24 stundir - 01.05.2008, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
GE kæliskáparnir eru öflugir, endingargóðir og glæsilega innréttaðir
-hágæðaheimilistæki
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Amerískir GE kæliskápar
*Tilboðið gildir meðan birgðir endast.
GCE21LGWFS – Stærð: h 176 x b 90,9 x d 60,7 sm – Með ryðfríum stálhurðum
381 ltr. kælir og 173 ltr. frystir – Orkunotkun: A
TILBOÐ kr.: 219.900*
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
„Þeir sem komu inn á hjúkrunar-
heimili árið 1999 voru marktækt
hraustari en þeir sem komu inn á
öðrum árum. Líkleg skýring er að
skæður flensufaraldur gekk það ár-
ið svo að dánartíðni meðal aldr-
aðra var hærri.
Þar sem gömlu reglurnar for-
gangsröðuðu ekki fólki frá sjúkra-
stofnunum þýddi það að þeir sem
komu inn voru óvenju hraustir.“
Þetta segir Ingibjörg Hjaltadótt-
ir, lektor í hjúkrunarfræði við Há-
skóla Íslands og sviðsstjóri hjúkr-
unar á öldrunarsviði Landspítala,
en hún hefur rannsakað heilsufar
aldraðra við flutning inn á hjúkr-
unarheimili á árunum 1996-2006.
„Um áramótin voru teknar upp
nýjar reglur um val inn á hjúkr-
unarheimili sem lofa góðu. Núna
bíða aðeins um 40 sjúklingar á LSH
eftir hjúkrunarrýmum og hafa
aldrei verið eins fáir,“ segir hún.
Ingibjörg segir stærsta hóp
þeirra sem koma inn á hjúkrunar-
heimili koma að heiman. Næst-
stærsti hópurinn kemur svo af spít-
ölum.
„Maður hefði haldið að hlutfall
þeirra sem koma inn á hjúkrunar-
heimili af spítölum væri hærra í
Reykjavík en á landsbyggðinni en
svo er ekki á þessu tímabili.“
Gögn frá um 2200 manns
Notaðar voru upplýsingar úr
svokölluðu RAI-mati (heilsufars-
mat) þeirra einstaklinga sem fluttu
inn á hjúkrunarheimili á fyrr-
greindu tímabili. Þar sem mark-
miðið var að skoða heilsufar fólks
þegar það flutti inn á heimilin var
rannsóknin takmörkuð við þá sem
metnir voru innan níutíu daga frá
flutningi, en það eru 20-70% þeirra
sem voru RAI-metnir hvert ár.
Að sögn Ingibjargar ætti það að
vera nokkuð tilviljanakennt hverjir
eru metnir á þeim tíma og hverjir
ekki og því ætti úrtakið ekki að
vera skekkt í neina ákveðna átt.
Biðlistar aldrei styttri
Þeir sem fluttu inn á hjúkrunarheimili 1999 voru mun hraustari en þeir sem fluttu inn á
öðrum árum 40 bíða á LSH eftir plássi á hjúkrunarheimili og hafa aldrei verið færri
Doktorsneminn
Ingibjörg Hjalta-
dóttir➤ Rannsóknin er fjórðungurdoktorsrannsóknar Ingibjarg-
ar.
➤ Í hinum hlutunum skoðar húnheilsufar þessa hóps eftir því
sem líður á dvölina, hvaða
þættir stýra lífslengd fólks á
hjúkrunarheimilum og gæða-
viðmið fyrir hjúkrunarheimili.
DOKTORSRANNSÓKNIN
24 stundir/Valdís Thor
Ylfa Mist Helgadóttir, íbúi í Bol-
ungarvík, stóð fyrir mótmæla-
göngu í bænum kl. 18:30 í gær-
kvöld, frá húsi Soffíu Vagnsdóttur
að húsi Gríms Atlasonar og að lok-
um að ráðhúsinu. Vildi Ylfa með
því mótmæla að „hægt sé að ganga
framhjá gildum atkvæðum okkar
kjósenda og splundra virkri bæj-
arstjórn“ á forsendum sem henni
þykja „engan veginn skýrar né
haldbærar sem rök“. Göngunni var
ekki lokið þegar blaðið fór í prent-
un en fyrir gönguna sagði Ylfa að
þótt hún gæti ekki metið hve stór
gangan yrði væri ljóst að hún
myndi ekki ganga ein. „Viðbrögðin
hafa ekki staðið á sér enda margir
hérna reiðir,“ sagði hún.
thorakristin@24stundir.is
Nýrri bæjarstjórn mótmælt í Bolungarvík
Gengið gegn stjórn
„Ferðamannaiðnaðurinn væri
búinn að vera sem atvinnuvegur á
þessari eyju ef eldurinn bærist í
þjóðgarðinn,“ segir Jörundur Guð-
mundsson, sem starfar sem leið-
sögumaður á La Gomera þar sem
skógareldar geisa.
„Þegar fóru að koma reykjar-
bólstrar yfir fjallgarðinn skammt
frá staðnum sem við búum á og við
fundum reykjarlykt, fórum við að
hafa varann á okkur. En mest höf-
um við orðið vör við eldinn vegna
þess að við sjáum svo margar
slökkviliðsflugvélar sem steypa sér
niður í höfnina og fylla belginn af
sjó, fljúga svo yfir fjallgarðinn og
ofan í dalinn þar sem eldurinn er,“
segir Jörundur.
Þá segist hann hafa séð eldinn er
hann fór með 30 manna hóp Ís-
lendinga í rútuferð um eyjuna í
vikunni.
La Gomara er næstminnsta
eyjan í Kanaríeyjaklasanum, en þar
búa um 22 þúsund manns. Á síð-
asta ári heimsóttu um 600 þúsund
ferðamenn eyjuna, flestir að sögn
Jörundar til að skoða þjóðgarðinn.
„Hann hefur verið á heimsminja-
skrá UNESCO í fleiri áratugi, enda
er þetta yfir þúsund ára gamall
regnskógur og einn af fáum silf-
urregnskógum sem eftir standa.
Yfirvöld segjast vera búin að ná
tökum á eldinum og að þjóðgarð-
urinn sé ekki í hættu. En ef vind-
áttin breytist veit maður aldrei
hvað gerist.“
Jörundur segist ekki hafa orðið
var við að íbúar væru áhyggjufullir
vegna eldanna. „Þeir eru ósköp
æðrulausir og rólegir. En það er
búið að flytja yfir 600 manns af
heimilum sínum, svo að flestir íbú-
ar eiga vini eða ættingja sem hafa
lent í því.“ hlynur@24stundir.is
Jörundur er leiðsögumaður á La Gomera
Starfið í hættu
vegna skógarelda
Einkaskjalasafn Bjarna Bene-
diktssonar, fyrrverandi borg-
arstjóra og forsætisráðherra,
var í gær afhent Borg-
arskjalasafni Reykjavíkur til
varðveislu og eignar. Ólafur F.
Magnússon borgarstjóri og
Björn Bjarnason, fyrir hönd
erfingja, skrifuðu undir samn-
ing þess efnis í gær, þegar 100
ár voru liðin frá fæðingu
Bjarna.
Í fréttatilkynningu kemur
fram að skjalasafnið spannar
allt frá æskudögum Bjarna til
dauðadags hans. Um er að
ræða bréfa- og málasafn frá
pólitískum ferli hans, auk
tímans þegar hann var rit-
stjóri Morgunblaðsins, lög-
maður og prófessor. hos
Bætist í Borgarskjalasafn
Fær einkaskjöl
Bjarna Ben.