Sem dæmi má nefna Sund-
laug Húsavíkur, en í hana hefur
nú verið sett sérstakt heilsuvatn
sem lengi hefur verið notað af
heimamönnum. Litlu laugarnar
hafa einnig sína töfra og að lokum
má nefna jarðböðin við Mývatn
sem njóta mikilla vinsælda.
Töfrandi
Norðausturland
Þeir sem kjósa að ganga, hjóla
eða hlaupa sér til heilsubótar
innan höfuðborgarsvæðisins geta
fundið út hversu langt þeir fara
með hjálp Borgarvefsjárinnar á
slóðinni borgarvefsja.is. Þar er
hægt að byrja á því að slá inn
götunafn og fá þá nákvæmt kort
af næsta nágrenni hennar. Út frá
því er hægt að þrýsta á „m“
hnappinn og merkja síðan
punkta inn á kortið. Vegalengdin
frá fyrsta punkti að þeim síðasta
er svo gefin upp í metrum. Til
þess að fá sem nákvæmasta lengd
á gönguleið borgar sig vitaskuld
að merkja hana rétt inn í stað
þess að mæla eingöngu vegalengd
á milli upphafsstaðar og loka-
punkts. Sem dæmi má nefna ef
merkt er inn gönguleið á milli
norðurenda Tjarnarinnar í
Reykjavík niður Lækjargötu, til
vinstri á Geirsgötu og meðfram
henni niður á Ánanaust og þaðan
að bæjarmörkum Seltjarnaress,
er samkvæmt Borgarvefsjá rúmir
2900 metrar.
Gönguleiðir
reiknaðar út
LÍFSSTÍLLÚTIVIST
utivist@24stundir.is a
Töfrar náttúrunnar á þessum tíma dags eru
ótrúlegir og ég geri sjálfur mikið af því að
vakna snemma á morgnana og fara út að skokka
eða ganga.