24 stundir - 01.05.2008, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir
Í samanburðarúttekt á vegum
dómsmálaráðuneytisins á íslensk-
um reglum um meðlag og sam-
bærilegum úrræðum í mörgum
öðrum ríkjum kemur fram að ís-
lenska kerfið hefur þróast og breyst
hægar en flest önnur. Dóms- og
kirkjumálaráðherra hefur ákveðið
að skipa nefnd til að fara yfir reglur
barnalaga um framfærslu barna til
að kanna hvort núverandi fyrir-
komulag þjóni hagsmunum barna
og foreldra á sanngjarnan hátt.
Nýrri meðlagskerfi nota ráðstöf-
unartekjur sem viðmið frekar en
heildartekjur. Íslenska kerfið notar
heildartekjur sem viðmið. Það er
jafnframt að verða sérstaða íslenska
kerfisins að lögheimilisforeldri nýt-
ur allra bóta og réttinda sem fylgja
lögheimili og hefur það ekki áhrif á
meðlagsupphæð. ibs
Endurskoða á íslenska meðlagskerfið
Hefur þróast og
breyst hægar hér
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Verð á vinsælum tegundum nýrra
bíla hjá Heklu lækkaði verulega í
gær. Forsvarsmenn fyrirtækisins
kynntu þá lækkun á nýjum bílum
um allt að 17 prósent og tóku
lækkanirnar gildi strax í gær.
Ástæða breytinganna er betri
samningar við bílaframleiðendur.
Takast á við verðbólguna
Knútur G. Hauksson forstjóri
segir að fast hafi verið sótt að
framleiðendum til að ná fram
þessum lækkunum. „Þetta var
svona villt hugmynd sem við
ákváðum að hrinda í fram-
kvæmd. Þetta hefur verið mikil
samningalota sem hefur staðið
undanfarna þrjá mánuði og okk-
ur tókst að sýna framleiðendun-
um fram á að aðstæður hér
heima væru þannig að þetta væri
okkur afar mikilvægt.“
Knútur segir að með þessari
aðgerð sé Hekla að leggja sín lóð
á vogarskálarnar í baráttunni
gegn verðbólgunni. „Þetta er ekk-
ert skammtímaverkefni hjá okkur.
Þessar lækkanir munu standa
áfram hjá okkur og ég hvet önnur
fyrirtæki til þess að feta sömu
slóð. Við verðum bara að sýna
ábyrgð og takast á við þá verð-
bólgu sem plagar okkur núna. At-
vinnulífið hefur mikið um það að
segja hvernig málin þróast.“
Fagna frumkvæði Heklu
Hannes G. Sigurðsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, segist fagna
því frumkvæði sem Hekla hefur
tekið með þessum lækkunum.
„Þessi aðgerð hefur ekki úr-
slitaáhrif í baráttunni gegn
verðbólgunni en hún getur ver-
ið öðrum hvatning til að leita
leiða til að ná hagkvæmari
samningum.“
Grétar Þorsteinsson, forseti
Alþýðusambandsins, segir afar
mikilvægt að fyrirtæki eins og
Hekla sýni samfélagslega ábyrgð
af þessu tagi. „Þetta sýnir að
það er ýmislegt hægt að gera.
Ikea sýndi fordæmi af sama tagi
þegar gefið var út að verð yrði
ekki hækkað. Svona fordæmi
skiptir verulegu máli og ég vona
að aðrir geri slíkt hið sama.“
Hekla lækkar
Hekla lækkar verð á nýjum bílum um allt að 17 prósent
Segja lækkunina lóð á vogarskálar í baráttu gegn verðbólgu
➤ Dæmi um lækkun hjá Hekluer að Skoda Octavia lækkar
um 9,18 prósent og fer úr
3.050.000 krónum niður í
2.770.000 krónur.
➤ Volkswagen Golf lækkar um10,94 prósent og Mitsubishi
Pajero lækkar um 10,39 pró-
sent.
➤ Jafnframt býður Hekla upp álán í erlendri mynt fyrir allt að
80 prósentum kaupverðs.
VERÐLÆKKUN
Lækkun Forsvarsmenn Heklu tilkynntu verðlækkun á nýjum bílum um
allt að 17 prósent í gær.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Jóhanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráðherra undirrituðu í gær samkomulag um sam-
starf við móttöku flóttafólks og fjármögnun flóttamannaverkefna á
þessu og næsta ári. Greiðir utanríkisráðuneytið kostnað við móttöku
flóttafólks næstu tvö árin, allt að 80,25 milljónir króna í ár og 100
milljónir árið 2009. Kostnaðurinn felst í þjónustu við flóttafólkið á
fyrstu tólf mánuðum dvalar á Ísland, svo og ferðakostnaði þriggja til
fjögurra manna sendinefndar sem fer hverju sinni til þess lands sem
hefur veitt flóttafólki hæli og tekur viðtöl við einstaklinga og fjöl-
skyldur sem Flóttamannastofnun SÞ leggur til að komi.
180 milljónir í flóttamenn
Nú er vika liðin af sumri en sum-
arið er helsti ferðamannatíminn
hérlendis. Fjöldi ferðamanna fer
vaxandi en samkvæmt upplýs-
ingum frá Félagi leiðsögumanna
fer leiðsögn fram á Íslandi á 21
tungumáli að íslensku og tákn-
máli meðtöldu. Hin eru: arab-
íska, danska, enska, finnska,
franska, gríska, hollenska,
ítalska, japanska, kínverska,
norska, portúgalska, pólska, rúss-
neska, slóvenska, spænska,
sænska, tékkneska og þýska. aak
Leiðsögn hér á
21 tungumáli
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin gerðu könnun á Grænum frost-
pinnum í heimilispakkningu frá Kjörís. 10 stykki eru í
pakka. Verðmunur er töluverður eða 115 % sem er 328
króna munur á lægsta og hæsta verði, þar sem Krónan
kom ódýrast út en Kjarval var dýrust.
Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum.
115% verðmunur
á grænum frostpinnum
Ingibjörg
Magnúsdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Grænir frostpinnar frá Kjörís, 10 stk. í pakka
Verslun Verð Verðmunur
Krónan 286
Þín verslun Seljabraut 398 39 %
Skagfirðingabúð 434 52 %
Hagkaup 459 60 %
10-11 599 109 %
Kjarval 614 115 %
„Vorum í raun mjög ósátt við
hvernig að þessu var staðið. Þetta
hús hefur í gegnum tíðina verið
mjög vinsælt til kvikmyndatöku
og við höfum ákveðið að endur-
skoða algjörlega allar okkar verk-
lagsreglur varðandi þá þætti,“ seg-
ir Árni Sverrisson, forstjóri St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði, en hóp-
ur kvikmyndagerðarnema var þar
við tökur síðastliðinn fimmtudag
með töluverðum hávaða og hljóð-
um sem trufluðu marga sjúklinga.
„Umfangið var miklu meira en
okkur hafði verið kynnt og eftir á
að hyggja var greinilegt að und-
irbúningur milli starfsmanna hér
og hópsins var ekki nógu mark-
viss,“ segir Árni en hann segir að
vantað hafi í húsið manneskju
sem hann hefur sett sem skilyrði
að væri viðstödd til að fylgjast
með. „Því miður var þetta los-
aralegt og ekki eins og á að standa
að því,“ segir hann.
Heiðar Mar Björnsson er fram-
leiðandi verkefnisins en hann segir
hópinn hafa verið með fullt leyfi
frá stjórnendum spítalans og þeim
verið boðið að vera þar á sum-
ardaginn fyrsta því þá yrði minna
um að vera.
„Því miður gerðist þetta í þessu
tilfelli. Tökurnar töfðust eitthvað
aðeins sem var leiðinlegt en við
reyndum alltaf að vera með eins
fáa uppi og hægt var. Okkur finnst
leiðinlegt ef við höfum raskað ró
einhverra sjúklinga. Það var auð-
vitað ekki ætlunin og við biðjumst
afsökunar á því,“ segir hann.
fifa@24stundir.is
Stjórn St. Jósefsspítala endurskoðar reglur um tökur á spítalanum
Kvikmyndagerð úr böndunum
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rodalon
-utanhúss
Hentar vel fyrir:
• Sólpallinn
• Garðhúsgögnin
• Sumarbústaðinn
• Tjaldvagninn
Fæst í apótekum