24 stundir - 01.05.2008, Qupperneq 6
100 daga við stjórn
Á laugardaginn verða 100 dagar
liðnir frá því að meirihluti Sjálf-
stæðisflokks og þess hluta F-lista
sem fylgir Ólafi F. Magnússyni að
málum, sem kallaður hefur verið
Kjartansstjórnin vegna frum-
kvæðis Kjartans Magnússonar
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
að myndun hans. Þar með hefur
hún náð sama aldri og hin svokall-
aða skammdegisstjórn, sem Fram-
sóknarflokkur, F-listi, Samfylking
og Vinstri græn mynduðu í októ-
ber.
Erfið byrjun
Kjartansstjórnin tók við völd-
um á aukafundi borgarstjórnar
þann 24. janúar. Fundurinn var
mikill átakafundur og þurfti með-
al annars að fresta honum um
nokkra tíma vegna háværra mót-
mæla á áhorfendapöllum og
göngum ráðhússins. Þar var Ólaf-
ur F. Magnússon kosinn borgar-
stjóri og mun hann gegna því
embætti fram í mars á næsta ári
þegar fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
tekur við af honum. Kjartans-
stjórnin hefur frá upphafi mætt
miklum mótbyr. Margrét Sverris-
dóttir, varaborgarfulltrúi F-
listans, vildi ekki fylgja Ólafi inn í
nýjan meirihluta sem þýðir að
hann getur ekki kallað inn vara-
mann ef hann forfallast. Þá birti
Fréttablaðið niðurstöður skoð-
anakönnunar sem sýndi að Kjart-
ansstjórnin nyti aðeins stuðnings
fjórðungs borgarbúa daginn fyrir
valdatökuna.
Þrautaganga Vilhjálms
Stýrihópur sem skipaður var
fulltrúum allra flokka til þess að
fara yfir REI-málið kynnti skýrslu
sína í borgarráði Reykjavíkur
þann 7. febrúar og lýsti borgarráð
yfir mikilli ánægju með niður-
stöðu hennar. Í henni kom fram
að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
fyrrverandi borgarstjóri, hefði
ekki haft umboð til þess að sam-
þykkja samruna REI og Geysis
Green Energy á eigendafundi
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) þann
3. október 2007. Í kjölfarið var
mikið rætt um framtíð Vilhjálms
sem oddvita Sjálfstæðisflokkins í
borgarstjórn og reyndar líka sem
borgarfulltrúa. Í þeirri atburðarás
sem upphófst þótti Vilhjálmur
hafa sagt rangt frá í Kastljósi. Í
kjölfarið heyrðust raddir um að
Vilhjálmur ætti að segja af sér sem
borgarfulltrúi. Þessu lauk með
blaðamannafundi Valhöll þar sem
Vilhjálmur sagðist hafa gert
klaufaleg mistök, hann ætlaði ekki
að segja af sér og að hann gæti
ekki sagt hvort hann myndi taka
við af Ólafi F. Magnússyni sem
borgarstjóri eins og gert hafði ver-
ið ráð fyrir. Enn er ekki ljóst hver
verður borgarstjóraefni Sjálfstæð-
isflokksins.
Hallargarðurinn
Í lok febrúar kom upp mál sem
tók meirihlutann tæpa tvo mán-
uði að leysa. Þá voru lagðar fyrir
borgarráð tillögur um breytingar á
Hallargarðinum þar sem húsið við
Fríkirkjuveg 11 stendur sem voru
forsendur tilboðs Novators, eign-
arhaldsfélags Björgólfs Thors
Björgólfssonar, í húsið sem borgin
hafði samþykkt að taka. Þá hafði
Ólafur F. Magnússon verið and-
vígur sölunni. Erfiðlega gekk að
ná samstöðu um málið í borgar-
ráði og var það ítrekað tekið af
dagskrá. Að lokum var lögð fram
tillaga um að hætt væri við söluna
í ljósi þess að forsendur tilboðsins
væru brostnar. Þeirri tillögu var
vísað frá. Á endanum voru breyt-
ingarnar samþykktar í borgarráði,
þrátt fyrir ýmsa annmarka vegna
þess að tillögur nýrra eigenda
brjóta í bága við fornminjalög.
Slæmt ástand miðborgar
Í byrjun apríl var ástand mið-
borgarinnar mikið til umræðu. Í
kjölfarið sögðu 24 stundir frá því
að 37 hús væru auð í miðborg
Reykjavíkur samkvæmt samantekt
skipulags- og byggingarsviðs
borgarinnar. Slökkviliðsstjóri höf-
uðborgarsvæðisins skilaði einnig
skýrslu um málið og taldi að auðu
húsin væru 57. Rekstur og búseta
var í mörgum þessara húsa um
síðustu jól en fjórum mánuðum
síðar voru þau orðin skjól fyrir
útigangsfólk og slysagildrur fyrir
íbúa hverfisins. Eigendur
húsanna, sem mörg hver átti að
rífa, bentu á að mál þeirra strönd-
uðu iðulega innan borgarkerfisins.
Borgaryfirvöld brugðust við með
því að skipa aðgerðahóp um mið-
borg Reykjavíkur Hann gerði átak
í hreinsun og lagfæringum í mið-
borginni og hóf náið samstarf við
eigendur auðra húsa við að koma
þeim í notkun eða gera þau
mannheld.
Vandræði Orkuveitunnar
Í apríl úrskurðaði Samkeppnis-
eftirlitið að OR mætti ekki eiga
meira en þrjú prósent í Hitaveitu
Suðurnesja (HS) og því verður OR
að selja nær allan 16,6% hlut sem
hún á í dag og má auk þess ekki
eiga 14,65% hlut sem hún hafði
samþykkt að kaupa af Hafnarfirði.
Þetta hefur töluverða fjárhagslega
þýðingu fyrir þetta stærsta fyrir-
tæki í eigu borgarinnar. Ef OR
þarf að kaupa hlut Hafnfirðinga
þarf hún að greiða 7,6 milljarða
króna fyrir auk dráttarvaxta, sem
eru um fimm milljónir á dag, frá
10. mars síðastliðnum. Ef OR
neyðist til að selja hlut sinn er ljóst
að fyrirtækið tapar mörgum millj-
örðum króna á aðkomu sinni að
HS vegna þess að gengið á hlutum
í HS er mun lægra en það var þeg-
ar þeir voru keyptir.
Ekki bara vandræði
Þrátt fyrir öll vandræðin hefur
Kjartansstjórnin komið ýmsu í
verk sem er á stefnuskrá hennar.
Meðal annars hafa fasteignagjöld
verið lækkuð, þriggja ára rekstrar-
og framkvæmdaáætlun verið sam-
þykkt sem og tímasett aðgerða-
áætlun um uppbyggingu fyrir
reykvísk börn undir nafninu
Borgarbörn.
Kjartansstjórnin 100 daga á laugardaginn Erfiður tími en ýmsu komið í verk
Kjartansstjórnin Kjartan
Magnússon í bakgrunni.
➤ Í þjóðarpúlsi Gallup semkynntur var 1. mars naut
borgarstjórn Reykjavíkur
trausts aðeins 9% lands-
manna.
➤ Þetta er minnsta traust semnokkurn tíma hefur mælst í
könnunum Gallup.
RÚIN TRAUSTI
6 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir
Þegar Ólafur F. Magnússon
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son tilkynntu nýtt meiri-
hlutasamstarf kynntu þeir
einnig stefnuskrá. Hér að
neðan eru helstu atriði henn-
ar talin upp og tiltekið hvað
uppfyllt hefur verið á fyrstu
100 dögunum.
● Flugvöllurinn Ekki tekin
ákvörðun um flutning Reykja-
víkurflugvallar á kjör-
tímabilinu.
– Ákvörðun tekin um að
byggja upp flug- og samgöngu-
miðstöð í Vatnsmýri.
– Niðurstöður úr samkeppni
um framtíðarskipulag Vatns-
mýrar kynntar.
● Orkuveitan OR og orku-
lindir hennar áfram í almenn-
ingseigu.
– Fulltrúar allra flokka skrifuðu
undir niðurstöðu stýrihóps
vegna REI-málsins þar sem
kveðið var á um að OR yrði
áfram í 100 prósent eigu al-
mennings.
● Skattar Fasteignaskattar
lækkaðir á árinu.
– Fasteignaskattar hafa verið
lækkaðir um 5 prósent
● Laugavegur 19. aldar götu-
mynd Laugavegar og mið-
borgar varðveitt eins og kostur
er.
– Reykjavíkurborg keypti húsin
við Laugaveg 4-6 fyrir á 580
milljónir í þeim tilgangi að
koma í veg fyrir niðurrif þeirra.
● Sundabraut Staðarvali og
undirbúningi ljúki sem fyrst
svo framkvæmdir geti hafist.
● Umferðin Framkvæmdir
hefjist sem fyrst við mislæg
gatnamót Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar. Áhersla
lögð á öryggi gangandi og hjól-
andi vegfarenda í umferðinni.
– Útfærslur á mislægum gatna-
mótum hafa verið kynntar.
– Tillögur að bættum hjólreiða-
og göngustígum hafa verið
kynntar.
● Strætó Börn undir 18 ára
aldri, aldraðir og öryrkjar fái
frítt í strætó. Leiðarkerfið og
þjónusta við farþega bætt.
– Gert er ráð fyrir því í þriggja
ára áætlun borgarinnar að
aldraðir og öryrkjar fái frítt í
strætó.
● Aldraðir Hjúkrunarrýmum
og þjónustuíbúðum verður
fjölgað. Samþætt heimaþjón-
usta og heimahjúkrun verður
efld. Tekjumörk vegna nið-
urfellingar fasteignaskatta hjá
öldruðum og öryrkjum verða
hækkuð verulega.
● Félagsaðstoð Félagslegum
leiguíbúðum verður fjölgað
um 300 það sem eftir lifir kjör-
tímabils.
● Lóðarframboð lóða fyrir
fjölskyldur og atvinnurekstur
verður tryggt.
● Menntun Þjónusta leikskóla
og grunnskóla verður aukin og
faglegt og fjárhagslegt sjálf-
stæði þeirra styrkt.
- Aðgerðaráætlunin Borgarbörn
samþykkt.
● Öryggismál Auka á öryggi í
miðborginni.
● Menningararfur Átak verð-
ur gert í merkingu og varð-
veislu sögufrægra staða.
● Mengun Draga úr mengun í
borginni.
MÁLEFNI MEIRIHLUTANS
Þótt málefni Reykjavík Energy
Invest (REI) hafi orðið til þess að
sjálfstæðismenn misstu völdin í
borginni síðastliðið haust þá fer því
fjarri að málið hafi verið leyst.
Skýrsla stýrihóps um málefni
fyrirtækisins var gerð opinber 7.
febrúar og í henni segir að „stýri-
hópurinn telur eðlilegt að REI
verði áfram rekið með það hlutverk
að sinna þróunar- og fjárfesting-
arverkefnum á erlendri grund og
það verði í 100% eigu OR“. Þver-
pólitísk sátt var um þessa niður-
stöðu. Viku síðar var tillaga sama
efnis afgreidd á eigendafundi OR.
Kjartan Magnússon var síðan kjör-
inn stjórnarformaður REI og Ásta
Þorleifsdóttir varaformaður. Við
það tilefni sagði Kjartan í sjón-
varpsviðtali að það væri ekki inni í
myndinni að selja REI.
Fyrstu helgina í apríl héldu
helstu forsvarsmenn REI síðan í
vikulanga ferð til Afríku til að huga
að mögulegum verkefnum REI í
Djíbútí, Jemen og Eþíópíu.
REI-sárið opnast á ný
Vika er hins vegar langur tími í
pólitík og þegar REI-hópurinn
sneri aftur varð fljótlega ljóst að
ekki ríkti einhugur meðal sjálf-
stæðismanna um það sem hann
hafði verið að aðhafast í Afríku.
Kjartan Magnússon reið síðan
sjálfur á vaðið í viðtali við Kastljós
þar sem hann sagði koma til greina
að selja REI. Sú afstaða var þvert á
niðurstöðu stýrihópsins og það
sem Kjartan hafði sagt einum og
hálfum mánuði fyrr.
Gísli Marteinn Baldursson fylgdi
í kjölfarið daginn eftir og sagðist í
útvarpsviðtali vilja að REI yrði selt.
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri
gat þó ekki tekið undir orð sam-
starfsmanna sinna síðar sama dag
og sagði í Kastljósi að eignarhald
REI væri alveg klárt: „Það er í eigu
Orkuveitunnar og í eigu almenn-
ings.“ Daginn eftir var haldinn
stjórnarfundur í OR. Mikið hafði
verið rætt um að meirihlutinn ætl-
aði sér að leggja fram tillögu um
sölu á REI á fundinum. Fulltrúar
hans höfðu fundað kvöldið áður,
velt ýmsum tillögum fyrir sér og
sett nokkrar þeirra niður á blað.
Þegar á hólminn var komið var þó
lagt til að öll verkefni REI sem ekki
væru- ráðgjafar- og þróunarverk-
efni yrðu seld. Afgreiðslu tillögun-
ar var frestað en REI-sárið opnað-
ist upp á gátt á ný.
Enn er nóg eftir af REI-málinu
REI-málinu er ekki lokið þó að
líklega sé sigið á seinni hálfleik
þess. Stjórn OR á enn eftir að af-
greiða tillöguna um sölu verkefna
REI og mun slík afgreiðsla vænt-
anlega kalla á enn eina umræðuna
um hlutverk fyrirtækisins. Þá á
umboðsmaður Alþingis eftir að
skila sínu áliti á því sem átti sér stað
þegar reynt var að sameina REI og
Geysi Green Energy síðastliðið
haust. Því er ljóst að æsispennandi
lokamínútur eru framundan í einu
mesta hitamáli sem upp hefur
komið í íslenskum stjórnmálum
um árabil.
Málefni Reykjavík Energy Invest enn í aðalhlutverki í borginni
Seinni hálfleikur REI-mála
Elías Jón Guðjónsson
og Þórður Snær Júlíusson
FRÉTTASKÝRING
24stundir/Árni Sæberg