24 stundir - 01.05.2008, Blaðsíða 29
24stundir FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 29
Og meira um lyfjamál því
WADA, samtök sem halda utan
um lyfjamælingar í mörgum
greinum íþrótta, eru komin í
samvinnu við Interpol. Verður
nú hart tekið á brotum.
Lyfleysa
Frá og með árinu 2009 mega
nokkrir keppendur á Opna
breska meistaramótinu í golfi
eiga von á að þurfa að gefa
blóðprufu um leið og skor-
korti er skilað en reglur þess
efnis hafa verið settar. Var
hugmyndin að hefja slík lyfja-
próf strax á þessu ári en því
hefur verið frestað um ár.
Lyfjapróf í golfi
„Það kann að vera erfitt að trúa
því en Öskjuhlíðarmótið okkar er
jafnan það langerfiðasta hvert
sumar og það helgast af því hversu
brautirnar eru þröngar og brattar
og mikið um krappar og skyndi-
legar beygjur,“ segir Albert Jakobs-
son hjá Hjólreiðafélagi Reykjavíkur
en fyrsta fjallahjólamót ársins á
þeirra vegum fór fram í Öskjuhlíð
um helgina.
Sautján hjólreiðakappar tóku
þar þátt og sigraði Hlynur Þor-
steinsson með nokkrum yfirburð-
um í karlaflokki. Hákon Hrafn Sig-
urðarson kom honum næstur en
rúmar fimm mínútur voru í næstu
menn á eftir þeim. Bryndís Þor-
steinsdóttir vann svo kvennaflokk-
inn.
Aðstæður voru þó ekki fyrsta
flokks að mati Alberts. „Eftir á að
hyggja fór þetta mót fram of
snemma árs með tilliti til tiltölu-
lega þungs vetrar því það er ennþá
snjór á köflum í Öskjuhlíð og betra
hefði verið að fresta því fram í
júní.“
Ekki er á allra færi að taka þátt
enda krefst brautin um Öskjuhlíð-
ina mikillar tækni. Ekki er hjólað
um göngustígana eins og margir
halda. „Alls ekki heldur er hún öllu
torfærari en það. Hún liggur að
mestu í skóginum sjálfum og er
langt frá því að vera auðveld. Hjól-
aðir voru sjö hringir sem hver um
sig er 2,9 kílómetra langur og hæð-
armunur í hverri ferð er 75 metrar.
Í raun má því segja að keppend-
urnir hafi hjólað upp hálfa Esjuna í
heildina og það er ekki á allra færi á
grýttum og ójöfnum slóðum.“
Sumarið hafið hjá fjallahjólafólki með móti í Öskjuhlíð
Þrautin þyngri en skemmtileg
Hjólað til sigurs Hlynur
Þorsteinsson vann fyrsta
fjallahjólamót ársins.
Hinn mislyndi mark-vörður Santiago Ca-niz-
ares brosir nú
meira en
endranær enda
náði hann
óvænt stórum
áfanga um
helgina. Spilaði
hann þá sinn 500. leik í
spænsku deildinni en í vetur
leit út fyrir að ferli hans væri
lokið þegar Ronald Koeman
tók við stjórn Valencia. Var það
hans fyrsta verk að frysta mark-
vörðinn úr hópnum og aðeins
brottför Koemans gerði Caniz-
ares kleift að ná þessum áfanga.
Emmanuel Adebayor hjáArsenal er bjartsýnn ein-staklingur. Neitar hann
að trúa að Ars-
enal sé úr leik í
keppninni um
enska meist-
aratitilinn og
segir líkurnar
þvert á móti
ágætar. Liðið á
fræðilega möguleika en ansi
merkileg úrslit þurfa að fæðast
um þessa helgi og þá næstu til
að von sé til að draumur hans
rætist.
Þrátt fyrir nýjan stjóra ogmjög frambærileganleik-
mannahóp eru
rósir Totten-
ham þessa leik-
tíðina fáar og
langt þeirra á
milli. Juande
Ramos und-
irbýr nú boð í sóknarjaxlinn
David Villa hjá Valencia upp á
2,3 milljarða króna og herma
heimildir úr innsta hring
stjórnar liðsins að það verði að-
eins fyrstu stóru kaup liðsins
gangi þau eftir.
Gangi allar spár eftirvarðandi Valenciuverður
liðið ein rjúk-
andi rúst í
sumar. Ekki
aðeins er talið
fullvíst að Villa
fari annað
heldur einnig
hinir tveir leikmenn liðsins sem
falla undir að vera lykilmenn og
eiga enn mikla framtíð fyrir sér.
David Silva og Joaquín finna
ekki hamingjuna í hvítum bún-
ingi liðsins og sögusagnir gerast
háværari um að þeir fari einnig.
Er þá fokið í flest skjól hjá lið-
inu. Portúgalar standa við bak-
ið á sínu fólki.
Nú hefur Luis Figo lýstyfir sínum stuðningivið að
Jose Mourinho
verði næsti
stjóri Inter
Milan en
vangaveltur eru
enn uppi um
hver tekur við
af Roberto Mancini þar á bæ.
Stuðningur Figo er meira í orði
en á borði enda aldrei leikið
undir stjórn Mourinho og mun
sjálfur yfirgefa herbúðir liðsins
á næstunni.
Annars lítur út fyrir aðFigo fari frá félaginusem
ítalskur meist-
ari en Inter
þarf aðeins
einn sigur til að
vinna deildina
enn á ný. Þarf
þó að hafa fyrir
hlutunum því næsti mótherji er
AC Milan.
SKEYTIN INN